Morgunblaðið - 12.11.1985, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR12. NÓVEMBER1985
41
kærleikur þarna á milli, og veit ég
að Hanna saknaði þeirra alla tíð
eftir að þau féllu frá.
Eftir að Hanna giftist helgaði
hún heimilinu og fjölskyldu sinni
alla sína lífskrafta, en þau hjón
áttu því láni að fagna að eignast
einn son barna, en hann er Jón
Pétursson, nú búsettur á Selfossi
og starfar hann sem tæknimaður
við Sjúkrahús Suðurlands.
Þó að veraldleg efnishyggja
vægi aldrei hátt á skálunum hjá
Hönnu, þá var hún heimskona,
bæði í orði og í æði, og alltaf var
jafn notalegt að koma heim á
Vatnsstíg, borða góðan mat, sem
hún var snillingur í að framreiða,
og ræða við hana um heimsmál,
menn og málefni, eða tískufyrir-
brigðin í þjóðlífinu í dag, aldrei
komum við að tómum kofa hjá
henni, hún fylgdist vel með öllu
og hafði sínar ákveðnu skoðanir
um hlutina. Spilamennska var eitt
af hennar áhugamálum og spilaði
hún brids allt fram í andlátið, en
hún var virkur þátttakandi í
kvennadeild Bridsfélags Reykja-
víkur um margra áratuga skeið,
og var hún kjörin heiðursfélagi
deildarinnar á áttræðisafmæli
sínu 1984.
Það væri ekki í hennar anda að
vera með lof um hana, eða hennar
lífsferil, hún var sátt við dauðann
og þakklát fyrir langa og góða
ævi. En það er skarð fyrir skyldi,
nú þegar hún er horfin af okkar
sjónarsviði, og við lítum heim að
Vatnsstíg og horfum á Skugga-
prýði eins og húsið var kallað,
næstum tómt, eftir að hafa hýst
sömu fjölskyldu í hart nær áttatíu
ár.
Áður en ég lýk þessum fátæk-
legu kveðjuorðum, langar okkur,
litlu fjölskylduna hennar, að senda
eftirlifandi systrum hennar, þeim
Ástu og Þóru, þakklæti fyrir allt,
sem þær voru henni, og þá sérstak-
lega þá ummönnun er þær sýndu
henni nú í veikindum hennar.
Læknum, hjúkrunarfólki og öðru
starfsfólki á deild 3b Landakots-
spítala, sendum við alúðarþakkir
fyrir góða hjúkrun og hlýlegt við-
mót.
Kveðjustundin er komin og við
þökkum hreinskiptinni og elsku-
legri konu fölskvalausa vináttu og
tryggð við okkur alla tíð, og biðjum
við henni guðsblessunar í nýjum
heimkynnum.
Farþúífriði,
friðurguðsþigblessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
GekkstþúmeðGuð
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Tengdadóttir og barnabörn
Áfengisvarnanefndir á Snæfellsnesi:
Þakkir til dómsmálaráðherra fyrir
að koma í veg fyrir sölu á bjórlíki
Stykkishólmi, 15. október.
AÐALFUNDUR áfengisvarnanefnda
í Snæfellsness- og Hnappadalssýslu
var haldinn í safnaðarheimilinu í
Olafsvík, laugardaginn 12. október
sl. Á fundinum mættu auk heima-
manna frá Áfengisvarnaráði þeir
Árni Einarsson og Guðni Björnsson.
Fluttu þeir erindi um ástand áfengis-
og vímuefnamála á landinu og þróun
þeirra undanfarin ár. En þessi mál
eru orðin hverjum hugsandi íslend-
ing áhyggjuefni og hversu alltaf sígur
hér á ógæfuhliðina og hversu fáir
rísa þarna til varnar ágætu þjóð-
félagi, en það er eins og stjórnvöld
séu dofin fyrir þessari þróun en
greiða möglunarlaust afleiðingarnar
svo hundruðum milljóna skiptir, vit-
andi að ef þessir fjármunir sem eytt
er í þessi niðurdrepandi efni, kæmu
heilbrigði og þroska til góða, var
engin ástæða til að óttast skuldasöfn-
un ríkissjóðs og við gætum ekið
slétta vegi um land allt án þess að
taka lán. Svona einfalt er þetta og
hugsandi mönnum ráðgáta, hvers
vegna ekki er stöðvað þetta áfengis-
flóð með öllu mögulegu móti. En
haldið er áfram að koma sem flestum
stöðum fyrir sem veita áfengi og
afleiðingarnar láta ekki á sér standa.
Menn sá svo sem þeir uppskera. Á
Blómastofa
Fnðfinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öli kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar viö öll tilefni.
Gjafavörur.
+
SIGMUNDUR GRÉTAR SIGMUNDSSON
verkstjóri,
Spóahólum 12,
veröur jarösunginn fimmtudaginn 14. nóvember 1985. Athöfnin
fer fram frá Bústaöarkirkju kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afbeöin, en þeim sem vilja minnast hins
látna er bent á líknarstof nanir.
Valgeröur Björgvinsdóttir,
Sigmundur Sigmundsson,
Lilja Sigmundsdóttir, Rúnar Sígurjónsson.
t
Þökkum innilega samúö og vináttu viö andlat og útför móöur okkar,
tengdamóöur, ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR SÚSÖNNU ELÍASDÓTTUR,
Vesturgötu 51b.
Birgir Þorvaldsson,
Erla Þorvaldsdóttir,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartans þakkir fyrir auösýnda samúö og viröingu viö andlát og
útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
ÞURÍDAR ÞÓRÐARDÓTTUR,
Túngötu 16, Keflavfk,
Guörún Kristinsdóttir, Magni Sigurhansson,
Margeir Elentfnusson, Þórdfs Guöjónsdóttir
og barnabörn.
fundinum voru samþykktar eftirfar-
andi tillögur:
„Félag áfengisvarnanefnda
Snæfellsness- og Hnappadalssýslu
færir dómsmálaráðherra þakkir
fyrir framtak hans í að afnema
sölu á svokölluðu bjórlíki, sem selt
hefur verið á svonefndum bjórstof-
um víða um land.
Jafnframt hvetur félagið aðra
ráðherra til að fara að fordæmi
dómsmálaráðherra að brjóta upp
staðnaðar drykkjuvenjur og bjóða
óáfenga drykki í stað áfengra í
samkvæmum sínum. Framboð
óáfengra drykkja hefur aldreið
verið jafnfjölbreytt og nú.
Félag áfengisvarnanefnda í
Snæfellsness- og Hnappadalssýslu
vekur athygli á að röksemdir veit-
ingamanna fyrir vínveitingaleyfi
hafa breyst á undanförnum árum.
Áður voru rökin þau að koma til
móts við þarfir erlendra ferða-
manna um létt vín með mat. Nú
eru rökin í æ vaxandi mæli þau
að sala áfengis sé nauðsynlegur
þáttur til að veitingarekstur úti á
landsbyggðinni fái borið sig. Það
er ástæða til að almenningur
staldri við þessa breytingu. Sér-
staklega þegar svo virðist sem
lögbrot af ýmsu tagi aukist í kjöl-
far opnun nýrra veitingastaða.
Hvetur félagið ennfremur öll
menningar- og líknarfélög til að
hefja skelegga baráttu mót þeim
vanda sem er samfara áfengis-
neyslu.
Félag áfengisvarnanefnda í
Snæfellsness- og Hnappadalssýslu
skorar á fjármálaráðherra að
afnema bjórsölu þá í Fríhöfninni
á Keflavíkurflugvelli sem þar hefir
átt sér stað um nokkurra ára bil.
Þessi bjórsala er ólögleg og ógnun
við heilbrigt þjóðlíf."
Margir tóku til máls og í sama
streng. I stjórn félagsins voru
kosnir: Guðmundur Ágústsson,
sóknarprestur í Ólafsvík, formað-
ur Árni Helgason og Stefán Jó-
hann Sigurðsson. f varastjórn:
Herdís Hervinsdóttir, Guðni Sum-
arliðason og Páll Cesilsson. Fund-
urinn var mjög gagnlegur og
áhrifaríkur. Árni.
Legsteinar
Ýmsar gerðir
Marmorex
Steinefnaverksmiöjan
Helluhrauni 14 sími 54034
222 Hafnarfjöröur.
FIMMTUDAGS- OG
SUNNUDAGSKVÖLD
VEITINGAHUS
AMTMANNSSTÍG 1 RF.YKJAVÍK SÍMI 91-13303
essemm