Morgunblaðið - 13.09.1985, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.09.1985, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1985 Veður víða um heim L*gst Haaat Akureyri 14 ak«a« Amalerdam 10 23 haiðakírt Aþena 17 27 hatóakirt Barcetona vantar Bartin 9 23 ekýjað t-n É BrUIMI 11 26 hatóakírt CMcago 14 20 hatóakírt Oubtin 10 18 akýjað fanayjar 23 ekýjað Franfcturt 10 23 hatóakirt Ganf 8 23 haiðskirt Hetsmki 7 14 hafðskirt Hong Kong 25 30 halðskirt Jarúaatom 18 25 haiðskírt Kaupmannah 8 19 hatóskirt Laa Patmaa vantar Liaaabon 19 30 •kýjað London 25 skýjað Loa Angelaa 15 24 hatóskírt Lúiomborg 21 skýjað vantar Matiorca vantar Miami 22 30 rigning Montreal 4 15 •kýjað Moekva 6 12 skýjað oa w 1- NIW T OrK 18 21 hatóskirt Oató 3 17 haiöskirt Parte 12 26 hatóakirt Pakmg 17 25 akýjað Raykjavik 11 akýjað Rtó da Janatro 13 27 betOskírl Rómaborg 13 30 beióskfrt Stofckhútinur 9 12 skýjað Sydney 12 19 akýjað Tókýó 22 26 hoiðskírt Vinarborg 9 22 haiðtkirt Þórahotn 12 hatóakfrt Astralía: Heimsókn Mitterrands harðlega mótmælt ^ ('anberra, Ártralíu, 12. september. AP. ÁSTRÖLSK stjórnvöld tilkynntu Frökkum á þriöjudag aó þeir væru óvelkomnir á Sudur-Kyrrahafseyjum og ákvörðun þeirra um að halda áfram kjarnorkutilraunum þar bæri vott um fyrirlitningu í garð þjóða á þessu svæði. Utanríkisráðherrann, Bill Hayden, sagði að stjórn Astralíu teldi væntanlega heimsókn Francois Mitterrands Frakklandsforseta til Mururoa-kóralrifsins vera óviðeigandi og ögrandi. Upphaf þessa máls var að Heyd- en afhenti Bernard Follin, sendi- herra Frakklands, yfirlýsingu þar sem væntanlegri heimsókn Mitt- errands til Frönsku-Polynesíu á föstudag er harðlega mótmælt, en þar á hann að veita forsæti fundi sem fjalla mun um kjarnorkutil- raunir Frakka. í mótmælunum segir m.a.: „Ríkisstjórn Ástralíu álítur heimsóknina bera vott um áreitni og að með henni sé ríkjum á Suður-Kyrrahafi, að Ástralíu meðtalinni, sýnd niðurlæging. Einkum þar sem fundurinn virðist hafa verið boðaður til að undir- strika ákvörðun Frakka um að halda áfram kjarnorkutilraunum, þrátt fyrir mótmæli umheimsins og ríkisstjórna í þessum heims- Sænskum sjónvarps- hnetti skotið upp Stokkhólmi, 12. september. AP. FYRSTA sænska sjónvarpsfjar- skiptahnettinum verður skotið á braut um jörðu á morgun, föstudag, með Ariane-eldflaug. Verður þar jafnframt um að ræða 15. geimskotið á vegum Evrópsku geimferðastofn- unarinnar. Fjarskiptahnettinum verður skotið upp frá Kourou í Frönsku- Guayana í Suður-Ameríku og ef allt gengur að óskum gefst sænsk- um fyrirtækjum og stofnunum innan tíðar kostur á að senda sjón- varps- og útvarpsefni til allrar Vestur-Evrópu. Fyrir á braut er vestur-evrópskur fjarskiptahnött- ur með 15 rásum en hvorki Svíar né aðrar Norðurlandaþjóðir hafa komist þar að. Jarðstöðin, sem sent verður frá, er í Stokkhólmi og verður tilbúin til notkunar í júlí á næsta ári. Heimsmeistaraeinvígið: KARPOV Á MÖGU- LEIKA Á AÐ JAFNA FJÓRÐA skákin í heimsmeistara- einvígi þeirra Karpovs og Kasp- arovs fór í bið í Moskvu í gær og hefur heimsmeistarinn frumkvæð- ið, í fyrsta sinn í einvfginu. Skákin fór rólega af stað og lengi vel virt- ist svo sem hún hlyti að enda með jafntefli. Það var þó óumdeilaniega Karpov sem stóð örlítið betur og f stöðum þar sem lítið er að gerast og miklir liðsflutningar mögulegir, nýtur heimsmeistarinn sín bezt Karpov hélt vel á spöðunum og þegar skákin fór f bið voru skáksér- fræðingar í Moskvu almennt sam- dóma um að hann ætti einhverja vinningsmöguleika. 1 biðstöðunni getur Karpov sótt að stöku peði áskorandans, auk þess sem kóngsstaða Kasp- arovs er illa varin. Hins vegar er peðastaða og kóngsstaða heimsmeistarans mjög traust, þannig að það er ljóst að Kasp- arov verður að tefla af mikilli nákvæmni til að geta haldið skákinni. Heimsmeistari kvenna, Maja Chiburdanidze, sagði eftir að skákin fór f bið að Karpov stæði augljóslega betur, en hún væri ekki viss um að það nægði til vinnings. Sovézku stórmeistar- arnir Taimanov og Gufeld tóku í sama streng en töldu að með óaðfinnanlegri vörn ætti Kasp- arov að geta haldið jafntefli. 4. einvígisskákin: Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Gary Kasparov Drottningarbragð. 1. d4 — d5, 2. c4 — e6, 3. Rc3 — Be7, 4. Rf3 — Rf6, 5. Bg5 — h6, 6. Bxf6 - Bxf6. Þessi staða kom einnig upp í þriðju skákinni þegar Kasparov hafði hvítt. Hann lék nú 7. Db3, en Karpov náði fremur auðveld- lega að jafna taflið. Svo virðist sem meistararnir séu enn báðir á sömu skoðun og sl. vetur þegar þeir treystu drottningarbragðinu bezt þegar þeir höfðu svart. 7. e3 — 0—0,8. Dc2 — Ra6l? Nýr leikur í stöðunni. I 27. skák fyrra einvígisins svaraði Kasparov með 8. — c5,9. dxc5 — dxc4, en tókst ekki að jafna taflið og tapaði. Hugmyndin með nýja leiknum er að svara 9. cxd5 með 9. — Rb4. Eftir 20 mínútna umhugsun lék Karpov. 9. Hdl — c5, 10. dxc5 — Da5, 11. cxd5 — Rxc5,12. Dd2 Það var ekki vænlegt að reyna að halda i peðið, því svartur er á undan f liðsskipan. T.d. 12. d6 — Bd7 og síðan 13. — Hac8, 12. dxe6 — Bxe6, 13. Rd4 — Had8 og svartur hefur góðar bætur fyrir peðið. 12. - Hd8, 13. Rd4 — exd5, 14. Be2 — Db6, 15. 0—0 — Re4, 16. Dc2 — Rxc3, 17. Dxc3 — Be6, 18. Dc2 Svartur situr að vísu uppi með staka peðið á d5, en biskupaparið tryggir honum töluvert mótvægi. 18. - Hac8, 19. Dbl - hc7, 20. Hd2 — Hdc8 Eftir uppskiptin sem nú fara í hönd hefur svartur að vísu ekki lengur stakt peð á d5, en peða- staða hans veikist á annan hátt. Það var þvi sennilega skynsam- legra að halda þessum hrók á d8 til að geta svarað 21. Rxe6 með Dxe6. 21. Rxe6! — fxe6, 22. Bg4 — hc4, 23. h3 - Dc6, 24. Dd3 — Kh8, 25. Hfdl — a5, 26. b3 - Hc3, 27. De2 — HÍ8,28. Bh5 — b5,29. Bg6 Karpov nýtur sin vel í slfkum stöðum þegar andstæðingur hans hefur ekkert mótspil. I fram- haldinu kemur hann ár sinni mjög vel fyrir borð, honum tekst bæði að skapa sér færi á skálfnu bl — h7 og einnig að leika e3 — e4 á réttu augnabliki 29. - Bd8, 30. Bd3 — b4, 31. Dg4 — De8, 32. e4! — Bg5, 33. Hc2 — Hxc2, 34. Bxc2 — Dc6, 35. De2 — 1 Dc5 Nú hótar svartur 36. — Hxf2, 37. Dxf2 - Be3. 36. Hfl — Dc3, 37. exd5 — exd5, 38. Bbl Hér kom einnig vel til greina að leika 38. Hdl, því bæði 38. — Bh4?, 39. Hxd5 og 38. - Dc5, 39. Dxf2+, 40. Khl - Kg8, 41. Dxd5 eru hagstæðar leiðir fyrir hvítan. 28. — Dd2, 39. De5 — Hd8, 40. Df5 — Kg8 { þessari stöðu fór skákin í bið. Karpov, hvítur, lék biðleik. Sennilegasti biðleikurinn er 41. Bc2 til að reyna að koma hvita hróknum i sóknina með 42. Hdl. Svarti kóngurinn er hins vegar í engri hættu eftir 41. Dh7+ — Kf8. Mislitir biskupar f þessari stöðu auka jafnteflislíkur svarts ekki sérlega mikið, þvi oft getur verið erfitt að verjast i slíkum töflum ef drottningarnar eru á borðinu. Svartur getur t.d. með engu móti valdað hvítu reitina h7 og g6 og verður að treysta því að kóngur hans eigi ávallt grið- land á f8 f framhaldinu. Karpov á þvi vinningsmöguleika í stöð- unni, þrátt fyrir að hún sé frem- ur einföld og liðsmunur jafn. hluta.“ Hayden lýsti þvi yfir á þingi á miðvikudag að Frakkar gætu vel framkvæmt kjarnorku- tilraunirnar í eigin landi. Hann sagði að nýjar rannsóknir sýndu að Frakkar gætu gert þessar til- raunir á stóru svæði í Mið- Frakklandi og einnig á eynni Korsíku. Mitterrand Frakklandsforseti. Loðnuveiðar ganga vel viðGrænland Nuuk, 12. september. Frá fréttaritara Morgunblaðsins, N J. Bruun. Loðnuveiðarnar við Grænland ganga mjög vel nú og hafa Færeyingar þegar veitt 40.000 af þeim 50.000 tonnum sem þeir keyptu af grænlenzka kvótanum. Það var sá kvóti, sem Grænlendingar sjálfir ákváðu, eftir aö viðræður ura veiðiheim- ildir milli íslands, Noregs, Grænlands og Danmerkur fóru út um þúfur. Dönsk skip hafa þegar veitt 12.500 tonn af þeim 15.000 tonnum, sem Grænlandi var úthlutað af Evrópubanda- laginu. Þótt loðnuveiðarnar hafi al- mennt gengið vel, þá er svo ekki hjá öllum. Danska blaðið Lemvig Folkeblad hefur skýrt svo frá, að Esbjerg-togarinn Shannon hafi haft lítið út úr því, að taka þátt í veiðunum á grænlenzka EB-kvót- anum. Veiðar togarans hafi kostað 250.000 d. kr. (um eina millj. ísl. kr.). Togarinn varð að hafa við- bótarolíugeymi og sérstök sigl- ingatæki meðferðis, þar sem DECCA-þjónusta er ekki í ná- grenninu. Túrinn tók 20 daga, en af þeim var aðeins unnt að nota 4 daga til sjálfra veiðanna og eftir þessa 4 daga hafði togarinn aðeins veitt 50 tonn af loðnu. POAC-ráð- stefnan hafin á Grænlandi Nuuk, 12. september. Frá frétu- riUra Mor^unblaðsins, NJ. Bruun I Nars8ars.suaq á Suður-Græn- landi er hafin alþjóðleg ráðstefna, sem gengur undir nafninu POAC- ráðstefnan (Port and Oecan Engen- erring undir Arctic Conditions). Þátttakendur eru 150 vísindamenn víðs vegar að í heiminum, þar á með- al Bandaríkjunum, Sovétríkjunum, Japan og Kína. Jonathan Motzfeldt, formaður grænlenzku landstjórnarinnar, setti ráðstefnuna og sagði þar m.a. að íbúar Grænlands ættu sjálfir að eiga réttinn til þeirra auðæfa, sem finnast þar á hafsbotni og því þyrfti að gera breytingu á stjórn- málasambandinu við Danmörku. Jafnframt tók Motzfeldt það fram, að náttúran á norður heimskauta- svæðinu væri viðkvæm og ekki mætti eyðileggja hana, „ekki held- ur með olíuævintýrum*. Gengi gjaldmiðla London, 12. september. AP. LITLAR breytingar voru í dag á gengi helstu gjaldmiðla gagn- vart dollaranum og er beðið eftir nýjum hagtölum frá Bandaríkjunum. Verða þær birtar á morgun og almennt búist við, að þær segi frá aukn- um hagvexti vestra. Kauphallarstarfsmenn sögðu, að tölurnar, sem á morgun verða birtar í Banda- ríkjunum, myndu gefa góða mynd af efnahagslífinu þar í landi og líklega sýna meiri hagvöxt en spáð hafði verið fyrir nokkru. Taka þessar tölur til smásöluverðs, iðnað- arframleiðslu og verðs frá framleiðendum. í Tókýó fengust í kvöld 244,05 jen fyrir dollarann en 242,75 í gær. Fyrir sterlings- pundið fást nú 1,3087 dollarar en 1,3077 í gær. Fyrir einn dollara fást nú: 2,9570 vestur-þýsk mörk (óbreytt), 2,4370 svissneskir frankar (óbreytt), 9,0125 franskir frankar (9,0050), 3,3220 hollensk gyllini (3,3175), 1.972,00 ítalskar lír- ur (1.964,00), 1,3726 kanad- ískir dollarar (1,3722). I London fengust í kvöld 320,80 dollarar fyrir gullúns- una en 320,50 í gær. Kína: Annar stórskjálft- inn á þremur vikum Peking, 12. sepiember. AP. f MORGUN varð mikill jarðskjálfti í Xinjiang í Vestur-Kína, nálægt landamærum Sovétríkjanna. A.m.k. fjórir létu lífið og tólf slösuðust al- varlega, að sögn jarðskjálftastofnun- arinnar í Xinjiang. Skjálftinn, sem reið yfir um kl. 4.45 að staðartíma (20.45 að ísl. tíma), mældist 6,8 stig á Richter- kvarða. Hinn 23. ágúst sl., fyrir aðeins þremur vikum, varð geysimikill jarðskjálfti á þessu sama svæði, eða 7,4 stig á Richter-kvarða, og þá fórust 63 og yfir 100 slösuðust. Síðan hefur jarðskjálftastofnun héraðsins skráð 631 skjálfta frá 1,0 upp í 5,1 stig á Richter-kvarða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.