Morgunblaðið - 27.08.1985, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 1985
Landsbankinn
ábyrgist endursölu
nýrra skuldabréfa
LANDSBANKINN auglýsti í
Morgunblaðinu á sunnudaginn
skuldabréf til sölu. í auglýsingunni
segir að hér sé um að ræða fyrsta
flokks verðtryggð skuldabréf sem
beri 4%vexti.
Þriðjungur
útafaksturs
og bflvelta
tengist ölvun
JÓN Helgason dómsmálaráðherra
sagði í Morgunblaðinu á sunnudag-
inn að þriðjung umferðarslysa á
landinu mætti rekja til ölvunarakst-
urs, og væri það ástæða þess að
hann hefði látið banna sölu bjórlík-
is. Vísaði Jón til samantektar um-
ferðarráðs, sem m.a. var birt frétt
um í Morgunblaðinu 23. júlí sl.
í þeirri frétt kemur fram að
fyrstu sex mánuði þessa árs hefur
bílveltum og útafakstri fjölgað
mjög eða úr 56 að meðaltali árin
1981—84 í 104 í ár. f 29 þessara
tilvika reyndust ökumenn vera
ölvaðir, eða nær þriðjungur. Að
sögn Óla H. Þórðarsonar hjá Um-
ferðarráði, hefur ekki verið tekið
saman hvert hlutfall ölvunarakst-
urs er í öðrum umferðarslysum en
útafakstri og bílveltum og engar
samanburðartölur eru til aftur í
tímann.
Að sögn Hauks Haraldssonar
fulltrúa á Fjármálasviði Lands-
banka íslands eru þetta skuldabréf
sem Tollvörugeymslan hf. gefur út
til verktaka sem byggir fyrir fyrir-
tækið, en Landsbankinn tekur að
sér sölu bréfanna. Þau eru tryggð
með veði í eignum Tollvörugeymsl-
unnar við Héðinsgötu og með
sjálfsskuldarábyrgð verktakans.
Bréfin eru til þriggja ára, með
einni afborgun á ári, þannig að þau
greiðast upp á þessum þremur
árum. Þau bera 4% vexti eins og
áður segir.
Nafnverð bréfanna er 100.000
krónur, en söluverð þeirra er
83.565 krónur. Ávöxtunarkrafan
er u.þ.b. 15%.
Haukur sagði að það sem væri
sérstakt við þessi bréf væri það
að Landsbankinn ábyrgðist endur-
sölu á þeim innan eins mánaðar
eftir að sölubeiðni berst. Söluverð
þeirra verður þá hið sama og á
hliðstæðum skuldabréfum.
INNLENT
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Róbert Viöar Hafsteinsson við hina nýju kartöflupökkunarvél sem hann hannaði og smíðaði.
Hannaði og smíðaði
nýja kartöflupökkunarvél
Selfoasi, 24. ágúst.
RÓBERT Viðar Hafsteinsson vélfræðingur á Selfossi hefur að fullu
hannað og smíðað kartöflupökkunarvél sem er mjög handhæg fyrir kart-
öflubændur. Kaupandi þessarar fyrstu vélar Róberts var bóndi í Villinga-
holtshreppi sem hyggst pakka framleiðslu sinni sjálfur.
Kartöflupökkunarvél Róberts
er með stiglausri hraðabreyt-
ingu, rafsegulskynjara sem
stjórnar magninu í pakkningun-
um og bandarísku færibandi sem
er það fullkomnasta sinnar teg-
undar og viðurkennt matvæla-
færiband þar í landi. Hliðar og
hlífar á vélinni eru úr trefja-
plasti og unnar í Fossplasti á
Selfossi. Það er ASEA-mótor
sem knýr vélina og vogin er
fengin úr frystihúsi.
Pökkunarvélin er mjög með-
færileg og auðvelt fyrir einn
mann að færa hana úr stað og
vinna við hana. Vélin vir.nur
þannig að kartöflunum er sturt-
að í hana, ofan á færibandið sem
flytur þær í trekt sem tengd er
voginni og þegar hæfilegt magn
er komið í trektina rýfur rafseg-
ulskynjarinn strauminn og færi-
bandið stöðvast en fer aftur af
stað þegar trektin hefur verið
tæmd.
„Ég hannaði þessa vél undir
amerískum áhrifum, með það
fyrir augum að hafa þetta auð-
velt,“ sagði Róbert. Hann sagði
að færibandið væri lykilatriði
vélarinnar og hún byggð utan
um það. Það er byggt þannig að
það getur ekki slúðrað eða farið
af sporinu sem er mikið öryggis-
atriði. Það er úr plasti og hleypir
í gegnum sig óhreinindum af
kartöflunum sem annars færu í
umbúðirnar og til neytandans.
Róbert sagðist hafa hannað
vélina að öllu leyti sjálfur og
smíðað mót til að framleiða hlíf-
arnar eftir. Hann sagðist hafa
skoðað margar gerðir pökkun-
arvéla og viljað betrumbæta þær
og einfalda. Það hefði komið til
af verkefnaskorti sem hann fór
út í þetta. „Ég greip í þetta þeg-
ar lítið var að gera, en er núna
tilbúinn að smíða fleiri svona
vélar reynist áhugi fyrir slíku,“
sagði Róbert Viðar sem rekur
vélsmiðjuna Ylfoss á Selfossi.
Sig. Jóns.
^ Morgunblaöið/Júlíus
Á VEIÐAR A NY
HVALVEIÐIBÁTARNIR þrír héldu til veiða á sunnu árin. Hins vegar eru áformaðar hvalveiðar í vísinda-
daginn. Innan fárra vikna lýkur síðustu eiginlegu skyni næstu fimm ár.
hvalvertíðinni hér við land, að minnsta kosti næstu
fjölmiðlafyrirtæki
FULLTRUAR Sambands íslenskra samvinnufélaga, Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja og Alþýðusambands íslands, mættust á fundi í gær
til að ræða möguleikann á sameiginlegu fjölmiðlafyrirtæki þessara aðila.
Að sögn Erlendar Einarssonar, forstjóra SÍS, voru þetta könnunarviðræð-
ur, þar sem engar ákvarðanir voru teknar. Hins vegar var ákveðið að
hittast aftur í næstu viku.
Viðræðurnar eru í framhaldi af
ályktun aðalfundar Sambandsins í
vor, þess efnis að Sambandið og
Kaupfélögin athuguðu hvort þau
hefðu aðstöðu til að koma upp
fjölmiðlafyrirtæki. ASf og BSRB
óskuðu síðan eftir viðræðum við
SfS um stofnun fjölmiðlafyrir-
tækis.
Aðspurður hvort þessar viðræð-
ur hefðu einhver áhrif á aðild
Sambandsins að ísfilm, sagði Er-
lendur: „Mér er ekki kunnugt um
það hafi verið teknar neinar
ákvarðanir um að selja hlutabréf
SfS í ísfilm."
Heímsókn forseta íslands tU Hollands:
Grænmðungar íhuga
mótmælaaðgerðir
ÞAÐ ER Ijóst að Greenpeace-sam-
tökin munu ekki leggja leið sína til
íslands aftur á þessu hausti, en skip
samtakanna, Síríus, kom til hafnar í
Amsterdam á föstudaginn var. Sam-
tökin munu ætla að fylgjast náið
með störfum Alþingis í vetur eftir að
það kemur saman, í von um að þar
verði þrýst á um breytingar á stefnu
íslendinga hvað varðar fyrirhugaðar
veiðar á hvölum í þágu vísinda.
Verði ekki um breytingar að ræða
hvað veiðarnar varðar munu græn-
friðungar örugglega ætla að leggja
leið sína hingað til lands næsta
sumar, til að vekja athyglu um-
heimsins á umræddum veiðum.
Enn eru mjög skiptar skoðanir
innan samtakana um efnahags-
þvinganir gagnvart fslendingum og
er Hollandsdeild Greenpeace til að
mynda andsnúin þeim. Lies Vedd-
er, talsmaður Hollandsdeildarinn-
ar, sagði í samtali við fréttaritara
Morgunblaðsins í Hollandi, Eggert
H. Kjartansson, að hún myndi
berjast gegn slíkum hugmyndum.
Hins vegar sagði hún að Holl-
andsdeildin ihugaði aö hafa mót-
mæli í frammi á meðan á opinberri
heimsókn Vigdísar Finnbogadótt-
ur, forseta íslands, í Hollandi
stendur. Heimsókn forseta fslands
til Hollands hefst 19. september
næstkomandi.
Sem fyrr er það deild Greenpe-
ace í Bandaríkjunum sem helst tal-
ar um að beita fslendinga við-
skiptaþvingunum á bandarískum
mörkuðum. Deild hvers lands um
sig er sjálfstæð og getur tekið
ákvarðanir um slíkar aðgerðir, án
samráðs við deildir annars staðar í
heiminum. Hins vegar eru samtök-
in í Bandaríkjunum nú mjög
önnum kafin vegna mótmælanna
gegn kjarnorkuvopnatilraunum
Frakka í Kyrrahafi. Það er því
fremur ólíklegt að nokkuð verði af
aðgerðum gegn íslendingum á
bandarískum viðskiptamörkuðum
þeirra, vegna fyrirhugaðra hval-
veiða í þágu vísinda.
Féll af hestbaki og
slasaðist alvarlega
UNG kona féll af hestbaki austur af
Stíflisdalsvatni síðdegis á sunnudag-
inn og hlaut slæma áverka á bjósti.
Þyrla varnarliðsins var kvödd á vett-
vang og flutti konuna í Borgarspítal-
ann, þar sem hún var lögð inn á gjör-
gæsludeild og var þar enn síðdegis í
gær.
Slysið átti sér stað um 5 km
austur af Stíflisdalsvatni, og var
konan þar á ferð með eiginmanni
sínum og fleira fólki. Var leitað
eftir aðstoð í sumarbústað í
grenndinni og hafði eigandinn
strax samband við Slysavarnarfé-
lagið og var ákveðið að kalla til
þyrlu frá varnarliðinu. Kom hún
skömmu síðar á vettvang 0g tók
eiganda sumarbústaðarins upp í og
leiðbeindi hann varnarliðsmönnum
á slysstað. Giftusamlega tókst að
koma konunni upp í þyrluna og
lenti þyrlan við Borgarspítalann
um sjöleytið.
SÍS, ASÍ og BSRB
í viðræðum um