Morgunblaðið - 13.09.1985, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1985
Aburðaryerksmiðjan:
Iðnaðarmenn höfn-
uðu sáttatillögunni
IÐNAÐARMENN í Áburðarverk-
smiðjunni í Gufunesi felldu sam-
hljóða sáttatillögu ríkissáttasemj-
ara til lausnar deilu þeirra við
vinnuveitendur. Tillaga sáttasemj-
ara hljóðaði upp á 15,06% hækkun
launa við undirritun, miðað við
laun í maí sl. Tillagan er talin
samsvara 5% launahækkun um-
fram almennar launahækkanir í
sumar, en iðnaðarmennirnir segj-
ast þurfa 14-18% umframhækkun
til að ná sömu kjörum og stéttarfé-
lagar þeirra á almennum vinnu-
markaði. Nýr sáttafundur hefur
ekki verið boðaður f deilunni, og
að sögn fulltrúa beggja aðila er
ekki búist við að fundur verði
haldinn í bráð.
Á meðan liggur áburðarfram-
leiðsla niðri í verksmiðjunni, en
vélarbilun í framleiðsluhúsinu
fyrir u.þ.b. hálfum mánuði hefur
komið í veg fyrir að hægt hafi
verið að fullvinna áburðinn. Er
tíminn notaður til hreinsunar-
starfa.
Hákon Björnsson forstjóri
Áburðarverksmiðjunnar sagði að
enn væri áhrifa framleiðslustöðv-
unarinnar ekki farið að gæta:
„Framleiðslugeta verksmiðjunnar
er meiri en markaðurðinn kallar á,
svo enn erum við ekki komin í þá
stöðu að geta ekki staðið við að
framleiða nóg fyrir næsta vor. En
það kann að koma að því ef verk-
fallið dregst mjög á langinn enn,“
sagði Hákon. Verkfallið hefur nú
staðið hátt á fimmtu viku.
310 þús. tonn af olíu
keypt í Sovétríkjunum
— Áfram miðað við Rotterdamverð
Viðskiptaraðuneytið hefur samið
um kaup á 310 þúsund tonnum af
Breytilegt
veður um
helgina
BÚIST er við björt veðri sunnan-
lands fyrri hluta dagsins í dag
samkvæmt upplýsingum Veður-
stofunnar, en síðdegis þykknar
sennilega upp og léttir til fyrir
norðan.
Á laugardag verður norðan-
átt ríkjandi, líklega með rign-
ingu fyrir norðan en nokkuð
björtu veðri sunnanlands.
Og enn er búist við að veðrið
breytist á sunnudag því trúlega
verður lægð á ferðinni og þá
léttir til fyrir norðan en á Suð-
vesturlandi verður austan- eða
suðaustanátt og rigning.
JNNLENTV
olíuvörum frá Sovétríkjunum á
næsta ári. Er þetta jafn mikið af
olíuvönim og samningur yfirstand-
andi árs hljóðar upp á. Verðið miðast
áfram við skráningar í Rotterdam
sem eru breytilegar.
Olíuvörurnar skiptast þannig að
keypt verða 120 þúsund tonn af
gasoliu, sem er 20 þúsund tonnum
meira en á þessu ári, 120 þúsund
tonn af svartolíu, sem er 20 þúsund
tonnum minna en í ár, og 70 þús-
und tonn af bensíni, en það er
jafnmikið og í ár. Breytingar frá
gasolíu yfir í svartolíu eru vegna
breyttra markaðsþarfa hér. Svart-
olían er í háum gæðaflokki en
samið var um að hægt verði að fá
þykkari og ódýrari svartolíu ef
kaupendur óska þess.
Samningurinn var undirritaður
i Moskvu á miðvikudag af Vladi-
mir Morosov, forstjóra
Sojuznefteexport, og Þórhalli Ás-
geirssyni, ráðuneytisstjóra við-
skiptaráðuneytisins. Viðskipta-
ráðuneytið mun framselja sam-
inginn til íslensku olíufélaganna.
Forstjórar islensku olíufélaganna,
þeir Indriði Pálsson, Vilhjálmur
Jónsson og Þórður Ásgeirsson,
tóku einnig þátt í viðræðunum
ásamt Árna Kr. Þorsteinssyni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Byggingamefnd og dómnefnd, f.h.: Jón E. Böðvarsson, frkv.stj. byggingarnefndar, Pétur Guðmundsson, bygg-
ingarnefnd, Ásgeir Einarsson, byggingarnefnd, Garðar Halldórsson, dómefnd, Sigurður Örlygsson, dómnefnd,
Ólafur Jensson, trúnaðarmaður dómnefndar og Sverrir Haukur Gunnlaugsson, formaður dómnefndar, fyrir
miðri mynd. Honum á hægri hönd sitja Kjartan Gunnarsson, dómnefnd og byggingarnefnd, Bera Nordal,
dómnefnd, og Leifur Magnússon, byggingarnefnd.
Nýja flugstöðin á Keflavíkurflugyelli:
Samkeppni um gerð listaverks sem
staðsetja á fyrir utan flugstöðina
BYGGINGANEFND hinnar nýju
flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli
hefur ákveðið að efna til samkeppni
fyrir hönd Varnarmálaskrifstofu
Utanríkisráðuneytisins um lista-
verk, sem koma á fyrir utanhúss við
bygginguna. Reiknað er með að
verkið verði allmikið umfangs, sé
vel sjáanlegt þegar menn nálgast
flugstöðina og blasi við út um
glugga á norðurhlið hússins.
í gær var greint frá tilhögun
þessarar samkeppni og í frétt frá
Bygginganefnd flugstöðvarinnar
segir, að listaverkið skuli fara vel
við mannvirki staðarins og þola
það veðurálag, sem vænta megi á
þessum stað. Því verði að gera til-
lögu að listaverki úr veðurþolnu
efni. Að því er stefnt að lista-
verkið verði lýst upp með flóðljós-
um að kvöldlagi.
Verðlaunaupphæð er 400 þús-
und krónur og verða fyrstu verð-
launin 200 þúsund krónur. Auk
þess er dómnefnd heimilt að verja
allt að 150 þúsund krónum til inn-
kaupa. Tillögum þarf að skila eigi
síðar en klukkan 18 hinn 12.
febrúar á næsta ári. Heimild til
þátttöku hafa allir íslenzkir lista-
menn. Keppnisgögn eru afhent
hjá trúnaðarmanni dómnefndar,
Ólafi Jenssyni, framkvæmda-
stjóra, Byggingaþjónustunni,
Hallveigarstíg 1, Reykjavík.
I dómnefnd eiga sæti Sverrir
Haukur Gunnlaugsson, sendi-
herra, formaður, Berta Nordal,
listfræðingur, Garðar Halldórs-
son, Húsameistari ríkisins, Kjart-
an Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri íslenskra listamanna.
Mikil óánægja meðal
skreiðarverkenda
Yfirtaka ríkisins á 250 milljón króna skuld dregst á langinn
MIKILLAR og vaxandi óánægju
gætir nú meðal skreiðarverkenda
vegna dráttar stjórnvalda á tíma-
bundinni yfírtöku 250 milljóna króna
áhvílandi skuld verkenda. Sam-
kvæmt upplýsingum skreiðarverk-
enda áttu stjórnvöld að vera búin
að yfírtaka þessa upphæð í ágúst,
en nú telja þeir ólíklegt að það verði
fyrr en í næsta mánuði. Dráttur á
yfírtökunni eykur greiðslubyrði verk-
enda verulega að sögn þeirra.
Einn fulltrúa skreiðarverkenda
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að samkomulag hefði orðið um það
milli stjórnvalda og skreiðarverk-
enda, að stjórnvöld yfirtækju
áhvílandi skuldir á veðsettri skreið
að upphæð 250 milljónir króna og
greiddu af þeim vexti til 31. des-
ember 1988. Hefði þetta átt að
gerast fyrir vaxtagreiðsludag í
ágústmánuði síðastliðnum, en nú
virtist sem ekkert yrði af þessu
fyrr en í október. Taldi hann drátt
þennan á afgreiðslu málsins fyrst
og fremst stafa af seinagangi sjáv-
arútvegsráðuneytisins. Ætlunin
með þessu hefði verið að létta
greiðslubyrði skreiðarverkenda
þar til úr rættist með sölu skreið-
arinnar, en dráttur á yfirfærslunni
kostaði þá verulegar upphæðir og
gerði stöðuna enn verri en ella,
sérstaklega þar sem menn hefðu
reiknað með að staðið yrði við
gefin loforð og skuldin yfirfærð
fyrir vaxtadag í ágúst.
Kaupmáttur námslána hefur
hækkað um 14% frá 1982
— kaupmáttur tímakaups verkamanna
lækkaði á sama tíma um 20 %
KAUPMÁTTUR námslána veröur á
fjóröa ársfjórðungi þessa árs um
114 miðað við 100 á fyrsta ársfjórð-
ungi 1982. Á sama tíma hefur kaup-
máttur tímakaups verkamanna
lækkað í 77,9 og elli-og örorkulífeyr-
isþega í 90,7 eftir að hafa verið
lægstur í mars 1984. Námsmaður
getur nú fengið um 20.900 krónur
og ef um hjón er að ræða með eitt
bam eiga þau kost á yfír 50 þúsund
króna iáni frá Lánasjóði íslenskra
námsmanna.
Þessar upplýsingar komu fram
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins á ríkisstjórnarfundi sem
haldinn var á þriðjudag. Sama
dag gaf Ragnhildur Heigadóttir
menntamálaráðherra út breyt-
ingu á úthlutunarreglum Lána-
sjóðsins, þar sem hætt er að miða
lánin við vísitölu ráðstöfunar-
tekna, og fylgja þau nú þróun
framfærsluvísitölunnar. Ef sú
breyting hefði ekki verið gerð
hefðu námslán hækkað meira en
ella og kaupmáttur þeirra farið
yfir 120.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins vantar nú 181 milljón
króna til að endar nái saman hjá
Lánasjóðnum á þessu ári og hefur
þegar verið send inn beiðni fyrir
aukafjárveitingu. Þá hefur sjóð-
urinn farið fram á rúma 1,3 millj-
arða króna í fjárveitingu fyrir
næsta ár, en ef fjölgun náms-
manna verður svipuð og verið hef-
ur á síðustu árum kann svo að
fara að sjóðurinn þurfi 1,5 til 1,6
milljarða króna til að standa við
skuldbindingar sínar.
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri:
28 hjúkrunar-
fræðingar í
fullt starf
NÚ HAFA 28 hjúkrunarfræðingar
ráðið sig í fullt starf hjá Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) eftir
tilboð stjórnar sjúkrahússins um 15
þúsund kr. aukagreiðslu á mánuði
til hjúkrunafræðinga í fullu starfi.
Að sögn Ragnheiðar Árnadóttur
hjúkrunarforstjóra FSA eru þetta
allt hjúkrunarfræðingar sem áður
voru í hlutastarfi en unnu þeim
mun meiri yfirvinnu með því að
taka aukavaktir. Fyrir voru aðeins
15 hjúkrunarfræðingar í fullu
starfi en nú er meirihluti hjúkrun-
arfræðinga við sjúkrahúsið í fullu
starfi. „Eg er mjög ánægð með
þessa breytingu. Sjúkrahúsið hef-
ur verið rekið að stórum hluta með
aukavöktum og það er allt annað
líf að fá svona margt fólk í fast
starf. Það léttir undir með öllum
hópnum, auk þess sem sjúkling-
arnir fá betri þjónustu," sagði
Ragnheiður.