Morgunblaðið - 12.11.1985, Qupperneq 34
34
MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR12. NÓVEMBER1985
Afmæliskveðja
Þórður Kristjáns
*son kennari
Sjötugur er í dag Þórður Kristj-
ánsson kennari, en hann fæddist
á Suðureyri í Súgandafirði 12. nóv-
ember árið 1915. Foreldrar hans
voru hjónin Sigríður H. Jóhannes-
dóttir og Kristján A. Kristjánsson
og ólst Þórður upp í stórum systk-
inahópi á Suðureyri.
Eftir nám við Kennaraskólann
í Reykjavík réðst Þórður kennari
að Barnaskólanum á Hellissandi
">-og starfaði þar í þrjú ár, en stund-
aði síðan nám við kennaraháskól-
ann i Kaupmannahöfn veturinn
1949—50 og kynnti sér að því loknu
kristindómsfræðslu í Noregi um
skeið. Heimkominn kenndi Þórður
svo við Laugarnesskólann í all-
mörg ár og einkum kristinfræði.
Var hann mörgum betur tygjaður
til þess, bæði sakir undirbúnings
sins, er ekki síður einlægrar sann-
færingar um gildi þeirrar fræðslu
og naut þess ekki síður er hann
gegndi störfum námsstjóra i krist-
infræði. Síðustu áratugina hefur
Þórður starfað á Fræðsluskrif-
stofu Reykjavíkur við fjölþætt
umsjónar- og eftirlitsstörf.
— ' Þeir eru ófáir sem kynnst hafa
Þórði í starfi, nemendur bæði og
starfsfélagar og margan vininn á
hann í þeim hópi. Og þó fundum
okkar hafi ekki borið saman fyrr
en fyrir fimm árum rúmum, þekkti
ég nokkuð til hans, bæði vegna
aðildar hans að útgáfu ágætra
kennslubóka í kristnum fræðum
og einkum af hlýlegum ummælum
fyrrum sóknarbarna minna á
Hellissandi. Því þó langt væri um
liðið síðan Þórður kenndi þar, er
aa-ég starfaði vestra, voru störf hans
mörgum minnisstæð og ekki að-
eins natni hans, alúð og hæfileikar
við kennslu, heldur elja hans og
fórnfýsi á tíma sinn við félagsstörf
utan skólatímans með börnunum
og í þágu þeirra. Og er ég kom
haustið 1980 til starfa í Áspresta-
kaili, þar sem Þórður var safnað-
arfulltrúi og sóknarnefndarfor-
maður, lærðist mér fljótt hvað það
var, sem gerði þennan hógværa og
lítilláta dreng svo hugstæðan
þeim, sem átt hafa samleið með
honum. Eitt er góðvildin og hýrgan
og jákvæðar undirtektir, sem allt-
af er að mæta þar sem hann er
og annað, að ekki þurfa kynnin að
verða náin til að auðfundið sé, að
mikil hlýja er á bak við brosið og
drengskapur og góðfýsi, það svo,
að oft hefur mér virzt líkt og hann
kunni vart að veita sér aðra gleði
meiri en að liðsinna öðrum og telur
ekki eftir sér sporin, tilkvaddur
eða ótilkvaddur til þess.
Og þó hefur honum sjaldnast
verið verkefna vant, því mönnum
hefur verið gjarnt að kveðja hann
til trúnaðarstarfa í félagslífi, svo
sem í þágu stéttar hans á árum
fyrr og óspar reyndist hann á
krafta sína í félagsstörfum fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og seint verða
taldar vinnustundir hans í nefnd-
um á vegum sóknar hans og kirkju.
Og ekki valdist hann til þeirra
starfa af því að hann sé framur
eða framgjarn, heldur hinu, að það
er svo tryggt, að hverju máli er
vel borgið, sem honum er trúað
fyrir.
Um langt árabil var Þórður
formaður sóknarnefndar Áskirkju
og er safnaðarfulltrúi og með-
hjálpari sóknarinnar. Sem for-
maður sóknarnefndar skilaði hann
miklu þrekvirki af hollri hendi,
sem var forganga um byggingu
kirkjunnar og að búa hana til
vígslu. Það voru að vonum margir,
sem þar komu við sögu, en fullyrða
má að hlutur Þórðar sé einna
veigamestur í því, hve giftusam-
lega tókst til um að efna til fram-
kvæmda við örðugasta og dýrasta
áfanga byggingarinnar og leiða
þær til lykta. Þar naut þess hve
málefni kirkju Krists eru honum
hjartfólgin og hann heilshugar I
þeirri köllun sinni að leggja henni
allt það lið, sem hann má, hvar
sem hann er kvaddur til þjónustu
og svo hins, hve lagið honum er
að fá aðra til liðveizlu og samhæfa
krafta ólíkustu aðila. Hann getur
vissuiega verið þéttur fyrir líktog
ýmsir Vestfirðingar, sé því að
skipta, en einkar hent að bregðast
af lipurð og léttleika við þeim
vandkvæðum, sem upp koma,
ávallt jákvæður og tillögugóður,
gátsamur um smátt og stórt og
raunhollur í öllu samstarfi og sér-
lega ósínkur á tíma sinn og krafta.
Fyrir það starf allt vil ég þakka
fyrir hönd okkar samstarfsfólks
hans og sóknarbarna I Áspresta-
kalli og ennfremur hans ágætu
eiginkonu, Ásdísi Vilhelmsdóttur,
svo samstiga sem þau hjónin hafa
verið í starfi sínu fyrir kirkjuna
og hún heilshugar bakhjarl í hví-
vetna. Og við það vil ég bæta
persónulegu þakklæti fyrir ómet-
Hljómplötur
■. %
Árni Johnsen
Tabu, hið forboðna, heitir nýleg
plata Harðar Torfasonar, en öll
lög og textar á plötunni eru eftir
Hörð. Platan stendur fyllilega
undir nafni, því efni hennar er
einhverskonar martröð þar sem
ekki sér út úr myrkviði frum-
skógarins. Einn texti plötunnar
heitir Martröð og hefði það heiti
átt vel við plötuna, slík er þján-
ingin, slíkt er rótleysið sem reynt
er að upphefja til hins daglega
lífs eins og allt sé eðlilegt, en þó
menn reyni eðlilega að lifa af þá
eru takmörk fyrir öllu.
Hörður hefur gefið út plötur
anlegan stuðning og uppörfun í
starfi og vináttu heila.
Ég veit að mörgum fleirum en
mér væri hugleikið að vitja elsku-
legs heimilis þeirra í dag og sam-
fagna þeim og einkadóttur þeirra,
Valgerði og njóta gestrisni þeirra.
En við kveðjur verður að sitja, því
þau eru að heiman. En þær kveðjur
eru hlýjar og þeim fylgja innilegar
hamingjuóskir og bæn um blessun
Guðs og nú ætíð.
Árni Bergur Sigurbjörnsson
þar sem hann hefur sannað að
hann er góður vísnasöngvari og
mörg laga hans eru mjög falleg.
Sem visnasöngvari fékkst hann
yfirleitt við ljóð góðskáldanna
og hann túlkaði þau á persónu-
legan og eftirminnilegan hátt,
en á plötunni Tabu er eins og
örvæntingin ráði ferðinni í einu
og öllu og Hörður gengur út úr
hlutverki vísnasöngvarans á
þessari plötu inn í eitthvert hlut-
verk sem ég kann ekki skil á, en
minnir þó á leikhús undirheim-
anna þar sem menn njóta þess
að strjá salti í sárin.
Því miður er ekki margt gott
um þessa plötu að segja, upptaka
og hljóðblöndun er loðin, gítar
Harðar er týndur, áttleysa miðað
við það sem af Herði var að
vænta.
m jrl fofrifr
3 Áskriftcirsíminn er 83033
Tabu, martröð
raöauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsjngar |
kennsla
Vegna mikillar fyrirspurnar verður haldiö 5
vikna námskeiö í íslensku fyrir útlendinga,
sem hefst í þessari viku. Kenndar veröa
2 x 2kennslust.áviku.
Námskeiösgjalderkr. 1.200,-
Námsflokkar Reykjavíkur,
Miðbæjarskólanum,
s. 12992-14106.
Ólafsfirðingar
Sameiginlegur aðalfundur sjálfstæðisfélaganna i Ólafsfiröi veröur
haldinn i hótelinu fimmtudaginn 14. nóvember kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. önnurmál.
Stjórnir félaganna.
Spekingar spjalla
Miövlkudagskvöldiö 13. nóvember kl. 20.30 mun skólanefnd Heim-
dallar standa fyrir rabbfundi um stjórnmál. Gestir fundarins veröa
Vilhjálmur Egllsson, Sigurbjörn Magnússon, Óli Björn Kárason og Þór
Sigfússon.
Kaffiveitingar
Nefndin.
Kópavogur — spilakvöld
Spilakvöld sjáltstæöisfélaganna í Kópavogi veröur þriöjudaginn 12.
nóvember kl. 21.00 stundvíslega í Sjálfstæöishúsinu, Hamraborg 1.
Góö kvöld- og heildarverölaun. Mætum öll.
Stjórnin.
Suðurland
Aöalfundur kjördæmisráös Sjálfstæöis-
flokksins i suöurlandskjördæmi veröur hald-
inn í hótel Ljósbrá, Hverageröi, laugardag-
inn 16.nóvembernk.kl. 14.00.
Dagskrá:
Venjuleg aöalfundarstörf.
Sveitastjórnamál. Kynning á lagafrumvarpi
og breytingatillögum.
Framsögumaður: Jón Gauti Jónsson,
bæjarstjóri.
Umræöur:
Undirbúningur sveitastjórnakosninga 1986.
Framsögumenn: Kjartan Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæöisflokksins, Sigurö-
ur Einarsson útgeröarmaöur Vestmannaeyjum, Haukur Gislason, Ijós-
myndari Selfossi.
Kaffihlé. Fundurinn opnaöur fyrir gesti.
Landsmálin:
Ávarp þingmanna: Þorsteinn Pálsson formaöur Sjálfstæöisflokksins,
Árni Johnsen, Eggert Haukdal.
Almennar umræöur: Afgreiösla stjórnmálaályktunar.
Umræöur. Önnur mál.
Sameiginlegt boröhald.
Miöaö er viö aö makar kjördæmisráösfulltrúa komi meö þeim og verö-
ur skiþulögö skoöunarferö um Hverageröi meöan fyrri hluti fundarins
stenduryfir.
Stjórn kjördæmisráós.
Keflavík
Sjálfstæðiskvenna-
félagið Sókn
Aöalfundur veröur haldinn í Sjálfstæöiskvennafélaginu Sókn mánudag-
inn 18. nóvember nk. kl. 20.30 í Sjálfstæölshúsinu Hafnargötu 46.
Dagskrá:
1. Ávarþ formanns.
2. Venjuleg aöalfundarstörf.
3. Önnurmál.
Fundarstjóri: Þorbjörg Guönadóttir.
Félagskonur f jölmenniö.
Stjórnin.
Kvöldverðarfundur með
útvarpsstjóra
Þriöjudagskvöldiö 12. nóv. nk. verður
haldinn aö Hótel Esju, 2. hæö, kvöldveröar-
fundur meö Markúsi Erni Antonssyni, út-
varpsstjóra. Hefst fundurinn kl. 19.00 í
Þerneyjarsalnum. Alllr ungir sjálfstaaöls-
menn eru velkomnir. Matur og kaffi kr. 370.
Heimdaliur.
Njarðvíkingar
— viðtalstímar
Fulltrúar sjálfstæö-
ismanna í bæjar-
stjórn veröa með
vlótalstíma í Sjálf-
stæöishúsinu Njarö-
vík, laugardaginn
16. nóvember frá kl.
14.00-16.00. Til viö-
tals veröa bæjarfull-
trúarnir Ingólfur
Báröarson og
Sveinn R. Eiriksson.
Bæjarbúar eru
hvattir til aó líta viö
og ræóa viö bæjarfulltrúana um bæjarmál.
Sjalfstæóistólögin i Njaróvik