Morgunblaðið - 27.08.1985, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 1985
íslandsmeistarakeppnin í rallakstri:
Níu ökumenn
eiga möguleika
á titlinum
STAÐAN í íslandsmeistarakeppninni í rallakstri er fremur óljós, þó aöeins
tvö mót af sex séu eftir, þ.e. Ljómarallið og Haustrallið. Tveir af efstu
ökumönnum keppninnar geta ekki keppt á næstunni og þetta veldur því að
fjölmargir ökumenn eiga nú óvænt góða möguleika á titlinum.
Ásgeir Sigurðsson er efstur að
j'v stigum í Islandsmeistarakeppn-
inni með 44 stig, en hann hefur
ekið Ford Excort í ár og ekið
grimmt. Ef ekki væri fyrir óhapp í
Húsavíkurrallinu í júlí væri hann
nú líklegastur til að næla í titil-
inn. En eftir að hafa náð öruggri
forystu í Húsavíkurkeppninni ók
hann útaf, fór fjórfalda veltu og
keppnisbíll hans gjöreyðilagðist.
Situr hann því eftir með sárt enn-
ið og þarf hugsanlega að horfa á
eftir titlinum vegna bílleysis,
a.m.k. ef helstu keppinautar hans
standa sig vel í næstu keppni. „Ég
get ekkert gert fyrir Ljómarallið
vegna peningaleysis, ef ég reynist
eiga möguleika eftir þá keppni, þá
leigi ég bíl í Haustrallið," sagði
Ásgeir í samtali við Morgunblaðið.
Einn helsti keppinautur hans
um titilinn er einnig ófær um að
keppa. Þar er Ómar Ragnarsson,
sem hefur verið frá keppni vegna
meiðsla er hann hlaut er hann var
að skemmta áhorfendum á Broad-
way í sumar. Þrátt fyrir vilja og
þótt hann hafi reynt að finna ýms-
ar leiðir til að keppa virðast hon-
um allar bjargir bannaðar. Ómar
hefur 35 stig til íslandsmeistara-
titils en hann er núverandi hand-
hafi hans. Tveimur stigum meira
en ómar hefur Þórhallur Krist-
jánsson á Talbot Sunbeam Lotus.
Hann er sá sem hefur pálmann í
höndunum, er efstur þeirra sem
geta keppt. Ef hann skilar sér
sæmilega áfram í Ljómarallinu
gæti hann hæglega orðið ís-
landsmeistari, þó hann hafi ekki
verið alfljótasti ökumaður ársins.
„Ef það gengur vel í Ljómanum,
þá fer maður að spá í íslands-
meistaratitilinn. Ég er ofar en ég
átti von á því mér hefur ekki fund-
ist ganga neitt sérstaklega vel.
Ómar væri langefstur ef hann
hefði verið með í allt sumar,“
sagði Þórhallur.
Með 30 stig er Birgir Bragason,
sem ekið hefur heldur ófrýnilegri
og gamalli Toyota Corolla. Hann
hefur skilað bílnum í tvígang í
annað sætið þó bíll hans sé ekki sá
besti. Ekki er ljóst hvort hann
keppir meira, en möguleikar hans
eru góðir. „Tölfræðilega á ég enga
Efstur í fslandsmeistarakeppni rallökumanna, en bfllaus í næstu keppni er Ásgeir Sigurðsson. Hann gjöreyðilagði
Escort keppnisbfl sinn í Húsavíkurrallinu eftir að hafa náð forystu. Hér huga viðgerðarmenn hans að bílnum.
möguleika, en þetta er spurning
um að hafa bíl í góðu ástandi, því
Ljómarallið er erfitt," sagði Birg-
ir. Maðurinn sem allir áttu von á
að myndi sópa að sér verðlaunum í
keppnum ársins kemur næstur
með 26 stig, en það er Bjarmi Sig-
urgarðarsson. Hann hefur ekið
Talbot Sunbeam Lotus, sigrað
einu sinni en önnur mót hafa verið
líkust martröð fyrir hann vegna
bilana og annarra óhappa. Bjarmi
er þó manna líklegastur til að
standa sig í Ljómarallinu. Ef allt
gengur upp í lokakeppnunum
tveimur gæti titillinn hæglega
lent í höndum hans.
Á eftir Bjarma koma þrír öku-
menn í einum hnapp. Óskar Ólafs-
son á Escort, Þorsteinn Ingason á
Toyota Corolla og Jón Ragnarsson
á Éscort, þeir hafa allir 20 stig.
„Ég er ekkert að hugsa um ís-
landsmeistaratitilinn, heldur ætla
ég að vinna Ljómann. Ég held að
ég eigi enga möguleika í titilinn,"
sagði Þorsteinn.
En það eru ekki aðeins ökumenn
sem fá stig til íslandsmeistara,
aðstoðarökumenn fá slíkt hið
sama. Þar er fyrstur Pétur Júlí-
usson með 44 stig, en engan bíl til
að sitja í lengur. Sigurður Jensson
hefur 37 stig, ekur með Þórhalli.
Jón Ragnarsson er með 35 stig, en
er farinn að aka sjálfur, þannig að
stigin verða ekki fleiri. Gestur
Friðjónsson hefur 30 stig eftir að
hafa ekið með Birgi Bragasyni.
Síðan koma fjórir aðstoðaröku-
menn með 20 stig, Árni Óli Frið-
riksson, Birgir Viðar Halldórsson,
Rúnar Jónsson og Sighvatur Sig-
urðsson.
Til að glöggva lesendur á stöð-
unni má geta þess að fyrir sigur fá
ökumenn og aðstoðarökumenn 20
stig, annað sæti 15, þriðja 12,
fjórða 10, fimmta 8, sjötta 6 og
síðan færri stig fyrir næstu sæti á
eftir. G.R-
Jón Ragnarsson útskýrir eigin aksturstfl fyrir bróóur sfnum Omari. Ómar veröur að láta sér slíkt
nægja í næstu keppni, a.m.k. ef hann fer að læknisráði vegna meiðsla á hálsi. Jón er ofarlega
bæði í keppni ökumanna og aðstoðarökumanna.
Morgunblaðið/GunnlauKur Rögnvaldsson
Af þeim sem geta keppt eru Þórhallur Kristjánsson og Sigurður Jensson efstir til íslandsmeistara
ökumanna og aðstoðarökumanna.
Fyrirliggjandi í birgðastöð
Stál 37.2 DIN 17100
Þykktir 3.0-50 mm. Ýmsar stærðir, m.a.
1000x2000 mm
1500x3000 mm
1500x5000 mm
SINDRA
STALHF
Borgartúni 31 sími 27222
„Nýja keppnissvæð-
ið skemmtilegt“
— sagði sigurvegarinn
Jón Hólm
„MÉR FANNST draga heldur í
sundur með okkur Jóni, þegar ég
var kominn með forystu. Er ég var
kominn með gott forskot ók ég af
öryggi og tók enga áhætta. Það hefði
verið nóg að gera eina vitleysu í
akstri til að missa fyrsta sætið,“
sagði sigurvegarinn, Jón Hólm, í
samtali við Morgunblaðið aðspurður
um keppnina í úrslitariðlinum, þar
sem helsti kcppinautur hans var
nafni hans Jón Ragnarsson.
„Þetta var ágætt, þ.e. að sigra.
Ég var reyndar heppinn að slátra
ekki vélinni í byrjun þegar nær
öll vélarolían fór af bílnum í und-
ankeppninni. Það kviknaði rautt
ljós í mælaborðinu þannig að ég
stoppaði. Eftir viðgerð gat ég síðan
haldið áfram. Brautin var mjög
þung í lokin, en nýja svæðið sem
keppnin fór fram á er skemmtileg.
Það mættu þó vera fleiri „spitt-
kaflar“,“ sagði Jón.
MorKunblaAið/Gunnlaugur RðgnvaldsBon
• Jón Hólm fagnar sigri í Svala-
rally-crossinu á sunnudaginn.
Hann vann eftir að litlu munaði
að hann dytti úr keppni í undan-
keppninni er öll olían fór af vél
VW-keppnisbíls hans.