Morgunblaðið - 11.09.1985, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 11.09.1985, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1985 27 Reagan um öryggismálaráðstefnuna: Getur stuðlað að stöðugleika Washington, 10. september. AP. SKÖMMU áður en öryggismálaráð- stefna Evrópu var sett að nýju í Stokkhólmi í gær, hvatti Ronald Reagan Bandaríkjaforseti til þess, „að umræður þar yrðu lalvarlegar og málefnalegar“ og miðuðu að því Sri Lanka: Vísa á bug frétt- um um fjöldamorð Colombo, Sri Lanka, 9. seplember. STJÓRNVÖLD á Sri Lanka hafa vísað á bug fréttum um að flokkur Sinhala hafi stöðvað áætlunarbíl og myrt 36 af 37 Tamflum, sem voru farþegar með bflnum. Atburðurinn var sagður hafa átt sér stað fyrir utan borgina Medawachchiya, um 167 km fyrir sunnan Jaffna, höfuðborg Norð- ur-Sri Lanka. I yfirlýsingu frá öryggismála- ráðherra landsins sagði, að flokkur vopnaðra manna, sem ekki væru kunn deili á, hefði á föstudag stöðvað áætlunarbíl við bæinn Poonewa, nærri Medawachchiya. „Menn þessir brutu rúðu í bílnum, rændu persónulegum munum nokkurra farþega og hurfu síðan inn í frumskóginn.“ „Það er ekki flugufótur fyrir frétt- um um að farþegarnir hafi verið myrtir," sagði í yfirlýsingunni. að draga úr hættunni á hernaðar- átökum í Evrópu. Þetta kom fram í yfirlýsingu, sem gefin var út í Hvíta húsinu siðdegis í gær, mánudag, skömmu áður en fulltrúar komu saman til upphafsfundar sjöundu annar ráð- stefnunnar. „Stokkhólmsráðstefnan getur lagt fram mikilvægan skerf til þess að skapa stöðugleika og ör- yggi í Evrópu og bæta samskipti austurs og vesturs," sagði Reagan. „A komandi mánuðum mun koma í ljós, hvort ráðstefnunni auðnast að gegna því mikilvæga hlutverki sínu að stuðla að friði í álfunni." Öryggismálaráðstefna Evrópu hófst í Stokkhólmi í janúar 1984 og tók það ráðstefnufulltrúana, sem eru frá öllum NATO-löndun- um, Varsjárbandalagslöndunum og hlutlausum ríkjum Evrópu, heilt ár að komast að samkomulagi um dagskrá ráðstefnunnar. Þegar sjöttu önn ráðstefnunnar lauk í maí I vor, kvaðst formaður bandarísku sendinefndarinnar, James Goodby, vona, að Jokaum- ræður gætu hafist í haust. Bretland: Sósíaldemókrat- ar íhuga samruna við frjálslynda Torquay, Knglandi, 10. september. Al*. LKIDTÍNíI Sósíaldemókrata- flokksins á Bretlandi, David Owen, sagði í ræðu á ársþingi flokksins í gær, að til greina kæmi að sameinast Krjálslynda flokkn- um, sem nú er í bandalagi við Sósí- aldemókrataflokkinn, til að öðlast meiri völd á þingi. Fylgi bandalags flokkanna tveggja hefur aukist svo um munar undanfarið, en það hefur nú meira fylgi en Ihaldsflokkur- inn, en aðeins minna en Verka- mannaflokkurinn, samkvæmt skoðanakönnunum. Frjálslyndi flokkurinn hefur 18 menn á þingi og sósíaldeómkratar sjö, en ef skoðanakannanir gefa rétta mynd af fylgi bandalagsins nú, má búast við að bandalagið fái allt að 80 þingsæti í næstu kosningum. Owen sagðist hins vegar á móti því að flokkarnir sameinuðust samstundis og vill að flokkarnir bjóði fram hvor í sínu lagi í næstu kosningum, en haldi bandalaginu sín á milli. Byltingartilraunin í Thailandi: Forsprakkarnir sluppu úr landi Bugfcoh, Thailandi, 10. neplember. J PREM Tinsulanonda, forsætisráð- herra Thailands, sagði í dag, að stjórn hans hefði beitt „mildilegustu aðferðum“ við að bæla niður hina misheppnuðu byltingartilraun, sem gerð var í landinu á mánudag, í því skyni að forðast blóðsúthellingar og varðveita þjóðareiningu. Thailenskir þingmenn kröfðust þess í dag, að Kriangsak Choman- and, fyrrum forsætisráðherra Thailands, sem grunaður er um að hafa verið framarlega í flokki uppreisnarmannanna, yrði rekinn af þingi Tinsulanonda forsætisráðherra sagði á fyrsta fundi sínum með blaðamönnum eftir uppreisnina, að neyðarástandslögin, sem lýst var yfir í uppþotinu, yrðu fram- lengd í nokkra daga í viðbót. Hann sagði, að skipuð hefði ver- ið nefnd, sem bæði óbreyttir borg- arar og hermenn ættu sæti I, til að rannsaka aðdraganda uppreisnar- innar. Paniang Kantarat, aðstoðar- varnarmálaráðherra, sagði, að að- alforsprakkar uppreisnarinnar, fyrrverandi yfirmaður í hernum, Monoon Rubkachorn ofursti, og bróðir hans, Manat Rubkachorn, yfirmaður öryggissveita hersins, hefðu flúið til Singapore seint á mánudagskvöld. Gull- og gimsteinasalar opnuðu verslanir sínar á nýjan leik í dag, og sögðu forystumenn viðskipta- lífsins, að uppreisnin mundi hafa sáralítil áhrif á afkomu fyrir- tækja. Uppi voru getgátur um, að fólk mundi hópum saman taka út inn- eignir sínar í bönkum, og var seðlabanki landsins í viðbragðs- stöðu á mánudag. Ekki kom þó til þess, að bankar þyrftu á peninga- aðstoð að halda af þessum sökum. Saudi-Arabía: Ætla að lækka hráolíuverðið Kuwait, 10. september. AP. STJÓRNVÖLD í Saudi-Arabíu, sem er eitt af forysturíkjum OPEC, samtaka 13 olíuframleiðsluríkja, ætla aó lækka olíuverð hjá sér hinn 1. október nk„ aö því er fram kemur í dagblaðinu Al-Watan í Kuwait í dag, þriöjudag. Blaðið segir að stjórn landsins „hafi komist að bráðabirgðasam- komulagi" við fjóra bandaríska sameignaraðila að ARAMCO, Shell-olíufélagið hollenska og japanska fyrirtækið Mitsubishi um að tengja hráolíuverð við markaðsverð á olíuvörum. „Þetta hefði í för með sér umtalsverða lækkun á verði hrá- olíu frá Saudi-Arabíu,“ sagði blaðið. Al-Watan hafði eftir heimild- armönnum innan olíuviðskipt- anna í London, að gengið yrði endanlega frá þessu samkomu- lagi SaudiArabíu og olíufélag- anna strax og Ahmed Zaki Yamani, olíumálaráðherra landsins, kæmi heim úr orlofi frá Ítalíu. ♦ • SOLUHRÆÐSLA ? Leidbeinandi: Haukur Haraidsson, Námskeið Stjórnunarfélags íslands í sölutækni byggir á þróuð- ______markaðsstjóri_ um aðferðum nútíma sölutækni. Fjallað er um söluhræðslu, markaðsumhverfi og aðstæður, söluaðferðir, áætlanagerð og skipulagningu, notkun dreifibréfa og fleira. Námskeiðið er ætlað öllum þeim er fást við sölumennsku og skipulagningu á sölukerfum. Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66 Stjórnunarfélag íslands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.