Morgunblaðið - 12.11.1985, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR12. NÓVEMBER1985
19
Níelsar Hafstein, að Jón Gunnar
hafi einnig fengið styrk frá
menntamálaráðuneytinu. Hér var
ég enganveginn að agnúast yfir
því, að styrkir væru veittir, heldur
kom mér það undarlega fyrir sjón-
ir, að fulltrúi frá Listasafni ís-
lands skyldi ekki gefinn kostur á
styrk til jafns við Nýlistasafnið, úr
því að farið var að veita styrki á
annað borð.
Enginn var þannig i staðnum til
að gæta réttar æðstu stofnunar
myndlistar á íslandi, sem þó virðist
ekki hafa verið vanþörf á. Þá ligg-
ur það í hlutarins eðli, að þegar
Nýlistasafninu nægði ekki sitt
rými, heldur yfirtók einnig mikið
gólfrými, þar sem verk Listasafns
Islands voru staðsett, er hlutur
þeirra orðinn meiri að fyrirferð.
Þá er það alrangt og grófar
dylgjur frá hálfu Níelsar Hafstein,
að ég sjái ástæðu til að veitast að
Nýlistasafninu „trekk í trekk" í
Morgunblaðinu. Starfsemi þess er
þó ekki hafin yfir gagnrýni frekar
en annarra safna né sýningarsala
hér í borg.
Mjög orkar það tvímælis, að
enginn aðili hafi lagt jafn mikið
af mörkum undanfarin ár við að
kynna góða myndlist heima og
erlendis og Nýlistasafnið, svo sem
Níels Hafstein álítur og vildi endi-
lega koma að. Ýmsir meðlimir þess
hafa aftur á móti ótvírætt vinning-
inn í því efni að kynna sjálfa sig
vel og dyggilega og sést ekki fyrir
í ákafanum, svo sem fram kemur.
Njóti þeir þess vel...
— Svo vel þekki ég Nýlistasafn-
ið og starfsemi þess, að ég þarf
varla að bæta miklu við vitneskju
mína — ég veit jafnvel öllu meira
en Níels Hafstein rennur í grun.
En það er annað mál og ekki til
umræðu hér og ei heldur sú tegund
listsagnfræði, sem stunduð er í
þeim herbúðum.
Vel ég því að setja punktinn hér
við.
Örn og Örlygur.
jr
Islenskir
sögustaðir
2. bindi
ÚT ER KOMIÐ hjá bókaforlaginu
Erni og Örlygi annað bindi ritverks-
ins „íslenskir sögustaðir“ eftir Krist-
ian Kálund, í þýðingu dr. Haralds
Matthíassonar á Laugarvatni. Fjallar
bókin um sögustaði í Vestfirðinga-
fjórðungi.
Fyrsta bindi ritverksins kom út
á siðasta ári og fjallaði um sögu-
staði í Sunnlendingafjórðungi. í
frétt frá Erni og Örlygi segir að
ritverkið „íslenskir sögustaðir" sé
eitthundrað ára höfuðheimild um
íslenska sögustaði sem enn sé f
fullu gildi og sífellt sé leitað til.
Því sé mikill fengur að fá verkið
í vandaðri íslenskri þýðingu.
„íslenskir sögustaðir - Vestfirð-
ingafjórðungur" er 221 bls. að
stærð. Bókin er unnin í prent-
smiðjunni Odda hf. og kápu hann-
aði Sigurþór Jakobsson.
Það er helst að megi brosa að stælingum á gamalkunnum kvikmynda-
senum í Á letigarðinum. Þessi á að vera úr Jailhouse Roek.
Á garðinn með þá!
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓHÖLLIN: Á LETIGARÐIN-
UM
— Doin’ Time ★
Framleiðendur Bruce Mallen og
George Mendeluk. Handrit Fran-
elle Silver, Ron Zwang og Lee
Caruso. Tónlist Charles Fox. Kvik-
myndataka Ronald V. Garcia. Leik-
stjóri George Mendeluk. Aðalhlut-
verk Jeff Altman, Coleen Camp,
Richard Mulligan og John Vernon.
Bandari.sk frá Warner Bros, frum-
sýnd 1985.
Svo er að sjá að Mendeluk og
félagar hafi helst verið að remb-
ast við að gera stælingu á Plice
Academy nú skyldi aðeins farið
inn fyrir múrarana. Því miður
fara velflestar tilraunir þeirra
til að vera sniðugir svo flatn-
eskjulega forgörðum að áhorf-
endur ná rétt að brosa útí annað
þegar best lætur. Það er ekki
boðlegt þegar farsi á að vera á
bakkanum.
Richard Mulligan fær lítið
annað gert en að setja sig í
gamalkunnar fávitastellingar,
fetta sig og bretta í anda Löð-
urs. Það er helst að sá gamli
skúrkur John Vernon reyni að
hressa uppá selskapinn. Það á
að setja aðstandendur svona lé-
legra mynda á bak við lás og slá,
alla með tölu!
.i^Ltvinnurekstrartrygging Almennra sem á einfaldan og aðgengilegan hátt, þannig ad
kynnt var-faprfl sl. hefur þegar sannad gikii sitt. auðvelt er aö hafa heildar yfirsýn yfir
Það sýnir reynslan. vátryggingar fyrirtækisins.
Þetta er vátrygging sem miðar að markvissari og Atvinnurekstrartrygging Almennra er hagkvænv
raunhæfari vátryggingarvemd fynrtækja en aður trygging og iðgjöldin hagstæð.
hefur þekkst. __________ ________________
VESTFIRfMPKiA
fJÓRÐUTiGUR
Bókarkápa íslenskra sögustaða sem
nú er komin út hjá Erni og Örlygi.
Atvinnurekstrartrygging Almennra sameinar í
eina þær vátryggingar sem fyrirtækinu eru
nauðsynlegar.
Atvinnurekstrartrygging Almennra er sett fram
Atvinnurekstrartrygging Almennra
- ein vátrygging með ótal möguleikum
- leysir aðrar af hólmi.
Nýttu þér reynslu okkar í þágu fyrirtækis þíns.