Morgunblaðið - 13.09.1985, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÓSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1985
47
íslandsbikarínn að -
Hlíöarenda í 18. sinn
— Mark Guömundar Þorbjörnssonar á síöustu mínútu fyrri hálfleiks færði Val meistaratitilinn .
ÞAD VAR míkiö fagnaö á Hlíöar-
enda rétt fyrir klukkan átta í
gærkvöldi. Valsmenn höföu
tryggt sér íslandsmeistaratitilinn
í knattspyrnu eftir 1:0-sigur á
KR-ingum, sanngjarnan sigur.
Þaö var mark Guömundar Þor-
björnssonar í fyrri hálfleik sem
færöi Val fyrsta íslandsmeistara-
titil liösins síöan 1980. Guömund-
ur er nú markahæstur í 1. deild
meö 12 mörk, en þess ber aö geta
aö næstu menn í keppninni um
gullskóinn eíga einn leik eftir.
Hvaö um þaö, íslandsbikarinn,
sem Grímur Sæmundsen fyrirliöi
Vals tók viö úr hendi Ellerts B.
Schram formanns KSÍ eftir leik-
inn í gærkvöldi, veröur í varö-
veislu Hlíðarendaliösins í 18.
skipti næsta áriö.
Leikurinn í gær bar þess merki
hve mikilvægur hann var. Spenna
var mikil, gæöi knattspyrnunnar
ekki eins og þau gerast best hjá
þessum liöum en þó komu mjög
góöir kaflar inn á milli, sérstaklega
hjá meisturunum. Þeir voru áber-
andi betra liðiö þegar litiö er á
heildina.
Valsmenn byrjuöu íslandsmótiö
illa í vor, en síöan hefur veriö mjög
góöur stígandi í leik liösins og þaö
er sennilega besta liö deildarinnar
i dag, ásamt Fram sem er aö koma
upp aftur eftir lægö. Margir spáöu
Valsmönnum Islandsmeistaratitlin-
um í vor, þar á meðal undirritaöur,
og nú hefur sú spá ræst. Ekki átti
ég nú reyndar von á því aö þeir
ynnu titilinn á þennan hátt, slæmri
byrjun og frábærum endaspretti,
en þaö skiptir ekki máli. Þaö var
fyrst og fremst mikill „karakter"
Valsmanna sem færöi þeim sigur í
þessu móti, liösheildin er góö;
menn leika vel fyrir hvern annan.
Leikurinn í gær hófst ekki gæfu-
lega fyrir Valsmenn. Strax á 4.
min. munaöi minnstu aö Magni
Pétursson skoraöi sjálfsmark.
Hann ætlaöi aö bægja hættu frá,
var úti í teig meö knöttinn en ekki
vildi betur til en svo er hann
spyrnti aö knötturinn sveif í falleg-
um boga yfir Stefán markvörö og í
þverslá Valsmarksins. Fyrri hálf-
leikurinn var síöan í járnum og
Valsmenn fengu þau fáu færi sem
sáust. Guðmundur Þorbjörnsson
skallaöi á markiö af stuttu færi um
miöjan hálfleikinn eftir frábæra
sókn en Stefán varöi vel. Á síöustu
mín. fyrri hálfleiksins skoraöi Guö-
mundur síöan eina markiö. Eftir
mikla pressu Vals og darraöar-
dans á vítateig KR fékk hann
knöttinn skammt utan markteigs
og skaut, knötturinn hrökk í
varnarmann og breytti um stefnu.
Stefán markvöröur Jóhannsson
varöi frábærlega vel, sló knöttinn í
stöngina þaöan sem hann skaust
niöur á markteiginn. Guömundur
var fljótastur allra aö átta sig óö aö
knettinum og þrumaöi honum inn
fyrir línuna. Fögnuöur Valsmanna
var geysilegur. Markiö kom á þýö-
ingarmiklu augnabliki. KR-ingar
höföu sótt talsvert síöustu mínútur
hálfleiksins.
Valsmenn voru mun betri mest-
an hluta síöari hálfleiksins. Boltinn
gekk betur á milli manna hjá þeim
og þeir sóttu meira. Heimir fékk
tvívegis mjög góö tækifæri til aö
skora en nýtti þau ekki og Þor-
grímur átti eitt sinn skot naumlega
framhjá úr teig. KR-ingar sóttu
talsvert síöari hluta leikslns, Vals-
Valur—KR
1:0
menn bökkuöu þá hættulega mik-
iö. en þeir röndóttu sköpuöu sér
hins vegar ekki teljandi færi.
Sigur Vals var því sanngjarn
eins og áöur sagöi. Heimir, Guö-
mundur, Sævar, Guöni, Grímur,
Stefán og Ingvar léku allir vel og
aörir stóöu þeim ekki langt aö
baki. Hjá KR var Stefán öruggur í
markinu og Hálfdán lék vel. Leik-
menn KR náöu sér annars ekki
sérlega vel á strik. Þetta var ekki
þeirra dagur. Liöið skapaöi sér
ekki hættuleg marktækifæri.
Gordon Lee er hins vegar á réttri
leiö, hann hefur gert mjög góöa
hluti hjá KR.
Í STUTTU MÁU:
Hliöarendi 1. deild
Valur—KR 1:0 (1:0)
Marfc Vals: Guömundur Þorbjörnsson á 45.
min.
Ahorfsndur um 2000
Dómari: Sveinn Sveinsson Hann stóö sig
mjog vei framan af, en dalaöi er á leiö. Heföi
mátt beita hagnaöarreglunni betur síöari hluta
leiksins.
EINK UNN AGJÖFIN:
Valur Stefán Arnarson 3, Þorgrimur Þráins-
son 2, Grímur Sœmundsen 3, Magni Péturs-
son 2, Heimir Karlsson 3, Sœvar Jónsson 3,
Guöni Bergsson 3, Hilmar Haröarson 2, Valur
Valsson 2, Guömundur Þorbjörnsson 3, Ingvar
Guömundsson 3.
KR: Stefán Jóhannsson 3, Gunnar Gísiason 2,
Hálfdán Örlygsson 3, Hannes Jóhannsson 2,
Jósteinn Emarsson 2, Jakob Pótursson 1,
Agúst Már Jónsson 2, Asbjörn Björnsson 2,
Bjöm Rafnsson 2, Börkur Ingvarsson 2, Jón G.
Bjarnason 2, Júlíus Þorfinnsson (vm) 1, Stefán
Pótursson (vm) lók of stutt.
• Ánægjan og gleöin leyna aér ekki í andliti fyrirliöans þar sem hann
hampar Islandsbikarnum. „Stórkostleg hughrif fóru um mig þegar ég
tók viö bikarnum," sagöi Grímur eftir leikinn.
Guðni Bergsson:
„Allt eftir að
koma í ljós“
„ÞETTA er fyrsti íslands-
meistartitill minn meö Val í
meistaraflokki, en vonandi
ekki sá síöasti," sagöi Guöni
Bergsson eftir leikinn. Við
inntum Guöna eftir því hvort
hann væri á förum til Aston
Villa þegar keppnistímabilinu
hér heima iyki.
„Þeir eru búnir aö bjóöa mér
aö koma út og æfa. Og ég
reikna fastlega meö því aö ég
fari til Aston Villa t október. Ég
mun æfa þar en framhaldiö er
aö sjálfsögöu alveg óljóst.
Þetta á bara allt eftir aö koma í
Ijós, sagöi þessi stógóöi
knattspyrnumaöur. — Þ.R.
Ingvar
Guðmundsson:
„Meiriháttar
skemmtilegt“
„ÞETTA er fyrsta sumariö mitt
sem ég er fastamaöur i Vals-
liöinu. Ég lék bara tíu leiki í
fyrra meö meistaraflokki og
þetta var meiri háttar
skemmtilegt aö vinna ís-
landsmeistaratitílinn," sagöi
Ingvar Guömundsson, einn
yngsti maöur Valsliösins en
án efa einn sá efnilegasti.
„Ég hef áöur oröiö meistari
meö yngri flokkum Vals veriö i
Val frá upphafi og stemmingin
hér i kvöld var einstök. Þaö er
meö ólikingum skemmtilegt aö
vinna þetta á heimavelli. Nú er
bara aö halda áfram á sömu
braut," sagöi Ingvar.
Grímur Sæmundsen, fyrirliði Valsmanna:
„Stórkostleg hughrif
fóru um mig er ég tók
við íslandsbikarnum"
„ÞAÐ voru stórkostleg hughrif
sem fóru um mig þegar ég tók
viö fslandsmeistarabikarnum.
Þetta er í fjóröa sinn sem ég
verö íslndsmeistari meö Val en
• kvöld fylgdu þessu sérstök
stemmning og ánægja. Aö verða
íslandsmeistari á heimavelli á
Hlíöarenda var mikið sérstakt
og þetta var stór stund fyrir Val
og alla Valsmenn. Eiginlega
fyrst í kvöld gerir maöur sér
grein fyrir því hversu stór stund
þaö er fyrir Reykjavíkurfélag aö
vinna íslandsmeistaratitilinn á
heimavelli. Áhorfendur voru
stórkostlegir, stuöningur þeirra
var líka mikill. Valsmönnum
finnt gott aö koma aö Hlíöar-
enda og okkur finnst hvergi
betra aö leika. Á heimavelli í
sumar erum við taplausir. Viö
höfum unniö sjö leiki og gert tvö
jafntefli. Og þaó sem meira er,
aöeins fengið á okkur eitt mark
og það var sjálfsmark," sagöi
Grimur Sæmundssen fyrirliói
Valsmanna eftir leikinn gegn
KR í gærkvöidi, en þaö tók lang-
an tima aö króa hann af til aó
fá smáspjall. Allir leikmenn Vals
voru umkringdir stuönings-
mönnum sem voru aö fagna
hetjum sínum.
— Þaö var spenna í okkur fyrir
leikinn þrátt fyrir aö viö reyndum
aö útiloka allt slíkt. Við gátum
ekki slakaö á og þvi fundum viö
okkur illa í leiknum framan af.
KR-ingar spiluöu líka grimmt og
pressuöu okkur stíft. Þaö þolum
viö ekki vel. Viö þurfum tíma meö
boltann.
— Þaö uröu kaflaskipti í þessu
móti þegar viö sigruöum IBK á
heimavelli okkar í sumar. Þaö var
vendipunkturinn fyrir okkur. Viö
höfum frábæran þjálfara sem
hvatti okkur til aö spila til sigurs.
Hann skapaöi samheldni og
metnaö og var meö langtímasjón-
armiö. Hann sagöi okkur aö vera
ekki aö hugsa um Fram heldur
okkur sjálfa. Viö yröum aö sigra í
hverjum leik.
Nú stöndum viö uppi sem Is-
landsmeistarar. Aö baki þessu
liggur mikil vinna, en hún vill
gleymast þegar maöur uppsker
eins og til hefur verlö sáö. Þetta
er frábært, sagöi Grímur.
— ÞR.