Morgunblaðið - 12.11.1985, Page 1
64SÍÐUR B
STOFNAÐ1913
256. tbl. 72. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 12. NOVEMBER 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Stjórn Suður-Afríku:
Hyggst reka erlenda
verkamenn úr landi
ef atvinnuleysi eykst
Jóhannesarborg, 11. nóvember. AP.
RÍKISSTJÓRN Suður-Afríku
hefur lýst yfir því að ekkert sé
hæft í fréttum viðskiptablaðsins
Business Day þess efnis að svart-
ir verkamenn af erlendum upp-
runa verði sendir úr landi. Pietie
du Plessis, atvinnumálaráð-
herra, sagði í dag að þó gæti
verið að til slíkra aðgerða yrði
gripið í framtíðinni vegna við-
skiptabanns og minnkandi fjár-
festingar erlendra aðilja í Suður-
Afríku.
Farþegaflugvél
rænt í Úganda
— 44 farþegar innanborðs
Kampala, Úganda, 11. nóvember. AP.
SKÆRULIÐAR rændu í dag flugvél með 44 farþegum og fjögurra manna
áhöfn innanbords og flugu vélinni til landsvæðis, sem er undir yfirráðum
skæruliða, í suðvesturhluta Úganda.
Stjórnvöld í (Jganda halda því
fram að uppreisnarmenn í and-
spyrnuhernum (NRA) hafi rænt
vélinni og segja að um hryðjuverk
sé að ræða. Talsmaður andspyrnu-
hersins hefur neitað þessum ásök-
unum, en viðurkennir þó að vélinni
hafi verið lent á flugvelli, sem er
á valdi andspyrnuhersins, og
skjólshúsi skotið yfir flugræningj-
ann.
Abraham Valigo, forsætisráð-
herra, kvaðst hafa lista yfir far-
þega undir höndum og væri ekki
ljóst hver hefði rænt vélinni.
Ymislegt bendir þó til þess að
herforingi úr Úgandaher hafi tekið
farþegavélina á sitt vald og hélt
talsmaður andspyrnuhersins því
fram. Herforingi þessi gegndi
herþjónustu í valdatíð Idis Amin
og flúði í síðustu viku úr fangelsi
skammt fyrir utan Kampala og var
hann á farþegalistanum.
Fjórir Vestur-Þjóðverjar voru
um borð í vélinni og sagði sendi-
herra Vestur-Þýskalands í Úganda
að vonir stæðu til að málið yrði
leyst á morgun, þriðjudag.
Flugmaðurinn í vélinni hafði
talstöðvarsamband við flugturn-
inn í Entebbe í gær, sunnudag, og
sagði að maður ógnaði sér með
byssu og vildi neyða sig til lending-
ar. Meira hefur ekki heyrst frá
flugmanninum. Aftur á móti var
staðfest að vélin hefði lent.
Stjórnvöld neita að kenna and-
spyrnuhernum um, en í útvarpi
ríkisins sagði í leiðara að skærulið-
arnir hefðu verið þarna að verki
og kæmí það sér mjög illa fyrir
þá þar sem stjórnin hefði lagt
mikið erfiði á sig til að komast að
samkomulagi við talsmenn hans.
í blaðinu Business Day sagði
að stjórnin ætlaði að vísa þúsund-
um erlendra verkamanna í Suð-
ur-Afríku til síns heima og lýst
var yfir því að slíkar aðgerðir
Jöðruðu við brjálsemi og væru
aðeins til að vekja óánægju vest-
rænna ríkisstjórna".
Petui sagði að hvorki væri ráð-
gert að senda svarta verkamenn
úr landi, né vilji til þess fyrir
hendi: „Aftur á móti hefur stjórn-
in lagt drög að áætlun til að flytja
erlenda verkamenn til heima-
landa sinna, ef refsiaðgerðir gegn
Suður-Afríky verða til þess að
atvinnuleysi færist í aukana.
„Stjórnin á ekki annars kost en
að láta suður-afrísku þjóðina
ganga fyrir í störf.“ Hann bætti
við að þessi leið yrði ekki farin
tii að hefna fyrir refsiaðgerðir
gegn Suður-Afríku, eins og gefið
var í skyn í Business Day, heldur
eingöngu til að gæta hagsmuna
þjóðarinnar.
Botha, forseti, hefur undan-
farna mánuði margoft lýst yfir
því að fari svo að aðgerðir er-
lendra þjóða gegn Suður-Afríku
verði til þess að bæta á atvinnu-
leysið í landinu hafi þjóðin for-
gang um alla atvinnu.
Víða um landið kom til óeirða
í gær og í dag, en ekki hefur
spurst að neinn hafi sakað.
AP/Símamynd
Karl Bretaprins flytur ávarp í listasafni í Washington og má ráda af
látbragði prinsins að ekki vill hann að lafði Díana falli í skuggann.
Karl og Díana í Washington
Washington, 11. nóvember. AP.
EFTIR ys og þys þrjá daga í
Washington lauk heimsókn lafði
Díönu og Karls Bretaprins með
heimsókn í kirkjugarð, þar sem
hvfla stríðshetjur, og kveðjuhófi í
„National Gallery of Art“.
Díana og Nancy Reagan hitt-
ust í dag og ræddu við eiturlyfja-
sjúklinga, sem nú eru í endur-
hæfingu, á meðan Karl ræddi við
lögfræðinga, þ.á.m. Warren
Burger, forseta hæstaréttar, um
stjórnarskrá Bandaríkjanna, á
bókasafni þingsins.
Þau halda á morgun, þriðju-
dag, til Palm Beach í Florída.
Verður þeim þar haldið hóf og
ætla Karl og Díana að fylgjast
með leik í póló.
Taka Vestur-Þjóðverjar
þátt í geimvarnaáætlun?
Hamborg, 11. nóvember. AP.
í VESTUR-þýska dagblaðinu
Bild var í dag greint frá því að
Vestur-Þjóðverjar hefðu ákveðið
að taka þátt í geimvarnaáætlun
Bandaríkjamanna.
í blaðinu sagði að Manfred
Arekstur
yfir
New York
('liffsidc P*rk, New Jersej, 11. nóvember. AP.
FLUGMENN einkaþotu og lít-
illar flugvélar, sem rákust saman
yfir úthverfum New York borgar
á sunnudagskvöld, vissu af hætt-
unni áður en áreksturinn varð
og höfðu samband við flugturn
nokkrum mínútum áður. Eftir
áreksturinn hröpuðu flugvélarnar
niður í íbúðahverfi og kveiktu í
fimm íbúðarhúsum með þeim
afleiðingum að fimm manns að
minnsta kosti létu lífið. Óttast
var að tíu fjölskyidur hefðu lok-
ast inni, en sá ótti reyndist
ástæðulaus.
AP/Símamynd
Flakið úr annarri vélinni hafnaði í almenningsgarði í New Jersey.
Talið er að flugmenn beggja
vélanna hafi látið lífið sam-
stundis og að engir farþegar
hafi verið með þeim. Sjónar-
vottur lýsti slysinu þannig að
litla flugvélin hafi flogið á
undan en þotan dregið ört á
hana uns þær rákust saman.
Wörner, varnarmálaráðherra,
myndi skrifa Caspar Wein-
berger, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, bréf síðar í
þessum mánuði og tilkynna
þátttöku Þjóðverja í áætlun
Bandaríkjamanna um að koma
fyrir eldflaugavarnakerfi úti í
geimnum.
Friedhelm Ost, talsmaður
vestur-þýsku ríkisstjórnarinn-
ar, sagði í dag að ákvörðun um
þetta hefði ekki verið tekin.
„Þetta eru aðeins getgátur,
eins og flestar aðrar blaða-
fregnir um geimvarnaáætlun-
ina til þessa."
í fréttinni stóð að Wörner
myndi senda bréf sitt eftir
fund Reagans og Gorbachevs í
Genf 19. og 20. nóvember.
Sagði ennfremur að í bréfinu
yrði undirstrikað að geim-
varnakerfið yrði aðeins notað
til varnar og í þágu almennra
borgara og farið fram á að
rannsóknum á þessu sviði yrði
haldið leyndum.
Færeyjar:
Opinberir starfs-
menn í verkfalli
kaupmannahbfn, 11. nóvember. AP.
SENDINGAR útvarps og sjón-
varps, sem og flest önnur opin-
ber þjónusta í Færeyjum lagðist
niður í dag þegar starfsmenn
ríkis og bæja fóru í verkfall í
das.
Akveðið var að fara í verk-
fall er sýnt þótti að samkomu-
lag næðist ekki í deilu stéttar-
félags opinberra starfsmanna
oglandstjórnarinnar. Styrinn
hófst þegar landstjórnin lét
reka leiðtoga stéttarfélagsins
frá störfum hjá pósti og síma
í Færeyjum.