Morgunblaðið - 13.09.1985, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1985
Hvítu kýrnar á Höfða í Þverárhlíð. Morgunblaftið/DiSrik Jóhannason
Hvít kúahjörð með einum „svörtum sauði“
Hvannatúni, Andakíl, ll.september.
Á TÚNINU á bænum Höfða í
Þverárhiíð f Mýrasýslu blasti við
fréttaritara sjaldgæf sjón. Nær
allar kýrnar á bænum og geldneyti
að auki voru hvít, nema hvað einn
„svartur sauður“ var í hjörðinni.
Að sögn Sigurðar Bergþórs-
sonar bónda fæðist um helming-
ur kálfanna hvítur og hefur hann
að gamni sinu eingöngu sett á
hvítar kvígur, nema eina kolótta,
sem hann timdi ekki að farga
vegna þess hve vel hún var ættuð.
Hann telur þetta notadrjúgar
kýr og taka nágrannar hans
undir það, því nokkrir kálfar
hafa verið settir á hjá þeim.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins um fjárlagafrumvarpið:
Samstaða náist fyrst um
frumvarpið í ríkisstjórn
Á þingflokksfundi Sjálfstæð-
isflokksins í gærmorgun var
Fjárlagagerð
miðar áfram
í rétta átt
„ÉG HEF þá trú að fjárlagagerð miði
áfram í rétta átt, einkum ef ég miða við
seinni part dagsins í dag,“ sagði
Matthías Bjamason heilbrigðis- og
sarngönguráðherra aðspurður í gær um
hvernig miðaði með fjárlagagerð.
„Menn eru sammála um það að
staðan sé erfið og í öllum samning-
um verða menn að mætast ef sam-
staða á að nást, og samstarf að halda
áfram," sagði Matthías jafnframt.
Matthías sagði að seinni partinn í
gær hefðu einstakir fagráðherrar
fundað með fjármálaráðherra
og/eða starfsmönnum hans og sagð-
ist hann teija að árangur þeirra
funda hefði verið það góður, að
ástæða væri til bjartsýni.
samþykkt tillaga frá formanni
Sjálfstæðisflokksins, Þorsteini
Pálssyni, þess efnis að þing-
flokkurinn samþykkti að taka
ekki til efnislegrar umfjöllunar
og afgreiðslu hugmyndir að fjár-
lögum fyrir árið 1986 fyrr en rík-
isstjórnin hefði komið sér sam-
an um tillögur í því efni.
„Undirbúningur fjárlaga er
enn á því stigi, að það er ekki
komin full samstaða innan ríkis-
stjórnarinnar um fjárlagafrum-
varpið," sagði Þorsteinn Pálsson
er blaðamaður Morgunblaðsins
spurði hann í gær hvers vegna
hann hefði borið upp þessa til-
Iögu. Þorsteinn sagðist vænta
þess að þessi samþykkt þing-
flokksins, sem hefði verið gerð
samhljóða, leiddi til þess að sam-
staða yrði innan ríkisstjórnar-
innar um gerð fjárlagafrum-
varps. „Það er auðvitað forsenda
þess að þingflokkar fjalli um
fjárlagafrumvarp, að ríkisstjórn-
in sem ætlar að flytja frumvarp-
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður verkamannafélagsins
Dagsbrúnar, fór í gærmorgun í
frystihúsin í Reykjavík og stapp-
aði stálinu í félagsmenn sína.
Hann sagði aðspurður um afstöðu
þeirra til aðgerðanna, að þeir
væru gallharðir. í dag tekur gildi
bónusvinnustöðvun verkakvenna-
félagsins Framsóknar, sem og á
fjórum öðrum stöðum á landinu.
„óneitanlega setur það strik í
reikninginn að tækjamenn skuli
ekki vinna í bónus, því allt er á
fullum dampi á borðunum," sagði
Magnús Guðmundsson, verkstjóri
ið viti hvað hún vill í þeim efn-
um,“ sagði Þorsteinn.
Þorsteinn var spurður hvort
lesa mætti á milli lína þessarar
samþykktar vantrú þingflokks-
ins á að ríkisstjórninni tækist að
koma sér saman um fjárlaga-
frumvarp: „Nema síður sé,“ sagði
Þorsteinn, „því að tillagan hefði
ekki verið flutt og samþykkt í
þingflokknum, nema vegna þess
að menn treysta ríkisstjórninni
til þess að koma sér saman um
þetta efni.“
„Þingflokksfundir eru ekki
ákveðnir fyrirvaralaust og þessi
dagur var ákveðinn í síðustu
viku,“ sagði ólafur G. Einarsson
formaður þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins er hann var spurður
hvers vegna boðað hafði verið til
þingflokksfundarins í gær. „Við
áttum von á því að ríkisstjórnin
væri búin að koma sér saman um
frumvarpið svo hún gæti lagt það
fram til þingflokka sinna fyrir
ríkisstjórnarfundinn sem vera á í
dag og var því eðlilegt að velja
þennan tíma til að halda þing-
flokksfundinn.“
Samúðarvinnustöðvun Dagsbrúnar hófst í gær:
Fyrsta góða pás-
an í tvo mánuði
— sagði trúnaðarmaður félagsins í frystihúsi BÚR
„ÞETTA er í fyrsU skipti í tvo mánuði, sem við tökum okkur góða pásu,
enda búið að vera rólegt í dag,“ sagði Bergur Einarsson, trúnaðarmaður
Dagsbrúnar í frystihúsi Bæjarútgerðar Reykjavíkur úti á Granda, er Morgun-
blaðið hitti hann þar, en á hádegi í gær tók gildi samúðarbónusvinnustöðvun
Dagsbrúnar og er því einungis unnið í tímavinnu. Hringt er til vinnuhlés einu
sinni á klukkutíma, en það venjulega ekki tekið vegna þess að við það
minnkar bónusinn.
hjá BÚR. Hann sagði að það væru
um 30 menn í frystihúsinu sem
þessi bónusstöðvun næði til og
sennilega yrði að vinna á laugar-
daginn til að ná að frysta það sem
fyrir lægi. Við frystitækin unnu 8
menn við það sem er venjulega
starf 4 manna.
Vinnuveitendur hafa höfðað
mál fyrir Félagsdómi vegna lög-
mætis samúðarbónusvinnustöðv-
ananna i Reykjavík og hafa félög-
in frest til þriðjudags að skila inn
sinni greinargerð, Málflutningur
verður á miðvikudag og úrskurðar
dómsins að vænta fyrir helgi.
Tvær bækur eftir
Matthías Johannessen
— AB gefur út Bókmenntaþætti og Ljóða-
klúbbur AB gefur út Hólmgönguljóð
ALMENNA bókafélagið hefur sent frá sér nýja bók eftir Matthías
Johannessen skáld. Nefnist hún Bókmenntaþættir og er eingöngu
um íslenskar bókmenntir. Þá hefur Ljóðaklúbbur Almenna bókafé-
lagsins nú tekið til starfa og er um þessar mundir að senda frá sér
sína fyrstu bók — Hólmgönguljóð eftir Matthías Johannessen.
Bókmenntaþættir skiptast í tvo
hluta, hinn fyrri ber heitið Úr um-
hverfi okkar og sá síðari Um-
hverfis Sturlu Þórðarson. 1 fyrri
þættinum er fjallað um þessa höf-
unda: Grím Thomsen, Sigurð
Nordal, Gunnar Gunnarsson, Dav-
íð Stefánsson, Guðmund G. Haga-
lín, Tómas Guðmundsson, Halldór
Laxness, Jón úr Vör, Kristján
Karlsson og Jóhann Hjálmarsson.
Þessir þættir eru mjög mislang-
ir, sumir mjög langir, svo sem um
Guðmund G. Hagalín og Halldór
Laxness. Flestir þáttanna í fyrri
hlutanum hafa birst áður einhvers
staðar, einkum í blöðum, en eru
hér flestir hverjir mikið breyttir
og auknir. Nokkrir hafa hvergi
birst, svo sem þar sem gerð er
grein fyrir mörgum og merki-
legum athugasemdum sem Hall-
dór Laxness gerði við uppkast að
ritgerð sem Matthías hafði skrifað
um hann.
Síðari hluti Bókmenntaþátta
nefnist Umhverfis Sturlu Þórðar-
son og er eins og nafnið bendir til
um íslenskar fornbókmenntir.
Þessi hluti er alveg nýr og birtist
hér í fyrsta sinn. Þarna kemur
Matthías fram með og rökstyður
margar merkilegar kenningar um
íslenskar fornbókmenntir, svo
sem þá að Sturla Þórðarson sé
höfundur Njálu og fleiri verka
sem hingað til hafa verið eignuð
öðrum eða engum. Ýmsar þessara
kenninga eru ákaflega nýstárlegar
og eiga án efa eftir að vekja upp
fjörugar umræður um þessi mál,
segir í frétt frá útgefanda.
Bókmenntaþættir eru 378 bls.
að stærð, pappírskilja. Prentstofa
G. Benediktssonar og Félagsbók-
bandið hafa unnið bókina.
Ljóðaklúbbur Almenna bókafé-
lagsins er stofnaður til að vinna
að framgangi ljóðsins á íslandi.
Félagar í klúbbnum geta allir orð-
ið sem þess óska og þeir gangast
ekki undir neinar skuldbindingar
við innritun i klúbbinn aðrar en
þá eina að afþakka þær bækur,
plötur eða snældur sem klúbbur-
inn gefur út og þá ekki fýsir að
eiga.
Útgáfa ljóðaklúbbsins á Hólm-
Málshöfðun
vandkvæðum
bundinn
ÓLJÓST er nú hvort bændasamtökin
muni höfða mál gegn utanríkisráð-
herra vegna kjötinnflutnings varnar-
liðsins. Stcttarsamband bænda og
framleiösluráð landbúnaðarins fólu
Gauki Jörundssyni, forseta lagadeild-
ar Háskólans, að skila greinargerð um
það með hvað hætti best væri að
standa að málshöfðuninni.
Gaukur, og lögfræðingar bænda-
samtakanna, voru að leggja síðustu
hönd á verkið í gærkvöldi, en að
sögn Inga Tryggvasonar, formanns
Stéttarsambands bænda, telja lög-
fræðingarnir að málshöfðunin sé
ýmsum vandkvæðum bundin. Ingi
hafði ekki fengið greinargerðina í
hendurnar í gærkvöldi og vildi því
ekkert segja efnislega um það í
hverju vandkvæðin væru fólgin.
32 myndbands-
tæki svikin
út með fölsk-
um skilríkjum
32 MYNDBANDSTÆKI hafa verið
svikin út úr myndbandaleigum það
sem af er árinu. Fólk hefur tekið
myndbandstæki á leigu og framvísar
fölskum skilríkjum og hefur síðan selt.
Verðmæti myndbandstækjanna er vel
á aðra milljón króna, en f fæstum til-
vikum hefur tekist að hafa upp á
tækjunum.
Þrír menn voru handteknir í vor
eftir að hafa svikið út sjö mynd-
bandstæki hjá myndbandaleigum
víðs vegar á Reykjavíkursvæðinu og
selt þau sama manninum. Rann-
sóknarlögreglu ríkisins tókst að
endurheimta öll tækin, en fjögur
þeirra voru svikin út í lok síðasta
árs og því ekki meðal þeirra 32, sem
svikin hafa verið út í ár.
„Sameiginlegt í þessum málum er,
að tækin hafa verið svikin út til
þess að endurselja þau. I mörgum
tilvikum tengjast myndbandstækja-
svikin fíkniefnakaupum og þess eru
dæmi að skipt hafi verið á fíkniefn-
um og myndbandstækjum," sagði
Erla Jonsdóttir, deildarstjóri hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Matthías Johannessen
gönguljóðum Matthíasar Johann-
essen er 2. útgáfa bókarinnar,
mikið breytt frá fyrri útgáfu sem
kom út 1960 og er löngu uppseld.
Skáldið hefur bæði breytt ljóðum
og bætt við mörgum nýjum og síð-
an eru skýringar við ljóðin gerðar
af skáldinu sjálfu. Eru þær til
hægðarauka hér vegna þess hve
mikið er af skfrskotunum í aðrar
bókmenntir, íslenskar og erlendar,
í þessum ljóðum.
öll eintök bókarinnar eru árituð
af skáldinu og mun svo verða um
aðrar bækur klúbbsins að höfund-
ar eða umsjónarmenn áriti þær
þegar því verður við komið.
Hólmgönguljóð eru 94 bls. að
stærð.