Morgunblaðið - 27.08.1985, Page 38

Morgunblaðið - 27.08.1985, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 1985 Móöir okkar. t MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR frá Pélmarshúsi, Stokkseyri, lést laugardaginn 24. ágúst á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. Oddný og Erla Þorkelsdætur. t JÓNA HANNESDÓTTIR, Hólum, Stokkseyrarhreppi, andaöist á heimili sinu þann 23. ágúst. Helgi fvarsson, Guófinna Hannesdóttir, Dagur Hannesson. t Hjartkæri eiginmaöur minn EIRÍKUR GUÐMUNDSSON, bóndi, Meltúni, Mosfellssveit, andaöist á heimili sínu 24. ágúst. Sigríöur Þórmundsdóttir. t Kona mín, ERLA AXELSDÓTTIR, Litlubæjarvör 2, Álftanesi, andaöist í Landspítalanum aö kvöldi sunnudagsins 25. ágúst. Fyrir hönd vandamanna. Einar Ingimundarson. t Maöurinn minn, faöir okkar og afi HARALDUR BJÖRN PÉTURSSON, bryti, Digranesvegi 44, Kópavogi veröur jarösunginn frá Kópavogskirkju miövikudaginn 28. ágúst kl. 13.30. Katrín Líkafrónsdóttir, Sigurður H. Haraldsson, Helena Svavarsdóttir, Ægir Haraldsson og Katrin Siguróardóttir. ■ Bróöir okkar og mágur, t GARÐAR EINARSSON fré Seyöisfiröi, er andaöist í Borgarspítalanum aö morgni 20. ágúst, veröur jarö- sunginn frá Fossvogskapellu miövikudaginn 28. ágúst kl. 15.00. Guölaug Einarsdóttir, Einar Jónsson, Eínar Björn Einarsson, Rósa Einarsdóttir, Birna Einarsdóttir, Anna Ólafsdóttir, Sigurveig Einarsdóttir, Matthías Guömundsson, Aöalsteinn Einarsson, Ingibjörg Sigurgeirsdóttir, Ingi Einarsson, Karen Karlsdóttir, Einína Einarsdóttir, Sverrir Olsen, Hallsteinn Friöþjófsson, Vífill Friðþjófsson. Steinunn Vigfúsdóttir, Legsteinar Framleiðum ailar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina. S.HELGASON HF STEINSMHUA SKEMMUÆGI 4Ö SiMi 76677 Minning: Knut Helland Stutt er milli lífs og dauða. Þessi hugsun laust mig þegar ég frétti andlát vinar mins, Knut Hellands. Knut Helland varð bráðkvaddur á ferðalagi á Hvammstanga aðfar- andi nótt sunnudagsins 18. ágúst. Jarðarför hans fer fram frá Kópa- vogskirkju í dag, þriðjudaginn 27. ágúst kl. 13.30. Það var fyrir réttum tveim vik- um, sem við hjónin heimsóttum Knut og Droplaugu konu hans á hlýlegt heimili þeirra að Hraun- tungu 71 í Kópavogi. Knut var þá hress að vanda. Ræddi fram og aftur um framtíðina því nú stóð hann á tímamótum. Hann var að láta af störfum hjá Ríkisspítölun- um sakir aldurs. Hann varð sjö- tugur á síðastliðnu ári, en ekki var að heyra neinn uppgjafartón hjá honum. Nú ætlaði hann að snúa sér að verkefnum, sem höfðu orðið viðskila og ekki unnist tími til þess að snúa sér að sakir langs vinnudags. Starfsgleðin lýsti af þessum „unga manni“. En þetta varð okkar síðasta stund. Við vissum ekki þá að enn stærri tímamót lífs hans væru á næsta leiti. Knut Helland fæddist þann 6. nóvember 1914 í Modalen, minnsta hrepp Noregs, sem liggur litlu norðan við Bergen. Knut var næst- elstur af 12 systkinum og sá fyrsti úr þessum stóra hópi, sem nú kveður að sinni. Foreldrar Knuts voru þau Inga og Knut Helland, bændafólk, sem bjó á meðalstórri jörð á norskan mælikvarða. Afrakstur búsins var mjólk, kjöt og timbur til smíða og eldiviðar, sem sótt var í skóginn í fjöllunum. Á milli æskuheimila okkar Knuts var stuttur vegur og vorum við samskóla um nokkurt skeið. f skóla kom strax í Ijós að Knut átti létt með nám og var það undravert þegar hann kom til fs- lands hvað hann náði góðum tök- um á islenskunni. Eftir skólagöngu stundaði Knut um tíma sveitastörf og létti undir með barnmörgu heimili foreldra sinna. Á þessum árum skildu leið- ir okkar, en ég fluttist til íslands. En stuttu eftir komu mína hingað barst mér bréf frá Knut Helland þar sem hann lét í ljósi mikinn áhuga fyrir að koma til fslands og vinna. Á þessum árum hafði ég umsjón með refabúi á Hvammstanga og réð ég því Knut strax til starfa við það. Knut kom til landsins haustið 1935. Það fór fyrir Knut eins og svo mörgum útlendingum, sem ætla í fyrstu að gera stuttan stans, hann hreifst af landinu og ekki síður af fólkinu. Aftur varð ei snúið. ís- land varð upp frá þessu hans fóst- urland. Á Hvammstanga starfaði Knut síðan um þriggja ára skeið. Þá réðst hann eitt ár að refabúi að Þorkelshóli í Víðidal og það var þar sem hann hnýtti hin endan- legu bönd. Handan Víðidalsár móti Þor- kelshóli stóð bærinn Síða. Knut varð sér fljótt úti um vöðlur þó menn vissu ekki að hann væri áhugasamur laxveiðimaður, en hitt vissu menn að á Síðu var góð- ur kvenkostur ólofaður. Það var svo að Melstað í Mið- firði, sem séra Jóhann Briem gaf þau saman þann 13. júli 1941, Knut Helland frá Modalen og heimasætuna af Siðu, Droplaugu Guttormsdóttur. Svo segja má að brúði sína hafi Knut Helland sótt á vöðlum. Ættir Droplaugar kann ég ekki að rekja en hún er bróðurdóttir hins kunna athafnamanns Páls Stefánssonar frá Þverá, sem flest- ir eldri Reykvíkingar kannast við. Samvistir þeirra hjóna voru far- sælar. Reglusemi og glaðværð ein- kenndu heimilislífið og þeim varð 2 dætra auðið: Birgit, gift Hreini Frímannssyni verkfræðingi, og Inga, gift óskari Þormóðssyni verkstjóra. Barnabörn þeirra eru nú orðin 6. Árið 1942 fluttust hjónin til Siglufjarðar, þar sem Knut starf- aði fyrst við minkabú en síðan er það var lagt niður vann hann ýmis störf er til féllu. Frá Siglufirði lá síðan leiðin til Ingólfsfjarðar en eftir þriggja mánaða dvöl þar fluttust þau svo til Reykjavíkur og réðst Knut þá til starfa við húsa- t Móöir okkar, SVAVA MARÍN GUÐMUNDSDÓTTIR, Keldulandi 11, sem andaöist 19. ágúst, veröur jarösungln frá Bústaöakirkju miövikudaginn 28. ágúst kl. 13.30. Fyrir hönd tengdabarna og barnabarna, Gréta Ástráösdóttir, Anný Ástráösdóttir, Jónas Ástréösson. t Innilegar þakkir og kveöjur sendum viö þeim er sýndu fjölskyldum okkar vinsemd og hlýhug viö andlát og jaröarför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu PÁLÍNU BERGSDÓTTUR, Hólavegi 1, Sauöárkróki. Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki Sjúkrahúss Skagfiröinga fyrir góöa umönnun. Ingíbjörg Pálsdóttir, Sigmundur Pálsson, Guölaug Gísladóttir, Jóhanna Pálsdóttir, Björgvin Hilmarsson, Bragi Pélsson, Guörún Þórarinsdóttir, Sigurlaug Gunnarsdóttir, Garöar Guöjónsson, barnabörn og fjölskyldur þeirra. t Þökkum auösýnda samúö viö andlát og jarðarför. KETILS TRYGGVASONAR, Halldórsstööum 2, Báröardal. María Kristjánsdóttir og börn. smíðar hjá svila sínum, Hervin Guðmundssyni. Um mörg ár vann Knut síðan við stækkun Landspítala íslands og á þeim árum hóf hann nám við Iðnskólann og las utanskóla með vinnu undir próf í iðn sinni. Á lokaprófi var hann svo með bestu nemendum þó aldrei hefði honum fallið dagur frá vinnu til lestrar. En hvað skemmtilegast var þó að Norðmaðurinn frá Modalen var meðal bestu nemandanna sem út- skrifuðust í íslensku það árið. Seg- ir það meira en annað um ágæta íslenskukunnáttu hans. Sveins- prófið tók Knut árið 1962. Árið 1965 réðst Knut til starfa hjá Ríkisspítölunum og gerðist hann upp frá því eftirlitsmaður við Kópavogshælið og sá um við- hald á eignum þess. Mér er kunnugt um það að Knut var afburða starfsmaður, enda átti hann kyn til, vandvirkur og hjálpsamur. Honum veittist auð- velt að vinna með öðrum og leiða í verki. í meira en fjögur ár var Knut í heimili hjá okkur hjónum á Hvammstanga. Reyndist hann okkur í hvívetna afburðavel, barngóður svo af bar og góð fyrir- mynd þeirra, sem voru að vaxa úr grasi. Knut var ættrækinn og heim- sótti hann fæðingarsveit sína reglulega og hélt hann stöðugu sambandi við foreldra sína og systkin. Hugur þeirra er nú hér er sá fyrsti úr stórum hóp kveður að sinni. Það er margt furðulegt í þessari veröld. En spyrja má, er það til- viljun að Knut Helland kveður þetta líf á Hvammstanga þar sem hann markaði sín fyrstu spor sem ungur maður og hvar hann höndl- aði sína mestu gæfu er hann gekk að eiga sína ástkæru eiginkonu Droplaugu fyrir 44 árum? Þessu verður ekki svarað... En Knut var góður drengur í orðsins fyllstu merkingu. Við vinir hans söknum hans, fjölskyldan sér á bak góðum föður og vini. Við hjónin sendum eiginkonu og fjölskyldu hans okkar innilegustu samúðarkveðjur. Við biðjum Guð að styrkja þau á þungri stund og blessa minningu vinar okkar Knuts Hellands frá Modalen. Einar Farestveit Blómmtofa FriÖjinns Suðurlandsbrairt 10 108 Reykjavfk. Sími 31099 Opið öll kvöld tll kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar víð öll tilefni. Gjafavörur. ,|r

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.