Morgunblaðið - 11.09.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1985
3
Nauðungaruppboði Þör-
ungavinnslunnar frestað
— fyrirtækið gengur vel í augnablikinu, segir
framkvæmdastjórinn, Kristján Þór Kristjánsson
AUGLÝSTU fyrsta nauöungaruppboöi á eignum Þörungavinnslunnar á
Reykhólum, sem fram átti að fara á mánudaginn, var frestaö til 21. október
nk. Uppboöiö átti að fara fram að kröfu Iönþróunarsjóös, en fyrirtaekiö
skuldar sjóðnum um 50 milljónir króna og þar af eru 20 milljónir í vanskilum.
„Málið fór óvart þessa leið, en ekki velt yfir á ríkið aftur, og þá
uppboðinu hefur nú verið frestað
og við væntum þess að framtíðar-
lausn á vandamálum Þörunga-
vinnslunnar liggi fyrir áður en til
uppboðs kemur," sagði Kristján
Þór Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri Þörungavinnslunnar, í sam-
tali við Morgunblaðið.
„Það þarf að fá svar við því hvort
og þá hvernig eigi að reka fyrir-
tækið í framtíðinni, hvort heima-
menn eigi að reka það, eða ríkið,
eða hvort leggja eigi fyrirtækið
niður. Þetta eru þær spurningar
sem menn eru að velta fyrir sér,
eins og kunnugt er,“ sagði Kristján
Þór.
Ríkið á 97% í Þörungavinnsl-
unni, en í vor samþykkti Alþingi
lög sem gera heimamönnum kleift
að yfirtaka rekstur fyrirtækisins
með því að leggja fram tiltekið
hlutafé, 11,5 milljónir króna. Að
sögn Inga Garðars Sigurðssonar,
stjórnarmanns í undirbúnings-
stjórn heimamanna, hefur hluta-
fjáröflun legið að mestu niðri
undanfarið, en hann sagðist búast
við að fljótlega kæmist skriður á
það mál að nýju. En um hugsanleg
kaup heimamanna á verksmiðj-
unni hefur enn ekki verið rætt við
iðnaðarráðuneytið, að sögn Inga
Garðars.
Kristján Þór sagðist persónu-
lega vera þeirrar skoðunar að
heimamenn ættu að flýta sér hægt
í þeim efnum að taka fyrirtækið
yfir. „Það verður að búa þannig
um hnútana að vandanum verði
á ég við að það verði að létta áhvíl-
andi skuldum af fyrirtækinu og
lagfæra markaðsmálin," sagði
Kristján Þór.
Kristján sagði að rekstur fyrir-
tækisins gengi allvel í augnablik-
inu. Þótt einungis hefði tekist að
selja um 800 tonn af þangmjöli á
fyrri helmingi ársins væru góðar
líkur á því að það tækist að selja
3000 tonn á árinu ðllu.
„Frá öndverðu höfum við átt við
þrjú meginvandamál að stríða. í
fyrsta lagi öflunina, í öðru lagi
þurrkunina og loks sölumálin. Eg
tel að við höfum náð tökum á
tveimur fyrrnefndu atriðunum, en
nú þurfum við að leggja allt kapp
á sölumálin," sagði Kristján Þór
Kristjánsson.
Ný stálbitabrú smíðuð á Bjarnardalsá
Ljósmynd/AS
Nýlega hófust framkvæmdir viö brúarsmíði á veginum um Bröttubrekku yfir Bjarnardalsá. Þar er fyrir brú, sem
talin er ónýL Steyptar hafa verið undirstöður í botni gljúfursins, en nýja brúin verður stálbitabrú meö steyptu
gólfi.
Pétur Óli Hansson
íslendingur
opinber
saksóknari
í New York
UNGIIR íslenskur lögfræðingur,
Pétur Óli Ilansson, hefur verið ráö-
inn í sveit opinberra saksóknara í
New York borg. Hann veröur á
skrifstofu yfirsaksóknara borgarinn-
ar Roberts Morgenthau, sem hefur
lögsögu er nær yfir miðborgina og er
taliö eitt stærsta lögsagnarumdæmi
sinnar tegundar í Bandaríkjunum.
Þaö þykir heiöur fyrir ungan lög-
fra'öing aö vera ráöinn á skrifstofu
yfirsaksóknara og fá ekki aðrir en
þeir, sem staöið hafa sig sérlega vel
í lögfræðináminu.
Pétur Óli er elstur fjögurra sona
Elínar Þorbjarnardóttur og
Othars Hanssonar sölustjóra
Coldwaters í New York. Pétur Óli
lauk BA-prófi frá Cornell-háskóla
1980. Það sama ár hóf hann nám
við Háskóla íslands, en hélt fljót-
lega vestur aftur og settist í New
York Law School. Þaðan lauk
hann prófi í vor. Samhliða lög-
fræðináminu vann Pétur Óli sem
nemi á skrifstofu hæstaréttar-
dómara í Hæstarétti New York-
fylkis." " “
[\V
Trésmíðaverkstæöi geta nú sparað tím<
og fyrirhöfn við pantanir erlendis frá.
Við eigum nægar birgðir af ofnþurrkuð
um viði, - á mjög hagstæðu verði!
Furu, eik, beyki, oregon pine, ask,
meranti, ramin, mahogny, tekk,
poplar, iroko, pitch pine, og m.fl.
Þarsemfagmennimir
versla byko
SKEMMUVEGI2
. , ,. „ Kópavogi, timbur-stál-og plötuafgreiðsla,
er per oh^ett simar 41000,43040 og 41049