Morgunblaðið - 26.09.1985, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER1985
29
Fulltrúa Möltu vísað af
þingi Evrópuráðsins
uri* i
FULLTRUA þingsins á Möltu, Dani-
el MicgalefT, var meinuð seta á þingi
Evrópuráðsins á miðvikudag því
enginn fulltrúi stjórnarandstöðunn-
ar hafði verið tilnefndur frá landi
hans. Hópur kristilegra demókrata á
þinginu gerði athugasemdir við þing-
setuheimild Michaleffs í byrjun
þingsins. Leiðtogi hópsins, Wolfgang
Blenk frá Austurríki, sagði að Mich-
aleff yrði ekki leyft að taka sæti sit á
þinginu aftur fyrr en fulltrúi stjórn-
arandstöðunnar á Möltu hefði verið
tilnefndur.
Malta sem er eitt 21 aðildar-
ríkja Evrópuráðsins hefur ekki
sent fulltrúa á þing Evrópuráðsins
síðan 1981 þegar vinstrisinnaður
verkamannaflokkur náði þar
meirihluta.
Fjölbýlishús í miðborginni sem hrundi í jarðskjálftunum, þó ekki spítalinn þar sem börnin fundusL AP/l^6ímynd
Mexíkó:
Tvö ungbörn finnast
eftir fimm sólarhringa
Mexíkóborg, 25. september. AP.
TVÖ ungbörn fundust grátandi í
vöggum sínum í gær í rústum spítala
eftir að hafa legið þar í fimm sólar-
hringa, eða frá því fyrsti jarðskjálft-
inn reið yfír borgina á fímmtudag.
Annað barnið er tveggja mánaða
gömul stúlka, en hitt er drengur, sem
aðeins var sólarhringsgamall þegar
skjálftinn varð. Átta aðrar vöggur
voru tómar samkvæmt upplýsingum
björgunarmanna, en þeir sögðu börn-
in sem björguðust við ótrúlega góða
heilsu, þegar mið er tekið af því hve
lengi þau höfðu iegið í rústunum.
„Þau grétu allan tímann sem við
reyndum að bjarga þeim, en við
töluðum við þau,“ sagði einn björg-
unarmanna. Hann bætti við að
börnin hefðu einu sinni verið við
að sofna, en læknir hefði ráðlagt
að leyfa þeim það ekki. Þeir hefðu
því hreyft fætur þeirra eða vöggur
til að halda þeim vakandi. „Það
var merkilegt að um leið og við
tókum drenginn upp þá hætti hann
að gráta,“ sagði hann ennfremur.
Björgunarmenn sögðu að drengur-
inn sex daga gamli hefði grátið
hærra en stúlkan, sem hefði ef til
vill verið verr haldin, sökum þess
að hún var vön því að fá fæði
daglega.
Sá sem fann börnin heitir Migu-
el Gonzalez Juarez. Hann var uppi
á grjóthaug um miðnætti á mánu-
dag að leita lífsmerkja er hann
heyrði grát. „Það heyrðist ekki
neitt vegna hávaða frá björgunar-
störfunum, en um stund þagnaði
allt og ég heyrði grát. Ég fór þegar
að róta grjótinu í burtu í örvænt-
ingu, því ég óttaðist að verða of
seinn. Fjórar vöggur urðum við að
hluta í sundur áður en við gátum
komist að börnunum og það tók
tæpan klukkutíma að bjarga þeim.
Ég skil ekki hvernig þau lifðu þetta
af. Þau voru í um eins metra djúpri
holu, sem var um 1,5 metrar á
breidd og það var grjót og steinryk
á andlitum þeirra, sem hefði getað
kæft þau.
Stúlkan er dóttir Euelia Gasca
Rojas og reyna yfirvöld nu að finna
hana, en drengurinn er sonur Inez
Cruz Soriano. Gert er ráð fyrir að
hún hafi verið á spítalanum, en
hún er ófundin og óvíst hvort hún
er lífs eða liðin.
Biöskákin
varð jafntefli
ÞEIR Karpov og Kasparov sættust
á jafntefíi eftir að áttunda einvígis-
skákin hafði verið tefld áfram í
níu leiki í gærdag.
Karpov hafði peði meira og var
að tefla til vinnings, en áskor-
andanum veittist auðvelt verk
að halda jafntefli. Vegna mikilla
uppskipta snemma tafls varð
skákin aldrei spennandi. Staðan
í einvíginu er nú sú að Karpov
hefur 4lÆ vinning, en Kasparov
3%. Þriðjungi einvígsinser lokið,
eftir er að tefla 16 skákir. Níunda
skákin verður tefld í dag og hefur
Kasparov hvítt.
Biðstaðan:
Svart: Gary Kasparov.
Hvítt: Anatoly Karpov.
41. — Ke6 (biðleikur Kasparovs);
42. Kg2 - Ha2+, 43. Kf3 — Ha3+,
44. Ke2 — Hg3!, 45. Kd2
Jafnteflið blasir einnig við
eftir 45. a5 — Ha3, 46. Hb5+ —
Kf4.
— Hg2+, 46. Ke3 — Hg3+, 47.
Ke2 — Ha3, 48. Kd2 — Kg3, 49.
Hc4 — Kd5. Jafntefli, því hvítur
kemst ekkert áleiðis.
:........................................................... "
Veður
víða um heim
L»g«t Hait
Akwsyri 5 akýiaó
Amstardam 14 20 akýiaó
Aþena 1« 31 haióskirt
Barcatona 24 skýjaó
Berim 8 15 skýjaó
Brtiaaal 3 20 þoka
Chtcaðð • 16 akýjaó
Dubtin 10 18 akýjað
Fanayjar 24 |>okumóóa
Frankfurt 10 24 haiöakírt
Gant 11 26 heiöakirt
Helainki 4 10 akýjaó
Hong Kong 24 28 akýjaó
Jarúaalem vantar
Kaupmannah. 3 12 akýjaó
Laa Patmaa 27 lóttakýjaó
Uaaabon 17 26 akýjaó
London 15 20 akýjaó
Los Angetea 31 35 akýjaó
Lúxamborg vantar
Maiaga 27 Mttakýjaó
MaHorc« 21 túld
Miami 24 30 akýjað
Montraal 8 19 heiöakirt
Moskva 2 10 akýjaó
Naw York 20 24 akýjaó
Oató 0 12 heiöskfri
Parta 15 24 heiöakirt
Pekíng 8 17 heiöakirt
Raykiavik 9 rigning
Rió de Janeiro 17 28 akýjaó
Rómaborg 13 33 haióakírt
Stokkhótmur 5 11 haióakírt
Sydney 15 28 heióakirt
Tókýó 19 22 ■kýjaó
Vinarborg 14 24 heiöakirt
Þórahötn 8 aútd
Hversdagsleikinn á íslandi er
kvaddur á fimmtudags-
morgni. Flogið er til Luxem-
borgar og streitunni leyft að
líða úr skrokknum. Á flug-
vellinum bíður bílaleigubíll
sé þess óskað; með sölu-
skatti, tryggingum og óbeisl-
uðum kílómetramæli, kost-
ar sá ódýrasti 1.650.- kr. í
þrjá daga, fyrir fjóra í bíl.
Til Daun er tveggja tíma
akstur og þar er upplagt að
eyða síðdeginu; slappa af,
fara í sund eða tennis,
spila minigolf eða billjard
- allt eftir þörfum hvers
og eins. Um kvöldið bjóða veitingahúsin og bjór-
stofurnar ykkur velkomin, og
nóttin er ávallt ljúf í rúmgóðum
og glæsilegum sumar-
húsunum. Á föstudegi er
tilvalið að skreppa í
verslunartúr til borgar-
innar Trier í Móseldal.
Þar er fallegt og þar má
LONG HELGl
I DAUN EIFEL
FYRIR KR. 13.288.-
gera reyfarakaup á
úrvalsvarningi.
Á laugardeginum er rétt að
setja stefnuna á Köln - þar
er ekki síður hagstætt að
versla og urmull síungra
menningarverðmæta gleðja
augað. Ekki er úr vegi að
smakka á vínframleiðslu
bændanna í héraðinu og
gleyma stund og stað í
Fantasíulandi þar sem jafn-
vel ímyndunaraflið verður
, orðlaust.
Á sunnudegi er öllu pakkað
niður nema góða skapinu og
besta hluta ferðalagsins
(heimferðin - heimkoman - tollurinn) notið til
hins ýtrasta.
Þetta tilboð gildir frá 1. sept. - 7. okt. og aftur
13. - 30. okt.
Dæmi um verð(flug og gisting án flugvallarskatts);
6 í 3ja herbergja húsi.kr. 13.288.- pr. mann
4 í 2ja herbergja húsi.kr. 13.634.- pr. mann
2 í stúdíóíbúð kr. 13.942,- pr. mann
FERMSKRIFSTOFAN ÚRVAL
Ferðaskrifstofan Úrval v/Austuvöll. Sími 26900.