Morgunblaðið - 11.09.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.09.1985, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1985 Kröfur Alþýðusambands Vestfjarða í bónussamningum: 40 króna fiskvinnsluálag að hluta til tekið af bónusgrunni SÉRSTAKT fiskvinnuálag aö upphæð 40 krónur, þar sem 30 krónur komi af bónusgrunni og 10 krónur til viðbótar frá vinnuveitanda, er ein meginkrafa Alþýöusambands Vestfjarða í kom- andi samningum um bónus fisk- vinnslufólks, en gengið var frá kröfu- gerðinni um helgina og hefur hún verið send vinnuveitendum. Með þessu móti er gert ráð fyrir að bónus verði aldrei haerri en sem nemur 63% af greiddum heildarlaunum. Þá er gerð krafa um að bónus- grunnur hækki og verði miðaður við taxta fiskvinnslufólks með 5 ára starfsreynslu. Greiddur verði bónus fyrir öll störf og þau störf sem ekki er hægt að tímamæla fái 75% af meðalbónus. Tekin verði upp föst nýting í stað meðalnýt- ingarkerfis og breytingar á stöðl- um og verktilhögun verði ekki gerðar öðruvísi en í samvinnu við Alþýðusambandið. Þá verði fólki gert ljóst þegar prufur og sýni eru tekin hver vinnuhraði þess sé og þak verði áfram á vinnuhraðanum, þannig að fólk fái ekki greidd um- Afla ekið til Ólafsfiarðar BÓNUSVINNUSTÖÐVUN hófst á Siglufirði á mánudagsmorgun og minnkaði framleiðsla frystihúss Þormóðs ramma á Siglufirði um 50% en einungis var unnin dagvinna og engin eftirvinna. Annar togari Sigl- firðinga, Stálvíkin, er nýkominn inn með 130 tonn og bíður því afli vinnslu. Gripið var til þess ráðs að aka hluta hans til Ólafsfjaröar til vinnslu þar, en þar er ekki í gildi bónusvinnustöðvun. „Það gengur alveg eins og við er að búast. Þetta byrjaði í morgun og afköstin minnkuðu I báðum húsun- um, eins og eðlilegt getur talist. Ég gæti trúað að það væri um 50% í stærra frystihúsinu," sagði Kol- beinn Friðbjarnarson, formaður verkalýðsfélagsins Vöku á Siglu- firði, er Morgunblaðið innti hann eftir gangi mála þar á staðnum í bónusvinnustöðvun. Vinnuveitendasambandið hefur kært Vöku fyrir Félagsdómi fyrir ólögmæta boðun verkfalls, þar sem ríkissáttasemjara hefur ekki verið tilkynnt um vinnustöðvunina, eins og kveðið er á um í vinnulöggjöf- inni. Kolbeinn var spurður um þetta atriði og sagði hann að verka- lýðsfélagið hefði alltaf litið svo á að hér væri ekki um verkfall að ræða, heldur afnám ákveðins vinnufyrirkomulags og launa- greiðslukerfis og því þyrfti ekki að tilkynna það til ríkissáttasemjara. Fólk ynni sína vinnu með fullkom- lega eðlilegum hætti, eins og aðrir þegnar þjóðfélagsins. A Siglufirði eru í gildi sérsamn- ingar um bónus. Kolbeinn sagði að þrír viðræðufundir hefðu verið milli félagsins og atvinnurekenda og hefði farið nokkuð vel á með deiluaðilum, þó vissulega hefði talsvert borið í milli. Hann sagðist engu þora að spá um það, hvort þetta yrði langvinn bónusvinnu- stöðvun. fram ákveðin afköst. Pétur Sigurðsson, forseti Al- þýðusambands Vestfjarða, sagði kröfurnar meðal annars miða að því að minnka ákvæðisvinnuþátt- inn í heildarlaunum fólks og hafa stjórn á óhóflegum kröfum bónus- vinnunnar til þess. Hann sagði Al- þýðusambandið tilbúið til viðræðna við vinnuveitendur um að leggja niður bónus og taka upp nýja að- ferð, sem skili því sama til beggja aðila. Pétur sagði að þeir myndu fara sér hægt til að byrja með og gefa vinnuveitendum góðan tima til að kynna sér kröfugerðina, enda væri hér um flókin mál að ræða. Þeir myndu nú á næstu vikum fara I frystihúsin og ræða kröfugerðina við fólkið. Ef hins vegar vinnuveit- endur yrðu tregir til viðræðna, lumuðu þeir á fleiri en einni aðferð til að fá þá til að ræða við sig. „Við teljum þetta fjaðrafok sem hefur verið yfir því hvort tilkynnt hafi verið um bónusstöðvun eða ekki. Það að leggja bónus niður, er spurning um samtök fólks, en, ekki það að skipanir komi að ofan. Ef fólk finnur þörfina fyrir slíkar að- gerðir fer það út í þær og ef það stendur saman þá jafngildir það allsherjarverkfalli," sagði Pétur. Morgunblaðið/Ól.K.M. Japanskur togari íReykjavík Japanskur togari kom við í Reykjavík í gær á leið sinni á miöin við Grænland. Þótt víða gangi að nota gömul dekk á fótreipið í stað bobbinga hefur þeim líklega þótt vissara að kaupa nokkra bobbinga frá Odda hf. til að tryggja veiðihæfni trollsins. Búnaðarbanki íslands: Óbreyttir vextir af afurðalán- um þýða 40 til 50 milljóna tap „Treysti því að ríkisstjórnin leiðrétti þetta,“ segir Stefán Pálsson bankastjóri „ÞETTA horfir einfaldlega þannig við okkur í Búnaðarbankanum að þessir vextir fá engan veginn staðist," sagði Stefán Pálsson bankastjóri í Búnaðar- banka íslands aðspurður um þá stöðu sem komin er upp að vextir af afurðalánum landbúnaðarins eru neikvæðir, eins og frá var greint í frétt Morgunblaðsins sl. fóstudag. „Þegar viðskiptabankarnir yfir- tóku þessar lánveitingar af Seðla- bankanum í vor, var um það samið við ríkisstjórnina að þessir vextir skyldu haldast þangað til aðrir vextir yrðu komnir á svipað stig. Þá var gert ráð fyrir að vextir færu lækkandi vegna minnkandi verðbólgu. Nú hefur þróun mála á hinn bóginn orðið sú að vextir hafa farið hækkandi og eru nú al- mennir innlánsvextir um það bil 7% hærri en vextir á afurða- lánunum," sagði Stefán. „Við höfum gert viðskiptaráð- herra grein fyrir þessu máli og hann hefur lofað að taka það upp á vettvangi ríkisstjórnarinnar. Við höfum reiknað það út, að mið- að við upphæð þessara lána í fyrra myndi það þýða milli 40 og 50 milljóna króna tap fyrir bankann að lána á óbreyttum kjörum og það munar um minna. Ef ekki kemur til leiðrétting munum við væntanlega segja þessum lánum upp og ég á ekki von á að aðrir viðskiptabankar muni fást til að veita þau á þessum kjörum. Það er hinsvegar bundið í lögum að þessi lán skuli veita og þannig myndi skapast sjálfhelda. Ég ber á hinn bóginn það traust til ríkisstjórn- arinnar að hún muni skilja þetta mál og leiðrétta það áður en vand- ræði hljótast af þegar sláturtíð hefst. Þetta er fyrst og fremst mál ríkisstjórnarinnar," sagði Stefán Pálsson bankastjóri að lokum. íJrslitakeppni bresks sjóstangaveiðimóts hófst í gœr í Garðsjó FYRRI dagur úrslitakeppni bresks sjóstangaveiðimóts fór fram hér á landi út af Garðskaga í gær. Kepp- endur eru tíu Bretar, sem komust í úrslit í undankeppni í Brighton í Bretlandi fyrr í sumar. Breskir sjón- varpstökumenn fylgdust með keppn- inni, auk annarra enskra blaða- manna, og hyggjast sjónvarpsmenn- irnir gera landkynningarmynd um ísland sem sýnd verður í sjónvarpi í Bretlandi. Haldið var úr Keflavíkurhöfn í gærmorgun. Keppnin stóð til klukkan 16.00 síðdegis og var þá haldið til hafnar þar sem veiði hvers og eins var vigtuð. í dag verður keppninni haldið áfram og verða úrslit kunn í kvöld. Sá ber sigur úr býtum er þyngstan afla hefur eftir þessa tveggja daga veiði. Keppendur voru að vonum ánægðir með árangur fyrri dags- ins hér á íslandi, að eigin sögn, ef haft er í huga að á úrslitamótinu í fyrra, sem haldið var i Túnis, fékkst aðeins einn fiskur úr sjó. Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra: „Eðlilegt að hafa tvo forstjóra við Byggðastofimn“ „ÉG TEL að það sé mjög eðlilegt að hafa tvo forstjóra við Byggðastofn- un,“ sagði Steingrímur Hermanns- son forsætisráðherra í samtali við Morgunblaðið er hann var spurður um ágreining stjórnarflokkanna varðandi fjölda forstjóra við Byggða- stofnun, en sjálfstæðismenn hafa lýst því yfir að þeir telji að þar eigi einungis einn forstjóri að vera. „Ég tel það mun eðlilegra en að hafa 3 bankastjóra í bönkunum," sagði Steingrímur og bætti við, „Byggðastofnun er byggðapólitísk stofnun. Það eru alltaf skiptar skoðanir um það hvað eigi að veita miklu fjármagni til þess að við- halda byggðum á hinum ýmsu stöðum. Þá er ákaflega eðlilegt að þeir flokkar sem eru í stjórn komi báðir að skoðun þeirra mála með því að eiga sinn forstjórann hvor.“ Steingrímur sagði að ágreining- ur um forstjórastarf hjá Þróunar- félaginu væri ekki fyrir hendi á milli stjórnarflokkanna. Fram- sóknarmenn gerðu sér fulla grein fyrir því að þar væri um hlutafé- lag að ræða, og því myndi stjórn félagsins ráða í forstjórastarfið, Kfltrov* Kor l/ppm 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.