Morgunblaðið - 27.08.1985, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
190. tbl. 72. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Skýrsla um Rainbow
Warrior-málið:
Frönsk
stjórnvöld
saklaus
af spreng-
ingunni
P»rÍ8, 26. í(fúst AP.
f SKÝRSLU, sem franska ríkis-
stjórnin birti í dag, segir að franskir
embættismenn og njósnarar hafi
ekki ítt þátt í að sökkva Rainbow
Warrior á Nýja-Sjálandi, en þar kom
ekki fram hverjir hefðu staðið að
árásinni eða hvers vegna.
í skýrslunni eru niðurstöður
rannsóknar, sem franska stjórnin
skipaði að yrði gerð fyrr í þessum
mánuði á því hvort franska leyni-
þjónustan, DGSE, stæði bak við
árásina á Greenpeace-skipið.
Gaullistinn Bernard Tricot, sem
stjórnaði rannsókninni, sagði að
ekkert sem hann hefði séð eða
heyrt gæfi tilefni til þess að ætla
að einhver ráðherra landsins hefði
tekið ákvörðun um að valda tjóni á
Rainbow Warrior.
Tricot sagði einnig að sam-
kvæmt þeim upplýsingum, sem
hann hefði haft aðgang að, væri
enginn frönsku njósnaranna sex,
sem hefðu verið bendlaðir við mál-
ið, sekur um að hafa komið
sprengjunum fyrir á kili skipsins.
í skýrslu sinni viðurkennir Tric-
ot að verið geti að þeir sem hann
yfirheyrði hafi ekki sagt allan
sannleikann. Hann tekur fram að
hann hafi aðeins getað kynnt sér
skriflegar fyrirskipanir, en viti að
sjálfsögðu ekkert um munnlegar
skipanir, sem kunni að hafa fylgt
þeim. Hann bætti við að rannsaka
þyrfti málið frekar.
David Lange, forsætisráðherra
Nýja-Sjálands, lýsti furðu sinni á
niðurstöðum Tricots og sagði að
hann tryði því ekki að hæfur
rannsóknarmaður gæti komist að
þessum niðurstöðum.
Morgunblaðið/Friðþjófur
Metþátttaka í Reykja víkurmaraþoni
Keykjavíkurmaraþonhlaupið sem fram fór síðastliðinn sunnudag er fjölmennasta götuhlaup sem fram hefur
farið á íslandi. Fimm hundruð og tveir þátttakendur luku keppni. Fólk á öllum aldri mætti til leiks svo og
fatlaðir íþróttamenn. Mjög margir hlupu sér til ánægju og skemmtunar en svo voru aðrir sem tóku hlutina
alvarlega og lögðu hart að sér. Sjá nánar á íþróttasíðum.
Fyrsta handtakan í njósnamálinu:
Yfirmaður y-þýsku leyni-
þjónustunnar settur af?
Bonn, 26. ágúst AP.
EMBÆTTISMENN í vestur-þýska innanríkisráðuneytinu hafa
farið fram á að Heribert Hellenbroich, yfirmaður vestur-þýsku
leyniþjónustunnar, segi af sér, að sögn heimildarmanns úr stjórn-
inni.
Hellenbroich neitaði að
krefjast afsagnar Hans Joach-
ims Tiedge, sem flúði til
Austur-Þýskalands fyrir viku,
þótt yfirmenn gagnnjósnarans
vissu að hann hefði átt við
drykkjuvandamál að stríða og
fengið þunglyndisköst eftir að
kona hans lést af höfuðhöggi
fyrir þremur árum. Nú hefur
verið skipuð rannsókn á því
hvort Tiedge hafi verið valdur
að dauða hennar.
Ritari forseta Vestur-Þýska-
lands, Margarete Höke, var
handtekin á laugardag, grunuð
um njósnir í þágu Austur-
Þjóðverja. Hún hafði aðgang
að mikilvægum leyniskjölum.
Talsmaður innanríkisráðu-
neytisins sagði í dag þegar
handtaka Höke var tilkynnt að
hún gæti hafa valdið miklu
tjóni, en það jafnaðist þó ekki á
við skaðann sem Tiedge gæti
valdið.
Forseti Vestur-Þýskalands,
Richard von Weizsácker, gegn-
ir valdalitlu virðingarembætti,
en fær upplýsingar um öll mál-
efni ríkisstjórnarinnar.
Rannsókn var hafin í dag
vegna gruns, sem hefur fallið á
starfsmann skrifstofu vestur-
þýska hersins í Koblenz, en sá
annast innkaup á fullkomnum
tækjum og búnaði.
Njósnamálið kemur upp á
slæmum tíma fyrir Helmut
Kohl, kanslara, en stjórn hans
hefur aldrei átt jafnlitlu fylgi
að fagna og nú vegna þess að
ekki hefur tekist að draga úr
atvinnuleysi eða greiða úr öðr-
um innanríkismálum.
Noregur:
Tvísýnum
kosning-
um spáð
Ósló, 26. ágúsL Frá OélUrtUr*
MorKunblaúsiiis, J.E. Lsure.
Þingkosningamar í Noregi 9. sept-
ember verda hnífjafnar, ef marka
má fyrstu skoðanakönnun, sem birt
hefur verið um fylgi norskra stjórn-
málaflokka í yfirstandandi kosn-
ingabaráttu.
Samkvæmt könnuninni hefur
stjórnarandstaðan — Verka-
mannaflokkurinn, Sósíalíski
vinstri flokkurinn og Venstre —
49,9 prósenta fylgi, en stjórnar-
flokkarnir þrír — Hægri flokkur-
inn, Miðflokkurinn og Kristilegi
þjóðarflokkurinn — ásamt Fram-
faraflokknum 47,6 prósenta fylgi.
Verkamannaflokkurinn og Sósí-
alíski vinstri flokkurinn eru á
greinilegri uppleið samkvæmt
skoðanakönnuninni og haldi svo
sem horfir gæti Gro Harlem
Brundtland orðið næsti forsætis-
ráðherra Noregs í stað Káre Will-
ochs.
Nú er hiti kominn í kosninga-
slaginn eftir daufa byrjun. Stjórn-
arflokkarnir hafa gagnrýnt utan-
ríkisstefnu Verkamannaflokksins,
en utanríkisráðherraefni flokks-
ins er Einar Förde og hann er and-
vígur aðild Noregs að Atlants-
hafsbandalaginu.
Hægri flokkurinn hefur einnig
gagnrýnt „loforðapólitík" Verka-
mannaflokksins og sagt að ætli
flokkurinn að efna öll loforð sín
verði að auka skattheimtu í land-
inu um sem svarar 40 milljónum
norskra króna.
Loftbelgs-
farar heilir
á húfi
— eftir bað í Atlantshafi
Amsterdam, Falmouth, 26. ágúst. AP.
ÞREMUR hollenskum ævintýra-
mönnum var bjargað heilum á
húfi í dag eftir að loftbelgur
þeirra, Hollendingurinn fljúg-
andi, sprakk í loft upp og karfan
hrapaði í mitt Atlantshaf.
Hollendingarnir ætluðu að
setja hraðamet yfir Atlants-
hafið.
Loftbelgurinn hrapaði í sjó-
inn síðdegis um 1.400 km suð-
vestur af ströndum Irlands að
því er starfsmaður flugturns-
ins á Schiphol-flugvelli í Amst-
erdam sagði í dag. Belgurinn
var búinn neyðarsendi.
Starfsmaðurinn sagði að
áhöfn þotu frá Pan Am-flugfé-
laginu hefði heyrt neyðarkall
frá loftbelgnum.
Hollendingurinn fljúgandi
lagði af stað frá Nýfundna-
landi á sunnudag og var gert
ráð fyrir að hann lenti í norð-
urhluta Frakklands seint á
morgun, þriðjudag, eða
snemma á miðvikudag og hefði
það verið mettími.
Hollendingarnir voru teknir
upp í skip, sem átti leið hjá, og
voru við bestu heilsu.
Tveir karlmenn og ein kona
voru um borð í loftbelgnum.