Morgunblaðið - 11.09.1985, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 11.09.1985, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1985 íslandsmeistarar ÍA íslandsmeistarar ÍA í knattspyrnu kvenna 1985. Efri röö taliö frá vinstri: Haraldur Sturlaugsson form., Knattspyrnuráös Akraness, Kristín Aðalsteinsdóttir, Guöríöur Guömundsdóttir, Anna Gunnarsdóttir, Ágústa Frióriksdóttir, Halldóra Gylfadóttir, Ragna Lóa Stefánsdóttir, Sigurlín Jónsdóttir, Karítas Jónsdóttir, Ragnheiöur Jónasdóttir, Steinn Helgason þjálfari. Fremri rðö taliö frá vinstri: Júlía Sigursteinsdóttir, Jónína Víglundsdóttir, Asta Benediktsdóttir, Vala Úlfljótsdóttir, Laufey Sigurðardóttir, Guðrún Gísladóttir, Díanna Gunnarsdóttir. Á myndina vantar Vðndu Sigurgeirsdóttir. Vetrarstarf Þórshamars að hefjast Karatefélagió Þórshamar hefur flutt sig um set og hefur nú feng- iö í nýja og glœsilega aðstööu í Árseli í Árbn. Félagsmenn vonast til að sjá sem flesta eldri félaga í vetur. Öfl- ugt vetrarstarf er nú aö hefjast. Nýir félagar eru velkomnir á byrj- endanámskeiö og fer innritun fram i síma 78944. (Fréttatilkynning) Einliðaleiks- mót hjá TBR Eínliöaleiksmót TBR í badmin- ton fer fram í TBR-húsinu viö Gnoöarvog á sunnudag. Þátttökutilkynningar skulu ber- ast til TBR fyrir föstudag nk. Beckenbauer 40 ára í dag — æðsti draumur hans að vinna Nickiaus í golfi Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni, fréttamanni Morgunblaðatns í Þýskalandi. KEISARINN, Franz Becken- þýska landsliösins ( knatt- bauer, landsliósþjálfari vestur- spymu er 40 ára í dag, miöviku- • Franz Beckenbauer er mikill áhugamaóur um golf og eyðir öllum sínum frítíma í golf. dag. Beckenbauer á aö baki 103 landsleiki fyrir Vestur-Þýska- land og hefur hann leikið 424 leiki í Bundesligunni. Hann er einn litríkasti knattspyrnumaö- ur Þýskalands. Hans æösti draumur á afmæl- isdaginn er aö vinna Jack Nicki- aus í golfi, en Beckenbauer er mikiil áhugamaöur í golfíþróttinni og stundar golf í frítímum sínum. Önnur ósk hans er aö Vestur- Þjóðverjar veröi Evrópumeistar- ar í knattspyrnu 1988, en þá rennur ráöningarsamningur hans út sem landsliðsþjálfari. Hann segir aö sér líöi betur nú á fertugsafmæli sínu en þegar hann var tvítugur, hann sé nú i miklu meira andlegu jafnvægi. Afmælisdegi sínum ætlar hann aö eyöa í Kaupmannahöfn og horfa þar á landsleik Dana og Svia. „Eg vona aö einkalíf mitt veröi eins gott á komandi árum og þaö hefur veriö hingaö til, ég er ham- ingjusamur," sagöi Beckenbau- er. Hann var spuröur um hvaö tæki viö hjá honum eftir aö samningur hans rennur út sem landsliösþjálfari 1988. „Þaö er aldrei aö vita hvaö maður tekur sér fyrir hendur, þaö kæmi vel til greina aö fara til Bandaríkjanna og gerast þar landsliðsþjálfari. Mér leiö mjög vel í Bandaríkjun- um þau fjögur ár sem ég dvaldi þar og væri gaman aö komast þangaö aftur.“ Bill hættir hjá KS — hefur áhuga á að þjálfa áfram hér á landi „ÉG ER ÁKVEÐINN í aó hætta sem þjálfari hjá Siglfirðingum eftir þetta keppnistímabil og hef ég jafnvel áhuga á aö breyta til hér á landi og taka aö mér eitt- hvert annað lið,“ sgaði Bill Hodg- son, þjálfari KS í 2. deild karla, er hann var inntur eftir því hvort hann ætlaöi að halda áfram sem þjálfari liösins. Hann hefur veriö hjá KS í fjögur ár og telur að tími sé kominn til aö breyta til. „Mér hefur liöið mjög vel hér á landi og Siglfiröingar vilja allt fyrir mig gera, en ég tel að ég og leik- mennirnir hjá KS hafi gott af því aö breyta til. Þetta er allt í góöu og í samráði við knattspyrnuráöiö á Siglufirði. Þaö kæmi vel til greina hjá mér aö taka aö mér 1. deildar liö hér á landi, þ.e.a.s. ef eitthvert félag vill fá mig. Ég á marga góða vini á Siglufiröi og í liöinu. Þetta hefur verið mjög skemmtilegur tími. Siglfiröingar eiga nú gott 2. deild- ar-liö og þaö eina sem vantar til- finnanlega á Siglufjörö er nýr gras- völlur og þá er hægt aö fara að búast við enn meiru af liöinu, en völlurinn sem nú er notaöur er ekki nógu góöur og háir það knattspyrn- unni á Sigluf iröi, “ sagöi Bill. Lendl sigraði í fyrsta skipti — á US Open í tennis - Mandlik- ova vann Navratilovu í úrslitum TÉKKAR unnu tvöfaldan sigur á bandaríska meistaramótinu í tennis sem lauk í New York á sunnudag. Ivan Lendl vann John McEnroe í úrslitaleik og Hana Mandlikova vann Martinu Navrat- ilovu í úrslitaleik á laugardag. Tékkinn Ivan Lendl vann Mc- Enroe, 7—6, 6—3 og 6—4 i úr- slitaleik. Lendl haföi unniö Jimmy Connors í undanúrslitum, 6—2, 6—3 og 7—5. John McEnroe vann Svíann Mats Wilander í undanúr- slitum, 3—6, 6—4, 4—6, 6—3 og 6—3. Þessi viöureign var mjög jöfn og tvísýn og sýndi Svíinn ungi oft á tíöum mjög góöan leik. Þeir McEnroe og Lendl mættust síöan i úrslitaleik eins og áður seg- ir og var sigur Lendls sannfærandi og nokkuö öruggur. „Ég er svo ánægöur að ég get varla lýst þvt, sagöi tvan Lendl eftir sigurinn. Þetta er í annaö sinn sem Lendl vinnur keppni á þessu keppnis- tímabili, áöur vann hann franska opna meistaramótiö og þá vann hann einnig McEnroe í úrslitaleik. McEnroe hefur unniö Opna banda- riska meistaramótiö fjögur síöust árin og ef hann heföi unniö i fimmta sinn heföi þaö veriö met. „Allir bjuggust viö aö McEnroe sigraði, þar sem hann hefur unniö mig í úrslitaleik í tveimur keppnum í síöasta mánuöi, þannig aö þaö var engin pressa á mér og spilaöi ég ekki undir neinu álagi," sagöi Lendl. Hana Mandlikova sigraöi Mart- inu Navratilovu í úrslitaleik og kom sigur hennar mikiö á óvart. Hana lagði sterkustu tenniskonur heims, fyrst Chris Evert Lloyd og síðan Martinu, svo þaö fór ekkert á milli mála aö sigur hennar var mikill. Þetta var mikill sigur fyrir Tékka í tennisíþróttinni og er mikill upp- gangur í tennis i Tékkóslóvakíu og margir efnilegir keppendur. „Þetta er mesti sigur sem Tékkóslóvakía hefur unniö i tennis,” sagöi Jan Kodes, fyrirliði tékkneska liösins. Hana Mandlikova er aöeins 20 ára og á svo sannarlega framtíöina fyrir sér sem tennisstjarna. Getrauna- spá MBL. 'ii Sunday Mirror »* I </> i M Ui Þi 1 * I ö m » 1 Sunday Telegraph SAMTALS 1 X 2 Arsenal — Sheffield Wed. X X 1 X X 1 2 4 0 Aston Villa — Coventry 1 1 X X 1 1 4 2 0 Chelsea — Southampton X X 1 1 1 X 3 ' 3 0 Everton — Luton 1 1 1 1 1 1 6 0 0 Ipswich — Birmingham X 1 X 2 1 X 2 3 1 Man. City — Man. United 2 2 2 2 2 2 0 0 6 Newcastle — WBA X 1 1 1 1 1 5 1 0 Nott’m Forest — Tottenham 2 1 2 X X 2 1 2 3 Oxford — Liverpool 2 2 2 2 X 2 0 1 5 Watford — QPR 1 1 1 X 1 1 5 1 0 Leeds — Sunderland 1 1 1 1 X 1 5 1 0 Portsmouth — Stoke 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.