Morgunblaðið - 27.08.1985, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 27.08.1985, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDÁGl^R 27. ÁGÚST 1985 14 Bregst ekki fremur venju Hljómplötur Siguröur Sverrisson Mannakorn í Ijúfum leik Fálkinn Plöturnar frá Mannakorni/um, jafnt langt og það er nú um liðið frá því síðasta breiðskífa þeirra fé- laga kom út, voru hér í eina tíð á meðal fárra íslenskra poppplatna, sem menn gátu keypti „blind- andi“, þ.e. verið vissir um gæðin án þess að þurfa að hlusta á plöt- una fyrst. Hér hefur engin breyt- ing orðið á þrátt fyrir langt hlé. í Ijúfum leik er afbragðs góð plata. Skipan Mannakorns/a hefur verið nokkrum breytingum und- irorpin á ferli sveitarinnar en þeir félagar Magnús Eiríksson og Pálmi Gunnarsson hafa þó verið eins og rauður þráður í gegnum feril hennar. Magnús sem hinn sífrjói laga- og texta- smiður og Pálmi sem hinn pott- þétti söngvari. Það er erfitt að fara að bera saman síðustu plötu Manna- korns/a og þessa nýjustu, til þess er of langt um liðið, en ég hygg að Magnús Eiríksson hafi ekki í annan tíma sent frá sér jafn gott safn laga og nú. Borið saman við t.d. Smámyndir frá 1982 er þessi langtum fremri á öllum sviðum. í ljúfum leik geymir 10 lög, sem eru hvert öðru betra. Ég vil ekki sofa einn og Þegar skipið sökk eru bæði frábær og lög á borð við í ljúfum leik, Horna- fjarðarblús, Á rauðu ljósi og Éldur, þar sem Magnús stelst reyndar í smiðju JJ Cale, eru litlu síðri. Ekkert laganna á plötunni er beinlínis slakt og það er nýlunda í íslenskri plötuút- gáfu. Hljóðfæraleikinn á plötunni þarf vart að tíunda, hann er hnökralaus enda valinn maður í hverju rúmi. Upptakan er í höndum Baldurs Más Arngríms- sonar og „sándið" yfirleitt ágætt. Þó stundum dálítið matt og eins er bassinn á köflum óþarflega sterkur. í ljúfum leik ber nafn með rentu. Nýtt keramik frá Giit Kvenna- helgi í Vindás- hlíð KVENNAHELGI verður haldin í sumarbúðum KFUK, Vindáshlíð í Kjós, dagana 30. ágúst til 1. sept- ember fyrir konur 17 ára og eldri. Biblíulestrar verða, kvöldvökur og á sunnudag klukkan 14.00 messar séra Gunnar Kristjánsson, sóknarprestur á Reynivöllum. Innritun fer fram til klukkan 16.30 í dag, þriðjudag, í húsi KFUM og K, Amtmannsstíg 2b, eða í síma 17536. GLIT er að setja á markaðinn nýtt keramik sem hefur hlotið nafnið „Hríslurnar". Hér eru á ferðinni handunnir listmunir, gljáhvítir og skreyttir með dökkum hríslu- myndum, vasar, skálar og aðrir munir. Það er hönnunardeild Glits sem hefur veg og vanda af þessari hönnun, sem er handunnin, brennd í keramik og steinleir og ætluð fyrir alla aldurshópa, segir í fréttatilkynningu frá Glit. Fyrirliggjandi í birgðastöð STANGA' Fjölbreyttar stæröir og þykktir Vinkiljárn L Ferkantað járn B Flatjárn _ Bakjárn a Sívalt járn # SINDRAi .STÁLHF Borgartúni 31 sími 27222 Um útflutning á dilkakjöti Gunnari Páli Ingólfssyni svarað — eftir Magníis G. Friðgeirsson í tilefni greinar Gunnars Páls Ingólfssonar í Morgunblaðinu föstudaginn 23. ágúst varðandi útflutningsmöguleika á íslensku dilkakjöti til Bandaríkjanna vill Búvörudeild Sambandsins koma eftirfarandi á framfæri. 1. Hnjóðsyrði greinarhöfundar í garð Búvörudeildar og starfs- manna hennar, sem að útflutn- Bretlandi - og hefur megnið af útfluttu kjöti farið á þá markaði æ síðan, eða í 15 ár. Jafnbest verð hefur jafnan verið í Fær- eyjum, en þangað var einnig hægt að selja svið, sem aðrir markaðir vildu ekki. Slakast verð hefur verið meðal Efna- hagsbandalagsríkja en kröfur þeirra til fullkomleika slátur- húsa eru ofan í kaupin ein- hverjar þær hörðustu sem um getur. 4. Þrátt fyrir ieyfisveitingar á dilkakjötinu til Norðurlanda rOSTUDAGliiv Skollaleikur forstjóra búvörudeildarinnar .ft' Pftl og fremst farin ti! aö Rera vett- sem forstjóri búvörude1’ — emr Irlinnar rai vangskönnun á dilkakjöU fram aö þvi er virtir' Ingólfsson markaönum í Bandarikjunum ok hönd, vil ég aev'~ hvort nokkrar tálmanir jwetu «>— 'ilr„r ingsmálum hafa staðið, svo og meint ummæli bandarískra kjötkaupmanna, eru greinar- höfundi ekki til álitsauka, né heldur innlegg í málefnalega umræðu um útflutningsvanda íslendinga á því magni dilka- kjöts sem er umfram innan- landsneyslu. Mun Búvörudeild því leiða slíkt karp hjá sér. 2. Varðandi hinn almenna vanda er það að segja, að allt til ársins 1970 fékkst viðunandi verð fyrir alla umframframleiðslu ís- lensks dilkakjöts í Bretlandi og var verðið sambærilegt við verð nýsjálenska kjötsins eða nokkuð hærra, ef tekið er tillit til flutn- ingskostnaðar. 3. Eftir margra ára eftirleitan tókst loks á árinu 1970 að fá innflutningsleyfi á íslensku dilkakjöti til Norðurlanda - á miklu hagstæðara verði en í voru ávallt kannaðir möguleik- ar á að selja dilkakjötið til annarra markaða svo sem til Efnahagsbandalagsríkja allra, Bandaríkjanna, Japan og víðar - jafnvel sendir sérstakir erind- rekar til Mið-Austurlanda í markaðsleit, en því miður hefur eftirtekjan orðið Sambandinu mikil vonbrigði, því sáralítið magn hefur selst út fyrir Norð- urlönd. 5. Tilraunir með útflutning á kældu dilkakjöti til Danmerkur og Hollands, ásamt sérskornu og pökkuðu kjöti til Bandaríkj- anna hefur heldur ekki gefið góða raun til þessa. Segja má að nokkuð auðvelt sé að selja á þessum markaði en ekki hefur náðst viðunandi verð ef tekið er tillit til þess tilkostnaðar sem á vöruna fellur vegna stykkjun- ar og pökkunar. Verð þarf ávallt Þessir krakkar María Gestsdóttir, Salome Huld Garðarsdóttir, Karl Jóhann Garðsson og Valgeir Gestsson, efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Hjálparsjóó Rauða kross Islands. Þau söfnuðu rúmlega 530 krónum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.