Morgunblaðið - 08.08.1985, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGCST 1985
15
ÆSÍ og „Heims-
mót æskunnar“
eftir Guðmund
Magnússon
Halda mætti, að fulltrúar í
framkvæmdaráði Æskulýðssam-
bands íslands væru ekki læsir. í
athugasemd frá þeim hér í blað-
inu miðvikudaginn 7. ágúst er
fullyrt, að í grein undirritaðs um
„Heimsmót æskunnar" í Moskvu
í Morgunblaðinu 21. júlí hafi ver-
ið gefið í skyn að „Sovétmenn
hafi boðist til að greiða ferða-
kostnað [þátttakenda] að hluta
eða öllu leyti". Þetta er með öllu
ósatt. í grein minni var vitnað til
Árna Bergmann um það, að 20
fslendingar sæktu mótið á vegum
ÆSÍ og síðan sagt orðrétt: „Þar
[í grein Árna] kemur ekki fram
hver greiðir kostnað af mótinu."
Hér er hvorki eitt né annað gefið
í skyn, eins og læsir menn sjá að
bragði.
Framkvæmdaráð ÆSÍ sér
ástæðu til þess að verja aðild
sína að mótinu í Moskvu og gerir
gys að undirrituðum fyrir að
vekja athygli á því hér í blaðinu,
að um sé að ræða þrautskipu-
lagða áróðurssýningu Sovét-
stjórnarinnar. Orðin „áróðurs-
sýningar Sovétríkjanna" eru
höfð innan gæsalappa í athuga-
semdinni, væntanlega til að sýna
hversu fyndin og fjarstæðukennd
hugmyndin sé. Um skopskyn
ÆSÍ-manna ætla ég ekki að hafa
nein orð. Ég leyfi mér hins vegar
að benda á, að dómur minn um
mótið var byggður á mjög traust-
um upplýsingum um undirbún-
ing þess og fyrri mót af sama
tagi. Og það hefur nú komið í
ljós, að ég hafði rétt fyrir mér,
eins og t.d. hefur mátt lesa í er-
lendum fréttum Morgunblaðsins
undanfarna daga. Það er enn-
fremur samdóma álit vestrænna
stjórnarerindreka og frétta-
manna í Moskvu, að mótið hafi
fyrst og fremst verið áróðurs-
sýning Kremlverja. Það er einber
barnaskapur ÆSÍ-manna, að
halda að það hafi verið hugsað
sem saklaus vettvangur „fyrir
jafnaldra frá sem flestum Iönd-
um og menningarsvæðum heims"
til að hafa samskipti sin á milli.
Mótatimbur
óskast
Óska eftir aö kaupa mótatimbur 1x6 ca.
1000—1200 metra. Uppl. í síma 84924 eftir kl.
18.00.
Eftir nokkur ár finnst þér
þetta sófasett ennþá fallegra
MINK Vandaður þýskur sófi. Æ fj^ I Leður eða tauáklæði. Grind úr beyki. B r /Æ Einn margra sófa frá Leolux sem W A \ ! við seljum. Gæði fara aldrei úr tísku. ^ y <RISTJÓn SIGGEIRSSOn HF. .AUGAVEGI 13. REYKJAVIK. SIMI 25870
Gódan daginn! i
HINN FULLKOMNI HONDA ACCORD SEDAN EXS ER SVO
SANNARLEGA PENINGANNA VIRÐI. EFTIRFARANDI HLUTIR
FYLGJA ÞESSUM STÓRGLÆSILEGA BÍL:
Vökvastýri — plussklæðning — rafdrifnar rúöur — mið-
stýrð hurðalæsing — útvarp/segulband — klukka/daga-
tal — litaðar rúður — útispeglar, stillanlegir innanfrá —
bensín — og skottlok opnað inni — 440 lítra farangurs-
rými og margt fleira.
Komið og kynnið ykkur bíl hinna vandlátu.
Vatnagörðum 24, s. 38772
39460.