Morgunblaðið - 17.10.1985, Síða 15

Morgunblaðið - 17.10.1985, Síða 15
MORGUNBLADID, FIMMTUDAGUR17. OKTÓBER1985 15 Rödd okkar í þágu friðarins Jerzy Wielunski skáld skrifar Jaruzelski opið bréf — eftir Guðmund Daníelsson Þann 22. sept. sl. birti eitt helsta málgagn pólsku rikisstjórnarinnar í Varsjá, Rzeczpospolita (Lýðveldið) efst á 3. síðu, bréf frá kunningja okkar, Jerzy Wielunski skáldi og þýðanda í Lublin, til W. Jaruzelsk- is hershöfðingja í Varsjá. Bréfið hljóðar svo í íslenskri þýðingu: Rödd okkar í þágu fridarins Blaðafulltrúi ríkisstjórnarinnar óskar eftir að kynna í blöðunum úrval tilvitnana úr bréfum pólskra ríkisborgara, sem stíla bréf sín til W. Jarúzelskis hershöfðingja og innihalda tillögur, sem teknar yrðu til umfjöllunar í ræðu, sem Jaruzelski mun flytja á 40. aðal- þingi Sameinuðu þjóðanna. Pól- land hefur siðferðilegan rétt til að verja lífshagsmunamál hinna svo- kölluðu „tilverulausu" þjóða, (sem eru tilverulausar samkvæmt al- þjóðalögum, það er að segja: minnihluta þjóðarbrota). Þennan rétt hefur Pólland vegna þess, að engin slík þjóðarbrot fyrirfinnast innan landamæra Póllands, þjóð- arbrot sem berjast fyrir því að fá að halda tungumáli sinu og varð- veita fornan menningararf. Pólland er eitt þeirra fáu ríkja í heiminum, þar sem hugtakið Ríki fellur saman við hugtakið Þjóð, þar sem flest allir íbúarnir eiga sér móðurmál, sem jafnframt er opin- bert og löggilt tungumál í öllu landinu. Einmitt um þessar mundir hýsi ég sem gesti tvo franska rikis- borgara af þjóðerni, sem ekki er viðurkennt af frönskum yfirvöld- um og búa við þess konar hlut- skipti í sínu eigin föðurlandi, svo sem þeir væru „2. flokks" þegnar, reyndar sambærilegir við ýmis önnur þjóðarbrot innan franska ríkisins, til að mynda Baska í Suður-Frakklandi og Korsíkubúa. Aldrig Russn er félagi í bret- ónska sósíaldemókrataflokknum, sem berst fyrir þjóðarréttindum til handa Bretónum. Frú Angela Russon talaði aðeins eitt tungu- mál, bretónsku, þangað til hún varð 9 ára gömul, ásamt þúsundum annarra barna, — gamla keltneska tungumálið sitt, bretónsku, sem talað er í Bretoníu og víðar í Evrópu löngu áður en nokkur hafði heyrt orðin Frakkland og Frans- maður. Rödd Póllands á Þingi Samein- uðu þjóðanna um þetta málefni mundi verða framhald okkar rót- gróna kjörorðs: „Fyrir frelsi okkar og fyrir frelsi yðar“, til fylgis við þá hugsjón, sem svo margir af okkar miklu föðurlandsvinum og samlöndum hafa barist fyrir og fórnað fyrir hana lífi sínu. Herra og frú Russon þekkja fullkomlega innihald þessa bréfs, og þau undirrita það ásamt mér í þeirri von, að þú munir minnast á það í ræðu þinni, þar sem þú fjall- ar um alþjóðleg viðhorf til réttar- stöðu minnihluta þjóðfélagshópa innan stórra ríkja, vandamála sem eru náskyld nýlenduvandamálum, útþenslupólitík, innanríkisátök- um, og heimsfriði. Jerzy Wielunski Lublin, Aldrig og Angela Russon Bretoníu. Vinur minn Jerzy Wielunski sendi mér ofanskráð bréf ásamt pólska dagblaðinu sem það birtist i og bað mig snúa því á íslensku og kanna hvort ég fengi það birt í íslensku blaði. Svo skemmtilega vill til, að við höfum áður í sam- vinnu þýtt á íslensku og birt á prenti ljóð eftir Bretónann Ronan Huon, sem nú er nýlátinn, virt skáld, sem orti á móðurmáli sínu, bretónsku. Ég leyfi mér að láta það fylgja þessum línum: Ronan Huon: Að vera ekki til Reyndar er land okkar lítið, valdhafarnir útlendir menn, þeim hljótum við að hlýða. Viðokkursegjaþeir — Þiðeruðekkitil! Reyndar er land okkar lítið og við okkur segja þeir: — Drepið hvur annan! Þettahöfum viðgert. Já. Reyndar er land okkar lítið og valdhafarnir útlendir menn. (Guðmundur Daníelsson og Jerzy Wielunski.) Húsavík: Danskur kvenna- kór í heimsókn Húsavík, 15. október. KLARUP Pigekor frá Álaborg, vinabæ Húsavíkur, söng í Húsavík- urkirkju í gærkvöldi við góða aðsókn og undirtektir. Stjórnandi kórsins er Ule Mort- ensen. Kórinn er skipaður 20 stúlk- um sem eru mjög vel þjálfaðar. Stúlkurnar hafa unnið sér inn farareyri til íslandsferðarinnar með því að syngja í sjónvarp og útvarp í Danmörku. í dag ferðast stúlkurnar um Þingeyjarsýslu og munu skemmta nemendum í skól- unum að Hafralæk, Laugum og Mývatnssveit. Fréttaritari. f V"1 * "N, Fjölbreytt og vandaö námskeiö í notkun Amstrad-tölvunnar Dagskrá Grundvallaratriöi í notkun tölva Uppbygging og notkunarmöguleikar Amstrad Helstu jaöartæki tölva Forritunarlögmál Æfingaríforritunarmálinu BASIC T eiknimöguleikar Amstrad Ritvinnsla Töflureiknar Gagnasafnskerfi Tími 22., 24., 29. og 31. okt. Unglingar kl. 17—20, fullorðnir kl. 20—23. INNRITUN í SIMUM 687590 og 686790. Tölvufræðslan Ármúla36, Reykjavik. RENAULT 9 NCJTÍMABÍLL MEÐ FRAMTÍÐARSVIP

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.