Morgunblaðið - 05.10.1985, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER1985
3
Icy Vodka
selst vel
NÝJA íslenska vodka-tegundin, Icy
Vodka, sem kom á markaðinn á
fímmtudaginn, „rokseldist“ í gær,
eins og einn af afgreiðslumönnun-
um hjá Áfengis- og tóbaksverslun
rfkisins orðaði það.
Hundrað kassar af Icy Vodka
voru settir á markað til að byrja
með og í gærdag var það að verða
uppselt í birgðageymslum Áfeng-
isverslunarinnar. Mest af því fór
í útsölurnar í Reykjavík.
í útsölum Áfengisverslunarinn-
ar fengust þær upplýsingar að Icy
Vodka hefði selst vel.
Séra Gunnar
endurráðinn
Á FUNDI safnaðarstjórnar Fríkirkj-
unnar og séra tiunnars Björnssonar
í gærdag var ákveðið að séra Gunn-
ar skyldi endurráðinn sem prestur
Fríkirkjunnar frá og með gærdegin-
um, en sem kunnugt er var séra
tiunnari vikið úr starfí í síðustu
viku „vegna samstarfsörðugleika".
Ragnar Bernburg formaður
stjórnar Fríkirkjusafnaðarins
sagði í samtali við Morgunblaðið
í gær, að safnaðarstjórn hefði
einróma samþykkt að draga upp-
sögnina til baka og endurráða
séra Gunnar. Ragnar sagðist
fagna þessum málalokum og sagði
að stjórnin byði nú séra Gunnar
velkominn til starfa að nýju.
Jafnframt vildi hann þakka þann
samhug sem fram hefði komið
hjá safnaðarfólki meðan unnið
væri að lausn þessa máls.
Álafoss-dagar 1985:
Landbúnaðarráðherra fítjaði
upp á „heimsins lengsta trefíi
í gærmorgun fítjaði Jón
Helgason upp á trefli,
við opnunÁlafoss-daga
sem standa fram til
næsta laugardags. Ætl-
unin er að koma trefli
þessum í heimsmeta-
bókina hvað lengd varð-
ar. Innfellda myndin var
tekin í gærkvöld, eftir
fyrsta dag Álafoss-daga.
í gærmorgun hófust hinir árlegu
Álafoss-dagar, haustkynning á fyr-
irtækinu og framleiðsluvörum þess
þar sem ætlunin er að fitja upp á
ýmsu til skemmtunar og fróðleiks.
Verslunin að Vesturgötu 2
hefur verið færð í nýjan búning.
Þar fer nú fram sýning fimm
listamanna og eru þar sýnd verk
úr ull. Svokölluðu hugmynda-
horni hefur verið komið upp í
versluninni þar sem ætlunin er
að aðstoða viðskiptavini við út-
færslur á eigin hugmyndum úr
ullargarni og efnum.
Við opnun Álafoss-daga í gær
fitjaði landbúnaðarráðherrann,
Jón Helgason, upp á trefli úr
Álafoss-garni. Ætlunin er að
prjóna trefil þennan það langan
að hægt verði að koma metinu í
heimsmetabókina, að sögn Ein-
ars Egilssonar, verslunarstjóra
Álafoss-búðarinnar, og geta allir
þeir sem leið eiga um verslunina
gripið í prjónana og lagt hönd á
plóginn við gerð trefilsins. Jafn-
framt fer fram keppni milli
Reykvíkinga og Akureyringa i
treflaprjóni og ber sá sigur úr
býtum sem prjónað hefur lengst,
er Álafoss-dögum lýkur. Jón Sól-
nes fitjaði upp á Akureyri í
gærmorgun í verslun Sigurðar
Guðmundssonar, en verslunin
selur Álafoss-vörur á Akureyri.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
myndum, tekur landbúnaðarráð-
herrann okkar sig vel út við
prjónaskpinn. Innfelda myndin
var tekin í gærkvöld og er ekki
annað að sjá en afköstin hafi
verið með besta móti á þessum
fyrsta degi Álafoss-daga.
Fullar verslanir
af góðum
tækifærum!!!
Lambakjöt Lamba T N-%re>^ .
af nýslátruðu Londonlamb
WdOkarniðju^gaðir XiS ’fJJL
199’°? i , ?
pr kg. 1^00 pru* Lamba QO.wi
lifur Pr ks-
diHíár"' 188 pr.kg. Beikon porulaust 298í“kg.
Opið til kl. 16 í dag í Mjóddinni en til kl. 12 í Stamnýri
r og Austurstræti
Kjúldingar
Heildsöluverð kr. 260.00 pr.kg.
VÍÐIS VERÐ:
,00
pr.kg.
Nyreyktur lamba
hamboVgarahryggur
348ft*
i1010 V
229