Morgunblaðið - 13.09.1985, Blaðsíða 16
16
AMERÍKA
PORTSMOUTH/NORFOLK
Bakkafoss 1. okf.
Vessel 15. okt.
Bakkafoss 29. okt.
Vessel 12. nóv.
NEW YORK
Bakkafoss 30. sept.
Vessel 14. okt.
Bakkafoss 28. okt.
Vessel 11. nóv.
HALIFAX
Bakkafoss 4. okt.
Bakkafoss 1. nóv.
BRETLAND/MEGINLAND
IMMINGHAM
Eyrarfoss 15. sept.
Alafoss 22. sept.
Eyrarfoss 29. sept.
Álafoss 6. okt.
FELIXSTOWE
Eyrarfoss 16. sept.
Álafoss 23. sept.
Eyrarfoss 30. sept.
Álafoss 7. okt.
ANTWERPEN
Eyrarfoss 17. sept.
Álafoss 24. sept.
Eyrarfoss 1. okt.
Álafoss 8. okt.
ROTTERDAM
Eyrarfoss 18, sept.
Álafoss 25. sept.
Eyrarfoss 2. okt.
Álafoss 9. okt.
HAMBORG
Eyrarfoss 19. sept.
Alafoss 26. sept.
Eyrarfoss 3. okt.
Álafoss 10. okt.
GARSTON
Fjallfoss 23. sept.
Fjallfoss 7. okt.
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
BERGEN
Reykjafoss 15. sept.
Skógafoss 22. sept.
Reykjafoss 29. sept.
Skógafoss 6. okt.
KRISTIANSAND
Reykjafoss 16. sept.
Skógafoss 23. sept.
Reykjafoss 30. sept.
Skógafoss 7. okt.
MOSS
Reykjafoss 17. sept.
Skógafoss 23. sept.
Ffeykjafoss 1. okt.
Skógafoss 8. okt.
HORSENS
Reykjafoss 20. sepf.
Reykjafoss 4. okt.
GAUTABORG
Reykjafoss 18. sept.
Skógafoss 25. sept.
Reykjafoss 2. okt.
Skógafoss 9. okt.
KAUPMANNAHÖFN
Reykjafoss 19. sept.
Skógafoss 26. sept.
Reykjafoss 3. okt.
Skógafoss 10. okt.
HELSINGBORG
Reykjafoss 19. sept.
Skógafoss 27. sept.
Reykjafoss 3. okt.
Skógafoss 10. okt.
HELSINKI
Lagarfoss 3. okt.
GDYNIA
Lagarfoss 4. okt.
ÞÓRSHÓFN
Skógafoss 28. sept.
Skógafoss 12. okt.
NAKSKOV
Lagarfoss 14. sept.
EIMSKIP
Pósthússtræti 2.
Sími: 27100
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1985
Verksmiðja Iceland Seafood Corporation í Bandaríkjunum.
Bæði áhugavert
og krefjandi starf
— segir Eysteinn Helgason, nýráðinn forstjóri
Iceland Seafood Corporation í Bandaríkjunum
„STARF MITT hjá Iceland Seafood verður bæði mjög krefjandi og
áhugavert. Krefjandi vegna þess, að þar er ekki aðeins um að ræða
afkomu eins fyrirtækis, heldur fjölda fyrirtækja og starfsfólks þeirra um
allt land. Ennfremur verður vandasamt að setjast í stól Guðjóns B.
Ólafssonar, sem unnið hefur stórvirki í þágu fyrirtækisins og fisksölu-
mála í Bandaríkjunum. StarHð er áhugavert fyrir þær sakir fyrst og
fremst að hollur matur, hreinn og ómengaður beint úr lífríki náttúrunnar,
er orðinn nokkuð, sem skiptir máli fyrir Bandaríkjamenn. I»ess vegna er
búizt við mikilli aukningu í fiskneyzlu í Bandaríkjunum og auðvitað þýðir
það um leið aukin tækifæri fyrir okkur," sagði Eysteinn Helgason,
nýráðinn forstjóri lceland Seafood Corporation, í samtali við Morgun-
blaðið. Hann tekur við starfinu á miðju næsta ári.
Úr fararstjórn í stól
framkvæmdastjóra
Eysteinn er 36 ára gamall og
hefur þegar verið framkvæmda-
stjóri tveggja fyrirtækja á sviði
útflutnings og ferðamála síðan
hann lauk prófi í viðskiptafræði
árið 1973. Morgunblaðið innti
hann eftir því í hverju fyrri störf
hans hefðu verið fólgin og hvers
hann minntist helzt af þeim
vettvangi. „Að loknu viðskipta-
fræðiprófinu hóf ég störf hjá
Sölustofnun lagmetis og var
annar tveggja framkvæmda-
stjóra þar síðari ár mín hjá
stofnuninni. Þar fékk ég nasa-
sjón af samskiptum við erlenda
aðila og ennfremur kynntist ég
markaðsmálum íslenzkra sjáv-
arafurða. Annars hef ég til þessa
mest starfað að ferðamálum og
þau störf eru mér ákaflega
minnisstæð. Á því sviði byrjaði
ég sem fararstjóri hjá Sunnu á
námsárum minum og síðan lá
leiðin í framkvæmdastjóra-
starfið, fyrst hjá Samvinnu-
ferðum og síðan hjá Samvinnu-
ferðum-Landsýn hf. Alls var ég í
7 ár í ferðaskrifstofurekstrinum.
í samráði við frábæra sam-
starfsmenn var markið sett hátt,
við ætluðum okkur stóra hluti á
markaðnum og ýmsir góðir sigr-
ar unnust. Samvinnuferðir-
Landsýn stóð að minnsta kosti
undir því grundvallarmarkmiði
sínu, að tryggja aðildarfélögum
sínum ódýrar ferðir til útlanda
og að mörgu leyti tel ég að
starfsfólkið hafi unnið braut-
ryðjendastarf á sviði ferðamála
hérlendis.
Farþegafjöldinn
fímmfaldaöur
Samvinnuferðir-Landsýn
fimmfaldaði farþegafjölda sinn
á þessum árum og í dag greiðir
ferðaskrifstofan hæsta aðstöðu-
gjald íslenzkra ferðaskrifstofa.
Ein leiðin til að halda góðri
markaðshlutdeild er að leita
stöðugt nýjunga í vali áfanga-
staða og nýrra leiða til þessa að
lækka verð og létta mönnum
greiðslubyrðina. Ég tel að okkur
hafi tekizt vel upp í þessum efn-
um. Við urðum fyrst til að bjóða
íslenzku fjölskyldufólki upp á
ferðir til sumarhúsa í Evrópu,
fyrst í Danmörku og síðar í Hol-
landi. Þessi ferðamöguleiki var
alltaf ódýr, en við lækkuðum
verðið enn frekar með því að
efna til sjálfstæðs leiguflugs til
þessara staða, sem engu að síður
voru hefðbundnir áætlunarstað-
ir íslenzku flugfélaganna. Þetta
olli miklu fjaðrafoki í byrjun, við
neyddumst til að vinna með er-
lendum leiguflugfélögum og
ýmsir reyndu að leggja stein í
götu okkar. En sem betur fer
löguðu íslenzku flugfélögin sig
að nýjum kröfum á markaðnum.
í dag er ljóst að einmitt þessi
nýjung okkar hefur orðið til þess
að lækka verulega verð á hóp-
ferðum til sumahúsa eða sólar-
landa.
Fannst gaman að etja kappi
við Útsýn
Á sama tíma og við margföld-
uðum farþegafjölda okkar
styrktist staða Samvinnuferða-
Landsýnar á margan hátt. f stað
erfiðrar skuldastöðu stendur
skrifstofan nú traustum fótum í
eigin húsnæði við Austurstræti
12, eiginfjárstaða er sterk,
starfsfólkið þrautreynt og við-
skiptavinirnir margir og traust-
ir. En samkeppnin á þessu sviði
er hörð og það er einmitt eitt af
því, sem gerir starfið hjá Sam-
vinnuferðum-Landsýn bæði
áhugavert og spennandi. f ferða-
málum fær samkeppnin að njóta
sín til fulls. Það eru fáar at-
vinnugreinar, sem hafa fengið að
búa við frjálsa verðlagningu og
tiltölulega litlar álögur. Þetta
veldur því, að fyrirtæki á sviði
ferðamála, bæði í einkaeign og
félagslegri hafa þurft að standa
sig. Afleiðing þeirrar samkeppni
hefur verið lægra verð en ella og
auðvitað er það jákvæður árang-
ur harðvítugrar samkeppni.
Stærstu ferðaskrifstofurnar,
Samvinnuferðir-Landsýn og Út-
sýn, hafa eðlilega leitt þessa bar-
áttu. Mér fannst gaman að etja
kappi við Útsýn, þar tóku menn
hraustlega á og gerðu marga
góða hluti.
Innlendi akurinn að
mestu óplægður
Það er tvímælalaust mikil
framtíð í rekstri ferðaskrifstofa
á fslandi, því landinn hefur
mikla þörf á því að fara við og
við út fyrir landsteinana til að
slappa af eftir óhóflega vinnu.
Þá hefur mikilvægi móttöku er-
lendra ferðamanna vaxið veru-
lega og þar er stórt verkefni til
að takast á við. Samvinnuferðir
hafa þegar tekið verulega á þess-
um málum, en akurinn er þó enn
að mestu óplægður.
Að fullnægja þörfum og
óskum neytandans
Síðustu 18 mánuði hef ég unn-
ið að sérstökum verkefnum í
Bandarikjunum, aðallega á sviði
markaðsmála. Það hefur gefið
mér gott tækifæri til að kynnast
þessum mesta neytendamarkaði
heims. Þar sem hvað harðvítug-
ust samkeppni ríkir. Ég hef
Eysteinn Helgason
kynnzt þeim aðferðum, sem not-
aðar eru í nútíma markaðsöflun,
þeim hávísindalegu vinnubrögð-
um, sem notuð eru við hönnun og
þróun vörutegunda, allt frá
frumhugmyndum til þess, að
varan er komin í innkaupakörfu
kaupandans. Það, sem kannski
er athyglisverðast við markaðs-
öflun í Bandaríkjunum, er hin
gífurlega áherzla á að komast að
þörfum og óskum neytandans og
hvernig allt starf framleiðand-
ans miðast við að fullnægja
þeim. Menn byrja á þvi að spyrja
sig hvers neytandinn óskar og
framleiða það svo eftir því. Þar
ræður markaðshyggjan fyrst og
fremst en ekki framleiðsluhyggj-
an. Þau íslenzk fyrirtæki, sem
lengst hafa náð á markaðnum
vestra, eins og tildæmis fisksöl-
ufyrirtækin, hafa skilið þessa
grundvallarreglu markaðslög-
málsins og lagt sig fram um að
þjóna viðskiptavinum sínum
fljótt og vel. Einnig er athyglis-
vert hve þessi mikli neytenda-
markaður er brotinn niður í af-
markaðar einingar, þar sem
fyrirtækin velja sér ákveðna ein-
ingu og einbeita sér að henni.
Fer fullur kapps í
þetta starf
Ég fer fullur kapps í þetta
starf. Mér er sýnt mikið traust,
ég tek við traustum rekstri og
fyrirtækið á ýmsa möguleika í
framtíðinni. Auðvitað verður
þetta mikil vinna og vandasöm,
en forstjórastarf hjá Iceland
Seafood Corporation er heillandi
verkefni, sem gaman verður að
vinna að í samstarfi við góða
starfsmenn ytra og trausta
menn hér heima. Vonandi tekst
mér að halda áfram á þeirri far-
sælu braut, sem forveri minn í
starfinu hefur markað,“ sagði
Eysteinn Helgason.
HG