Morgunblaðið - 13.09.1985, Side 28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1985
28
Minning:
Þórður Hermanm
son skipstjóri
Fæddur 19. aprfl 1924
Dáinn 8. september 1985
Það var einn bjartan dag fyrir
nærri hálfum öðrum tug ára, að
hjón bættust í hóp þeirra fasta-
gesta, sem stunduðu austasta
heita pottinn í Laugardalslaug.
Þetta var ljósrauðhærður maður
allvörpulegur enda þótt hann væri
ekki hár í lofti, konan dökkhærð
og nett. Það duldist engum að þar
fóru samhent hjón.
Fastagestirnir þurftu ekki að
stinga nefjum lengi saman um
hvaða fólk þetta væri, fyrr en sá
forvitnasti í hópnum hafði fengið
á hreint að þarna væru þau hjónin
Þórður Hermannsson fyrrv. tog-
araskipstjóri, en þá útgerðarmað-
ur, ættaður vestan af fjörðum, já
meira að segja Djúpmaður, og
kona hans, Vigdís Birgisdóttir,
ættuð úr Suður-Þingeyjarsýslu.
Forvitnin er eitt mesta hreyfiafl
heilans og allrar hugsunar og hún
á í raun réttri alltaf rétt á sér og
■> hvað er eðlilegara en þegar nýtt
fólk bætist í tiltekinn hóp manna
að spurt sé um nafn og uppruna.
Ekki spillti það fyrir forvitninni,
að Þórður Hermannsson var einn
af 11 systkinum, sem alist höfðu
upp í manndómslegri fátækt í
skjóli kjarkmikilla foreldra, þar
sem sólin skein í heiði. Þórður
hafði unnið sig upp frá því að vera
háseti á togara í skipstjórn og það
í forstjórn eins best rekna útgerð-
arfyrirtækis þessa lands, Ögurvík-
^ ur hf. Og svo hitt að kona hans
Vigdís átti Benedikt á Auðnum að
langafa, en bróðir hans, Jón frá
Þverá, var afi eiginkonu þess for-
vitna, þannig að börn hans og
þeirra voru frændfólk. Að Hún-
vetningum frátöldum hefur mér
alltaf þótt viss ljómi leika um
Þingeyinga á annan hátt, þótt mér
þyki stundum gaman að spauga
með sitthvað í fari þeirra. Vest-
firðinga hef ég alltaf frá því að ég
las fyrst um Þórð kakala dáð fyrir
hreysti þeirra og karlmennsku,
menn átaka og athafna. Það átti
eftir að sýna sig að einmitt þessar
eigindir höfðu kristallast í fari
Þórðar.
Einhvern veginn var það svona í
.* Laugardalslauginni, að manni
fannst vera fátt um manninn, ef
Þórður Hermannsson var þar
ekki, slíkur var persónuleiki hans.
Hann hafði einhvern veginn með-
fætt lag á því að draga fólk að sér
og öll umræða komst á hærra svið,
er hann lagði eitthvað til mála.
Hann var skarpgáfaður og athug-
ull og gat ekki síður komið með
hnittnar ábendingar, svona úr
óvæntri átt.
Kunningsskapur okkar nokk-
urra sundlaugargestanna við Þórð
Hermannsson- varð að vináttu, þar
sem heimili þeirra Vigdísar stóð
öllum opið, þar sem gestrisni og
góðvild sveif yfir vötnum.
Mér varð ekki ljóst fyrr en, er
Þórður Hermannsson gekkst und-
ir fyrri hjartaaðgerðina fyrir um
sjö árum, að hann væri með al-
varlegan hjartasjúkdóm, sem háði
honum og af hörku sinni og ögun
lét hann slíkt ekki uppi. Þótt hann
gengi þannig ekki heill til skógar
var hann alltaf til í hvers konar
brall. Mér er minnisstæð ferð
okkar nokkurra í fuglaskoðun út á
Hafnarberg. Það var talsverð
ganga frá vegi og Þórður Her-
mannsson og kona hans drógust
aftur úr og tóku sér hvíldir, þá
t vissi ég ekki hvílik þrekraun þetta
var. Eða þá glöð stund okkar
nokkurra í veitingahúsinu „Broad-
way“. Á þessum stundum naut
Þórður Hermannsson sín, þó allra
mest þegar heimili hans var „skáli
um þjóðbraut þvera" með fullt af
vinum og kunningjum.
Kæmi fyrir að einhver okkar í
v. hópnum þyrfti að leysa úr ein-
hverjum vandræðum, þá var Þórð-
ur Hermannsson fyrstur manna
boðinn og búinn að hjálpa — hlýr
maður og vinfastur.
Þórður Hermannsson var sann-
ur sjálfstæðismaður í orðsins
bestu merkingu. Honum fannst
það hálfgerður ljóður á ráði mínu
að ég hefði verið í framboði fyrir
Alþýðuflokkinn. Lentum við
stundum í orðahnippingum út af
þessu og gat Þórði þá hitnað í
hamsi og lét ekki sinn hlut. Því
skal heldur ekki neitað, að mér
fannst Þórður Hermannsson hafa
mikið til síns máls, er hann hélt
því fram að á þessu harðbýla
landi, þar sem lífið er á hnífsegg,
hljóti einstaklingshyggjan, að
vera það afl, sem heldur þjóðinni
uppi, en að of mikið dekur geri
aumingja úr ágætu efni.
Þórður Hermannsson hugsaöi
mikið um sjávarútvegsmál og
hafði ákveðnar skoðanir, hann
hafði litla trú á talningu fiski-
fræðinga á fiskstofnum, líkt og
fiskur héldi sér stöðugt á sama
stað og taldi rétt að þegar um
svona mikla fiskgengd væri að
ræða og hefur verið í ár, ættum
við að vera óhræddir við að nytja
gullið í sjónum, en láta það ekki
falla til botns í líki sjálfdauðra
fiska.
Hann rak útgerðarfyrirtæki sitt
af mikilli hagsýni og gætti hófs í
hvívetna líkt og hinir fornu grísku
Stóumenn. Það eru einmitt svo-
leiðis menn, sem þjóðin hlýtur að
elska. Slíkir menn eru alltof fáir
með þjóðinni, menn sem skara
fram úr, og það er mikill missir að
mönnum eins og Þórði -Her-
mannssyni, og mér finnst þau orð,
sem segja maður kemur í manns
stað ekki nema sjaldan sönn og
það kemur enginn í stað Þórðar
Hermannssonar. — f tölvum og
kerfinu kemur maður í manns
stað, en ekki frændsemd og fylgd.
Þórður Hermannsson var eng-
inn hálfvelgjumaður, hann vildi
lifa fullu lífi eða ekki, þess vegna
fór hann út í þá tvísýnu baráttu
við dauöann að gangast að nýju
undir hjartaaðgerð. Hvílíkur
kjarkur. Hann hafði staðið þrjár
rimmur við dauðann og aðgerðin
virtist hafa tekist vel og það svo
vel að hann var kominn heim af
sjúkrahúsinu, þegar hann þurfti
að hverfa þangað aftur til þess að
heyja sína hinstu hildi. Hann átti
skilið fyrir dirfsku sína að lifa
lengur og fá að njóta sín, sem elsk-
aður og virtur fjölskyldufaðir og
að fylgja eftir áformum sínum í
útgerðinni, en hinn nýi togari
fyrirtækisins „Freri“ var væntan-
legur eftir breytingu í byrjun
næsta mánaðar.
Þórður Hermannsson var mikill
gæfumaður í lífi sínu, hann átti
óviðjafnanlega eiginkonu og vel-
gefin og vönduð börn: Aðalbjörgu,
gifta Þorvaldi Jónssyni lækni, en
þau eiga dæturnar Sunnevu og
Þórdísi, Gyðu, gifta Sveini ólafs-
syni og þau eiga dótturina Vigdísi,
Hermann giftan Oddnýju Ág-
ústsdóttur, þeirra dóttir er Hildi-
sif og yngsta dóttirin, Þórdís, er
við háskólanám.
Vinir Þórðar Hermannssonar
og velunnarar senda Vigdísi, börn-
um, barnabörnum og vandamönn-
um hlýjar samúðarkveðjur og
minnast með þakklæti allrar
þeirrar ánægju og gleði, sem geisl-
að hefur frá þeim.
Vegir almættisins eru órann-
sakanlegir, en mér finnst að al-
mættið hefði átt að kunna að meta
þann mikia kjark, sem fólst í
þeirri ákvörðun Þórðar Her-
mannssonar að fylgja út í æsar
orðtakinu: „að vera eða ekki að
vera“ og gefa honum nokkur ár í
viðurkenningarskynL
Gunnlaugur Þórðarson
Þórður Hermannsson, skipstjóri
og útgerðarmaður, lézt í Land-
spítalanum sl. sunnudag, 8. sept-
ember. Hann hafði átt við van-
heilsu að stríða frá því í vor að
hann gekkst undir hjartaaðgerð
öðru sinni, en virtist vera á góðum
batavegi síðasta mánuðinn. Á
laugardagskvöldið kenndi hann
sjúkleikans á ný og fór þá á sjúkra-
húsið. Nýkominn á fætur á sunnu-
dagsmorgni hné hann niður og var
þar með allur.
Þórður Guðmundur, sem hann
hét fullu nafni, fæddist í Ögri við
ísafjarðardjúp 19. apríl 1924. For-
eldrar hans voru Hermann Her-
mannsson útvegsbóndi og kona
hans, Salóme Rannveig Gunnars-
dóttir, sem þá áttu heimili sitt í
Ögri. Þórður var fjórða barn for-
eldra sinna og bar nafn langafa
síns, Þórðar Hermannssonar
bónda á Melum í Víkursveit (Ár-
neshreppi á Ströndum) og
langömmubróður, Guðmundar
Halldórssonar.
Að þeim Hermanni og Salóme
stóðu sterkir stofnar við Djúp og
á Ströndum. Ættir þeirra voru
nokkuð raktar í minningargrein-
um um Hermann í Mbl. 5. desem-
ber 1981 og verður það ekki endur-
tekið hér.
Ársgamall fluttist Þórður með
foreldrum sínum og systkinum að
Svalbarði, en svo nefndu þau nýtt
hús er þau höfðu reist í Ögurvík.
Þar var skammt til sjávar og
þægileg lending og uppsátur fyrir
báta. Aðalbjargræðisvegurinn
varð sjósókn til fiskjar í Djúpið,
en einnig höfðu þau hjón á Sval-
barði nokkra landnyt. Á árum
fyrri heimsstyrjaldar og eftir hana
myndaðist töluverð byggð í Ögur-
vík og Ögurnesi, þar sem menn
höfðu lífsframfæri sitt aöallega
af sjósókn.
í þessu umhverfi ólst Þórður upp
í ellefu systkina hópi við gott at-
læti foreldra. Hann vandist við
margvísleg störf til lands og sjávar
og fjölbreytilegt mannlíf.
Þórður gekk í barnaskóla í
Ögurvík og tók þaðan fullnaðar-
próf. Síðan fór hann í héraðsskól-
ann í Reykjánesi og lauk þar
unglingaprófi.
Hann reri með föður sínum á
Hermóði fram undir tvítugt. Varð
snemma afburða góður sjómaður,
sem kunni að verja bát áföllum í
aðgæzluveðri og vissi fljótt hvað
bjóða mátti hverri fleytu, sem
hann kom á. Frá 17 ára aldri fór
hann í skipsrúm á stóru bátana á
ísafirði, sem þá voru, og var á
vetrarvertíð og sumarsíld. Þá reri
hann vor og haust með föður sín-
um. Síðar lá leiðin suður á togara.
Þórður fór til náms í Stýri-
mannaskólanum og lauk þaðan
hinu meira fiskimannaprófi 1948.
Eftir það var hann stýrimaður
á b/v Helgafelli og b/v Þorsteini
Ingólfssyni í nokkur ár. Hann tók
við skipsstjórn á b/v Þorsteini
Ingólfssyni árið 1953 og var með
hann til 1959. Á því skipi varð
hann þekktur aflamaður og far-
sæll skipstjóri. Árið 1959 breytti
hann til og gerðist nú skipstjóri á
m/b Auðni frá Hafnarfirði, en þá
fóru síldveiðiárin í hönd. Varð
hann nú engu síður fengsæll síld-
veiðiskipstjóri en hann áður hafði
verið sem togaraskipstjóri.
Árið 1963 stofnaði hann hlutafé-
lagið Ögra og keypti samnefnt skip
og var útgerðarmaður þess og
skipstjóri til 1969 að hann seldi
skipið. Árið 1969 stofnaði hann
með bræðrum sínum og félögum úr
útgerðarfélögunum Ögra og Vigra,
útgerðarfélagið Ögurvík hf. Þeir
keyptu skuttogarana Ögra og
Vigra og hafa gert þá út síðan.
Þórður hefir síðan verið skrif-
stofustjóri Ögurvíkur hf. og í
framkvæmdastjórn. B/v Ögri og
b/v Vigri hafa reynzt mikil afla-
skip og hafa þeir bræður rekið
útgerð sína með forsjálni og ráð-
deild. Ögurvík hf. eignaðist hlut í
Kirkjusandi hf., sem rekur hrað-
frystihús og aðra fiskverkun og
hefir Þórður verið í stjórn þess
fyrirtækis.
Þórður Hermannsson var með-
almaður á hæð, grannvaxinn og
lipur í hreyfingum. Hann var
rauðbirkinn á hár og vel fallinn í
andliti. Þórður var glaðsinna og
hnyttinn í tilsvörum og sagði vel
frá. Hann gat verið hinn mesti
æringi á sínum yngri árum, oft
hrókur alls fagnaðar og vinsæll
meðal starfsfélaga. Þórður var
trúmaður en flíkaði því ekki og
hann var staðfastur í trú og skoð-
unum og lét ekki hrekjast frá
sannfæringu sinni.
I einkalífi sínu var Þórður gæfu-
maður. Hann kvæntist árið 1950
Vigdísi Birgisdóttur frá Húsavík,
sem hefir verið honum tryggur
lífsförunautur. Þau eignuðust fjög-
ur mannvænleg börn, sem öll eru
uppkomin. Þau eru í aldursröð:
Áðalbjörg líffræðingur, gift
Þorvaldi Jónssyni lækni. Þau
dveljast í Svíþjóð þar sem hann
er við framhaldsnám; Hermann
lífefnaverkfræðingur, starfar á
Raunvísindastofnun Háskólans og
kennir við Háskólann. Hann er
kvæntur Oddnýju Hafberg lífefna-
verkfræðingi; Gyða viðskiptafræð-
ingur, gift Sveini Ólafssyni véla-
verkfræðingi; Þórdís háskolanemi.
Með Þórði Hermannssyni er
fallinn frá langt fyrir aldur fram
hinn mætasti og hinn vænsti
maður. Mikill harmur er kveðinn
að ástvinum hans. Ég votta öllum
aðstandendum Þórðar mína
dýpstu samúð. Það geri ég einnig
fyrir hönd aldraðra foreldra
minna og fjölskyldu minnar.
Megi hinn hæsti höfuðsmiður
leiða hann á nýjum vegum til æðra
ljóss.
Helgi G. Þórðarson
Og því varö allt svo hljótt við helfregn þína,
sem hefði klökkur gígjustrengur brostið.
Og enn eg veit margt hjarta harmi lostið,
sem hugsar til þfn, alla daga sina.
Sem sjálfur Drottinn mildum lófa lyki,
um lífsins perlu, i gullnu augnabliki.
(Tómas Guðm.)
Þórður vinur minn er horfinn
vestur um hafið mikla. Hann
fæddist að Ögri við ísafjarðardjúp,
sonur sæmdarhjónanna Her-
manns Hermannssonar og Salome
Gunnarsdóttur. Stór hópur mætra
barna er kominn frá því heimili,
og ég hefi borið gæfu til að kynnast
þessum systkinum öllum og mann-
kostum þeirra, og stendur sú vin-
átta á gömlum merg.
Ég á Þórði mikið upp að unna,
því varla hefði starfsferill minn
orðið sá sem raun er, hefði hann
ekki verið öðrum skipstjórum
kjarkaðri, og þorað að voga sér til
sjós með fyrsta kvenmanninn sem
loftskeytamann á íslenskum tog-
ara, og varð úr því einstakt sam-
starf um margra ára skeið, eða
frá 1954 og þar til hann hætti
skipstjórn á „Þorsteini Ingólfs-
syni“, til að „hætta til sjós og fara
á bátana", eins og við togarafólk
þeirra daga orðuðum það. Tók
hann þá við fiskiskipinu „Auðunn"
frá Hafnarfirði, og fórst ekki síður
farsælleg þar. Ekki ætla ég að
rekja starfsferil hans að öðru leyti,
en nægir að segja að hann og
bræður hans hafa síðustu áratug-
ina verið hornsteinar íslenskrar
togaraútgerðar, með félagi sínu
Ögurvík hf., sem allir þekkja.
Ein þeirra mynda sem síst
gleymast, verður aprílnótt í vor,
er ég horfði með honum á eftir
nýjustu fleytu þeirra, „Frera“, fara
úr höfninni til að búast nýrri
tækni. Skyndilega vorum við sam-
ankomin þarna á bryggjunni,
undir Bæjarútgerðarmerkinu sem
enn var á reykháf hins nýkeypta
skips, sjö félagar frá „Þorsteini" —
30 árum síðar. Slíkar stundir segja
sitt.
Ég hefi siglt með mörgum góð-
um mönnum, en alltaf hefir Þórð
borið hæst. Á þeim árum voru
engir „kvótar", og lengi áttum við
aflamet frá Grænlandsmiðum, —
432 tonn af fullverkuðum saltfiski
á 32 dögum. Það eru býsna margir
fiskar, og metið var ekki slegið
fyrr en skip með stærra lestarrými
komu til landsins. Við mokuðum
líka upp 325 tonnum af karfa á 30
tímum á sólglitrandi Grænlands-
hafi.
Það voru dýrðardagar, þó við
ættum líka okkar Halaveður og
stundum var undir Grænuhlíðinni,
sem varðar innganginn til æsku-
slóða Þórðar.
Oft var ég spurð um fiskisæld
Þórðar, og við því á ég ennþá sama
svarið: „Hann fiskaði með sálinni,"
og hygg ég það rétt. Sumir eru
fæddir með sérstæðar gáfur, og
þær virðist Ægir gamli virða, enda
fylgdi Þórði alltaf farsæld með
skip og fólk, sem best má sjá af
að enn mannast skip Ögurvíkur
fólki sem fylgt hafa þeim bræðr-
um, Gísla Jóni og Þórði, allt frá
okkar „Þorsteins“-dögum.
Heill hans heimafyrir var ekki
síðri. Hinn 5. ágúst 1950 gekk hann
að eiga Vigdísi Birgisdóttur, f. 2.5.
1930, frá Bergi á Húsavík. Hún er
dóttir Birgis Steingrímssonar og
Aðalbjargar Jónsdóttur, og á því
heimili var söngelskt og ljóðrænt
fólk. Þessa mýkt og virðingu lista
á öllum sviðum tileinkaði Þórður
sér. Má þess geta, að Bergshjónin
eignuðust tvö Ögursystkin að
tengdabörnum, þar eð systir Þórð-
ar er gift bróður Vigdísar.
Vigdís, vinkona mín frá barn-
æsku, varð Þórði sú heilladís sem
bar hæst í öllu hans lífsláni, og
ást og virðing vinar míns til henn-
ar var ótakmörkuð. Þar hefir aldr-
ei borið skugga á braut.
Fjögur mannvænleg börn eign-
uðust þau, og bera þau öll merki
hins samstæða og ástríka heimilis
og foreldra. Þau eru Aðalbjörg,
lífeðlisfræðingur, f. ’51, gift Þor-
valdi Jónssyni lækni; Gyða, hag-
fræðingur, f. ’54, gift Sveini Inga
ólafssyni verkfræðingi; Hermann
efnaverkfræðingur, f. ’55, giftur
Oddnýju Hafberg, efnaverkfræð-
ingi, og Þórdís, f. ’61, er nú stundar
viðskiptanám við Háskóla islands.
Fjögur barnabörn hafa lika glatt
hjarta afa og ömmu síðustu árin.
Á þeirra hlýja og yndislega heimili
hefi ég átt margar auðnustundir
gegnum árin, og þá órofatryggð
hefir vera mín á fjarlægum heims-
höfum engu breytt um.
Orð verða svo fátæk þegar vinir
kveðja. í fyrravor lézt einn besti
vinur og samstarfsmaður Þórðar
hjá Ögurvík, Halldór Þorbergsson,
aðeins 54 ára. Hann v ar einn
okkar „Þorsteins“-manna, val-
menni með létta lund, og ótaldar
verða brosin okkar þriggja í brúar-
glugganum, þegar trollið skaust
upp og breiddi feng sinn á blár
öldur. Slíkar minningar er gott að
eiga.
Tveir mínir bestu vinir eru því
horfnir á stuttum tíma, langt fyrir
aldur fram, og maður stendur
þögull.
Mestur er missir Vigdísar, sem
stutt hefir mann sinn gegnum
tvær stórar hjartaaðgerðir, með
ástúð og sálarró sem fæstir eiga.
Hún hefir tekið hvern dag þeirra
saman sem gullna gjöf, og veit ég
að sá auður verður henni sálar-
styrkur á tímunum framundan.
Börnum Þórðar og tengdabörn-
um, systrum hans og bræðrunum
valinkunnu, votta ég innilegustu
samúð, og bið Guð að styrkja
Viggu vinkonu mína í sorg sinni.
Eitt sinn leggjum við öll á hið
síðasta haf, og ég veit að er sá tími
kemur, þá bíða mín broshýrir vinir
— „fyrir vestan"...
Far þú í friði, friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V.Br.)
Hjördís Sævar
„Engin gjöf sem góður vinur.“
Margir leita allt sitt líf aðð slík-
um félaga og finna hann aldrei.
Nú sjáum við á bak Þórði Her-
mannssyni langt um tíma fram.
Við áttum margt eftir sagt og
sungið. En enginn veit hvernær