Morgunblaðið - 26.09.1985, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER1985
27
Kristján Jóhannsson, Ingólfur Guðbrandsson og ítalsld Ujómsveitarstjórinn Maurizio Barbacini, sem stjóraar
flutningi Sinfóníuhljómsveitar íslands á óperunni Grfmudansleik. Barbacini aðstoðaði Kristján f fyrsta kennslutím-
anum með undirspili.
Kórskóli Pólýfónkórsins settur:
Kristján Jóhannsson söngy-
ari kennir söng í fyrsta skipti
KÓRSKÓLI Pólyfónkórsins var settur sl. mánudagskvöld, en skólinn hefur
starfað undanfarna 15 vetur að síðasta ári frátöldu, en ekki gat orðið af
söngnámskeiðinu þá vegna verkfalls BSRB. Sjötíu nemendur hafa látið skrá
sig í kórskólann í ár, en hann stendur yfir í tíu vikur og verður kennt kl.
8—10 á mánudagskvöldum.
Ingólfur Guðbrandsson, stjórn-
andi kórsins, setti skólann og
sagði m.a. við það tækifæri að
kórskólinn hefði lengi vel verið
uppeldisstöð fyrir góða kórfélaga.
„Margir nemenda hans hafa síðar
lagt stund á frekara söngnám og
jafnvel farið erlendis til að læra
söng og eru margir þeirra nú á
meðal okkar helstu söngmanna og
er þar skemmst að minnast frum-
flutnings á Grímudansleik sl.
laugardagskvöld, en þar eru fjórir
aðalsöngvaranna fyrrverandi kór-
skólanemar Pólyfónkórsins."
Þá bauð Ingólfur velkomna
kennara kórskólans í ár, en þeir
eru: Kristján Jóhannsson, Mar-
grét Pálmadóttir, Helga Gunnars-
dóttir og Friðrik Guðni Þorleifs-
son. Ingólfur sagði að lengi hefði
verið vöntun á réttri tilsögn í söng
á íslandi, en sagðist þó hafa þá trú
að aðeins væri til ein rétt kennslu-
aðferð í söng — hinn ítalski skóli.
Eftir setningarræðu Ingólfs hóf
Kristján Jóhannsson kennslu og
var það hans frumraun í söng-
kennslu. „Númer eitt er að unna
og njóta tónlistar og helst þurfið
þið að skemmta sjálfum ykkur.
Þið verðið að njóta þess að standa
fyrir framan fólkið án þess að
roðna og svitna. Það hefur alltaf
farið í taugarnar á mér þegar ég
sé söngvara næstum kasta upp
vegna sviðshræðslu," hóf hann
kennslustundina.
„Söngurinn verður að koma frá
hjartanu. Annars getur maður
bara staðið út í haga eins og belj-
urnar og baulað þar. Feimni og
söngur eiga ekki saman. Líkaminn
þarf að vera í jafnvægi ásamt önd-
uninni. { þrjú ár lagðist ég t.d. á
magann við hliðina á rúminu
mínu þegar ég vaknaði og gerði
armbeygjur og kepptist við að
halda niðri í mér andanum og ég
var kominn upp í 30 armbeygjur á
einni öndun.“
Kristján sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins eftir
æfinguna að hann hefði haft mjög
gaman af þessum fyrsta tíma og
vonaðist til að starf sitt bæri ein-
hvern ávöxt. „Jú, auðvitað finnst
mér hálfskrýtið að fara að kenna
fólki, sem ekkert hefur lært áður
og ég var að velta því fyrir mér
hérna áðan á æfingunni hvort ég
hefði ekki verið á svipuðu stigi er
ég byrjaði fyrst að syngja í barna-
kórnum á Akureyri."
Kristján mun starfa við kór-
skólann á meðan hann verður hér
á landi, en í lok október er hann á
förum til Bandaríkjanna þar sem
hann mun taka þátt í uppsetning-
unni á óperunni „Marta" við Mich-
igan Opera Detroit og þar syngur
hann aðaltenórinn. Þó er mögu-
Ieiki á því að Kristján komi til
íslands í lok nóvember og taki þá
aftur til við hlutverk sitt í Grímu-
dansleik í nokkra daga. Hann
sagðist verða í Bandaríkjunum í
vetur og færi ekki aftur til Ítalíu
fyrr en næsta vor.
Kristján Jóhannsson með nemendnm kórskóla Pólyfónkórsins í fyrstu
kennslustundinni.
VESTURGA3A4