Morgunblaðið - 13.09.1985, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1985
AP/Símamynd
Kosningabaráttan í Svfþjóð er nú í hámarki enda ekki nema tveir dagar þar til kjörstaðir opna. Hér er Olof
Palme, forsætisráðherra og leiðtogi jafnaðarmanna, að flytja ræðu á fundi í miðborg Stokkhólms og leggur
áherslu á orð sín með því að hampa rauðri rós en hún er flokksmerki jafnaðarmanna.
Skoðanakönnun í Svíþjóð:
Fylgi vinstriflokk-
anna aðeins meira
Óráðnir kjósendur geta ráðið úrslitum
Stokkhólmi, 12. september. Kitzau.
SVO virðist sem vinstriflokkarnir
í Svíþjóð muni bera sigur af hólmi
í kosningunum á sunnudag en með
-mjög litlum atkvæðamun. Kemur
þetta fram í skoðanakönnun, sem
birt var í dag, þremur dögum fyrir
kjördag.
Samkvæmt könnuninni, sem
dagblaðið „Dagens Nyheter" stóð
fyrir, fá vinstriflokkarnir, jafn-
aðarmenn og kommúnistar,
49,6% atkvæða en borgaraflokk-
arnir 48,1%. Munar aðeins 1,5%
á fylkingunum og þegar tekið er
tillit til hve margir eru enn 6r-
áðnir er ljóst, að kosningarnar
verða mjög spennandi og tvisýn-
ar. Á síðasta þingi höfðu vinstri-
flokkarnir 51,2% kjósenda á bak
við sig en borgaraflokkarnir
45%.
í skoðanakönnuninni, sem
gerð var fyrr í vikunni, kemur
fram, að jafnaðarmenn fá ekki
einir meirihluta á þingi og verða
þeir þvi að reiða sig á stuðning
kommúnista. Af könnuninni má
einnig ráða, að Frjálslyndi þjóð-
arflokkurinn muni bæta við sig
mestu fylgi hlutfallslega og fá
10,4% atkvæða en það er næstum
helmingi meira en hann fékk í
siðustu kosningum. Miðflokkur-
inn mun hins vegar tapa mestu
og fá nú 13,4% en stærsta borg-
araflokknum, Hægriflokknum
(Moderate Samlingspartiet), er
spáð 24,3%. 800 kjósendur voru
spurðir í könnuninni. Síðasta
skoðanakönnunin fyrir kosning-
ar kemur á morgun, föstudag.
Kjarnorkusamningurinn við Kínverja
gæti ógnað hagsmunum Bandaríkjanna
Wjuihington, 11. september. AP.
SAMNINGUR Bandaríkjanna og
Kína um samvinnu í kjarnorku-
iónaði sem liggur nú fyrir Banda-
ríkjaþingi gæti orðið til að flýta fyrir
smíði kjarnorkukafbáta aem Klna
þarf að koma sér upp til að geU
orðið eigialegt hermaðaratórveWi,
Rowenta
Sælkeraofninn
er alveg ótrú-
lega fjölhæfur
segir í skýrslu sem bandaríska þing-
ið lét frá sér fara á þriðjudag.
„Verði Kínverjum veittur að-
gangur að þekkingu og aðferðum í
nýjasta kjarnorkuiðnaði er líklegt
að það geri þeim fært að framleiða
kafbáta sem verða hljóðlátari,
áreiðanlegri og öflugri en þeir
hafa núna. Þetta gæti valdið hern-
aðarráðgjöfum Bandaríkjanna
vandræðum á næstu öld, þar sem
Kína er hugsanlegur óvinur," segir
í skýrslunni. Yrði samningnum
hins vegar hafnað leiddi það ein-
ungis til þess að Kínverjar snéru
sér til annars ríkis en Bandarikj-
anna. Kínverjar eiga nú a.m.k.
fjóra kjarnorkukafbáta, en þyrftu
að eiga mikinn flota háþróaðra
kafbáta til að geta talist til stór-
þjóða í hernaði, segir þar enn-
ERLENT
Verö aöeins
kr. 3.490.-
Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1a,
s. 686117.
Aukin spenna milli
Líbýu og Túnis
Kairó, 11. æptember. AP.
BANDARÍKIN, Sovétríkin og Alsír
hafa sent berskip til Túnis í kjölfar
aukinnar ásóknar Líbýu við landa-
mærin, að sögn egypska dagblaðsins
AI Ahram á miðvikudag. Þar segir
að her Túnis sé til alls búinn eftir að
líbýskar njósnaflugvélar flugu lágt
yfir Túnis fyrir skömmu.
Blaðið vitnar ekki til sérstakra
heimilda en fullyrðir að banda-
risku herskipi búnu eidflaugum
hefði verið siglt til Túnishafnar-
innar Halk El-Wadi og að Sovét-
ríkin séu með herskip á svipuðum
slóðum. Þá hafi Alsír einnig sent
herflutningaskip, og herskip því
til aðstoðar, til hafnar í Túnis. í
blaðinu segir ennfremur: „Óttast
er að efnahagskreppa í Líbýu geti
fengið leiðtoga Líbýu, Moammar
Khadafy, til að leggja í herleið-
angur á hendur nágrönnum sínum
til að breiða yfir síversnandi
ástand heimafyrir.“
Danir tvöfalda
kolainnkaup frá
Suður-Afríku
Kaupmannaböfn, 11. september. AP.
DANIR fluttu inn tvisvar sinnum
meira af kolum frá Suður-Afríku á
fyrra helmingi þessa árs en á sama
tíma 1984, að því er Danska ríkisút-
varpið greindi frá í gær, sunnudag.
Samkvæmt upplýsingum, sem
útvarpið hefur eftir dönsku hag-
stofunni, var innflutningurinn nú
að verðmæti um 850 millj. danskra
króna (um 3.400 millj. ísl. kr.), eða
um 125% meiri en á fyrstu sex
mánuðum ársins 1984.
Innflutningsaukning þessi verð-
ur þrátt fyrir þá ákvörðun danska
þingsins 1978 að smádraga úr
kolainnflutningi frá Suður-Afríku
og hætta honum alveg 1990.
A árinu 1978 nam kolainnflutn-
ingur Dana frá Suður-Afríku um
14% af heildarinnflutningi þessar-
ar vöru. Fyrstu sex mánuði ársins
1985 var þetta hlutfall komið upp
í 35% og hefur aldrei verið hærra.
Misstu stjórn á sér
er hinn ákærði fékk
aðeins lífstíðardóm
BúdapesL Fnjfverjalandi, 10. september. AP.
SA atburður varð í Búdapest í Ung-
verjalandi fyrir skömmu, að fólk á
áheyrendabekkjum í réttarsal einum
missti gjörsamlega stjórn á sér,
þegar morðingi fékk aðeins lífstíðar-
dóm í stað dauðadóms, eins og búist
hafði verið við, að því er ungverska
verkalýðsblaðið Nepszava segir frá í
dag, þriðjudag. Hefur þetta aldrei
fyrr gerst í réttarsögu landsins.
Aheyrendur í réttarsalnum, sem
flestir voru ættingjar og vinir
fórnarlamba morðingjans, rudd-
ust yfir borð og bekki í átt til hins
ákærða og hrópuðu „hengið hann“.
Nepszava sagði, að starfsmenn
réttarins hefðu hringt í lögregluna
í ofboði, og hefði orðið að beita
sérþjálfuðum hundum til að koma
röð og reglu á í salnum á nýjan
leik.
Kaupmannahöfn:
Smygluðu 115
kílóum
Kaupmannahöfn, 12. september. AP.
ÞRÍR Svíar hafa setið í nokkurn
tíma í fangelsi í Kaupmannahöfn
sakaðir um að smygla inn og selja
115 kg af gulli að verðmæti um 10
milljónir danskra króna. I danska
dagblaðinu Berlingske tidende
sagði að þremenningarnir, ásamt
öðrum sem ákærðir hafa verið,
hefðu svikið danska ríkiskassann
um rúmlega 2,6 milljónir danskra
króna í söluskatt, auk þess að hafa
brotið reglugerðir um gullinnflutn-
ing.
af gulli
Mennirnir voru handteknir
hinn 1. ágúst. Gullið var keypt
með löglegum hætti í erlendum
banka en smyglað með bíl inn í
landið. Það var brætt á svölum
íbúðarhúss í Kaupmannahöfn og
síðan selt til gullsmiðaí Dan-
mörku. í Gautaborg hafa fjórir
menn verið ákærðir fyrir sama
mál og tveir þeirra setið í fang-
elsi, að sögn blaðsins.
Bandaríkin:
Banaslys og biluð fallhlíf
komu upp um kókaínsmygl
Knoxville, Tennessee, Bandnríkjunum, 12. neptember. AP.
í GÆR varð það slys í Bandaríkj-
unum, að maður, sem hafði varpað
sér út úr flugvél, beið bana vegna
þess, að fallhlífin brást. Þegar
komið var að líkinu eða manninum
kom í ljós, að í fórum sínum hafði
hann kókaín, sem metið er á 14
milljónir dollara, og var þrælvopn-
aður að auki. Lögreglan telur, að
þessi atburður kunni að vera
tengdur öðrum, sem varð samdæg-
urs í um 100 km fjarlægð, en þar
hrapaði til jarðar lítil flugvél án
þess, að nokkur fyndist innan-
borðs.
Flugvélin, sem var tveggja
hreyfla og fimm sæta, hrapaði til
jarðar snemma í gær, um átta
tímum áður en líkið af Andrew
Carter Thornton, fertugum manni,
fannst á heimreiðinni við hús eitt
í Knoxville. „Við höllumst helst
að því, að tveir menn hafi verið í
vélinni, Thornton og flugmaður-
inn. Thornton hefur stokkið fyrst
út og flugmaðurinn nokkru síðar.
Það hefur því verið ætlunin að láta
flugvélina falla til jarðar," sagði
Charles Coleman, lögreglumaður í
Knoxville.
Andrew Thornton átti litríkan
en dálítið ógæfulegan feril að baki.
Hann var striðshetja frá Víetnam,
lögfræðingur, sem hafði verið
sviptur réttindum sinum, og fyrr-
um starfsmaður bandarísku eitur-
lyfjalögreglunnar. Árið 1982 var
hann dæmdur í Kaliforníu fyrir
að smygla eiturlyfjum frá Suður—
Ameríku en sleppt til reynslu eftir
fimm mánaða fangelsi. Þegar
hann fannst látinn á heimreiðinni
var hann með á sér 32 kiló af kóka-
íni, tvö sjálfvirk vopn, nokkra
hnífa, viðlegubúnað og vistir og
kíki, sem sjá má með í myrkri.
Bandaríska eiturlyfjalögreglan
hefur að undanförnu gert harða
hríð að eiturlyfjasmyglurum á
Flórída og annars staðar I sunnan-
verðum Bandaríkjunum og hafa
smyglararnir þess vegna verið að
færa sig um set. Skógi vaxin og
strjálbýl Appalachia-fjöllin virð-
ast freista þeirra einna mest nú
um stundir en þar má víða finna
flugbrautir langt frá mannabyggð-
um.