Morgunblaðið - 17.10.1985, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 17.10.1985, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR17. OKTÓBER1985 37 Hvar er vélin? Það var snemma á liðnu vori að ágætur kunningi og vinur sem um árabil hafði leigt rúmgott herbergi í risi í fjölbýlishúsi í vesturbænum ákvað að stefna að því að eignast eigið húsnæði. Hann er rétt rúm- legá fimmtugur og hefur unnið alla almenna verkamannavinnu frá unglingsárum og lengi verið á vélskóflum, jarðýtum og öðrum þungavinnuvélum og hann hefur unnið sig í álit eins og sagt er um góða og duglega starfsmenn. Eins og gengur og gerist nú á tímum lenti hann í skilnaði fyrir nokkrum árum og þegar lögfræð- ingar og skiptaráðandi höfðu gert upp búið þá stóð hann uppi næst- um eignalaus maður, en nóg um það. Hann ákvað að þrauka. Hann leigði húsnæði fyrst um sinn eða þar til hann hafði efni á því að kaupa sér íbúð og sá draumur rættist á liðnu vori. Hann keypti tveggja herbergja íbúð á annarri hæð í nýju steinhúsi í miðborg Reykjavíkur. Þegar hann flutti inn í júnímánuði síðastliðnum bauð hann nokkrum vinum og kunningj- um að lfta inn og í tilefni dagsins bauð hann uppá rjómatertu og súkkulaði og það var kveikt á kertum. Ég var einn boðsgesta en hafði ekki tök á að mæta. Síðan hefur lengi staðið til að ég liti inn og skoðaði nýju íbúðina hans Sigga og oft hef ég komið að lokuðum dyrum og skýringin er sú að hann hefur síðustu mánuði verið að vinna þetta tólf til fjórtán tíma á dag, sjö daga vikunnar og ekki tekið sér frí um helgar, þar sem fyrstu afborganir af íbúðinni eru stórar og erfiðar og hann hefur ákveðið að taka engin lán. Hann ætlar að fjármagna kaupin af eigin fjármunum. Hann hefur orðið að taka alla þá yfirvinnu og nætur- vinnu sem hann hefur átt kost á. Hann hefur sem sagt ekki verið heima við síðustu mánuði nema að nóttu til, komið einhvern tím- ann eftir miðnætti og farið að heiman til vinnu um sjöleyti að morgni. Hann stendur sig eins og hetja, hann er að eignast íbúðina án þess að taka nokkur lán. Fimmtudaginn 3. október síðast- liðinn hringdi hann heim til mín klukkan hálfníu að kvöldi. Hann spurði hvort ég vildi koma í heim- sókn og skoða íbúðina. Ég ákvað að þiggja boðið og rölti yfir til hans en á milli heimila okkar er um það bil tíu mínútna gangur. Þegar ég var kominn að gatnamót- um Snorrabrautar og Grettisgötu var orðið verulega skuggsýnt en tilsýndar sá ég hvar maður stóð SVIPMYNDIR UR BORGINNI/Ólafur Ormsson ofar við gatnamót Grettisgötu og Barónsstígs, uppáklæddur með einhverja hluti í sitt hvorri hendi. í fyrstu hélt ég að þarna væri lögregluþjónn með tvær hvítar kylfur í hendi að stjórna umferð- inni, en þegar betur var að gáð þá kom í ljós að þarna stóð maðurinn, sem ég var að heimsækja, hann stóð þarna með tvo hvíta inn- kaupapoka í hendi, fulla af sælgæti oggosi. — Komdu blessaður, vinur. Ég var að versla, sagði hann og við tókumst í hendur og héldum síðan beinustu leið að heimili hans og hann talaði mikið um það hvað hann væri þurfandi fyrir að kynn- ast góðri konu til að annast sig í ellinni. Það voru rigningarskúrir í borginni og þegar við vorum komnir að heimili hans í nýju steinhúsi var utanyfirfatnaðurinn orðinn gegnblautur og settur á snaga í forstofugangi. Hann bauð mér til stofu og ég var ekki fyrr sestur í djúpan og þægilegan stól en hann hellti innihaldi pokanna, súkkulaðikexi, konfekti og popp- korni á stofuborðið: — Gjörðu svo vel. Því miður er enginn tími til að búa til tertur og ég á engan mat í ísskápnum. Við búum svona þessir einhleypu menn, sem erum að vinna alla daga fram á nætur. Ég þakka gott boð og kvað al- gjöran óþarfa að hafa mikið fyrir veitingum og sagðist ekki þiggja kaffi og því síður sterkari drykki. Þegar við höfðum hámað í okkur súkkulaðikexið og konfektið og drukkið öl, sýndi hann mér íbúð- ina, flísalagt baðherbergi, nýtísku eldhús og tvö herbergi, svefnher- bergi og stofu og var greinilega stoltur og það má hann vera. í íbúðinni er enginn íburður en öllu Kaupfélag Suðurnesja: Verzlun opnuð í Vogunum KAUPFÉLAG Suðurnesja hefur nýlega opnað verslun að Vogagerði 8, Vogum. Verslunin verður opin frá 9 til 18, frá mánudegi til föstudags og á milli 10 og 12 á laugardögum. Verslunin er alhliða 'matvöruverslun. Deildarstjóri verslunarinnar er Skjöldur Þorláksson. Hann sagði í samtali við fréttaritara Mbl. að verð í versluninni væri sambæri- legt við það sem væri í verslunum K.S. ! Keflavík. Þá sagði hann að reynt yrði að halda uppi eins mikilli þjónustu og þeir gætu án þess að hallarekstur verði á deildinni. Á meðfylgjandi mynd er Skjöldur Þorláksson deildarstjóri ásamt starfsstúlkum, Selmu Jónsdóttur og Þórdísi Símonardóttur. E.G. komið fyrir á smekklegan hátt og svo mikill þrifnaður að hefði mátt leita með stækkunargleri að ryk- korni. Siggi fór á kostum, flutti magnað erindi um vandamál hús- byggjenda og svo ræddi hann um kjaramál af þekkingu og heimtaði hærra kaup fyrir yerkafólk. Hann spjallaði um aðbúnað á vinnustöð- um og þannig liðu um það bil tuttugu mínútur. Hann lagðist endilangur uppí sófa og ég gekk um íbúðina og virti fyrir mér ljós- myndir á veggjum og allt í einu var Siggi farinn að hrjóta. Ég settist í stól í stofunni, fletti dag- blaði um stund í von um að hann myndi nú brátt vakna og við gæt- um þá spjallað um lífið og tilver- una, um ranglæti í þjóðfélaginu og þetta eilífa basl að koma sér upp eigin húsnæði. Þegar hann bærði ekki á sér eftir um það bil hálftíma þegar klukkan í ibúðinni sló níu högg, gekk ég yfir til hans og hnippti í hann. Hann vaknaði snögglega og spurði: — Hvarervélin? — Hvaðavél? — Vélskóflan? Payloaderinn? — Það er engin vélskófla hér, Siggi minn. — Hvar er ég? Er ekki kominn kaffitími? Erum við ekki í nætur- vinnu? — Þúertheimahjáþér. — Æ, fyrirgefðu. Hvað má bjóða þér? Fáðu þér meira af sælgætinu. Siggi sagði síðan nokkra brand- ara af vinnustað þar til hann var aftur farinn að hrjóta skömmu síðar og klukkan ekki orðin hálftíu á fimmtudagskvöldi. Hann svaf í um það bil korter eða þar til sím- inn hringdi. Þá var hann beðinn um að koma á vinnustað, það var eitthvert verkefni framundan með vélskófluna. Rétt áður en við skild- um á heimili hans sagði hann mér að hann hefði ekki getað horft á Dallasþættina í sjónvarpinu síðan í vor og yfirleitt ekki getað fylgst með sjónvarpinu. — Veistu það? Ég hef varla horft á sjónvarpið síðan í vor. Ég hef þó stundum heyrt hádegis- fréttirnar í útvarpinu. Já, það þarf mikið að leggja á sig til að eignast eigið húsnæði, kannski að það sé þess virði... BORGAR SIG BOS hugbúnaöur er ekki háður einni tölvutegund, heldur gengur á margar tölvutegundir þ.m.t. IBM XT/AT, DEC MICRO PDP-11, STRIDE, ISLAND XT/AT og ADVANCE. BOS hugbúnaður er fjölnotenda með allt að 20 skjái eða einnotenda með möguleika á aö vinna í 4 kerfum samtímis. BOS hugbúnaður gerir kleift að byrja smátt og stækka stig af stigi. BOS hugbúnaður er margreyndur og í stöðugri sókn. c Kerfin, sem boðið er upp á eru m.a.: Fjárhagsbókhald, viðskiptamannabókhald, sölu- og pantanakerfi, birgðabókhald og birgðastýring, greiðslubókhald, launabókhald, verkbókhald, tollskýrslu- og verðútreikningar, uppgjörskerfi og tíma- bókhald fyrir endurskoðendur, framleiðslustýring, ritvinnsla, gagna- grunnur, skýrslugerð, áætlanagerð ásamt tugum sérhannaðra forrita. o Söluaðilar BOS hugbúnaöar Gísh J. Johnsen hf., Skrifstofuvélar hf., Aco hf., Kristján Skagfjörð hf., Hugur sf., Almenna kerfisfræðistofan, Tölvutækni sf. Akureyri. hTí Töluumiðstöðin hf 1 I ! f Höföabakka 9 — Sími 685933 < < -
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.