Morgunblaðið - 12.11.1985, Qupperneq 2
2
MORGUNBLA ÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR12. NÓVEMBER1985
Landsfundur Alþýðubandalagsins:
Lúðvík hlaut flest
atkvæði í miðstjórn
LÍJÐVÍK Jósefsson fyrrverandi ráðherra fékk flest atkvæði í miðstjórnar-
kjöri á landsfundi Alþýöubandalagsins sem lauk á sunnudag. Landsfundur-
inn kaus 40 miðstjórnarfulltrúa úr hópi 104 flokksmanna sem buðu sig fram.
216 gildir atkvæðaseðlar komu fram en hver landsfundarfulltrúi kaus 40
menn, þar af fengu 3 þrjú atkvæöi, 3 tvö atkvæði og 34 eitt atkvæði.
Lúðvík fékk 226 atkvæði. Eftir-
taldir hlutu einnig kosningu, at-
kvæðatölur innan sviga: Sigríður
Stefánsdóttir (212), Elsa Krist-
jánsdóttir (211), Finnbogi Jónsson
(200), Þuríður Pétursdóttir (196),
Guðrún Hailgrímsdóttir (187),
Helgi Guðmundsson (176), Kjart-
an Ólafsson (173), Tryggvi Þór
Aðalsteinsson (173), Arnór Péturs-
son (172), Helga Sigurjónsdóttir
(165), Bergljót Kristjánsdóttir
(160), Grétar Þorsteinsson (160),
Logi Kristjánsson (159), Þorgrím-
ur Starri Björgvinsson (154), Erl-
ingur Viggósson (153), Jóhann
Geirdal (152), Bjarnfríður Leós-
dóttir (152), Bryndís Þórhallsdótt-
ir (140), Kristinn V. Jóhannsson
(140), Óskar Guðmundsson (140),
Fanginn er
enn ófundinn
Lögreglan í Reykjavík
lýsir eftir honum
FANGINN af Litla-Hrauni, sem
strauk þegar hann var í Reykjavík
31. október síðastliðinn til meðferðar
hjá tannlækni, er ófundinn. Þrátt
fyrir all víðtæka leit og eftirgrennsl-
an hafa engar vísbendingar komið
fram um hvar hann kunni að vera
niðurkorainn. Lögreglan í Reykjavík
lýsir því eftir honum. Fanginn heitir
Garðar Garðarsson. Hann er tvítug-
ur, dökkhæröur, 170 sentimetrar á
hæð og með gráblá augu.
Þeir sem geta gefið upplýsingar
um ferðir Garðars eða hvar hann
dvelur nú eru vinsamlega beðnir
að láta lögregluna vita.
Berit Johansen (136), Haraldur
Steinþórsson (135), Hallveig
Thorlacius (132), Pétur Reimars-
son (131), Soffía Guðmundsdóttir
(131), Skúli Thoroddsen (130), Úlf-
ar Þormóðsson (126), Sigurður
Magnússon (124), Snorri Konráðs-
son (123), ólöf Ríkharðsdóttir
(121), Aðalsteinn Baldursson (120),
Þór Vigfússon (117), Gunnar Gutt-
ormsson (116), Lena Rist (116),
Gunnlaugur Haraldsson (113),
Guðjón Jónsson (111), Bergþóra
Gísladóttir (101), Bryndís Sigurð-
ardóttir (101) og Margrét Guð-
mundsdóttir (97).
Þrír karlmenn fengu fleiri at-
kvæði en síðasttöldu konurnar en
þær fóru inn vegna reglna sem
segja að hvort kyn eigi að hafa
a.m.k. 40% miðstjórnarfulltrúa.
Þessir menn, Ragnar Árnason
(111), Guðmundur Þ. Jónsson (109)
og Guðni Jóhannesson (108), eru
því fyrstu varamenn miðstjórnar-
manna. Auk kjörinna fulltrúa á
landsfundi eiga sæti í miðstjórn 4
fulltrúar frá hverju kjördæmi (34
fulltrúar alls), stjórn Alþýðu-
bandalagsins (4), aðal- og vara-
menn í framkvæmdastjórn flokks-
ins (16), þingmenn flokksins (10)
og 7 fulltrúar frá Æskulýðsfylk-
ingunni. Miðstjórnina skipa því á
annað hundrað manns.
Skoöanakönnun framsóknarmanna í Arnessýslu:
Mikill meirihluti vill að bandaríski
herinn greiði gjald fyrir aðstöðu sína
Morgunblaöið/Kjartan Aöalsteinsson
Hafberg GK bjargað
við bryggju á Seyðisfirði
EKKI er endanlega Ijóst hvað olli því að sfldarbátnum Hafbergi GK
frá Grindavík hlekktist á utan við Seyðisfjörð á fostudaginn. Báturinn
var dreginn inn til Seyðisfjarðar og var rétt sokkinn við bryggjuna þar,
eins og sagt var frá í frétt í laugardagsblaðinu. Sjópróf fóru fram á
laugardaginn.
Meðfylgjandi myndir tók í lest bátsins, eftir að tekist hafði
fréttaritari Morgunblaðsins á að dæla að mestu sjó þar úr, en
Seyðisfirði af björgun Hafbergs- hin er tekin af skipinu marandi
ins viðbryggju áföstudagskvöld- í hálfu kafi við löndunarbryggj-
ið. Myndin hér til hægri er tekin una.
„Kemur mér á óvart,u segir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra
í skoðanakönnun sem framsóknarfélögin í Árnessýslu gengust fyrir á
kjördæmisþingi framsóknarmanna á Suðurlandi um síðustu helgi kvaðst 41
þingfulltrúi hlynntur því að bandaríski herinn greiddi gjald fyrir aðstöðu
sína hér á landi. 23 voru því andvígir. Þrír svöruðu „bæði og“ og 5 skiluðu
auðu. Þingið sátu um 100-120 manns og tóku um % þeirra þátt í könnun-
inni, að sögn Guðna Ágústssonar, formanns kjördæmisráðsins.
Garðar Garðarsson, refsifangi á
Litla-Hrauni. Ekkert hefur spurst til
hans síðan 31. október síðastliðinn,
þegar hann strauk.
1 könnuninni var einnig spurt
um afstöðu til varnarliðsins og
ríkisstjórnarinnar. 10 þátttakenda
kváðust hlynntir dvöl bandarísks
herliðs á Islandi, 51 kvaðst andvíg-
ur, „bæði og“ sögðu 6, og 5 skiluðu
auðu. Guðni Ágústsson sagði að
erfitt kynni að vera að túlka þessa
niðurstöðu, því segja mætti að allir
sem teldu að nauðsynlegt væri að
hafa hér varnarlið gætu svarað
spurningunni neitandi engu að
síður.
Þá var ennfremur spurt í könn-
uninni: „Ertu ánægður með störf
íslensku ríkisstjórnarinnar?" Já
sögðu 7, nei sögðu 23 og „bæði og
“sögðu 41.
Þessar niðurstöður voru bornar
undir Steingrím Hermannsson
forsætisráðherra: „Ég er hissa á
því ef menn vilja þiggja gjald af
varnarliðinu fyrir það eitt að vera
hér. Ég er mótfallinn því að þjóðin
selji sig á þann hátt. Hins vegar
vil ég að varnarliðið greiði fullt
verð fyrir þá þjónustu sem það fær
hérlendis. Margt af því sem þeir
flytja hér inn mætti til dæmis fella
undir íslensk tollalög," sagði Stein-
grímur.
„Að svo margir skuli vera á móti
veru varnarliðsins hér kemur mér
líka á óvart og það er ekki í sam-
ræmi við samþykktir Framsóknar-
flokksins á þessari stundu eða
aðrar skoðanakannanir. Ég er
undrandi á því ef framsóknarmenn
vilja raska svo valdajafnvæginu í
heiminum meðan mjög mikilvæg-
ar umræður eru í gangi í afvopnun-
armálum. Ég túlka þessa niður-
stöðu frekar sem óskhyggju. Öll
látum við okkur dreyma um að það
komi að því fyrr eða síðar að varn-
arliðið verði óþarft.
Hvað varðar afstöðuna til ríkis-
stjórnarinnar kemur hún mér
ekkert á óvart. Ég hefði svarað
„bæði og“, eins og langflestir
gerðu. Það er útilokað að ailir geti
verið ánægðir með öll verk ríkis-
stjórna, hvort sem það er þessi eða
einhver önnur. Ég gæti sjálfur
nefnt ótai atriði sem ég er óánægð-
ur með,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra.
Skipulagsstjórn
ríkisins:
Mælir með
Stefáni Thors
Yfírborðssættir í Alþýðubandalaginu:
Samið um valdastöður og
skiptingu framkvæmdastjórnar
Skiptar skoðanir um hverjir séu sigurvegarar fundarins
YFIRBORDSS/ETTIR, þar sem samið var um málamiðlun í því formi
að talsmenn „lýðræðisafla" fengju í sinn hlut tvo valdapósta í flokks-
stjórn Alþýðubandalagsins gegn því að gamla forystuliðið, þ.e. flokkseig-
endaklíkan og verkalýösarmurinn, fengi meirihluta í framkvæmdastjórn
flokksins, er helsta niðurstaða landsfundar Alþýðubandalagsins sem stóð
frá sl. flmmtudegi til sunnudagskvölds. Eru því skiptar skoðanir um það
hver eða hverjir séu raunverulegir sigurvegarar að afloknum landsfundi.
Þeir eru þó í meirihluta í hópi viðmælenda Morgunblaðsins sem telja
að „lýðra ðiskvnslóðin" hafl komið sterkari út, en flokkseigendaklíkan
og verkalýðsarmurinn túlka niðurstöðurnar sér í hag.
Svavar Gestsson var endur-
kjörinn formaður flokksins með
88% greiddra atkvæða, Kristín
Á. Olafsdóttir var kjörin vara-
formaður með 68% atkvæða.
Kosning í formanns- og varafor-
mannsembætti var skrifleg, að
tillögu stuðningsmannaklíku
Svavars, sem vildi sýna fram á
ótvíræðan styrk Svavars, en lítið
fylgi Kristínar. Töldu stuðnings-
menn Kristínar að Kristín mætti
vel við una, því hún hefði fengið
mun meira fylgi en stuðnings-
menn Svavars hefðu gert sér
vonirum.
Framkvæmdastjórn flokksins
var nú í fyrsta sinn kosin beinni
kosningu á landsfundi, sam-
kvæmt þeirri lagabreytingu sem
samþykkt var á laugardagsmorg-
un. Má reikna með að fulltrúar
gömlu flokksforystunnar og
verkalýðsarms flokksins eigi 6
menn í framkvæmdastjórn, en
fulltrúar „lýðræðisaflanna" að-
eins 2, þá Olaf Ragnar Grímsson,
sem er formaður og össur Skarp-
héðinsson, ritstjóra Þjóðviljans.
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, er talinn
standa fyrir utan þessi átök.
Sjá í miðopnu, Innlendan vett-
vang: Sögulegur landsfund-
ur Alþýðubandalagsins.
SKIPULAGSSTJÓRN ríkisins hefur
mælt með Stefáni Thors, arkitekt, í
stöðu skipulagsstjóra ríkisins. Við
atkvæðagreiðslu í skipulagsstjórn
hlaut Stefán fjögur atkvæði en Siguró-
ur Thoroddsen, arkitekt, eitt atkvæði.
Alls bárust ellefu umsóknir um stöð-
una.
Endanleg ákvörðun um veitingu
stöðunnar er í höndum Alexanders
Stefánssonar, félagsmálaráðherra,
og hefur honum borist umsögn
skipulagsstjórnar þar sem mælt er
með Stefáni Thors. Zóphanías Páls-
son, skipulagsstjóri, lætur af störf-
um 1. desember næstkomandi fyrir
aldurs sakir.
» •
20 stiga frost
í Mývatnssveit
Björk, Mývatnssveit, 11. nóvember.
FREKAR hefur verið kalt hér í
Mývatnssveit að undanförnu og
frost jafnvel nálgast 20 stig. Mjög
er þó snjólétt og ágætis færi á
vegum. Þá er og fært öilum bílum
austur á HólsfjölL
Kristján