Morgunblaðið - 13.09.1985, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.09.1985, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1985 Er kominn tími til róttækra breytinga á íslenskri feröaþjónustu? „Leggjum Ferðamála- ráð íslands niður“ Getur ferðaþjónustan tekið ábyrgð á markvissri sókn í ferðamálum og lagt fram eigið fjármagn til þeirra hluta? — eftir Sigurð Sigurðarson „Og er lagt til að frjáls samtök fyrirtækja og annarra, sem at- vinnu hafa af ferðamannaþjón- ustu, verði stofnuð og taki við hlutverki Ferðamálaráðs íslands, sem verði lagt niður í núverandi mynd.“ Svo segir m.a. í atvinnu- málaályktun 28. þings Sambands ungra sjálfstæðismanna, sem haldið var á Akureyri um síðustu mánaðamót. Líklegt er að þessi skoðun ungra sjálfstæðismanna veki nokkra eft- irtekt enda róttæk breyting á skipulagi ferðamála hér á landi. Því er ekki úr vegi að kynna stutt- lega, hvað í þessari ályktun felst og hverjar gætu verið fyrirmynd- irnar. Ferðaþjónustan er mik- ilvæg atvinnugrein Ferðaþjónustan er gjaldeyris- skapandi atvinnugrein. Hún er því í eðli sínu „útflutningur". Útlend- ingar eru hvattir til að koma hing- að til lands. Þeir greiða fyrir þjón- ustu flutningsaðila, flugfélaganna, sem eru í eigu Islendinga, eða Norrænu, ferjunnar sem er í eigu hlutafélags og íslendingar eiga m.a. hlutabréf í. Útlendingar njóta þjónustu hótela, flugfélaga, áætl- unarbíla, verslana, veitingahúsa, bílaleiga og fleiri og fleiri aðila innanlands. En ferðaþjónustan er einnig í eðli sínu gjaldeyrissparandi. Þeir fslendingar, sem kjósa frekar að ferðast innanlands en erlendis, spara þjóðfélaginu um ieið dýr- mætan gjaldeyri. Fjölbreytt og gróskuleg þjón- usta, sem jafnframt er vel skipu- lögð, verður síðan til þess að ferða- menn dreifast víða um land og um leið dreifist fjármagnið. Það nýtist til launagreiðslna, uppbyggingar og fjárfestingar í byggðum lands- ins. Fyrir vikið eykst atvinnuör- yggi og þannig stuðlar ferðaþjón- ustan að því að halda jafnvægi í byggð landsins. Þannig er hagnað- ur þjóðarbúsins bæði beinn og óbeinn. Talið er að rúmlega 4.000 manns starfi að meira eða minna leyti að ferðaþjónustu. Beinar gjaldeyris- tekjur af þjónustu við erlenda ferðamenn námu á síðasta ári um 1.100 milljónum króna og er þá aðeins átt við þann gjaldeyri sem skilað var til baka. Séu þessar gjaldeyristekjur bornar saman við heildarfram- leiðsluverðmæti útflutnings lands- manna á árinu 1984 kemur í ljós að íslensk ferðaþjónusta, þ.e. sá hluti hennar sem fellur undir þjón- ustu við útlendinga, skapar mun meiri gjaldeyri en útflutningur landbúnaðarafurða, en um það bil jafn mikið og tekjur af kísiljárns- framleiðslu. Ferðaþjónustan stendur ekki langt að baki útflutn- ingsiðnaðinum og má það teljast talsvert afrek þar sem skipulagn- ing og aðstæður iðnaðarins eru langtum fullkomnari og þróaðri. Tafla 1 Vöruútflutningur lands- manna á árinu 1984 Verðmæti í millj. kr. Sjávarafurðir........... 16.469 Iðnaðarvörur............. 2.164 Á1 og álmelmi............ 3.444 Kísiljárn................ 1.065 Landbúnaður................ 406 Ferðaþjónusta............ 1.100 Samkvæmt meðfylgjandi töflu er ferðaþjónustan ein af meiri- háttar atvinnugreinum þjóðarinn- ar. Inn í dæmið er ekki tekinn sá gjaldeyrissparnaður, sem fólginn er í ferðum íslendinga um eigið land í stað útlanda, enda harla erfitt að meta slíkt af einhverju viti. Það er einnig erfitt að gera sér grein fyrir því ástandi, sem skapast myndi ef drægi úr heim- sóknum erlendra ferðamanna hingað. Ljóst er þó að slíkt myndi valda gífurlegri röskun víða um land, eins ef drægi úr ferðalögum íslendinga um landið. Það er samdóma álit flestra, sem til þekkja, að möguleikar til ferða- þjónustu hér á landi eru gífurlegir. Af þeirri þjónustu, sem gæti höfð- að sterklega til útlendinga, má nefna heilsulindir, sem byggjast á notkun jarðhita til lækninga, uppbyggingu gönguleiða um há- lendi landsins, bætta aðstöðu til ráðstefnuhalds, gæsaveiðar, lax- og silungsveiði, jökiaferðir og fleira og fleira. Forsenda fyrir góðri og arðbærri ferðaþjónustu er þó góðir akvegir með bundnu slitlagi, bætt vega- kerfi á hálendinu, öruggar flug- samgöngur og jafnframt traustir og góðir flugvellir, betri ferjur og bættar ferjusamgöngur, fleiri hót- el, góð tjaldsvæði og ekki síst lægra verðlag. Yfirstjórn ferðamála Á síðasta Aiþingi var gildandi lögum um Ferðamálaráð íslands breytt nokkuð. Vægi breytinganna er þó ekki mjög mikið ef tekið er mið af skipan Ferðamálaráðs ís- lands. Fjölgað er í ráðinu og eiga þar nú sæti 23 aðilar. Fimm þeirra skipar samgönguráðherra, en samgönguráðuneytið fer með yfir- stjórn ferðamála hér á landi. Ráð- herra skipar bæði formann og varaformann ráðsins. Að auki skipa eftirtaldir aðilar einn full- trúa hver: Félag hópferðaleyfis- hafa, Félag íslenskra ferðaskrif- stofa, Félag leiðsögumanna, Félag sérleyfishafa, Ferðafélag fslands, Flugleiðir, Náttúruverndarráð, Samband veitinga- og gistihúsa, „önnur flugfélög en Flugleiðir hf.“, Ferðaþjónusta bænda, Reykjavík- urborg og ferðamálasamtök, en þau erú starfandi í öllum kjör- dæmum og tilnefna einn mann hvert. Níu síðastnefndu aðilarnir hafa ekki átt fyrr aðild að Ferða- málaráði, enda eru ferðamálasam- tök tiltölulega nýtt fyrirbrigði.. Við ofangreinda skipan ráðsins er að sjálfsögðu margt að athuga. Til dæmis má spyrja hvers vegna ferðafélagið Útivist eigi ekki aðild að ráðinu rétt eins og Ferðafélag íslands? Hvers vegna eiga bílaleig- ur ekki einnig aðild að ráðinu rétt eins og flugfélög eða rútueigend- ur? Hvers vegna skyldi Félag land- varða ekki eiga aðild að ráðinu rétt eins og Félag leiðsögumanna? Hvers vegna á Stéttarsamband bænda aðild að Ferðamálaráði ásamt Ferðaþjónustu bænda, en ekki stéttarsamtök þjóna, verslun- armanna eða langferðabílstjóra. Hvers eiga ofangreindir aðilar að gjalda, eða hvers vegna eiga þeir og fjölmargir aðrir ekki aðild að Ferðamálaráði íslands, eða stendur ráðið ekki undir nafni? Hvers vegna er verið að blanda saman stéttarfélögum, félagasam- tökum atvinnurekenda, sjálfboða- Sigurður Sigurðarson „MeginmáliÖ er hins vegar þaöj hvort Feröa- málaráöi Islands sé stætt aö starfa sem opin- ber stofnun eöa hvort ráöið eigi að vera frjáls félagasamtök þeirra er njóta hagnaöarins og þola tapiö af rekstri fyr- irtækja í ferðaþjónustu. Eins og fram kom í upphafi eru ungir sjálf- stæöismenn á síðar- nefndu skoðuninni. liðafélagi, ferðamálasamtökum, einkafyrirtækjum, opinberri stofnun og sveitarfélagi. Hvers vegna eru þessir aðilar teknir fram yfir aðra sem hér hafa t.d. verið nefndir af handahófi? Hvar er samræmingin? Líklega er svarsins ekki að leita í nútímanum heldur á þeim tíma sem hið fyrsta Ferðamálaráð ís- lands var stofnað. Þar var valin sú leið sem enn er haldið áfram á. Annað hvort hefur mönnum ekki hugkvæmst gáfulegri breytingar á skipulagi ferðaþjónustu eða menn óttast aðrar leiðir. Staðreyndin er þó sú, að margra áliti, að árangur starfs Ferðamálaráðs íslands hef- ur verið mjög lítill. Margt kemur þar til sem of flókið yrði að ræða í þessari grein. Ferðamálaráð er að öllu leyti fjármagnað af hinu opinbera. Þó má geta þess að þóknun ráðs- manna fyrir funda- og nefndarset- ur er greidd af þeim aðilum sem hafa tilnefnt þá! Þar með er upp talinn sá kostnaður sem ráðsaðilar hafa af þátttöku sinni. Ríkissjóður fjármagnar starfsemi Ferðamála- ráðs íslands að öllu leyti. Fríhöfn- inni í Keflavík, sem er í eigu ríkis- ins, er gert að greiða hluta af veltu sinni beint til Ferðamálaráðs. Á síðasta ári fékk Ferðamálaráð kr. 19.984 millj. krónur til starf- semi sinnar, þ.e.a.s. til skrifstofu- halds og framkvæmda. Meginhluti þessarar upphæðar kemur frá Fríhöfninni. í ár eru veittar 8,5 milljónir úr ríkissjóði til Ferða- málaráðs og mun tillag frá Frí- höfninni verða um 12,0 milljónir. Þess má geta hér að Flugleiðir verja árlega 120 milljónum króna til auglýsinga- og kynningarmála. Reiknað hefur verið út að hlutur Flugleiða af þeirri upphæð, sem áriega er varið til fslandskynninga á erlendri grund af íslendingum, sé um 70%. íslandskynningar Flugleiða koma að sjálfsögðu fleir- um til góða en þeim sjálfum, nýtist innlendum aðilum í ferðaþjónustu því útlendingar sem hingað koma með Flugleiðum kaupa að sjálf- sögðu ekki alla sína þjónustu af flugfélaginu. Svo mikið „álit“ hafa ýmsir á núverandi skipan ferðamála hér á landi og starfi Ferðamálaráðs, að sagt hefur verið að líklega gæti ríkisvaldið ekki gert betur en að gera Ferðamálaráð íslands að deild innan Flugleiða. Ábyrgir menn hafa sagt að þá myndi fram- lag ríkisins nýtast mun betur en með núverandi hætti. Ekki skal hér lagður dómur á þessar fullyrð- ingar. Meginmálið er hins vegar það, hvort Ferðamálaráði fslands sé stætt að starfa sem opinber stofnun eða hvort ráðið eigi að vera frjáls félagasamtök þeirra er njóta hagnaðarins og þola tapið af rekstri fyrirtækja í ferðaþjón- ustu. Eins og fram kom í upphafi eru ungir sjálfstæðismenn á síðar- nefndu skoðuninni. Þeir vilja hvetja til þess að Ferðamálaráð verði lagt niður en merki þess taki upp almenn samtök aðila í ferða- þjónustu. Fyrirmyndir má til dæmis sækja til Verslunarráðs íslands og Útflutningssamtaka iðnaðarins. Hér er tilvalið að kynna upp- byggingu og starf þessara tveggja samtaka. Annars vegar er um að ræða algjörlega frjáls félagasam- tök, en í hinu tilvikinu er um að ræða hálfopinbera stofnun þar sem fulltrúar ríkisins og þeirra aðila, sem hagsmuna hafa að gæta, sameinast. Verslunarráö íslands Fyrirtæki í rekstri tengdum verslun og viðskiptum eiga aðild að Verslunarráði Islands. Aðild er ekki háð rekstrarformi. Innan ráðsins fyrirfinnast einstaklings- fyrirtæki, hlutafélög og samvinnu- félög. Aðilar eru 520. Aðilar að Verslunarráði íslands greiða árgjald sem fundið er út sem þúsundasti hluti af veltu (pró mill, 0/00). Árgjöldum er skipt í flokka eftir veltuupphæð aðildar- félaga. Atkvæði á aðalfundi hafa allir, en þó mismörg eftir því í hvaða veltuflokk þeir veljast. Háum félagsgjöldum fylgir því réttur til meiri áhrifa. í stjórn eiga 19 menn sæti og eru 19 að auki í varastjórn. Stjórn- in er kjörin á aðalfundi, sem er haldinn annað hvert ár, og er þvi kjörtímabil stjórnarmanna tvö ár. Kosning til stjórnar fer fram skriflega fyrir aðalfund. Öllum aðilum að Verslunarráði íslands eru send kjörgögn í pósti. Talið er í stjórnarkjöri kvöldið fyrir aðal- fund og eru úrslit kynnt á fundin- um. Formaður ráðsins er kosinn sér og á aðalfundi. Stjórn Verslunarráðsins fundar mánaðarlega, en þó með þeirri undantekningu að ekki eru haldnir fundir í júni og júlí. Stjórn ráðsins kýs sér 4 manna framkvæmda- stjórn og á formaður sæti í henni. Framkvæmdastjórnin heldur sið- an fundi á tveggja vikna fresti að meðaltali. Starfsemi Verslunarráðs Is- lands er margvísleg, en þó felst hún einkum í þremur atriðum: Stefnumörkun í atvinnulífinu, þjónustu við félagsmenn, nefna má telexþjónustu og upplýsinga- , skrifstofu, en fyrir hvort tveggja verða félagsmenn að greiða. Gefið er út fréttabréf sem sent er öllum aðilum. Að síðustu má nefna að Verslunarráðið styður einstök framfaramál sem snerta við- skiptalífið að einhverju leyti. Ráð- ið stundar eigin hagrannsóknir, gefur umsögn um lagafrumvörp og s.frv. Á skrifstofu Verslunarráðs ís- lands starfa 10-12 manns. Rekstur skrifstofunnar kostaði 6,7 milljón- ir 1983 en losaði 10 milljónir á síðasta ári. Rekstrartekjur ársins 1983 námu kr. 7,8 milljónum króna. Hlutur árgjalda í tekjum er rúmar 4,2 milljónir króna eða um 54%. Útflutningsmiöstöö iön- aðarins Án efa gæti íslensk ferðaþjón- usta tekið Útflutningsmiðstöð iðnaðarins sér til fyrirmyndar. Aðilar að Útflutningsmiðstöðinni eru þessir: Félag íslenskra iðn- rekenda, sem tilnefnir tvo menn í stjórn, Samband íslenskra sam- vinnufélaga, sem tilnefnir einn mann, Landssamband iðnaðar- manna, sem tilnefnir einn mann, og að lokum tilnefnir iðnaðarráðu- neytið og viðskiptaráðuneytið sinn manninn hvort í stjórn. Útflutningsmiðstöð iðnaðarins er studd af hinu opinbera. Á árinu 1984 nam stuðningur ríkisins samkvæmt fjárlögum kr. 2,9 millj- ónum króna. I ár munu tekjur Útflutningsmiðstöðvarinnar koma með sérstöku framlagi af fjárlög- um að upphæð kr. 4,5 milljónir. Þá fær Útflutningsmiðstöðin hluta af því gjaldi, sem lánþegum úr Iðnlánasjóði er gert að greiða, og að auki kemur framlag frá Iðn- þróunarsjóði og að síðustu hefur Útflutningsmiðstöðin tekjur af einstökum verkefnum sem hún ræðst í. Á skrifstofu Útflutningsmið- stöðvar iðnaðarins starfa 10 manns auk viðskiptafulltrúa í New York og Færeyjum. Fyrir utan annað starfsfólk eru starfandi þrír markaðsfulltrúar hver á sínum sérsviðum. Hjá Útflutningsmiðstöð iðnað- arins er unnið markvisst að mark- aðsöflun erlendis fyrir hina ýmsu útflytjendur iðnvarnings. Það sem meira er, og skilur á milli t.d. ferðaþjónustunnar og útflutnings- iðnaðarins, að hér er á ferðinni fagleg þjónusta við íslensk iðn- fyrirtæki og sambönd þeirra. Ráðnir eru viðskiptafulltrúar til starfa á vænlegum svæðum og til þess nýttur stuðningur opinberra aðila. Erlendir markaðsráðgjafar eru oft ráðnir og þá með tilstyrk ráðuneytis eða norrænna sjóða. Leitast er við að kynna íslenskum framleiðendum atvinnuhætti á erlendum mörkuðum svo þeir geti betur uppfyllt þær kröfur sem gerðar eru til eiginleika og gæða. Útflutningsmiðstöðin stendur fyrir markaðsferðum víða um lönd. Nefna má ferðir sem nýlega voru farnar til Skotlands, Grænlands, Irlands og Hjaltlandseyja. Þá tók Útflutningsmiðstöðin þátt í sam- starfi við Norræna verkefnissjóð- inn og lönd í Skandinavíu um verkefni í Indónesíu. íslenskir útflytjendur iðnvarn- ings líta bjartsýnir fram á veginn. Stjórn Útflutningsmiðstöðvarinn- ar hefur t.d. samþykkt starfsáætl- un þar sem m.a. er lögð áhersla á frumkvæði markaðsfulltrúa í störfum sínum. Áhersla er lögð á að samræma stefnur til að nýta betur krafta og bæta menntun. Forsvarsmenn hafa sagt að ein helsta hindrunin í vegi átaks í út- flutningi sé skortur á hæfu fólki til markaðsstarfa og því þurfi að bæta menntun á því sviði. Ekki er úr vegi aÁ gefa Þráni Þorvaldssyni, framkvæmdastjóra Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins, lokaorðið í þessum kafla, en hann segir í formála fréttabréfs Úi. „Við gerum okkur grein fyrir því, að sú starfsáætlun, sem hér er kynnt, er nokkuð umfangsmikil og Út- flutningsmiðstöðin er fáliðuð. En við ætlum okkur nokkurn tíma til að hrinda þessu í framkvæmd. Við

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.