Morgunblaðið - 26.09.1985, Side 52

Morgunblaðið - 26.09.1985, Side 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER1985 * Hljómsveit Arthurs Moon skemmti gestum á Naustinu. í kvöldverð á Naustinu Kvennalið lögreglunnar í Reykjavík og Kópavogi kom saman á Naustinu, föstudaginn 13. september sl., og eins og sjá má á myndum þessum var mikið fjör hjá þessum fríða hópi lögreglunn- ar. Fyrsta konan hóf störf í lögregl- unni í Reykjvík árið 1974, Katíín Þorkelsdóttir, en síðan hefur bæst allverulega í hópinn og eru þær nú um tuttugu talsins. Sumar hafa þó hætt störfum. Á hópmyndinni eru, talið frá vinstri: Arnþrúður Karlsdóttir, Laufey Williamsdóttir, Rannveig Einarsdóttir, Elín Viðarsdóttir, Guðlaug Sverrisdóttir varðstjóri, Fríða Jónsdóttir, Jónína Sigurðar- dóttir, Ragnheiður Davíðsdóttir, Björg Jóhannsdóttir, Berglind Eyjólfsdóttir, Guðrún Scheving Thorsteinsson og Ingibjörg Ás- geirsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Helga Magnúsdóttir, Svana Ing- ólfsdóttir, Sigrún Ólafsdóttir, Jó- hanna Njálsdóttir, Dóra Hlín Ing- ólfsdóttir og Margrét Sigurbjörns- dóttir. Hjónabandið og frama- brautin í súginn Leikkonan Kay Lenz er einna best þekkt fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum frægu „Rich Man Poor Man“ eða „Gæfa eða gjörvileiki", en það nafn hlutu þættirnir er þeir voru sýndir hér í sjónvarpinu fyrir nokkrum árum. Þar lék hún Kate Jordache. Eftir þá þætti gat Kay nánast valið úr hlutverkum því kvik- myndatilboðum rigndi yfir hana í tugataii. Árið 1977 giftist hún söngvaranum David Cassidy og gátu slúðurdálkar dagblaðanna sér þess til að líklega skorti hana hvorki hamingju né peninga. Nú er Kay Lenz orðin 32 ára gömul og fráskilin. Hún skildi við mann sinn árið 1981 — segist hafa verið svo upptekin á framabraut- inni að hún hafi lítinn tíma haft til að leggja rækt við hjónabandið eða eignast börn. Nú er söngferli Davids nær lokið og tók hann skilnaðinn mjög nærri sér. Foreldrar hans skildu er hann var barn og ákvað hann þá að sitt eigið hjónaband myndi ekki enda á þann hátt. En svo fór sem fór. David Cassidy og Kay Lenz á meðan allt lék í lyndi. Undanfarið hefur Kay leikið í ýmsum sjónvarpsþáttum og spjar- að sig ágætlega, en þó er hún verk hún hefur tíðum þurft að taka hversu oft ég hef leikið gleðikon- Kay Lenz er nú 32 ára gömul og leikur annað slagið í sjónvarpsþáttum. óhress með hversu ómerkileg hlut- að sér. „Ég hef t.d. ekki tölu á því ur,“ segir Kay. fólk í fréttum Kvennalið lögreglunnar j

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.