Morgunblaðið - 12.11.1985, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR12. NÓVEMBER1985
5
Morgunblaði&/Jón Pálsson
er skráður 12.1. ’84 og austurs-
fatið var hvergi að finna. Þá
reyndist enginn neyðarsendir í
bátnum. Jú, okkur var vitanlega
orðið mjög kalt í bátnum," sögðu
þeir félagar.
- Var björgunarvonin nokkuð
á undanhaldi?
„Nei, þótt búnaður bátsins ylli
okkur vonbrigðum, héldum við
alltaf voninni. í bátnum reyndust
einungis 4 flugeldar og við höfð-
um aðeins notað tvo þegar björg-
unarmenn okkar á Sveinborgu
frá Siglufirði frelsuðu okkur úr
prísundinni. Þá höfðum við verið
9 tíma í björgunarbátnum. Jú, það
er nánast ólýsanleg tilfinning sem
gagntók okkur þegar við urðum
björgunarmannanna varir. Þegar
flugvélin sveimaði yfir okkur
fundum við varla lengur fyrir
kulda. Nú er okkur efst í huga
þakklæti til björgunarmanna
okkar, íslensku sjómannanna,
sem leituðu okkar og alveg sér-
staklega viljum við þakka áhöfn-
inni á Sveinborgu fyrir góða
aðhlynningu, hressingu og fatnað.
Við þökkum skipstjóranum og þó
ekki síður matsveininum, sem býr
til einstakt hnossgæti," sögðu þeir
félagar að lokum.
Olafur
Rona í höfninni í Seyðisfirði fyrr í
þessu ári.
Hoffell, Snæfugl og Sveinborg,
sem öll áttu um 21 til 26 mílna
siglingu að gúmmíbjörgunarbátn-
um, héldu í áttina til björgunar-
bátsins til þess að komast hjá því
að fínkemba þyrfti svæðið í
myrkri. Flugvél Landhelgisgæsl-
unnar, TF-Sýn, sveimaði yfir
björgunarbátnum þar til Snæfugl-
inn og síðan Sveinborgin, sem var
á leið í land, komu að björgunar-
bátnum og tók mennina um borð
kl. 17:19 og hélt með þá til lands.
Anne-Sophie Mutter
leikur með Sinfóníu-
hljómsveit íslands
NÆSTU áskriftartónleikar Sin-
fóníuhljómsveitar íslands, sem eru
hinir fjórðu á þessu starfsári verða
í Háskólabíói nk. fimmtudag og
hefjast kl. 20.30. Á efnisskránni
eru verk eftir, Karólínu Eiríks-
dóttur, Johannes Brahms og Igor
Stravinsky. Einleikari á tónleikun-
um er Anne-Sophie Mutter.
í frétt frá Sinfóníuhljómsveit
íslands segir um einleikarann:
Hún var undrabarn í fiðluleik
og er í dag talin einn af þremur
bestu fiðluleikurum sem nú eru
uppi. Sellóleikarinn kunni
Rostropovich hefur sagt um
þessa ungu listakonu að hún
hafi skapað nýjan mælikvarða
sem fiðluleikari. Fimm ára
gömul hóf hún tónlistarnám og
sjö ára gömul hlaut hún 1. verð-
laun í tónlistarkeppni æskunnar
í V-Þýskalandi. Fjórum árum
síðar hlaut hún enn 1. verðlaun
í sömu keppni, og þá fyrir að
leika fjórhent með bróður sínum
á píanó. Árið 1977, þá aðeins 13
ára gömul, lék hún í fyrsta sinn
einleik með Fílharmóníuhljóm-
sveit Vínarborgar í Salzburg
undir stjórn Herberts von
Karajan. Eftir þessa frumraun
hennar sagði von Karajan:
„Mesta undrabarn tónlistarinnar
frá því Menuhin var í æsku.“
Síðan hefur hún farið sigurför
um allan heiminn og leikið í
stærstu og virtustu tónlistar-
höllum veraldar við fádæma
hrifningu áheyrenda. Hvar sem
hún fer hlaða gagnrýnendur
hana lofi fyrir fágæta hæfileika.
Anne-Sophie Mutter hefur
leikið inn á fjölda hljómplötur
fyrir Deutsche Gramniophone,
m.a. Brahms-konsertinn og
„Árstíðirnar" eftir Vivaldi undir
stjórn Herberts von Karajan."
Laugardaginn 16. nóv. kl. 2.30
verða aðrir Stjörnutónleikar
Sinfóníuhljómsveitarinnar á
þessu starfsári. Á efnisskránni
Anne-Sophie Mutter
er „Lundúnasinfónían" nr. 104
eftir Haydn og „Árstíðirnar"
eftir Vivaldi. Einleikari er
Anne-Sophie Mutter en tónleik-
arnir eru haldnir í samvinnu við
Tónlistarfélagið í Reykjavík.
Stjórnandi á tónleikunum 14. og
16. nóv. er aðalstjórnandi Sin-
fóníuhljómsveitarinnar, Jean
Pierre Jacquillat.
Nýr bónus-
samningur
EKKERT varð úr boðun bónusverk-
falls verkalýðsfélagsins Einingar í
Eyjafirði í gær, því samningar tókust
milli samninganefndar Einingar og
atvinnurekenda nyrðra um hálftíuleyt-
ið á sunnudagskvöldið. Fram til þess
tíma var útlit fyrir að bónusverkfall
yrði boðað í gær, þannig að það kæmi
til framkvæmda næsta mánudag.
Samningarnir voru kynntir á
nokkrum vinnustöðum í gær og
verða kynntir á fleiri stöðum í dag.
Af hálfu samningsaðila verður
ekkert sagt um efni þeirra fyrr en
þeirri kynningu er lokið, að sögn
Jóns Helgasonar, formanns Eining-
ar.
Jón sagðist „að sjálfsögðu" ekki
vera ánægður með samninginn en
hann væri þó spor í rétta átt. „Það
var mér ljóst strax í upphafi, að það
yrði erfitt að gera viðunandi samn-
ing vegna þess fordæmis, sem gefið
var með samningi Verkamanna-
sambandsins og Vinnuveitendasam-
bandsins í sumar," sagði hann.
Meginkrafa Einingar í viðræðun-
um var að sérstakt 40 króna álag
yrði greitt á hverja klukkustund -
þannig að hlutur fastakaupsins yrði
meiri en ákvæðisvinnunnar. Sam-
kvæmt upplýsingum blaðsins náði
þessi krafa fram að ganga að nokkru
leyti.
Styðjum Júlíus
tíl áframhaldandi starfa
fyrir Reykvíkinga
Við, sem studdum Júlíus Hafstein í síðasta
prófkjöri fyrir fjórum árum,
endurnýjum nú þann stuðning
með mikilli ánœgju.
Reynslan hefur svo sannarlega sýnt,
að okkar maður uppfyllti allar
þœr vonir sem við bundum
við hann.
Júlíus Hafstein er mikilvœgur styrkur sam-
hentum borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstœðis
flokksins
Júlíus
í öruggt
sæti
Prófkjör Sjátfstœðisflokksins 24. og 25 nóv. 1985 - Stuðningsmenn