Morgunblaðið - 13.09.1985, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1985
15
gerum okkur grein fyrir því, að
það er aðeins stigsmunur, ekki
eðlismunur, á því að reka hálfopin-
bera stofnun og fyrirtæki. Við
verðum líka að skila mælanlegum
árangri. Sá árangur verður aðeins
mældur í auknum útflutningi. Því
þurfum við að setja okkur mark-
mið til langs og skamms tíma eins
og hvert annað fyrirtæki."
Er Ferðamálaráð stefnu-
laust?
Hér hefur nú verið fjallað um
tvær vænlegar fyrirmyndir sem
samtök í ferðaþjónustu gætu nýtt
sér. Hugsanlega mætti félagsskap-
ur aðila í ferðaþjónustu taka
Verslunarráð tslands sér til fyrir-
myndar. Hugsanlega mætti slíkur
félagsskapur nefnast Ferðamála-
samtök íslands eða eitthvað því-
umlíkt. Ferðamálasamtökin gætu
síðan í samvinnu við ríkisvaldið
staðið að nýju Ferðamálaráði ís-
lands, sem væri byggt upp svipað
og Útflutningsmiðstöð iðnaðarins.
Það nær að sjálfsögðu engri átt
að ferðaþjónustan skuli ekki skatt-
leggja sjálfa sig til sameiginlegra
mála, en ætla þess í stað ríkinu
þær skyldur. Eða gengur það öllu
lengur að ferðaþjónustan haldi
áfram að vinna sundruð og án
nokkurra markmiða? Hvað má
ekki segja um skipulagningu
ferðaþjónustunnar hér innan-
lands, nýtingu á ferðamannastöð-
um víða um land og uppbyggingu
nýrra staða með tilliti til framtíð-
arnýtingar? Hvað með nýjar
greinar í ferðaþjónustu sem hér
var tæpt á í upphafi? Hvar er
„Iðnþróunarsjóður" ferðaþjón-
ustunnar, „Iðnaðarbanki" hennar?
Og þá má að sjálfsögðu spyrja
hvernig á því standi að stjórnvöld
setji þá aðila yfir stjóm ferðamála
og Ferðamálasjóðs sem ekkert
leggja til sjálfir? Hvers konar
pilsfaldakapitalismi er þetta?
Það er ekki nema eðlilegt að
ríkið leggi fram fé til starfsemi
nýs Ferðamálaráðs á svipaðan
hátt og rikið styrkir iðnað og sjáv-
arútveg til góðra hluta. Væntan-
lega eru allir sammála því að ekki
skuli gert upp á milli atvinnu-
greina. Sjálfsagt er einnig að
framlag ríkisins sé hlutfall af
framlagi atvinnugreinarinnar til
sömu hluta. Ferðaþjónustan er
skattlögð eins og aðrar atvinnu-
greinar og því ekki nema eðlilegt
að ríkið styðji einnig við bakið á
henni í þeim málum sem horfa til
góðs fyrir þjóðfélagið.
Vísir að samstarfi aðila innan
ferðaþjónustunnar hefur þó átt sér
stað. Flugleiðir, Samband veit-
inga- og gistihúsa, Arnarflug,
Ferðamálaráð íslands, Ferðaskrif-
stofa ríkisins og Félag ferðaskrif-
stofa hafa opnað sameiginlega
skrifstofu í Hamborg sem fyrst og
fremst er ætlað að vinna að mark-
aðsmálum í Norður-Evrópu. Þessi
vísir að faglegri samvinnu er skref
í rétta átt en betur má ef duga skal.
Eins og fyrr var frá sagt hefur
Ferðamálaráð haft fastan tekju-
stofn af veltu Fríhafnarinnar í
Keflavík. Þessu hefur nú verið
breytt og á ráðið að fá fastan hlut
af vörusölu sem greiðist mánaðar-
lega beint til ráðsins. Sjálfsagt
væri eðlilegt að hinu nýja Ferða-
málaráði yrði gert kleypt að kaupa
Fríhöfnina. Að líkindum myndi
ráðið síðan leigja fyrirtækið út og
mundu leigutekjur síðan standa
undir stórum hluta af markaðs-
átaki Ferðamálaráðs erlendis,
uppbyggingu ferðaþjónustu innan-
lands auk þess sem drjúgur hluti
gengi til Ferðamálasjóðs, svo hann
geti loks staðið undir nafni.
Enginn annar innlendur aðili
stendur Fríhöfninni nær en þeir
sem hafa atvinnu af þvi að flytja
fólk til og frá landinu. Því er henni
best borgið í þeirra höndum.
FerÖamálaráðstef nan
Fyrir dyrum stendur ráðstefna
á vegum Ferðamálaráðs Islands.
Þetta er hin svokallaða ferðamála-
ráðstefna. Hún verður haldin
dagana 13. til 15. september.
Væntanlega koma þar saman
helstu aðilar innan ferðaþjón-
ustunnar á Islandi og bera saman
bækur sínar. Vert er að fylgjast
með hvort þær hugmyndir sem
fram koma í atvinnumálaályktun
Sambands ungra sjálfstæðis-
manna og þær hugleiðingar sem
hér hafa verið fram settar eigi
ekki hljómgrunn meðal ráðstefnu-
gesta. Hugsanlega vilja ýmsir fara
allt aðra leið og það er einnig vitað
mál að þeir fyrirfinnast sem vilja
hjakka áfram í sama farinu. Ljóst
er þó að ferðaþjónustan getur vart
mikið lengur stólað á handleiðslu
hins opinbera án nokkurs framlags
á móti. Stefnan er sú að draga
saman ríkisútgjöld og marka þeim
útgjöldum farveg sem skilar arði.
Þessi grein er fyrst og fremst
hugleiðing, framlag til nýrrar
umræðu. Hér hefur verið forðast
að taka á þeim ágreiningi sem
vissulega er fyrir hendi innan
ferðaþjónustunnar. Ærið er um-
ræðuefnið samt. Hér hefur fyrst
og fremst verið fjallað um grund-
vallarviðhorf í uppbyggingu og
skipulagi ferðaþjónustu. Allt ann-
að eru verkefni sem auðvelt ætti
að verða að leysa á grundvelli
niðurstaðna.
Höfundur skrifnr reglulega um feröamil I
MorgunhlaAid.
Síldin er
sérstök
Ráðstefnur um sfldveiðar,
vinnslu og markaðsmál
RÍKISMAT sjávarafurða mun á
næstunni gangast fyrir þremur ráð-
stefnum undir yfirskriftinni „Sfldin
er sérstök". Ráðstefnurnar verða
haldnar í samvinnu við Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins og eru ætlaðar
sfldarverkendum, útgerðarmönnum
og skipstjórnarmönnum sfldveiði-
skipa.
A ráðstefnunum verður m.a.
fjallað um markaði fyrir íslenska
síld og kröfur kaupenda, mat á
ferskri síld, helstu galla og ástæður
þeirra. Einnig um meðhöndlun síld-
ar um borð í veiðiskipum.
Vegna nýrra ákvæða í sölusamn-
ingum verður sérstaklega rætt um
síldarverkun og geymsluþol og
þátttakendum sýndir algengustu
gallar í afurðum og gerð grein fyrir
orsökum þeirra.
Ráðstefnurnar standa i einn dag
hver og verða haldnar í Keflavík
föstudaginn 13. september, á Eski-
firði þriðjudaginn 17. september og
á Akureyri þriðjudaginn 24. sept-
ember.
Frummælendur verða: Halldór
Árnason fiskmatsstjóri, Þorsteinn
Gíslason fiskimálastjóri, Jón Ög-
mundsson, ólafur Halldórsson, Ás-
grímur Kristjánsson, Jón J. Ólafs-
son og Heimir L. Fjeldsted.
Að loknum framsöguerindum
verða frjálsar umræður. Ráðstefnu-
stjóri verður Benedikt Gunnarsson
forstöðumaður.
(Fréttatilkynning)
SKJOTT
VEÐUR í LOFTI
SKIPAST
Mú er vetur genginn í garð og viljum
við beina því til viðskiptavina okkar, að
ganga vel frá vörum sínum til flutnings
til að fyrirbyggja skemmdir.
Þótt hitastig í vörugeymslum okkar
fari ekki niður fyrir frostmark, eru oft
vörusendingar sem ekki þola mikia hita-
breytingu. Þess vegna er nauðsynlegt að
nálgast þær sem fyrst eftir komu skips,
því sumar vörur eru geymdar úti og/eða
í gámum.
Frostlög skyldi að sjálfsögðu setja í
kælivatn véla og tækja sem geymd eru
SK/PADE/LD
SAMBANDS/NS
SAMBANDSHÚSINU REYKJAVÍK SÍMI 28200
EINANGRUÐ HITAVEITUROR
KAPPKOSTUM AÐ EIGA ÁVALT Á
LAGER ALLT EFNI I HITAVEITU-
LAGNIR - MARGRA ÁRA REYNSLA
TRYGGIR GÆÐIN - SENDUM UM
ALLT LAND.
EYRAVEGI 43-45
P.O. BOX 83
800 SELFOSS
SÍMI 99-2099,-1399