Morgunblaðið - 11.09.1985, Side 50

Morgunblaðið - 11.09.1985, Side 50
50 MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1985 * 'V > „ þetta. er mnkaupase&ilL, brob'\r KorrnaJcurl" Ást er .. ... aö reyna að skilja hvert annaö. TM Rea. U.S. Pat. Off.-all rights reserved ©1905 Los Angeles Times Syndicate Með morgunkaffinu Sykurlaust bjórlíki. Gjörið svo vel. Þarf að þinglýsa kaupsamningi íbúða? Ef ekki, því þarf þá að greiða sektargjald sé það ekki gert á réttum tíma? Fyrirspurn til borg- arfógetaembættisins íbúðarkaupandi skrifar: Ástæðan fyrir fyrirspurn þess- ari er sú að fyrir ári keypti ég íbúð, eins og gengur og gerist. Seljandi íbúðarinnar benti mér á að þinglýsa þegar í stað kaup- samningi, til að fá ekki sektargjald á þinglýsinguna, þar eð hann hafði sjálfur orðið fyrir því. Eitthvað var litið um peninga á bænum, svo þinglýsing kaupsamn- ingsins dróst hjá mér, en ég hafði þó þann varnagla á að hringja i embætti borgarfógeta og spyrja hvort skylt væri að þinglýsa kaup- samningi og hvort rétt væri að sekt kæmi á gjaldið ef ekki væri þinglýst innan ákveðins tíma. Viðmælandi minn kvað nei við því, þetta væri ekki skylda og misskilningur að fólk væri sektað fyrir að draga þinglýsingu. Hins vegar væri venjan sú að fólk léti þinglýsa fyrir 1. desember, þvi þá hækkaði fasteignamat íbúða, sem væri sú viðmiðunartala sem þing- lýsingargjald væri reiknað út frá. Þvi miður láðist mér að biðja um nafn þessarar konu, enda vön að geta treyst orðum opinberra starfsmanna, og gerði svo í þetta sinn sem önnur. Tveimur mánuð- um síðar fór ég og lét þinglýsa kaupsamningnum og fékk á hann sekt sem nam þá 1.258 krónum. Ég var ekki fullkomlega sátt við þetta og bað um skýringu á máli þessu en fékk enga. Þó fékk ég þær upplýsingar aftur að ekki væri skylda að þinglýsa kaupsamningi. Mér leikur mikil forvitni á að vita, hvar sé til lagabókstafur fyrir því að sekta fólk fyrir að vanrækja atriði sem samt sem áður er ekki skylda, og hvaða röksemdir sé hægt að gefa fólki sem verður fyrir svona framkomu af hálfu opin- berra starfsmanna. Svar: Hjá Borgarfógetaembætt- inu gaf Þorkell Gíslason þau svör að ef kaupsamningi væri á annað borð framvísað, þá væri hann stimpilskyldur og sagði hann að Ó.B. skrifar: Kæri Velvakandi. Ég var að lesa menningarsíður Morgunblaðsins nú um helgina og var þar viðtal við forsvarsmenn norrænu ljóðahátíðarinnar, þá Einar Braga, Knut Ödegárd og Thor Vilhjálmsson. Þar segir Knut: „Ég óttast að við, sem byggjum þjóðirnar í vestri, séum að tapa okkar menn- ingu, uppruna og tungu og verst af öllu er að tækniöldin er að grípa manninn og sál hans. Gera hann að vélmenni." Mig langar að taka undir þessi orð Knuts. Það er eins og maðurinn gefi ekki gaum að nánasta um- öllum skjölum sem væru stimpil- skyld bæri að framvísa innan tveggja mánaða frá dagsetningu. Kaupandinn þarf hins vegar ekki að láta stimpla kaupsamning en vissulega er visst öryggi í því að þinglýsa kaupsamningi. Ef kaup- andi ákveður hins vegar að þing- lýsa samningnum þá verður hann að gera það innan tveggja mánaða því annars þarf hann að greiða sektir sem eru 10% á viku og getur farið upp í 50% af stimpilgjaldinu, en verður aldrei hærra en svo. hverfi sínu. Það eina sem fólki virðist umhugað um í dag eru peningar og lífsins lystisemdir í formi efnislegra gæða. Við erum hætt að veita náunga okkar aðstoð og athygli, nema þá til að öfundast út í hann. Ljóðið er eitt af því sem getur haft áhrif á þessa óheillavænlegu þróun, eða eins og Knut réttilega sagði: „Þarna held ég að ljóðið komi fyrst og fremst inn með sinn boðskap um ást og gleði til manns- ins. í ljóðinu sjáum við öll að við erum mannleg, systur og bræður sem eiga saman og ef til vill er ljóðið það eina, sem getur bjargað okkur með því að minna okkur á að við erum manneskjur." Ljóðið færir mann- inum ást og gleði Þessir hringdu .. „Innlent kaffi allra best“ Sigríður hringdi og hafði eftir- farandi að segja: Ég furða mig á því sem kaffi- maður skrifar í Velvakanda 31. ágúst þar sem segir að íslenskt kaffi sé ódrekkandi. Ég er þessu ekki sammála. Sjálf drekk ég mikið kaffi og finnst mér innlent kaffi lystugra og bragðbetra, enda held ég að það sé hollara þeim sem drekka mikið kaffi. Innlent kaffi allra best okkur má ei vanta. Ilmar bragðið alltaf hresst svo enginn þarf að kvarta. Aldingrautar og súrmjólk í bland Húsmóðir hringdi og hafði eft- irfarandi að segja: Húsmæður, hafið þið reynt hversu gott það er að hafa aldin- sólgrauta saman við súrmjólk í morgunverð. Ef ekki ættuð þið að reyna það því það svíkur engan. Jógúrt, sem er dýr vara miðað við súrmjólkina, er blönduð hin- um ýmsu ávöxtum og því ekki að prófa að blanda ávöxtum út í súrmjólkina með því að blanda henni saman við ávaxtagrauta. Börnunum finnst þetta gott, auk þess sem þetta kemur ekki eins mikið við pyngjuna. Eru dagblöð endurunnin hérlendis? Ester hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: Eru einhverjir hér á landi sem endurvinna dagblöð? Þegar ég bjó í Danmörku var þar fyrirtæki sem endurvann pappírinn úr dagblöðum, og einnig var hægt að skila slmaskrám. Nú langar mig að vita hvort farið sé að endurvinna pappír hér á landi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.