Morgunblaðið - 17.10.1985, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR17. OKTÓBER1985
Ummælum Husseins
um PLO-samtökin
var fagnað í Israel
Tel Aviv, Inrael, 16. október. AP.
I DAG var ummælum, sem Hussein
Jórdaníukonungur viðhafði um PLO,
Frelsissamtök Palestínuaraba, í
Breska sjónvarpinu í gær, fagnaó á
æðstu stöðum í Israel. Þóttu orð
hans bera vott um breytta afstöðu,
sem gæti orðið til að flýta fyrir friðar-
gerð í Miðausturlöndum.
I viðtalinu skellti Hussein skuld-
inni á PLO fyrir að Bretar skyldu
hætta við fund með tveimur full-
trúum samtakanna.
Embættismaður á stjórnarskrif-
stofunum í Tel Aviv sagði, að ísra-
elsku ráðherrarnir hefðu verið
ánægðir með tilsvör Husseins og
talið þau „mjög sannfærandi".
Fyrir nokkru hvatti Shimon
Peres, forsætisráðherra Israels,
Hussein til að taka þátt í beinum
viðræðum við Israel án aðildar
PLO, en Jórdaníukonungur vfsaði
þeim tilmælum á þug og kvaðst
hafa undirritað samkomulag við
Arafat í febrúarmánuði síðastliðn-
um um samvinnu þeirra að friðar-
málum.
I gær fór Peres til Vínar og var
það fyrsti viðkomustaður forsætis-
ráðherrans í 12 daga ferð hans til
Austurríkis, Bandaríkjanna og
Frakklands.
Gorbachev boð-
ar mikla fram-
leiðsluaukningu
— gagnrýnir Khrushchev fyrir draumórakennda bjartsýni
Moskvu. 16. október. AP.
MIKHAIL S. Gorbachev, leiðtogi Sovétríkjanna, kynnti nýja efnahagsáætlun
um mikla framleiðsluaukningu og vöxt í iðnaði sl. þriðjudag og bætti jafn-
framt nýjum manni, Nikolai V. Talyzin, í hagfræðideild Kremlstjórnarinnar.
Miðstjórn kommúnistaflokksins
hefur lagt blessun sína yfir efna-
hagsáætlunina, sem er fyrir árin
1986—90 og til ársins 2000. Hefur
miðstjórnin einnig samþykkt upp-
kast sem felur í sér lauslega áætl-
un um markmið og hugmynda-
fræði og samþykkja skal á flokks-
þinginu 25. febrúar nk.
í ræðu Gorbachevs, er hann
kynnti nýju áætlunina, kom fram
gagnrýni á Khrushchev fyrrum
leiðtoga Sovétríkjanna, er hann
sagði að slíkar áætlanir ættu að
„vera nákvæm umgjörð um raun-
verulegan gang mála, lausar við
óþarfa smámunasemi og
draumórakennda bjartsýni
byggða á sýndarrökum".
I áætlun Khrushchevs var upp-
talinn sá efnahagsárangur sem
nást skyldi 1980, eftir að kommún-
isku skipulagi hefði að fullu verið
komið á. Hann lofaði að þá myndi
iðnaður og efnahagur í Sovétríkj-
unum taka langt fram því sem
gerðist í Bandaríkjunum, að hús-
næði, almenningsfarartæki o.fl.
yrði ókeypis og erfið líkamleg
vinna úr sögunni. í stjórnartíð
Leonid I. Brezhnevs viðurkenndi
flokkurinn að kommúnísku stjórn-
skipulagi hefði ekki verið náð, en
deilt var um hvort Sovétríkin
hefðu náð „raunverulegum sósfal-
isma“ eða ástand „þróunar sósíal-
isma“ varaði enn. í ræðu sinni
sagði Gorbachev að áætlunin gerði
ráð fyrir meiri aukningu iðnðar-
framleiðslu næstu 15 árin en náðst
hefði síðan kommúnisma var kom-
ið á árið 1917.
Nóbelsverðlaunaharinn f eðlisfræði, prófessor Klaus von Klitzing, á rann-
sóknarstofu sinni hjá Max Planck-stofnuninni.
Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði:
Björgunarmenn vinna við að bjarga fólki úr rústunum eftir að þakið hrundi.
AP/Símamynd
Bangladesh:
71 lést þegar þak
hrundi vegna rigningar
I)haka, Bangla Deah, 16. október. AP.
AÐ MINNSTA kosti 71 stúdent
lést þegar þak á svefnálmu heima-
vistar hrundi vegna mikilla rign-
inga. Óttast er um afdrif margra
annarra og segja aðrar fregnir að
fleiri en 100 hafi látist. Rigning-
inn stafðai frá fellibyl sem geysaði
á Bengal flóa og voru þúsundir
íbúa í Bangla Desh fluttir í sér-
stök stormskýli vegna hans.
Ríkisstjórnin hefur fyrirskip-
að þriggja daga þjóðarsorg
vegna þessa atburðar og verða
skólar og aðrar menntastofnan-
ir lokaðar á meðan. 1 maí í ár
létust 11 þúsund manns og þús-
undir urðu heimilislausar er
fellibylur sem fylgdi flóðbylgja
skall á ströndum Bangla Desh.
Fellibylurinn nú er í rénum.
Báðu um hæli í Svíþjóð eftir
3ja vikna göngu frá Murmansk
Sundsvall, Svfþjóó. 16. október. AP.
TVEIR ungir Sovétmenn, 21 árs
og 23 ára, báðu ura pólitískt hæli
í Sundsvall í Norður-Svíþjóð í
dag, eftir þriggja vikna göngu um
óbyggðir heimskautahéraða Sov-
étríkjanna, Finnlands og Svíþjóð-
ar. Því er haldið fram að þeir séu
liðhlaupar úr sovézka hernum.
Að sögn lögreglu héldu á
daginn og héldu síðan göngunni
áfram í skjóli náttmyrkurs. Enn
sem komið er neitar lögreglan
að nafngreina mennina tvo,
fyrra starf þeirra og brottfarar-
stað í Sovétríkjunum. Eina sem
látið er uppi er að þeir séu Rúss-
ar en komi ekki frá Eystrasalts-
ríkjunum, sem innlimuð voru í
Sovétríkin á sínum tíma.
Sænska fréttastofan Tidning-
arnas Telegrambyrá segir hins
vegar að mennirnir séu her-
menn, sem strokið hafi frá
aðalbækistöð sovézka flotans í
Murmansk á Kolaskaga. Flota-
stöðin er í 500 km fjarlægð frá
sænsku landamærunum.
Mennirnir tveir gengu yfir
nyrstu héruð Finnlands og
komu til Svíþjóðar við landa-
mæraborgina Haparanda. Það-
an ferðuðust þeir á puttanum
til Sundsvall og gáfu sig fram
við lögreglu þar. Sovézkir
flóttamenn gefa sig sjaldan
fram við finnsk yfirvöld þar
sem Finnar senda þá venjulega
aftur til Sovétríkjanna.
GENGI GJALDMIÐLA
Uppgötvun sem flýtir fyrir
framförum í hálfleiðaraiðnaði
Stokkhólmi, 16. október. AP
Prófessor Klaus Von Klitzing frá Vestur—Þýskalandi hlaut Nóbelsveró-
launin í eðlisfræði 1985 fyrir uppgötvun sem talið er að flýti fyrir framfönim
f hálfleiðaraiðnaði.
Von Klitzing, sem er 42 ára
gamall, vakti fyrst athygli fyrir
uppgötvun varðandi rafmagns-
leiðni 1980, er varð til þess að
mælingar á leiðni undir segul-
áhrifum voru teknar til endurskoð-
unar. „Uppgötvanir hans eru mjög
-þýðingarmiklar fyrir næstu kyn-
slóð eininga í‘rafeindatæki,“ sagði
prófessor Stig Lundkvist, forseti
nefndarinnar er veitir Nóbelsverð-
launin í eðlisfræði. Hálfleiðarar
gegna lykilhlutverki í rafeinda-
tækjum nútímans, s.s. tölvum og
fjarskiptabúnaði. Uppgötvun Von
Klitzing gerir það að verkum að
hægt ér að gera itákvæmari mæl-
ingar á vlðnámi og eru sagðar öpna
nýtt og þýðingarmikið rannsókna-
svið.
Von Klitzing nam við háskólann
í Brunswick í Vestur-Þýskalandi
en hóf síðan störf við Max—
Plank-stofnunina í Stuttgart þar
sem hann er nú forstjóri. „Það er
erfitt að trúa þessu — ég trúi þessu
naumast," sagði Von Klitzing er
honum var tilkynnt um verðlaun-
in. “Eg er mjög fagnandi að hafa
hlotið slíkan heiður“.
I>ondon, 16. oklóber. AP.
BANDARÍKJADOLLAR hækkaði í
dag gagnvart öllum helstu gjald-
miðlum heims utan Kanadadollara,
sakir þess að framleiðsla í banda-
rískum iðnaði í september dróst
minna saman, en búist hafði verið
við. Verð á gulii féll.
Dollarinn hækkaði þrátt fyrir
aðgerðir seðlabanka til að halda
verði hans niðri, eins og um var
samið til þess að koma í veg fyrir
að Bandaríkjamenn gripu til aðgerða
til að vernda eigin framleiðslu.
í Tókýó kostaði dollarinn 216,20
jen þegar gjaldeyrismörkuðum var
lokað (215,75).
í London kostaði sterlingspundið
síðdegis í dag 1,4108 dollara
(1,4135).
Gengi annarra helstu gjaldmiðla
var þannig að dollarinn kostaði
2,6835 vestur-þýsk mörk (2,6615),
2,2013 svissneska franka (2,1820),
8,1762 franska franka (8,1125),
3,0230 hollensk gyllini (3,0005),
1.807,87 ítalskar lírur (1.796,50) og
1,3700 kanadíska dollara (1,3705).
Leiðtogi hindúa
veginn í Punjab
AmriLsar, 16. október. AP.
RAM Lubyaya, háttsettur embættis-
maður innan indverska Kongress-
flokksins, var skotinn til bana í dag
á mjólkurbúi sínu í borginni Taran
í Punjab héraði. Tveir menn brunuðu
að Lubyaya á skellinöðru og hófu á
hann skothríð. Mennirnir eru grun-
aðir um að vera skæruliðar síkha.
Fimm skot hæfðu Lubyaya.
Hann var fimmtugur að aldri og
stjórnaði kosningaherferð þing-
mannsefnis flokksins i kosningun-
um í síðasta mánuði. Hann átti
einnig sæti í bæjarstjórn Taran.
Tilræðismennirnir hurfu fót-
gangandi á braut þar sem þeir gátu
ekki gangsett skellinöðru sína á
nýjan leik. Lubyaya er þriðja fórn-
arlamb meintr^ hryðjuverka-
-manna síkha frá því að kosið var
í Punjab 25. september.