Morgunblaðið - 26.09.1985, Blaðsíða 35
MORétrNÉLAÖÍÖ,FIMMTUDAGUR26. SEPTÉltlkfiRl985
35
Þá er að geta tveggja nýrra bóka
í flokknum Málfræðirit Máls og
menningar og er önnur bókin Stíl-
fræði eftir Baldur Ragnarsson og
hin tilraunaútgáfa Almennrar
málfræði eftir Þórunni Blöndal.
Tvær hinna nýju bóka tengjast
sögukennslu í framhaldsskólum og
er önnur þeirra fjölrituð tilrauna-
útgáfa Hugmyndasögu eftir Olaf
Jens Pétursson og hin er Mann-
kynssaga eftir 1850, eftir Norð-
mennina Sveen og Astad, þýdd af
Sigurði Ragnarssyni kennara og
sagnfræðingi. Bókin fjallar um
mannkynssögu tímabilsins frá
1850 til 1985 með ítarlegri um-
fjöllun um aðra heimshluta en
Evrópu og lögð áhersla á kvenna-
sögu, efnahags- og félagsmálaþró-
un.
I tveimur nýjum kennslubókum
í dönsku sem komnar eru út, gætir
nýrra viðhorfa til textanotkunar
og verkefna. Önnur bókin er fjöl-
rituð útgáfa verksins Dansk...
uden problemer, eftir Hafdísi
Ingvarsdóttur og Kirsten Friðriks-
dóttur og er bókin ætluð fram-
haldsskólum. Hin bókin er Tag
fat, eftir þær Brynhildi Ragnars-
dóttur, Jónu Björk Sætran og Þór-
hildi Oddsdóttur og er sú bók ætluð
9. bekk grunnskóla. Höfundar
þessara tveggja bóka eru starfandi
dönskukennarar og fylgja bókun-
um hljómbönd með hlustunaræf-
ingum. Höfundur bókarinnar Töl-
fræði, sem er ein af nýju kennslu-
bókunum, er Jón Þorvarðarson
kennari. Hann segir í inngangi að
bókin sé skrifuð fyrir þá sem hafa
misjafna undirstöðuþekkingu í
Að gefnu tilefni
um kynþáttaað-
skilnað og
— Eftir Ólaf Ólafsson
Skýrsla frá „International Con-
ference on Apartheid and Health“
sem haldin var í Brazzaville í
Afríku í nóvember 1981 á vegum
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar
hefur nýlega komið út. Stofnunin
hefur óskað eftir að eintaki skýrsl-
unnar verði dreift til almennings.
Hér er því birtur útdráttur úr
skýrslunni.
Vegna fregna um slæmt heil-
brigðisástand meðal þeldökkra
kynflokka í Suður-Afríku var haf-
in rannsókn á vegum stofnunar-
innar árið 1975. „Eins og flestum
mun kunnugt um er aðalinntak
kynþáttastefnu Suður-Afríkustjórnar
varðveisla hvíta kynstofnsins og
menningararfleifðar hans.“ Suður—
Afríka er eitt auðugasta landið í
heimi en efnahagur þeldökkra er
víða mjög bágborinn.
Ungbarnadauði meðal þel-
dökkra barna er því allt að sexfalt
hærri en meðal hvítra. Ævilíkur
hvítra barna eru nú 20 árum lengri
en þeirra svörtu.
Milli 30-75% af börnum af þel-
dökkum kynstofni þjást af næring-
arskorti en um 20% eru mjög illa
haldin og dánartíðni þeirra einna
hæst í heimi. Ástand í þessum
málum hefur versnað frá 1968.
Aðeins um 6% mæðra af svörtum
kynstofni fá sæmilega mæðra-
verndarþjónustu en mæðraþjón-
usta og ungbarnadauði meðal
hvítra er svipuð og gerist meðal
margra þróaðra þjóða. Um 75-80%
af þeldökkum námuverkamönnum
hafa orðið fyrir slysi eða fengið
heilsufar
atvinnusjúkdóma, en prósentan er
mun lægri meðal hvítra námu-
manna. Fjöldi örorkutilfella meðal
þeldökkra námumanna hefur tí-
faldast á árunum 1971-1979. Tíðni
geð- og áfengissjúkdóma og sjálfs-
morða meðal þeldökkra námu-
manna er lang hæst í allri Afríku
enda er atvinnuleysi mikið. Tíðni
farsótta er mun hærri meðal þel-
dökkra íbúa, sérstaklega ung-
barna, en þeirra hvítu. í mörgum
öðrum löndum Afríku er heilsu-
farsástand þeldökkra mun betra
þó að efnahagur landanna sé mun
lakari.
Fjöldi lækna í Suður-Afríku er:
1 læknir á 350 hvíta íbúa.
1 læknir á 45.000 þeldökka íbúa.
Fjöldi sjúkrahúsrúma er:
1 fyrir hverja 96 hvíta íbúa.
1 fyrir hverja 186 þeldökka
íbúa.
Hvítu íbúarnir fá fertugfalt
meira fjármagn í sinn hlut til
heilbrigðismála en þeldökku íbú-
arnir og eru heilbrigðisstofnanir
þeirra mun betur búnar en þeirra
þeldökku.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
leggur áherslu á, að lélegt heil-
brigðisástand þeldökka kynstofns-
ins sé bein afleiðing af kynþátta-
stefnu yfirvalda.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin tel-
ur það vera skyldu heilbrigðis-
starfsfólks að berjast gegn hvers
konar mismun kynþátta því að í
kjölfar slíkrar stefnu fylgi undan-
tekningarlaust efnahags-, félags- og
heilsufarslegt misrétti.
Höfundur er landlæknir.
Þeir sem reynt hafa,
þekkja þá sérstöku til-
finningu að vakna á ensku
úrvalshóteli og skipuleggja
daginn við girnilegt morg-
unverðarborðið.
Óhætt er að mæla með
verslunarferð um morgun-
inn með viðkomu í Oxford
Street eða á Portobello Road og
Haymarket. Þeir yngri ættu hik-
laust að kíkja í tísku-
verslanirnar á Kings
Road. Sjálfsagt er síðan
fyrir alla að líta inn í stóru versi-
anahúsin. A útsölunum er oft
hægt að gera frábær kaup. ___ - T/r) - 0 000
FRA KR. 13.822
URVALSFRl
í HEIMSBORGINNI
FYRIR VERÐ
Og
andrúmsloftið engu líkt.
Eftir hádegið er tilvalið að
skoða sig um og heimsækja
eitthvert af 400 söfnum
borgarinnar eða lista-
miðstöðina Barbican.
Þótt knattspyrna sé
ekki eitt af áhugamálun-
um ættirðu endilega að
fara á heimaleik
Arsenal eða Tottenham -
þú athugar bara að sýna rétt-
an lit!
Kvöldinu er vel varið á ein-
hverjum góðum veitinga-
stað. Þú notar bara næsta
kvöld til að sjá leikritið,
ballettinn, fara á tónleika
eða söngleik - þú getur
valið á milli Starlight Express,
Chess, Mutiny og ótal fleiri.
Starfsfólk Úrvals annéist
miðapantanir.
Þegar dimma tekur opnar
Pétur í Stringfellow dyrnar á
næturklúbbi sínum - þar eru
íslendingar velkomnir.
Kvöldinu má ljúka í spilavíti
- þú ert nú einu sinni í London.
jóðun
Hótelin sem við bjóðum uppá eru m.a. White
House, Cranley Gardens, London Metropole
og Selfridge - allt ósvikin úrvalshótel.
Dæmi um verð:
Helgarferð (3 dagar) kr. 13.822 pr. mann
Vikuferð (7 dagar) kr. 18.919 pr. mann
FERMSKRIFSTOFAN ÚRVAL
HJÁ BÓKAÚTGÁFU Máls og menningar eru komnar út 14 nýjar bækur,
sem er töluverd aukning á haustútgáfu forlagsins. Aukningin er í samræmi
við þá stefnu forlagsins að dreifa bókaútgáfunni yfír allt árið. Af þessum
14 bókum eru 10 kennslubækur, tvö fræðslurit og tvær uglur, en svo nefn-
ast kiijuútgáfur Máis og menningar.
Af kennslubókum eru þrjár
ætlaðar til kennslu í íslensku og
eru tvær þeirra smásagnasöfn.
Önnur ber nafnið Kóngaliljur,
smásögur 1960-1985, sem þeir Ei-
ríkur Brynjólfsson og Baldur
Hafstað ritstýrðu. Þar er að finna
tólf íslenskar smásögur eftir höf-
unda, sem eiga það sameiginlegt
að hafa gefið út sína fyrstu bók
1960 eða síðar. Hitt safnið nefnist
Gúmmískór með gati, og er síðara
bindið af sögum sem valdar voru
úr fjölda smásagna er bárust í
samkeppni Samtaka móðurmáls-
kennara um sögur fyrir börn og
unglinga, sem fram fór 1983.
Heimir Pálsson hefur ritstýrt
þessu síðara bindi. Þá er komin út
bókin Bókmenntafræði handa
framhaldsskólum, eftir prófessor
Véstein Olason og vonast forlagið
til að þar með sé bætt úr brýnni
þörf fyrir alhliða kennslubók í
bókmenntafræðum á þessu skóla-
stigi.
stærðfræði en vilja skilja undir-
stöðuatriði tölfræðinnar.
Fræðsluritin tvö sem komu út
eru Kína - frá keisaraveldi til
kommúnisma, eftir Ragnar Bald-
ursson og er þar rakin saga fjöl-
mennasta ríkis veraldar með höf-
uðáherslu á tímabilið frá miðri 19.
öld og fram til okkar daga. Síðara
ritið er handbókin Þú og ég, sem
fjallar um kynþroska og kynlíf og
Ferðaskrifstofan Úrval v/Austuvöll. Sími 26900.
er einkum ætluð ungu fólki. Bókin
er áströlsk að uppruna en þýdd og
staðfærð af Elísabetu Gunnars-
dóttur.
Loks má geta kiljuútgáfu Máls
og menningar og er önnur þeirra
skáldsagan Þar sem Djöflaeyjan
rís, eftir Einar Kárason, en hún
kom fyrst út fyrir tveimur árum.
Hin bókin er ný sígild ugla, Völs-
unga saga og Ragnars saga loð-
brókar í handhægri lestrarútgáfu
með nútímastafsetningu. Örnólfur
Thorsson íslenskufræðingur ann-
aðist þessa útgáfu og ritar eftir-
mála.
Silja Aðalsteinsdóttir, ritstjóri tímarits Máls og menningar, Árni Einarsson, framkvæmdastjóri bókaútgáfunnar og
Halldór Guðmundsson, útgáfustjóri.
Fjórtán nýjar bækur komnar
út hjá Máli og menningu