Morgunblaðið - 11.09.1985, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.09.1985, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1985 ÓLAFSSON Þessi búnaður sér um að raða keilunum aftur upp, þegar búið er að fella þ*r allar. Stúlka þessi leigir út kúlur og keiluskó. Fyrir framan hana sjást þessir forláta keiluskór. Keiluíþróttin er ung hér á landi. 1. febrúar síðast- liðinn var Keilusalurinn í Öskjuhlíð opnaður og leiðin hefur legið upp á við síðan. Um 50 milljónir manna stunda keilu í Bandaríkjunum einum og um 10 milljónir keppa reglulega á viður- kenndum mótum. Ef áhuginn væri jafnmikill á íslandi þá mundu um 50 þúsund íslendingar stunda keilu og nærri 10 þúsund kepptu á viðurkenndum mótum. Keilan er ævaforn íþrótt eins og nærri má geta. Elstu hlutirnir sem tengjast keilu fundust í grafhýsi barns í Egyptalandi frá 5200 f.Kr. Þetta voru níu steinar og hefur steinhnullungi verið velt að þeim gegnum lítið marmarahlið. í Polynesíu léku menn „úla mæka“ til forna, þar sem þeir veltu steinhnullungi aö steinkeil- um. Vegalengdin var 18 metrar. Enn í dag er þetta ein meginreglan í keilu. Uppruna nútímakeilu má iíklega rekja til Þýskalands langt aftur í aldir. Þar var hún ekki stunduð sem íþrótt heldur sem trúarlega athöfn. Sagt er að Mart- einn Lúther hafi ákveðið að best væri að hafa keilurn- ar níu. Það má lesa í mannkynssögubókum að leikurinn barst um Evrópu, meðal annars til Norðurlanda og loks til Bandaríkjanna. En þó að leikurinn hafi borist um allan heim voru reglurnar með ýmsum hætti og áhöldin ekki hin sömu. Til dæmis er ekkert vitað um það hvers vegna Bandaríkjamenn bættu við tíundu keilunni eða hvenær það gerðist. Um miðja 19. öld var íþrótt þessi orðin svo vinsæl að keilusalir spruttu upp eins og gorkúlur í mörgum borgum. Árið 1875 komu saman fulltrúar frá níu keilufélögum í New York og stofnuðu með sér samband til þess að reyna að sam- ræma reglurnar. Deilur stóðu helst milli þeirra og annarra keilara í landinu en 9. september 1895 var loks stofnað Landssamband keilara og þar með var grundvöllurinn lagður að þeim reglum og búnaði sem enn er í gildi nær 80 árum síöar. Arið 1816 var svo stofnað Alþjóóasamband kvenkeilara. Árum saman hafa forsvarsmenn keilu leitað viður- kenningar á íþróttinni sem ólympíugrein. Bandaríska ólympíunefndin veitti keilu fullu viðurkenningu sem ólympíuíþrótt í maí 1984. Það er búist við að keila verði sýningaríþrótt á Ólympíuleikunum árið 1988 og fullgild keppnisíþrótt 1992. Það er fyrst á þessu ári, 1985, sem okkur íslendingum stendur til boða að stunda þessa íþrótt af alefli. Nú eru 12 brautir í gangi í Keilusalnum í Öskjuhlíð og innan 2 mánaða er reiknað með að taka aðrar 6 í notkun. Það var rölt á þennan ágæta stað í vikunni og afrakstur þess birtist hér. Morgunblaöift/Þorkell Þessi er sko með stíl! Það fylgir ekki sögunni hvort allar keilurnar féllu eður ei. En einkunn fyrir stíf er ellefu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.