Morgunblaðið - 17.10.1985, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 17.10.1985, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR17. OKTÓBER1985 51 M ~ Al VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—11.30 FRÁ MÁNUDEGI ^ TIL FÖSTUDAGS ‘ItwtíJAinrK'an'u ir "RHTT RÐLOSR Pl&Vlfl DRRSLIftFJftRMHlRRfiPHERRR. KVITTHNIR FYRIR RUKRFjflRVFITIM&flR SÍDU8TU DRGH- Sverrir veltir fyrir sér, hvort ekki sé bannað með lögum að reykja í Listasafni íslands. Þessir hringdu .. . Er ekki bannað að reykja í Lista safni fslands? Sverrir Björnsson hringdi til að gera athugasemd við mynd er birtist í Morgunblaðinu fyrir skömmu. „Myndin fylgir frétt frá Lista- safni íslands og sýnir hvar starfsmenn safnsins standa yfir listaverkum Kjarvals sem vart verða metin til fjár. Það sem vert er gagnrýni er að einn mannanna er reykjandi pípu yfir listaverkunum. öll vitum við hverjar geta orðið afleiðingar þess ef glóð fellur ofan á myndirnar og ég er undrandi á því að maður sem hlýtur að gera sér grein fyrir verðmæti verksins skuli ekki gera sér grein fyrir þessari hættu. Auk þessa er Listasafn íslands opinber stofnun'og sam- kvæmt reykingavarnalögunum er bannað að reykja þar. Til hamingju með varðskipið Þór Tómas Knútsson hringdi til að óska þjóðinni allri en þó sérstak- lega sjómönnum til hamingju með varðskipið Þór. „Það er skref í rétta átt að koma á laggirnar öryggisskóla í skipinu til að kenna þeim sem starfa á hafi úti, hvort sem þeir eru til þess menntaðir eða ekki, hvernig á að vera sjómaður til sjós. Þeir eru alltof margir mennirnir, sem eru á sjó, en kunna lítið til öryggisvarna og bera sjóslysin þess glöggt vitni að of oft hefur verið látið skeika að sköpuðu í þeim efnum. Ég starfaði á olíuborpðllum í Norð- ursjó um nokkurt skeið og gekk þar í björgunarskóla sem er for- senda þess að fólk fái yfirleitt að stíga fæti á borpallana. Ég líki því ekki saman hvað var auðveldara að vinna úti á rúmsjó vitandi hvernig á að bregðast við hinum ólíklegustu aðstæðum sem geta skapast. Kaup Slysavarnafélagsins á varpskipinu Þór ættu að vera hvatning til sjómanna að læra hvernig hægt er að vera öruggur til sjós.“ Tapaði silfurhringum Sigrún Birgisdóttir hringdi og saknaði tveggja hringa í glærum plastpoka sem hún tapaði á Laugaveginum fyrir rúmum tveimur vikum. Hér er um að ræða tvo silfur- hringa, annar er með svörtum steini en hinn með blómaskrauti. Þeir eru erfðagripir og Sigrúnu því mjög kærir. Hún heitir finnanda góðum fundarlaunum, en hægt er að hafa samband við Sigrúnu í síma 30205 eftir klukk- an 4 á daginn. Hvað er orðið af hjálpseminni? Maöur hringdi og var ókátur með tillitsleysi grannans þegar óhöpp verða. „Þannig var að ég var á leið til vinnu á Þórsgötunni með fullt fangið af hljómplötum. Þegar ég steig niður á gangstéttina fyrir framan heimilið mitt skrikaði mér fótur og ég skall í götuna. í sama mund sem ég lá bjargar- laus í götunni bar þar að bifreið og ég vonaði að bílstjórinn hjálp- aði mér á fætur því ég hafði hlotið slæma byltu. Jú, ökumað- urinn hægði ferðina en ekki til að aðstoða mig heldur til að horfa á þegar ég skreiddist á fjórum fótum að tröppunum á húsinu! Síðan ók hann í burtu. Hvað hefur orðið af tillitssemi fólksins? Þegar ég loks komst til míns heima varð konan mín að hlaupa út og tína saman plöturn- ar sem höfðu dreifst í allar áttir. Hún sá líka að ég hafði runnið á bananahýði sem einhver hafði skilið eftir á miðri gangstéttinni. Ég vara fólk við að skilja eftir hluti sem þessa úti á götu því af getur hlotist stórslys og síðan mælist ég til þess að við landann að hann dusti rykið af hjálpsem- inni!“ Stcfán íslandi vantaði Velvakandi góður. Hjá Víkverja fyrir skömmu var upptalning á mörgum af okkar ágætu söngvurum og skáldum en undrun mín var stór að ekki var Stefán íslandi þar á meðal. Stefán, með sinni dásam- legu rödd. söng sig inn í hug og hjarta þjóðarinnar og bar hróður íslands víða. Er Stefán stóð á tindi listar sinnar var rödd hans ólýsanlega töfrandi eins og plöt- ur hans vitna. Erum við svona fljót að gleyma? VG Varöskipiö Þór. FIAT vamhlutir LJÓSABÚNAÐUR: Aöalljós, afturljós. KUPLINGSHLUTIR: Pressur, diskar, legur, barkar. ROFAR. Bakkljosarofar, bremsuljósa- rofar, kælivifturofar, oliuþrýsti- rofar, vatnshitarofar. STÝRISBÚNAÐUR: Stýrismaskínur, stýrisendar, spindilkúlur. BENSÍNKERFI: Bensíndælur, bensíntankar. MIÐSTÖÐVARMÓTORAR VATNSDÆLUR MÓTORPÚÐAR HÖGGDEYFÁR KVEIKJUKERFIÐ: Lok, hamrar, platínur, þéttar, háspennukefli, kerti, kertaþræöir. BREMSUKERFI: Höfuödælur, hjóladælur, viðgerðarsett, bremsuklossar, bremsuslöngur og bremsu- barkar. í STARTARA: Segulrofar, kol, fóðringar, anker, bendixar. í ALTERNATORA: Kolhaldarar, kol, díóöubretti, spennustillar. TÍMAREIMAR ÖXULHOSUR GÍRKASSAPÚÐAR DRIFSKAFTSUPPHENGJUR HÁBERGH/F, Skeifunni 5A Sími: 91-84788 r MATSEÐILL VIKUNNAR Forréttir kr. 205 - • Spínatsalat með bacon og kjúklingalifur • Kálfalifur með kaldri túnfisksósu • Ferskir sveppir fylltir með sniglum í hvítlaukskrydjurtasósu • Kryddleginn hörpuskelfiskur í sítrónulegi • Raekjur í kryddbættri tómatsósu • Ofnbakaður spergill í umslagi með þremur tegundum af kryddi • Steiktur smókkfiskur í hvítvíns-limesósu Aðalréttir • Kálfalifur í rauðvínsediki Kr. 340 - ■ Innbakaður humar í ravioli með koníaksrjómasósu Kr. 545 - • Opin eggjakaka að ítölskum hætti Kr. 255 - ■ Kjúklingabringa í hunangs- og sinnepssósu ' Kr. 445 — ■ Hörpuskelfiskur í basel og hneturjómasósu Kr. 385 - • Lambasneiðar með mangó-chutneysósu Kr. 395 — Eftirréttir___________________________________________________________ • Fersk jarðarber með heitri eggjasósu Kr. 195 - • Djúpsteiktir eggjahvítuhnoðrarmeðferskumávöxtum °g flórsykri Kr. 175-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.