Morgunblaðið - 17.10.1985, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.10.1985, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR17. OKTÓBER1985 Tekur Steingrímur við dómsmálunum? Raddir innan Framsóknarflokks- ins segja að Jón Helgason þurfi að einbeita sér að landbúnaðarmálunum ÞÆR RADDIR hafa verið uppi innan Framsóknarflokksins síðustu daga, að kanna beri þann möguleika Reykjavík: Prófkjör 22. og 23. nóvember Á ALMENNUM fundi í Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í gærkvöldi var samþykkt samhljóða að halda prófkjör vegna borgarstjórnar- kosninganna á vori komanda dagana 24. og 25. nóvember næstkomandi. Framboðsfrestur mun verða 20. til 28. þessa mánaðar. Prófkjörsreglur eru þannig að þáttaka verður heimil öllum fullgild- um meðlimum sjálfstæðisfélaga í Reykjavík sem náð hafa 16 ára aldri prófkjörsdagana. Einnig þeim stuðningsmönnum Sjálfstæðis- flokksins sem eiga munu kosninga- rétt í Reykjavík við kosningarnar í vor og undirrita inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag fyrir lok kjörfund- ar. Þátttekendur í prófkjörinu eiga að númera við nöfn þeirra frambjóð- enda í prófkjörinu sem þeir vilja styðja (8-12 nöfn). Sömu reglur gilda um þátttöku f prófkjörinu og fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar en þá áttu þátttekendur að krossa við nöfn þeirra 8-12 manna sem þeir vildu styðja. að Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra yfirtaki dómsmálin frá næstu áramótum, og hafa þær ástæður verið gefnar fyrir þessum hugmyndum að Jón Helgason hafi svo mikið að gera sem landbúnaðar- ráðherra eftir að nýju framleiðslu- ráðslögin tóku gildi, að hann vilji losna við dómsmálin. „Það er rétt að það hefur komið fram að við framkvæmd á land- búnaðarlögunum sé það ákaflega mikilvægt að Jón Helgason land- búnaðarráðherra geti helgað sig þeim málum alveg, enda veit ég að hann hefur fullan hug á því að geta helgað sig þeim málum sem allra mest. Því hefur verið minnst á það við mig, að ég yfir- tæki dómsmálin. Ég á hins vegar alveg nóg með mitt ráðuneyti, efnahagsmálin og allt það starf sem þeim fylgir, þannig að ég hef ekki Ijáð máls á þessu,“ sagði Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, er blaðamaður Morgunblaðsins spurði hann i gær hvort það væri á döfinni innan Framsóknarflokksins að hann yfirtaki dómsmálin. For- sætisráðherra sagði að það kæmi ekki til greina að fjölga ráðherr- um, þannig að skipan ráðherra- stóla framsóknarmanna yrði óbreytt, a.m.k. fyrst um sinn. „Ég get ekki fullyrt neitt um óbreytt ástand út kjörtímabilið," sagði Steingrímur, „en það er engin svona breyting fyrir dyrum núna.“ Jón Helgason landbúnaðar- og dómsmálaráðherra var spurður um þetta mál í gær: „Ég hef nú ekki hugleitt þetta sérstaklega," sagði Jón, „en vissulega er mjög mikið að gera í landbúnaðarmál- unum nú, og það er og hefur verið mjög mikil vinna því samfara að koma framleiðsluráðslögunum í framkvæmd. Ég veit hins vegar ekki hvað framtíðin ber í skauti sér.“ Rainbow Hope, skip Rainbow Navigation. Lögbann sett á útboð varnarliðsflutningaima: Óvíst hvort úrskurð- inum verður áfrýjað — segir Derwinsky, ráðgjafi Shultz utanríkisráðherra DÓMARI í Washington DC setti í fyrrakvöld lögbann á fyrirhugað útboð bandaríska flotamálaráðuneytisins á sjóflutninga til varnarliðsins í Keflavík á grundvelli verndarlaga frá 1904. Það þýðir að íslensku skipafélögunum er óheimilt að bjóða í flutningana til varnarliðsins og að bandaríska skipafé- lagið Rainbow Navigation Inc. hefur áfram forgang að þeim. Það var Rain bow Navigation sem höfðaði málið gegn flotamálaráðuneytinu. í úrskurði dómarans er sérstak- lega tekið fram, að hann muni síðar fjalla um þá fullyrðingu lögmanna Bandaríkjastjórnar að farmgjöld Rainbow séu of há og að m.a. á þeirri forsendu eigi að bjóða flutningana út. Það hefur verið krafa íslenskra stjórnvalda, undir forystu Geirs Hallgrímsson- ar utanríkisráðherra, að íslensku skipafélögin, sem önnuðust þessa flutninga um árabil, eigi að eiga jafnan rétt og bandarísk félög í þessum efnum. Geir Hallgrímsson utanríkisráð- herra sagðist í gær hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með úrskurð- inn og það því fremur, að á þriðju- daginn hafi George Shultz, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, sagt sér að stjórn sín teldi sig hafa mjög sterkan málstað og fulívissað sig um að málið yrði leyst, svo viðunandi væri. Hans G. Andersen, sendiherra Islands í Washington DC, sagði i gær, að talsmenn utanríkisráðu- neytisins þar vestra hefðu sagt sér að málinu yrði áfrýjað. Aftur á móti sagði Edward Derwinsky, ráðgjafi Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í samtali við Villtist og ákvað því að taka það rólega um nóttina — segir Sigurður Finnbogason, rjúpnaskytt- an sem leit var hafin að við Hvalvatn í gær „ÉG tók 45° stefnu á leið minni til jeppans og lenti vitlausu megin við háls þar sem ég þekkti mig ekki. Ég taldi mig sjá Ijós bflsins, sem reyndist vera tálsýn. Farið var að dimma, skyggni ekkert, rigning og rok, svo ég ákvað að taka það rólega um nóttina, enda var ég vel búinn og gat þessvegna legið tvær nætur úti. Ég hallaði mér svo öðru hverju í nótt í stuttan tíma í senn en gekk rólega á milli. Þegar birta fór ( morgun sá ég hvar ég var, og taldi fljótlegast að fara niður í Lundarreykjadal, gekk út á Uxa- hryggjaveg og skokkaði niður að Þverfelli," sagði Sigurður Finn- bogason í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gærmorgun. Sigurður fór til rjúpnaveiða við Hvalvatn og Kvígindisfell ofan við Botnsdal í Hvalfirði í fyrradag ásamt mági sínum, Axel Þóri Friðrikssyni. Urðu þeir viðskila í þoku norðan í Kvígind- isfelli um klukkan 16 um daginn, Axel komst um klukkan 19 til bíls þeirra sem þeir höfðu skilið eftir við Hvalvatn en Sigurður ekki eins og áður er getið. Ætt- ingjar þeirra fóru að hafa áhyggjur þegar þeir skiluðu sér ekki heim um kvöldið og höfðu samband við Böðvar Ásgeirsson formann björgunarsveitarinnar Ingólfs í Reykjavík. Ekki var talið ráðlegt að hefja leit því þeir félagar höfðu ekki sagt frá því heima hjá sér hvert þeir ætluðu á veiðar. Bróðir annars þeirra hafði þó grun um hvert þeir gætu hafa farið og fann Axel í jeppanum við Hvalvatn. Hann hafði átt von á Sigurði að bílnum, flautaði og blikkaði ljós- um alla nóttina og vildi ekki að yfirgefa staðinn. Félagar úr björgunarsveitinni Hjálpinni á Akranesi fóru snemma um morguninn til leitar upp úr Botnsdal og frá Eiríks- vatni og var annar hópurinn með leitarhunda. Þegar fréttist að fellið væri mjög gilskorið og erfitt yfirferðar var ákveðið að kalla út allar björgunarsveitir á Suðvesturlandi. Á annað hundr- að menn úr björgunarsveitum Slysavarnafélags Islands, Lands- sambandi hjálparsveita skáta og flugbjörgunarsveitum á svæðinu frá Selfossi að Akranesi sendu menn upp í Hvalfjörð, hafin var leit með einni flugvél og þyrlu Landhelgisgæslunnar og búið að setja upp stjórnstöð á leitar- svæðinu þegar Sigurður kom heill á húfi heim að Þverfelli um klukkan 10 i morgun og lét strax vita af sér. Morgunbladid/RAX Sigurður Finnbogason, í miðið, á-samt félaga sínum Axel Þóri Friðriks- syni (til vinstri) og mági á tali við foringja björgunarsveitarmanna af Akranesi þegar félagar hans náðu í hann að Þverfelli í gær. Rúnar Hálfdánarson bóndi á Þverfelli stendur í bak við þá. Kl.10.00. Sigurður kemur til Þverfells Eiríks, ) vatn Punktalínan aýnirþáleið .- Fél rnir sem Sigurður gekk V verða f^JJ' /Viðskila Kl.16.00. Kl.19.00. Axel; finnur jeppann Hvalfell Brynjar Ragnarsson vid.skil ^ Kvígindis Strikalínan sýnir þá leið sem þeir félagar gengu norður fyrir Kvígindisfell Rjúpnaveiðitíminn hófst í fyrradag, eins og kunnugt er. „Þetta var létt æfing í byrjun rjúpnaveiðitímans," sagði Böðv- ar en sagðist jafnframt vona að fall væri fararheill og ekki þyrfti að koma til fleiri slíkra atvika í haust. Sigurður er félagi í björg- unarsveit og var hann vel búinn, m.a. í gúmmígalla, og með átta- vita. Hann var hins vegar hvorki með kort né merkjablys. Sagði Böðvar að það væri ákaflega hættulegt þegar menn létu ekki vita hvert þeir færu til rjúpna- veiða, í þessu tilviki hefði bíllinn fundist fyrir slembilukku. Sigurður sagðist vera vel hald- inn þegar rætt var við hann í gærmorgun. Hann rómaði við- tökur á Þverfelli, þar hefði hann fengið þurr föt og morgunmat og sfðan verið drifinn f heitt bað og leystur út með hádegismat. blaðamann Morgunblaðsins í gær- kvöldi, að í ráðuneytinu yrði ekki tekin ákvörðun um áfrýjun fyrr en forsendur úrskurðar dómarans lægju fyrir. „Hugur okkar stendur til að áfrýja þessum úrskurði en um það verður ekki tekin ákvörðun fyrr en lögmenn okkar og flota- málaráðuneytisins hafa farið rækilega yfir forsendur dómar- ans,“ sagði hann. „Við viljum vera vissir um, að áfrýjunin verði ekki tímasóun ein.“ Derwinsky sagði að lögbannsúr- skurðurinn hefði ekki komið sér sérstaklega á óvart. „Úrskurður- inn er byggður á rúmlega 80 ára gömlum lögum, sem ekki hefur þurft að reyna á áður. En það er rétt að taka fram, að það er ekki óalgengt að undirréttir felli dóma og úrskurði um grundvallaratriði laga, það er svo á efri dómsstigum, sem hægt er að fara út í hárfínar lagatúlkanir," sagði ráðgjafi utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna. -Sjá ennfremur um Rainbow Navigation-málið á bls. 4. ASÍ-fé- lögin fá 3 % kaup- hækkun LAUNÞEGAR innan Alþýðusam- bands íslands hafa fengið 3% launa- hækkun sambærilega þeirri eins flokks hækkun, sem fyrrverandi fjár- málaráðherra samdi um við BSRB í fyrri viku. Var samkomulag þar að lútandi, milli ASÍ annars vegar og Vinnuveitendasambands íslands, Vinnumálasambands samvinnufé- laganna og Meistarasambands bygg- ingamanna hins vegar, undirritað í gærmorgun. í tilkynningu frá framangreind- um aðilum segir að með hliðsjón af nýgerðu sakomulagi fjármála- ráðherra og BSRB um almenna 3% hækkun launa alls þorra opinberra starfsmanna, telji þeir óhjá- kvæmilegt, að hliðstæð breyting verði á kauptöxtum starfsmanna á almennum vinnumarkaði. Því hafi aðilar gert með sér það sam- komulag, að frá og með 16. október 1985 hækki kauptaxtar og viðmið- unartölur samkvæmt gildandi kjarasamningum ofangreindra aðila og aðildarfélaga þeirra um 3%. Sama gildi um grunntölur afkastahvetjandi launakerfa sam- kvæmt gildandi samningum þar um. Sjá viðbrögð við samningunum á bU 32.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.