Morgunblaðið - 17.10.1985, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR17. OKTÓBER1985
| atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Framleiðslustjóri
Bifreiða- og trésmiöju
Kaupfélag Skaftfellinga, Vík, óskar aö ráöa
framleiöslustjóra fyrir bifreiða- og trésmiðju.
Starfiö er fólgið í daglegri stjórnun og sölu-
mennsku.
Leitaö er aö dugmiklum, áhugasömum manni
sem á gott með að umgangast og stjórna fólki.
Góð almenn menntun æskileg. Góð laun í
boði fyrir réttan aðila.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, mennt-
un og fyrri störf, sendist kaupfélagsstjóra eða
starfsmannastjóra Sambandsins er veita nán-
ariupplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 30. þessa mánaðar.
Kaupfélag Skaftfellinga
Vfk, Mýrdal
Hrafnista
Hafnarfirði
vill ráða hárskera í hlutastarf.
Uppl. gefur forstöðukona í síma 54288 kl.
10.00-11.OOf.h.
Afgreiðslumenn
Námsgagnastofnun auglýsir eftir afgreiðslu-
mönnum til starfa á bóka- og námsgagnalag-
er. Einnig vantar afgreiðslumann í skólavöru-
búð. Umsóknir ásamt uppl. um menntun og
fyrri störf sendist Námsgagnastofnun fyrir 22.
október merktar: „Umsókn".
NÁMSGAGNASTOFNUN
PÓSTHÓLF 5192 125 REYKJAVÍK
A fgreiðsla og söludeild,
pósthólf5912, 125 Reykjavík.
Stærðfræðingur
sækir eftir góðu starfi
Ég hef cand. scient.-gráðu frá Oslóarháskóla
(stærðfræði og eðlisfræði). Hef unniö hjá
norsku olíufyrirtæki við tölvuforritun, hjá
norsku hagstofunni við tölfræði auk kennslu-
starfaáíslandi.
Upplýsingar í síma 96-26136.
Kristinn Guölaugsson,
Hjaröarlundi 9, Akureyri.
Prjónakonur
Vanar prjónakonur óskast til að prjóna lopa-
peysur. Kaupi vel prjónaðar lopapeysur
alpahúfur og vettlinga á sama staö. Uppl. t
síma 12651.
Skrifstofustarf
Óskum að ráöa sem fyrst ritara til að annast
símavörslu, móttöku viðskiptavina, upplýs-
ingamiðlun ásamt aöstoð við gjaldkera.
Verslunarskólapróf með góðri tungumála-
kunnáttu (enska, eitt noröurlandamál og
nokkur þýskukunnátta) áskilin.
Þeir sem áhuga hafa á þessu starfi sendi eigin-
handarumsókn með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf í pósthólf 519, 121
Reyk javík fyrir 21. október.
Smith & Norland h/f.
Nóatúni4.
Skemmtanastjóri
Eitt vinsælasta diskótek landsins óskar eftir
að ráða hugmyndaríkan.skemmtilegan og
duglegan skemmtanastjóra pilt eða stúlku til
starfa sem fyrst.
Viðkomandi þarf að hafa gaman af að um-
gangast fólk og geta unniö sjálfstætt.
Hér er um að ræöa starf sem mætti hugsan-
lega vinna sem hlutastarf.
Þeir sem hafa áhuga eru vinsamlega beðnir
að senda inn nafn, heimilisfang og símanúmer
ásamt uppl. um það sem máli kann að skipta
inn á augl.deild Mbl. fyrir 22. okt.
merkt: „Lifandi starf — 3102“.
Vantar fisk
til vinnslu
Vegna hráefnisskorts getum við tekið línubáta
í viðskipti. Góð aðstaða í landi og úrvals ís-
lenskur beitismokkur. Getum útvegað beit-
ingamenn. Aflaútlit allgott og stutt á fengsæl
fiskimið. Allarnánariuppl. ísíma 94-6105.
Fiskiöjan Freyja hf.,
Suðureyri.
Vefnaðarvöruverslun
Óskum eftir að ráöa nú þegar starfsmenn við
afgreiöslu hjá vefnaðarvöruverslun í Reykjavík.
Starfssvið er, auk afgreiðslu, ráðgjöf varðandi
val á vefnaöarvöru. Æskilegt er aö umsækj-
endur hafi reynslu á umræddu sviði eða hafi
sinnt saumaskap í heimahúsi.
Vinnutími er annars vegar frá kl. 12.30-18.00
og hins vegarfrákl. 9.00-14.30.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl.
9.00-15.00.
Afleysinga- og rádningaþjónusta /MS^.
Lidsauki hf. W
Skólavörðustig 1a - 101 Reykjavík - Simi 621355
Endurskoðunar
stofa
Garðabær
Við nýjan leikskóla í Garðabæ sem tekur til
starfa 1. nóvember nk. eru tvær hálfar stöður
lausar.
Óskað er eftir fólki með fósturmenntun eða
hliðstæða menntun og reynslu í uppeldi ungra
barna.
Umsóknum skal skilað á Félagsmálaskrifstofu
í Kirkjuhvoli í síðasta lagi þann 22. okt. nk.
Félagsmálaráð Garöabæjar.
Sérkennari
Sérkennara vantar til að aöstoða 7 ára ensku-
mælandi barn við nám, kl. 09.15-11.15, mánu-
daga-fimmtudaga. Viðkomandi þarf að hafa
menntun á sviði sérkennslu (learning disabi-
lities).Góðlauníboði.
Umsækjandi skili umsókn sem greinir frá
menntun og starfsreynslu til augld. Mbl.
merkt: „A — 8571“ fyrir næstkomandi þriðju-
dagskvöld 22. október.
Kjöt og fiskur
Breiðholti
Óskum eftir að ráða vanan kjötiðnaðarmann
strax. Upplýsingar veittar á staðnum ekki í síma.
Ungan mann
vantar vinnu strax. Hefur reynslu sem sölu-
maður hjá stóru fyrirtæki. Góö enskukunnátta
bæði í rituðu og töluðu máli. Er reglusamur
og ábyggilegur. Upplýsingar í síma 35161 á
daginn.
Lyfsöluleyfi
er forseti íslandsveitir.
Lyfsöluleyfi Seyðisfjarðarumdæmis (Apótek
Austurlands) er auglýst laust til umsóknar.
Verðandi lyfsali skal hefja rekstur lyfjabúðar-
innar l.janúar 1986.
Umsóknir um ofangreint lyfsöluleyfi skulu
hafa borist heilbrigöis- og tryggingamála-
ráðuneytinufyrir 15. nóvembernk.
Heilbrigöis- og tryggingamálaráöuneytiö,
15. október 1985.
Starfskraftur
óskast fyrir léttan iðni'ð. Einnig vantar sendil
á sama stað. Uppl. í síma 671900 Plastos hf.
og 83519 Etnahf.
Tækniteiknari
Starfsmaður með reynslu í bókhaldsstörfum
óskast. Umsóknir með uppl. um menntun og
fyrri störf sendist augl.deild Mbl. merkt: „E —
8395“.
Tækniteiknari vanur arkitektateikningum
óskast til starfa.
Upplýsingar veittar á Teiknistofu Gunnars og
Gauta, Barónsstíg 5.
Skákhátíð Sparisjóðs og Skákfélags
Hafnarfjarðar haldin 25.—27. október
SKÁKHÁTÍÐ Sparisjóðs Hafnar-
fjarðar og Skákfélags Hafnarfjarðar
verður haldin 25.-27. október nk.
Hátíðin hefst með því að á fostu-
daginn 25. október kl. 20.00 teflir
Helgi Ólafsson fjöltefli við unglinga.
16 ára og yngri. Skráning fer fram í
síma 54000. Hámarksfjöldi þátttak-
enda er 40. I>eir sem sigra stórmeist-
arann fá trétafl að launum og þeir
sem ná jafntefli fá bókagjafir.
Á laugardeginum, 26. október,
verða tefldar 9 umferðir undan-
rása, 15 mínútna skákir. Allir
skákmenn með undir 2100 Elo stig
hafa þátttökurétt og verður teflt
eftir Monrad kerfi. Tuttugu efstu
men öðlast þátttökurétt í A flokki
daginn eftir, en þeir sem verða
neðan við 20. sæti tefla i B flokki.
Tefldar verða þrjár umferðir fyrir
hádegi kl. 10.30-12.20. Síðan
þrjár umferðir kl. 13.30 til 15.10.
Kl. 15.15 mun Helgi Ólafsson
halda fyrirlestur, en kl. 16.15 hefst
taflið að nýju og lýkur því kl.
18.00.
Síðasta daginn, 27. október,
verða tefldar 11 umferðir eftir
Monrad kerfi. í A flokki tefla allir
skákmenn með yfir 2100 stig og
þeir 20 sem vinna sér þátttökurétt
á laugardeginum.
Fyrstu verðlaun í A flokki eru
25.000 krónur, önnur verðlaun eru
15.000 krónur og þriðju verðlaun
eru 10.000 krónur. Kvennaverð-
laun, öldungaverðlaun, og ungl-
ingaverðlaun eru verðlaunapen-
ingar. Þrír efstu í B flokki fá einn-
ig verðlaunapeninga. Skákdómari
mótsins verður Sigurberg H. El-
entínusson, en mótið verður sett
af formanni stjórnar Sparisjóðs-
ins, Stefáni Jónssyni.