Morgunblaðið - 13.09.1985, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1985
39
Frí undirritun sunningauiia.
Viðskiptaviðræður íslendinga og Pólverja:
Áhersla lögð á að Pólverjar
kaupi meira af íslenskum vörum
í SAMEIGINLEGRI fundargeró sem
gefin var út í kjölfar vióskiptavið-
ræðna íslendinga og Pólverja á
miðvikudaginn er sérstök áhersla
lögð á þær óskir íslendinga að Pól-
verjar kaupi meira af íslenskum
vörum. Nánar tiltekið er þar átt við
hefðbundnar vörur í viðskiptum
landanna, svo sem fiskimjöl, saltsfid
og forsútaðar gærur, en einnig aðrar
vörur t.d. frystan fisk, lagmeti, harð-
feiti, kindakjöt, kísilgúr og fleira.
Það voru formenn viðræðu-
nefndanna, þeir Sveinn Björnsson,
skrifstofustjóri í viðskiptaráðu-
neytinu og Emil Drag, skrifstofu-
stjóri í utanríkisverslunarráðu-
neyti Póllands, sem undirrituðu
fundargerðina sem gefin var út að
loknum árlegum viðskiptaviðræð-
Morgunblaftið/Friðþjðfur.
Ný verzlun í Hólagarði
NÝ verslun, Herraland sf., hefur
opnað í Breiðholti, nánar tiltekið
í versianamiðstöðinni Hólagarði.
Er þetta 15. verzlunin, sem starf-
rækt er í þjónustumiðstöðinni
Hólagarði. Herraland selur skyrt-
ur, bindi, nærföt, sokka, snyrtivör-
ur o.fl. fyrir herra. Eigendur eru
Þorsteinn Valdimarsson og Valdi-
mar Einarsson.
31. helgarskákmótið
hefst á Djúpavogi í dag
HELGARSKÁKMÓT, hið 31. í
röðinni, hefst á Djúpavogi í dag,
fóstudaginn 13. september, kl. 16.
Því lýkur sunnudaginn 15. sept-
ember kl. 18.
Með þessu móti hefst ný hrina
helgarskákmóta, sem lýkur með
35. mótinu, sem enn er ekki vitað
hvar verður haldið. Mót þessi
hafa notið vinsælda og ekki er lát
á eftirspurn eftir þeim.
Með mótinu á Djúpavogi breyt-
ast reglur mótanna verulega og
verður það kynnt áður en mótið
hefst.
Keppt er um vegleg peninga-
verðlaun: 1. verðlaun eru kr.
20.000, önnur verðlaun kr. 13.000
og 3. verðlaun kr. 9.000. Auka-
verðlaun fyrir bestu frammistöðu
í hrinunni hækka í kr. 55.000, en
um landanna, sem fram fóru í
Reykjavík dagana 9.—10. þ.m.
I viðræðunum kom einnig fram
að Pólverjar hafa áhuga á sölu
fiskiskipa til íslands og að pólsk
stjórnvöld hafa ákveðið að opna á
ný viðskiptaskrifstofu í Reykjavík
á næstunni.
Viðræðurnar voru almennar
viðræður milli stjórnvalda, sem
haldnar eru árlega, en sölusamn-
ingar eru gerðir milli íslenskra og
pólskra fyrirtækja. Viðskiptin
byggjast á viðskiptasamningi
landanna frá 30. apríl 1975.
Þau fóru almennt vaxandi eftir
gildistöku samningsins en aftur-
kippur kom í þau eftir 1980, m.a.
vegna versnandi efnahagsástands
í Póllandi og minnkandi viðskipta
með fiskimjöl I kjölfar banns við
loðnuveiði.
Helstu útflutningsvörur íslands
til Póllands á árinu 1984 voru fiski-
mjöl og harðfeiti. Aftur á móti
seldu Pólverjar íslendingum m.a.
timbur, stálvörur, kornvörur og
ýmsa málma.
(0r fréttatilkynningu frá viöskiptaráðuneyt-
inu)
Missti ekki
meðvitund
Mishermt var í frétt af slysi á
bls. 2 I Morgunblaðinu í gær, að
kona sem varð fyrir bíl á Frakka-
stíg í fyrradag, hafi misst meðvit-
und. Hið rétta er að konan var
með fullri meðvitund allan tímann
og var síðan flutt í Borgarspítal-
ann. Líðan hennar er eftir atvik-
um.
.■iVÍlLTi TrYlLTÍ VÍlU‘
Opiö í kvöld
frá 10—03
Aðgangseyrir400 kr.
Aldurstakmark 16—21 árs.
Sími: 11559.
Opið laugardagskvöld.
n
I
\
Smiöjuvegi 1,
sími46500
Kópavogi,
TONAFLOD
r jt *
I RIO
föstudags- og laugardagskvöld
12 söngvarar ásamt
hljómsveitinni Goðqá
Gestur kvöldsins f p
M iMJÖLL HÓLM^M
Siggi Johnnie
Mjöll Hólm
m
Berta __ Jón Stef Oddrún Ragnar Geir Guöjón
%
Þorvaldur Edda
Friörik Selma Þór Nielsson
Matur framreiddur kl. 20.00
Bordapantanir í síma 46500 frá
kl. 13.00—19.00
Húsiö opnad ödrum en matar
gestum kl. 22.00
skiptist nú í þrennt, 30.000,15.000
og 10.000 krónur.
Einnig verður keppt um ungl-
inga-, öldunga- og kvennaverð-
laun og eru það allt boð á helgar-
skákmót auk bókaverðlauna.
Forráðamenn helgarskákmót-
anna búast við fjölda þátttak-
enda, og að þeirra á meðal verði
margir af bestu skákmönnum
þjóðarinnar. (Frétutiikynniiig)
Leiðrétting
RANGT var farið með föðurnafn
íslensks verkfræðings, sem starfar
við uppsetningu vatnsaflsstöðvar
á Grænlandi. Hann heitir Gísli
Hansen Guðmundsson. Morgun-
blaðið biðst velvirðingar á þessum
mistökum.
GRANDAGARÐI3, SÍMI29190
Flest allir yiöskiptavinir okkar eru ánægöir og margir
koma oft. Astæöan er sú aö á Fatalagernum fær fólk 1.
flokks og nýtísku barnafatnaö, kvenfatnaö, herrafatnaö og
vinnufatnaö sem viö látum framleiöa hérlendis eöa flytjum
inn milliliöalaust beint frá framleiöendum og bjóöum til
sölu á mjög lágu veröi. Viö eigum ekki alltaf til allar vöru-
tegundir en tökum oft upp nýjar og spennandi vörur. Ferö
á Fatalagerinn Grandagaröi 3 getur gefiö þér nýja von í
lífsbaráttunni.
Opiö daglega frá 10—19, laugardaga 10—16.