Morgunblaðið - 13.09.1985, Side 38

Morgunblaðið - 13.09.1985, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1985 „ % Afmæliskveðja: Sighvatur P. Sighvats ' Sauðárkróki 70 ára Á þessum merku tímamótum í lífi Sighvats, hlýt ég að senda honum kveðju mína og fjölskyldu minnar, því margs er að minnast, en Sighvatur mun vera fyrsti maðurinn i lífi mínu sem ég bast vináttuböndum sem enst hafa æ síðan. Það var aðeins yfir götuna að fara frá Mikkahúsinu að símstöð- inni, sem voru æskuheimili okkar, en í húsi gömlu símstöðvarinnar hefur hann átt heima alla sína ævi. Pétur, faðir Sighvats, var sím- stöðvarstjóri og þúsundþjalasmið- ur, með hin undursamlegustu verkfæri til að skoða og fá lánuð ef verið var að basla við smíðar. Mínar fyrstu barnsminningar eru tengdar Sighvati og var ég heima- gangur á „Stöðinni", eins og hús þeirra var kallað. Þar gekk ég undir nafninu folaldið, og þótti gott. A „Stöðinni" var ekki aðeins fróðlegt að fylgjast með verkstæð- inu og því tæknilega starfi sem þar fór fram, heldur einnig þeim fjölbreyttu veiðum sem Sighvatur og Pálmi, eldri bróðir hans, stund- uðu. En hjá þeim var ég „háseti", þegar verið var að draga fyrir á Sandinum eða í fjörunni framan við þorpið. Var minn hlutur öll rauðspretta og sandkoli, sem kom í vörpuna. Lagði ég hann í búið hjá móður minni að hluta og seldi afganginn. Þannig aflaði ég minna fyrstu króna. Sighvatur átti fjóra bræður og eina systur, Ragnheiði, sem dó ung. Pálmi var elstur, veiðimaður af guðsnáð, meðan honum entist aldur, þá Gunnar, afburða hag- leiksmaður, en féll frá ungur. Þriðji Ragnar, sem dó mjög ungur. Þórður sá fjórði, einnig allur í tækninni. Sighvatur var svo yngst- ur, og lifði og hrærðist í veiði- mennsku. Þekking Sighvats á dýralífi, til sjós, til lands og í lofti er fágæt, og er unun á að hlýða þegar hann segir frá eðli og háttum dýranna. Ekki er ég í vafa um að vísinda- menn gætu farið í smiðju til hans og numið fróðleik sem ekki verður af bókum numinn. Seinast þegar við hittumst sagði hann mér merkilega sögu um undraverða hætti helsingja, þó ekki verði hún rakin hér, en ég drep á aðra sögu sem sýnir athyglisgáfu þeirra bræðra, Pálma og Sighvats. Ég mun hafa verið um 12 ára og „kúskur" á Öxnadalsheiði þegar þessi saga gerðist. Kom ég í helg- arfríi út á Krók oggekk með Pálma niður á Kamb. Þar voru fjórir bát- ar nýkomnir að landi, og lá aflinn í fjörunni, tilbúinn til aðgerðar. Pálmi leit á aflann 1 fjörunni og sagði sjómönnunum á hvaða mið- um þeir höfðu verið. Samsinntu þeir því og kváðu rétt vera. Þannig gekk með alla fjóra bátana. Ég varð hissa, en þorði ekki að opin- bera fáfræði mína og spurði einsk- is þá. Fyrir stuttu sagði ég Sig- hvati frá þessu, og ekki stóð á svörum. Hann sagði mér nákvæm- lega af hverju maður þekkir fisk- inn af miðunum. Þetta litla dæmi sýnir þá miklu athyglisgáfu sem þeir bræður eru gæddir. Lengi réru þeir bræður á trillu sem Leiftur hét og voru fengsælir mjög. Síðar leigðu þeir mótorbát frá Akranesi og gerðu út á síld í nokkur sumur. En alltaf unnu þeir saman meðan Pálma naut við, og reyndist farsælt. í allnokkur ár stundaði Sig- hvatur símavinnu hjá Þórði bróður sínum. Þegar Þórður hætti með símavinnuna gerðist Sighvatur háseti á einum af skuttogurum Skagfirðinga og kom sér vel að vanda. Nú fór hann að eldast og fór í land, en í samvinnu við elsta son sinn, Ragnar, sem hafði keypt sér trillu af bestu gerð, gerðist Sig- hvatur nú traustur liðsmaður og hollur ráðgjafi, og er enn að, þó minna sé en áður var. Samhliða þessu hefur hann unnið í uppskip- unarvinnu undir farsælli stjórn góðkunningja síns, Steindórs Steindórssonar, sem þar ræður ríkjum. Ekki má láta ógetið þess eðlis- þáttar í skapgerð Sighvats, sem er gjafmildin. Það munu vera ófá tonnin af fiski sem hann hefur gefið vinum og kunningjum, og mun margan einstaklinginn hafa munað um minna. Annar ríkur eðlisþáttur Sig- hvats er sérstakur frásagnarhæfi- leiki, samfara stálminni. Segir hann frá á góðu máli og rneð nokkuð sérstöku orðavali, sem ekki er allra. Ekki skal þetta undra, því sagnaþulir eru í ættinni. En Sighvatur hefur ekki verið einn í lífsbaráttunni. Snemma bast hann konu sinni, Herdísi Pálma- dóttur frá Reykjavöllum í Tungu- sveit, svo ekki var farið útfyrir héraðið í konuleit. Eiga þau átta börn, 5 drengi og 3 stúlkur, sem öll eru hin mannvænlegustu og flest hafa sest að í heimabyggð. Þau hjón munu fagna vinum heima á Króki f kvöld, föstudags- kvöld, og er ekki að efa að þar munu margir hylla þennan sér- staka persónuleika, vin minn, Sig- hvat á Stöðinni. Ottó A. Michelsen > Lokahrina Stuðmanna Félagsgarði í Kjós í kvöld, föstudagskvöld kl. 22.00 Sætaferðir frá BSÍ og Akranesi kl. 22.00 Frevvangi Eyjafirði laugardagskvöld ■ — ~o Sætaferöir frá Öndvegi Akureyr^^^ > g Dalvík kl. 22.30 Hótel Sögu w Bflaklúbbur Akureyrar: Torfærukeppni á sunnudaginn Torfærukeppni Bílaklúbbs Ak- ureyrar verður haldin sunnudag- inn 15. september klukkan 14.00 í Glerárdal ofan Akureyrar. Keppt verður í tveimur flokkum jeppa, sérútbúnum og hefðbundnum. 12 keppendur eru skráðir til leiks. (FrétUtilkynning) Nýlistasafnið: Samsýning átta lista- manna SAMSÝNING átta erlendra lista- manna verður opnuð í Nýlista- safninu við Vatnsstíg í kvöld kl. 20.00. Gerwald Rockenscaub frá Aust- urríki sýnir þrjú olíumálverk. Jan Knap sýnir fjórar teikningar af trúarlegum toga, Jan Mladowsky frá Prag leggur til fjórar akrýl- myndir. John van’t Slot sýnir fimm gouache-myndir og Juliao Saramento þrjár akrýlmyndir. Einnig eru átta fíltpennateikn- ingar eftir Peter Angermann og tvær myndir eftir Stefan Szczesny. Loks sýnir Austurríkis- maðurinn Thomas Stimm tólf gouache-myndir af eðlilegu og frjálslegu baðstrandalífi. Sýningin stendur til sunnudags- ins 22. september og er opin dag- lega frá kl. 16.00 til 22.00.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.