Morgunblaðið - 17.10.1985, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR17. OKTÓBER1985
í fötum
frá...
Stjórnmálaástandið við upp-
haf nýs þings, nefndist
spjallþáttur Páls Magnússonar nú
á þriðjudagskveldið. Til leiks voru
mætt gamalkunnug andlit hinna
svokölluðu „fulltrúa stjórnmála-
flokkanna" með Steingrím fremst-
an í flokki og svo náttúrulega
Þorsteinn, Svavar, Jón Baldvin,
Guðmundur frá Ástarbandalaginu
og Guðrún Agnars frá Kvenna-
framboði. Það sem einkum vakti
athygli mína á þessum fríða flokki
voru glæsilegir jakkar karlmann-
anna.
Já, sumar ferðir eru vissulega
til fjár, þannig fer ekki hjá því að
þingmenn og ráðherrar komist í
þær álnir að geta keypt lúxusjakka
frá Ítalíu eða Þýskalandi, væntan-
lega fyrir erlendan gjaldeyri.
Auðvitað er þetta smámál en
gætum að því að miklir leiðtogar
eins og Matahma Gandhi urðu
stórir af hinu smáa, af því að
spinna sín eigin klæði.
Þegar þjóðinni er gert að herða
sultarólina eiga ráðherrar að byrja
á því að selja embættisbílana og
aka um í smábílum, þeir eiga að
neita að mæta í drykkjuveislur eða
láta nægja að drekka þar klára-
vatn, afhenda fötluðum laxveiði-
græjurnar, segja upp aðstoðarráð-
herrunum, velta um borðum víxla-
ranna, fara inní hverfi húsbyggj-
endanna, ekki í jökkum frá Sævari
Karli heldur í alíslenskum 66 gráð-
um norður vinnufatnaði, vopnaðir
hamri og sög. Stjórnmálamenn
verða ekki miklir af því að lepja
upp talnatuggur hagfræðinganna
í skini fjölmiðlanna heldur af því
að taka sér stöðu mitt í aldingarði
hversdagsmannsins.
Davíð Scheving
1 ágætum þætti, Iðnaðarrásinni,
sem var á dagskrá rásar 1 klukkan
11.30 á þriðjudagsmorgun, höfðu
stjórnendurnir, Gunnar B. Hinz,
Hjörtur Hjartar og Páll Kr. Páls-
son, samband við Theodór Hall-
dórsson frá Sölustofnun Lagmetis
og Davíð Scheving Thorsteinsson
hjá Sól hf. en þeir félagar eru einu
fulltrúar matvælaverksmiðjunnar
Islands á stærstu matvælasýningu
heims, Anuka í V-Þýskalandi. I
máli þeirra Daviðs og Theodórs
kom meðal annars fram að á þess-
ari matvælasýningu væru hvorki
meira né minna en 40 þróunarríki
með bása og sæktu þau hratt fram,
til dæmis á sviði fullunninna sjáv-
arafurða. Það er máski engin furða
þótt íslendingar telji sig ekki
þurfa að sýna framleiðslu sína á
þessu heimsmarkaðstorgi, við eig-
um júeinu sinni... heimsins besta
fisk, og slík úrvalsvara hlýtur að
seljast um aldir alda, þrátt fyrir
að þær þjóðir sem byggja lönd er
liggja að sjó leggi nú ofurkapp á
að fullvinna fiskmeti og selja á
markaðstorgi heimsins. Nú, en til
allrar hamingju eigum við íslend-
ingar fleira að selja á hinu mikla
markaðstorgi, við eigum ómengað
vatn, sem þeir hjá Sól hf. hafa
bragðbætt samkvæmt leynilegri
formúlu og kalla Svala. Fólk er
síþyrst og Davíð Scheving drífur
sig á stærsta matvælamarkaðs-
torg heimsins að gefa því að
smakka bragðbætt íslenskt
drykkjarvatn. Eg tek ofan fyrir
slíkum manni, sem lætur ekki
nægja að blaðra um nauðsyn á
auknum útflutningi til að létta
erlenda skuldaklafann heldur
stormar á eigin kostnað til Anuka
vopnaður heimsins besta vatni,
bragðbættu með alíslenskri töfra-
formúlu. Mættu íslenskir stjórn-
málamenn taka sér Davíð Schev-
ing til fyrirmyndar í þessu efni í
stað þess að kaupa glæsilega er-
lenda tískujakka.
ólafur M.
Jóhannesson.
ÚTVARP/SJÓNVARP
Ótroðnar
slóöir
■■M Þátturinn
i r Q0 „ótroðnar slóð-
X O — ir“ er á dagskrá
rásar 2 í dag kl. 15.00 i
umsjá Andra Más Ingólfs-
sonar.
Fyrst í þættinum verður
efni eftir Hjalta Gunn-
laugsson sem hann hefur
verið að vinna að undan-
farið ásamt Páli Pálssyni
bassaleikara, og Gunnari
Smára, upptökumanni í
Hljóðrita. Andri Már tók
við þá félaga viðtal í
Hljóðrita I Hafnarfirði og
verður því útvarpað í
þættinum ásamt tveimur
lögum frá þeim.
Þá verður kynning á
tónlistarmanninum
Michael Card, sem í dag-
legu tali er þekktur undir
náfninu „guðfræðingurinn
sem fór að poppa“.
I lok þáttarins verður
tónlist úr ýmsum áttum,
m.a. Russ Taff, sem e.t.v.
kemur hingað til lands i
desember til tónleika-
halds, David Meece,
Guðný og Elísabet Eir og
fleiri.
„Aukning kristilegrar
popptónlistar hefur verið
með eindæmum," sagði
Andri Már. „Hún virðist
vera að teygja anga sína
í ríkum mæli hingað til
lands. Það sem af er árinu
eru komnar út þrjár ís-
lenskar plötur — vandað-
ar plötur."
Lög eftir Mozart
Úr kvikmyndinni Amadeus
í útvarpi, rás 1,
OQ 15 1 kvöld verður
— flutt tónlist eft-
ir Wolfgang Amadeus
Mozart úr kvikmyndinni
„Amadeus", sem nú er
verið að sýna í Háskóla-
bíói.
St.-Martin-in-the-
Fields-hljómsveitin leik-
ur. Neville Marriner
stjórnar. Imogen Cooper
og Anne Queffelec leika á
píanó.
Wolfgang
Amadeus Mozart
Barnaútvarpið
17
IH I barnaútvarpi
00 í dag kl. 17.00
— verður tekið
fyrir barnaefni í sjón-
varpi. Fjallað verður um
gamalt og nýtt efni og
rætt verður um framtíð-
aráform um sjónvarpsefni
fyrir börn.
Umsjónarmaður þátt-
arins er Kristín Helga-
dóttir og henni til aðstoð-
ar eru tveir 14 ára ungl-
ingar, þau Orri Hauksson
og Ljósbrá Baldursdóttir.
Útvarp frá Alþingi
Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana
Útvarpað verð-
O A 00 ur ^ Alþingi í
— kvöld kl. 20.00.
Á dagskrá verður stefnu-
ræða forsætisráðherra og
umræða um hana.
í fyrri umferð talar
Steingrímur Hermanns-
son, forsætisráðherra, allt
að hálfri klukkustund.
Fulltrúar annarra stjórn-
málaflokka hafa síðan til
umráða 20 mínútur hver.
I síðari umferð hefur
hver þingflokkur 10 mín-
útna ræðutíma. Gert er
ráð fyrir að útvarpi frá
Alþingi ljúki um kl. 23.15.
FIMMTUDAGUR
17. október
7.00 Veöurfregnir. Fréftir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin
7.20 Morguntrimm
7.30 Fréttir. Tilkynningar
8.00 Fréttir. Tilkynningar
8.15 Veðurfregnir
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna:
"Sætukoppur" eftir Judy
Blume.
Bryndls Vlglundsdóttir les
þýðinguslna(16).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, pulur velur
og kynnir.
9.45 Þingfréttir
10.00 Fréttir
10.05 Málræktarþáttur.
Endurtekinn þáttur Helga J.
Halldórsdóttir frá kvðldinu
áöur.
10.10 Veðurfregnír
10.25 Lesið úr forustugreinum
dagblaðanna
10.40 „Égmanþátíð"
Hermann Ragnar Stefáns-
son kynnir lög frá liðnunrt
árum
11.10 CJr atvinnullfinu — Vinnu-
staðir og verkafólk
Umsjón: Tryggvi Þór Aðal-
steinsson
11J0 Morguntónleikar
Strengjakvartett I f-moll op.
80 eftir Felix Mendelssohn.
Melos-kvartettinn I Stuttgart
leikur.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar
12.20 Fréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar
13.30 I dagsins önn.
Neytendamál. Umsjón: Sig-
urður Siguröarson.
14.00 Miðdegissagan: “A
ströndinni" eftir Nevil Shute
Njörður P. Njarðvlk les þýð-
ingu slna(19).
14 30 Afrlvaktinni
Sigrún Sigurðardóttir kynnir
óskalög sjómanna. (Frá
Akureyri)
15.15 Spjallaö viö Snæfellinga
Umsjón: Eðvarð Ingólfsson
15.45 Tilkynningar. Tónleikar
16.00 Fréttir. Dagskrá
16.15 Veðurfregnir
16.20 „Fagurt galaöi fuglinn
sá“
Þáttur Sigurðar Einarssonar
17.00 Barnaútvarpiö
1
19.15 A döfinni. Umsjónarmað-
ur Marlanna Friðjónsdóttir.
19.25 Tannféð. Sænsk barna-
mynd um þrjá unga og
óreynda ferðalanga. Þýð-
andi Jóhanna Jóhannsdóttir.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpið.)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Kastljós. Þáttur um inn-
lend málefni.
ÚTVARP
Stjórnandi: Kristln Helga-
dóttir
17.40 Listagrip
Þáttur um listir og menning-
armál
Umsjón: Sigrún Björnsdóttir
Tónleikar. Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins
19.00 Fréttir. Tilkynningar
19.55 Daglegtmál
Sigurður G. Tómasson flytur
þáttinn
20.00 Stefnuræða forsætisráð-
herra og umræða um hana.
Utvarp frá Alþingi.
I fyrri umferð talar Steingrlm-
ur Hermannsson forsætis-
ráðherra allt að hálfri klukku-
stund. Fulltrúar annarra
þingflokka hafa til umráöa
20 mlnútur hver. í slðari
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR
18. október
21.15 Rick Springfield.
Rokktónlistarþáttur frá
hljómleikum bandarlska
söngvarans Ricks Spring-
fields.
22.15 Derrick. Fyrsti þáttur I
nýrri syrpu I þýskum saka-
málamyndaflokki. Aðalhlut-
verk: Horst Tappert og Fritz
Wepper. Þýðandi Veturliði
Guönasori.
23.15 Allt vill lagið hafa.
umferö hefur hver þingflokk-
ur 10 mlnútna ræðutlma.
23.15 Tónlist eftir Wolfgang
Amadeus Mozart úr kvik-
myndinni „Amadeus".
St. Martin-in-the-Fields
FIMMTUDAGUR
17. október
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Asgeir Tómas-
I
(The Knack . . . and how to
get it.) Bresk gamanmynd
frá 1965. Leikstjóri Richard
Lester. Aðalhlutverk: Micha-
el Crawford, Ray Brooks og
Rita Tushingham. Saklaus
sveitastúlka kemur til Lund-
úna og lendir af tilviljun til
húsa hjá ungum glaumgosa
og vini hans sem er óreyndur
I kvennamálum. Þýðandi
Óskar Ingimarsson.
00.40 Fréttir I dagskrárlok.
mmm
hljómsveitin leikur.
Neville Marriner stjórnar.
Imogen Cooper og Anne
Queffelec leika á planó.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
son og Kristján Sigurjóns-
son.
14.00—15.00 I gegnum tlöina
Stjórnandi: Jón Ólafsson.
15.00—16.00 Ótroðnar slóðir
Kristileg popptónlist.
Stjórnendur: Halldór Lárus-
son og Andri Már Ingólfsson.
16.00—17.00 Bylgjur
Stjórnandi: Asmundur Jóns-
son.
17.00—18.00 Einu sinni áður
var
Vinsæl lög frá 1955 til 1962
— Rokktlmabilið.
Stjórnandi: Bertram Möller.
Þriggja mlnútna fréttlr sagð-
ar klukkan: 11:00, 15:00,
16:00 og 17:00.
Hlé
20.00—21.00 Vinsældalisti
hlustenda rásar 2
10 vinsælustu lögin leikin.
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
21.00—22.00 Gestagangur
Stjórnandi: Ragnheiður Dav-
lösdóttir.
22.00—23.00 Rökkurtónar
Stjórnandi: Svavar Gests.
23.00—24.00 Með eigin orðum
Bob Dylan segir frá ýmsu
sem á daga hans hefur drif-
iö.
Stjórnendur: Jónatan Garð-
arsson og Gunnlaugur Sig-
fússon.