Morgunblaðið - 11.09.1985, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1985
Meira af plötum
Dead or Alive hafa sent frá sér
smáskífu, með laginu My
Heart Goes Bang (Get Me to the
Doctor). Á bakhliöinni er svo aö
finna hljómleikaupptöku af laginu
Big Daddy of Rythm.
The Cure hafa nýlega sent frá
sór nýja breiöskífu, sem nefn-
ist Head on the Door og hefur hún
fengiö mjög vinsamlega gagnrýni,
auk þess sem hún siglir nú hraöbyri
upp breska vinsældalistann. Þá er
væntanleg frá þeim smáskífa, sem
hefur aö geyma lagiö Close To Me,
en lag þetta er einnig aö finna á
stóru þlötunni.
Hljómsveitin Armoury Show er
nú loksins aö senda frá sér
sína fyrstu breiöskífu. Hljómsveit
þessi kom fyrst fram fyrir rúmu ári
og var henni þá strax spáö miklum
frama. Var þaö fyrst og fremst
vegna þess aö söngvari hennar er
Richard Jobson, sem var í Skids,
en þaö var hijómsveit sem náöi
töluveröum vinsældum í Bretiandi
í kringum 1980. Skids eru kannski
þekktari fyrir þaö í dag aö gítarleik-
ari hennar var Stuart Adamson,
sem nú er þekktari fyrir leik sinn
meö Big Country. Gítarleikari
Armoury Show heitir hins vegar
John McGeoch og hann lék áöur
meö hljómsveitunum Magazin og
Siouxie the Banshees en hann þykir
einn af forvitnilegri gítarleikurum
Breta á seinni árum, þannig aö þaö
veröur spennandi aö heyra hvernig
þessi nýja plata Armoury Show
hljómar.
Loyd Cole & The Commotions
var aö margra áliti talin ein-
hver efnilegasta hljómsveit sem
kom fram á sjónarsviöiö á árinu
1984. Þaö hefur hins vegar lítiö
fariö fyrir þeim þaö sem af er þessu
ári. Þeir eru nú aö vakna til lífsins
að nýju. Smáskífa meö laginu
Brand New Friend er ný útkomin
og stór plata er væntanleg fyrir jól.
Hljómsveitin Squeeze er komin
saman á nýjan leik og þeir
hafa þegar sent frá sér breiöskífu
sem heitir Cosi Fan T utti Frutti.
Midge Ure, höfuöpaur
Ultravox, er aö senda frá sér
Midge Ure reynir fyrir sér á eigin
spítur.
þungA
MIÐJAN
Robert Smith, hinn skrautlegi
höfuöpaur The Cure.
sólósmáskífu meö laginu If I Was
og á bakhliöinni er aö finna gamla
Bowie-lagiö The Man Who Sold the
World. Þá er væntanleg breiöskífa
frá Ure í nóvem ber.
Simply Red, sem fyrir skömmu
slógu í gegn meö hinu ágæta
lagi Money’s Too Tight to Mention
eru búnir aö senda frá sér nýtt lag
og heitir þaö Come to My Aid.
The Damned, sem hafa gert
þaö gott upp á síökastiö meö
breiöskífu sinni Phantasmagoria,
hafa gefiö út lagiö The Shadow of
Love á lítilli plötu. Á tólf tommu út-
gáfunni hefur veriö bætt viö gamla
Sex Pistols-laginu Pretty Vacant og
eldgamla Troggs-laginu Wild
Thing.
Sheila E. hefur sent frá sér nýja
plötu sem nefnist Romance
1600 og hefur hún hvarvetna fengið
mjög góöa dóma og er hún í alla
staöi sögö hin mesta skemmtun
áheyrnar. Er plata þessi gefin út af
nýju hljómplötufyrirtæki, sem nefn-
ist Paisley Park og er í eigu Prince
en hann mun aöstoöa viö bassaleik
og söng í þremur lögum af átta á
Romance 1600.
Morrissey
söngvari
Smiths.
The Smiths
ekki til íslands
Til stóð aö hljómsveitin The
Smiths léki hér á landi í
byrjun október, þar sem þeir áttu
þá aö vera á leiöinni til Bandarikj-
anna. Nú hefur feröinni vestur um
haf hins vegar veriö aflýst og þar
meö veröur ekkert af því aö þeir
leiki fyrir okkur Islendinga að
sinni.
Meölimir Smiths hafa þó í nógu
aö snúast. Þeir ætla aö skemmta
Skotum á næstunni og þá er
væntanleg frá þeim smáskífa
síöar í jjessurr mánuöi. Aöallag
hennar veröur The Boy with the
Thorn in his Side og áætlaöur
útgáfudagurer 16. september.
ugh Cornwell, söngvari og
gítarleikari Stranglers, er bú-
inn aö gefa út litla plötu meö lagi
sem nefnist One in a Million og stór
plata er væntanleg innan tíöar.
Kemur hún til með að heita Bleed-
ing Star og er tónlistin af henni úr
kvikmynd sem Cornwell hefur lokiö
viö aö leika í auk þess aö semja
tónlistina.
Bobby Womack er af mörgum
álitinn besti soulsöngvari
sem uppi er en samt sem áöur kom
þaö á óvart aö blaöamenn NME
skildu velja plötu hans Poet 2, sem
kom út í fyrra, bestu plötu ársins
1984. Þetta er þó vissulega virki-
lega góö skífa og þaö er því spenn-
andi aö vita hvernig ný plata sem
hann hefur nú sent frá sér hljómar
en hún heitir So Many Rivers.
UB40 gefa vinum sínum tækifæri.
„Nf ‘ UB40-
plata
Ný plata frá UB40 mun vera aö
líta dagsins Ijós þessa dag-
ana. Raunar er vafasamt aö tala um
nýja plötu því aö þeir hafa tekiö
undirsþil af tveimur síöustu plötum
sínum, Labour of Love og Geffery
Morgan, og endurunnið og síöan
fengiö ýmsa lítt kunna söngvara og
raddara til þess aö leggja sitt af
mörkum. Kemur þessi „nýja“ plata
til meö aö heita Baggariddim og
meö henni mun fylgja þriggja laga
þlata meö tveimur nýjum lögum,
Don’t Break my Heart og Mi Sþliff,
svo og lagiö I Got Babe sem þeir
flytja meö Chrissie Hynde, en þaö
hefur notiö mikilla vinsælda upp á
síökastiö.
Langþráö
plata frá
Dexy’s
Ariö 1982 sendi hljómsveitin
Dexy’s Midnight Runners frá
sér plötuna Too Rye Aye, sem hvar-
vetna hlaut góöar viötökur og já-
kvæöa dóma og er þess t.d.
skemmst aö minnast aö íslenskir
gagnrýnendur kusu skífu þessa
plötu ársins 1982. Síöan hafa menn
beöiö meö óþreyju eftir nýrri plötu
frá þeim og hún er nú loksins komin
út. Don’t Stand me Down heitir hún
og nú þegar hafa birst um hana
dómar í Melody Maker og eru þeir
mjög góðir.
Eins og sjá má hafa rneölimir
Dexy's nú kastaö gömlu gallabux-
unum sem var einkennisklæönaöur
þeirra 1982 og í staö þeirra eru nú
komin snyrtileg gamaldags jakka-
föt.
Dexy's klædd á breska vísu