Morgunblaðið - 26.09.1985, Síða 25

Morgunblaðið - 26.09.1985, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR26. SBPTEMBER1986 25 Mosfellssveit: Barnaheimili tekið í notkun NTTT BARNAHEIMILI hefur form- lega veriö tekiö í notkun í Mosfells- sveit og er þar rúm fyrir 72 börn, 32 á dagheimilisdeild og 40 á leik- skóladeild. Heimiliö hefur verið tvö ár í byggingu og er áætlaöur heildar- kostnaður við byggingu hússins um 17 millj. kr. og greiðir ríkissjóður helming stofnkostnaðar. I ræðu sem sveitarstjóri Mos- fellshrepps, Páll Guðjónsson, hélt við opnun heimilisins, kom fram að allt frá árinu 1966 hefur verið starfrækt skipuleg barnagæsla á vegum Mosfellshrepps. Fyrstu ár- in i bráðabirgðahúsnæði i einni skólastofu í Varmárskóla og síðan í húsnæði sem Alafoss lét sveitar- félaginu í té. Þegar það reyndist of lítið var barnagæslan flutt í heimavistarhúsið að Varmá. Næsti viðkomustaður var hús björgunar- sveitarinnar Kyndils á árunum 1971 til 1975 en þá reyndist nauð- synlegt að flytja í annað og stærra húsnæði vegna íbúafjölgunar í hreppnum. Barnaheimilið flutti þá að Hlaðhömrum og er það húsnæði nýtt enn þann dag í dag undir leikskóla en húsnæði Styrktarfé- lags lamaðra og fatlaðra í Reykjadal í Mosfellssveit var tekið á leigu árið 1981 fyrir dagheimilið yfir vetrarmánuðina. Þetta ástand var óviðunandi og þvi var ákveðið að hefjast handa um byggingu nýs dagheimilis árið 1982 og hófust framkvæmdir ári síðar. Forstöðumaður nýja heimilisins er Guðrún Sigursteinsdóttir fóstra og sagði hún að á nýja heimilinu væru tvær dagheimilisdeildir. Yngri deild með 18 börn frá tveggja til fjögurra ára og eldri deild með 14 börn á aldrinum fjög- urra til sex ára. Auk þess er ein leikskóladeild með 20 börnum fyrir og eftir hádegi. Starfsmenn eru 7 í heilu starfi og 7 í hálfu, þar af ein fóstra auk forstöðumanns. Björgunamám- skeið SVFÍ Slysavarnafélag íslands gengst fyrir námskeiði ætlað sjómönnum dagana 1.—4. október nk. Fjallað verður um helstu þætti öryggis- og björgunarmála svo sem lífgun úr dauðadái, meðferð gúmmíbáta og annarra björgunartækja, einnig að halda IiTi við erfiðar aðstæður, flutn- ing með þyrlum, lög og reglur um búnað skipa, brunavarnir, slökkvi- störf og reykköfun. Námskeið þessi eru öllum opin en fjöldi nema sem komast að hverju sinni er takmarkaður. Þátttökugjald er ekkert. Fyrri námskeið hafa verið fullsetin og færri komist að en vildu. Leiðbeinendur verða frá SVFÍ, Landssambandi slökkviliðsmanna, Landhelgisgæslunni, Líffræði- stofnun háskólans og Siglinga- málstofnun ríkisins. Þú svalar lestraijjörf dagsins á sírhim MnpraiKi / Einstæðir foreldrar hafa for- gang að heimilinu að hálfu á móti giftum foreldrum og sagði Guðrún að einstæðir foreldrar fylltu ekki upp í þau pláss, sem þeim væru ætluð og er það mjög óvanalegt miðað við ríkjandi ástand annars staðar. Engum er sagt upp plássi heldur hafa einstæðir foreldrar forgang um næsta pláss sem losn- ar. Nýja barnaheimiliö í MosfellssveiL Dæmi: Opel Kadett LS lækkar úr 436.700 í 379.800! Við vorum ekki fyrr búnir að lækka verðið á Opel Corsa, Opel Kadett og Opel Ascona er tilkynnt var tollalækkun á bílum sem leiðir af sér kærkomna auka-verðlækkun! begar svo við bætist tilboð okkar um auðveldari leiðir en áður til greiðslu á nýja bílnum, getum við fullyrt að það hafi aldrei verið hagstæðara að kaupa Opel en einmitt núna! • Verðlækkunin er ótrúleg: Þannig lækkar t.d. Opel Kadett LS úr 436.700 í 379.800!■> Allt að • 30.000kr. staðgreiðsluafsláttur ef bíllinn er greiddur innan 45 daga frá afhendingu. • Gamli bíllinn tekinn upp í Það kemur sér e.t.v. best fyrir þig að setja gamla bílinn upp í. Lítum á dæmi: Nýr Kadett LS (eftir lækkun) kr. 379.800 Sá gamli kostar t.d. kr. 175.000 Þá er útborgun kr. 143.500 og afganginn greiðir þú með jöfnum afborgunum á 5 mánuðum kr. 61.300 kr. 379.800 1) Miðað við gengi 22. sept. '85 • 60% lánað Þú getur líka samið við okkur um lánafyrirgreiðslu. Dæmi: Nýr Kadett LS kr. 379.800 útborgun 40% kr. 151.920 Helming eftirstöðva lánum við síðan í 3 mánuði kr. 113.940 og afganginn í 12 mánuði kr. 113.940 • Þfnar óskir kr 379 800 Við erum alltaf til viðræðu um aðrar leiðir en þær sem hér hafa verið nefndar. Þú ættir að hafa samband og kanna málið. BíLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.