Morgunblaðið - 15.11.1985, Side 1
64 SÍÐUR B
STOFNAÐ1913
259. tbl. 72. árg.
FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Óttast um líf tugþús-
unda Kólumbíumanna
Bogota. 14. nóvember. AP.
ÓTTAST var um líf tugþúsunda manna í nágrenni eldfjallsins Nevado del
Ruiz í Kólumbíu í kvöld. Eldfjallið bræddi af sér jökulskjöld og steyptist
íshroði og eðjuflaumur niður í dali Andesfjallanna með þeim afleiðingum
að þrjár borgir með samtals um 20 þúsund íbúa hurfu með öllu undir aur-
skriðu og 50.000 manna borg, Armero, að mestu. Langflestir íbúanna voru
í svefni er ósköpin dundu y fir.
AP/Símamynd
Björgunarmenn hlaupa að flugvél með mann á börum sem lifði hamfarirnar í Armero. Um 50.000 manns búa í
borginni og grófst hún að mestum hluta í eðju. Þeim sem tókst að bjarga, var flogið í þyrlum til bæjarins Mar-
quita, skammt frá Armero, og þaðan voru slasaðir fluttir á sjúkrahús í flugvélum.
„Eldi og eimyrju
rigndi af himnum“
Bogota, 14. nóvember. AP.
Fregnir af náttúruhamförunum
voru óljósar þegar Morgunblaðið
fór í prentun. Hins vegar er kröft-
ugt hraungos hafið í fjallinu en
óljóst hvaða hætta stafar af því.
Gosaska hefur borizt 400 km til
austurs og norðausturs af eld-
stöðvunum. Talið var að öskugos
hefði hafizt í Nevado del Ruiz á
miðvikudagskvöld og nokkrum
stundum síðar hefði 5 metra hár
eðjuveggur skollið á borgum og
þorpum í tugi kílómetra fjarlægð
frá fjallinu. Hins vegar virtist
70.000 manna borg, Chinchina, sem
er 10 km frá fjallinu, hafa sloppið.
Hún stendur á hæðardragi við
fljótið Langunilla, sem breyttist í
Sharon
áfram
ráðherra
Tel Aviv, ísraei, 14. névember. AP.
ARIEL SHARON, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra fsrael, hefur tekið
allar ásakanir sínar á hendur Shimon
Peres, forsætisráðherra, til baka. Er
þar með komið í veg fyrir stjórnar-
kreppu í landinu, en Peres hafði
hótað að setja Sharon af bæðist hann
ekki afsökunar, þrátt fyrir andstöðu
Likud-bandalagsins, flokks Sharons.
Það var vegna ágreinings um
utanríkisstefnu og vegna friðar-
umleitana við Jórdana, sem Shar-
on lét orð falla, sem Peres taldi
sig ekki geta unað við og hótaði
hann að setja Sharon af vegna
þeirra. Sharon kom ekki fram í
sjónvarpi, en þar var hins vegar
haft eftir honum að hann vonaði
að málinu væri lokið og að hann
vonaðist til að skýringar sínar
myndu bæta andrúmsloftið innan
rikisstjórnarinnar.
MARGARET Thatcher, forsætisráð-
herra í Bretlandi, virðist hafa látið
að því liggja í samtali sem birtist í
breska blaðinu The Financial Tim-
es, að hún muni hætta afskiptum af
stjórnmálum eftir fimm ár, ef hún
vinni næstu kosningar, sem gert er
ráð fyrir að verði á árinu 1987. Full-
trúi hennar hefur hins vegar borið
þessar fregnir til baka og segir að
tilvitnuð setning í viðtalinu hafl ekki
ógnvekjandi eðjuflaum sem tók
með sér allt er fyrir varð.
Björgunarstarf var illmögulegt
þar sem aurflóðið tók þjóðveginn
til Armero í sundur og eyðilagði 5
brýr á honum. Komust fyrstu
björgunarmennirnir ekki á vett-
vang fyrr en í morgun, sex stund-
um eftir að aurflóðið lagði borgirn-
ar í rúst. Gífurleg úrkoma hófst
rétt eftir upphaf gossins og jók
það á eðjuflauminn. Menn, sem
flugu yfir hörmungasvæðið í dag,
sögðu borgirnar Santuario, Car-
melo og Pindalito undir eðjuhafi,
aðeins stöku húsþak gægðist upp
úr, og svipaða sögu væri að segja
um Armero, sem er 50 km frá
eldfjallinu. Borgirnar þrjár stóðu
við ána Langunilla og voru á milli
Armero og fj allsins.
Flugmenn Avianca-þotu í áætl-
unarflugi frá Miami til Bogota
sögðu feiknalegar eldtungur hafa
teygt sig frá fjallinu. Flaug þotan
inn í þykkan gosmökkinn skömmu
eftir upphaf gossins og urðu far-
þegar að setja á sig súrefnisgrímur
er hún fylltist af reyk.
átt aö gefa til kynna að hún hygðist
hætta.
Eftir fimm ár til viðbótar sem
forsætisráðherra hefur Thatcher
verið við stjórnvölinn í rúmlega
11 ár. Hún segir í viðtalinu að hún
hafi áhuga á að fylgja efnahags-
stefnu sinni frekar eftir sem meðal
annars felur í sér sölu ríkisfyrir-
tækja. Að þeim tíma liðnum geti
einhver annar haldið kyndlinum á
lofti áfram.
„ÞETTA var hræðilegt. Eldi og
eimyrju rigndi af himnum. Ég hef
aldrei upplifað annan eins hrylling,"
sagði Edeliberto Neito, sem komst
lífs af er eðjuflóðið gróf borgina
Armero í kjölfar gossins í Nevado
del Ruiz.
„Konan mín beið bana og dóttir
okkar, sem orðið hefði fjögurra ára
á morgun. Móðir mín dó líka, einn-
ig systir mín og frænka. Þetta var
hreint helvíti og askan undir fót-
unum var svo heit að ég skað-
brenndist," sagði Neito og réð ekki
við tárin.
„ósköpin dundu yfir um mið-
nætti. Þá heyrðum við skelfilegar
drunur. Rétt á eftir skall snörp
vindhviða á okkur og það var sem
eldregn félli af himnum. Sam-
stundis kviknaði í húsum og
stundu síðar grófst allt í eðjuflóði,"
sagði Nieto.
Samkvæmt fregnum beið borg-
arstjóri Armero, Ramon Antonio
Rodriguez, bana á heimili sínu er
hann reyndi að gera viðvart og ná
í hjálp með því að hringja til næstu
borga.
Marina Franco de Huez sagðist
hafa sloppið með því að leita skjóls
með dóttur sína í kirkjugarði.
„Lætin hófust klukkan 6 að
kvöldi með öskuregni. En okkur
var sagt að engin alvara væri á
ferðum, þetta væri eðlilegt fyrir-
bæri og við héldum okkur heima.
En um klukkan 10 jókst öskuregnið
og skerandi hávaði fylgdi í kjölfar-
ið. Ég vakti dóttur mína og við
forðuðum okkur upp í kirkjugarð.
Meira en helmingur íbúanna
grófst undir er eðjuflóðið helltist
yfir borgina með hræðilegum háv-
aða og skarkala. Það tók með sér
hús, skepnur, og allt sem fyrir
varð. Það vannst enginn tími til
neins, kirkjan hvarf í flauminn,
skólinn, leikhúsið og allt,“ sagði
frú de Huez.
Annar íbúi borgarinnar, sem var
ekki nafngreindur, kvaðst hafa
vaknað við vondan draum og vatn
og eðju um allt hús. „Ég heyrði
gífurlegan skruðning, eins og risa-
stór eimreið æki hjá á ógnarhraða
og vissi ekki fyrr en rúmið var í
miðjum iðustraumi."
AP/Símamynd
ELDFJALLIÐ Nevado del Ruiz í Kólumbíu. Öskugos hófst í fjallinu árla í
gær og síðar hraungos. Bræddi fjallið af sér ísskjöldinn. Óttas er um líf
tugþúsunda Kólumbíumanna af völdum gossins.
Sjá fréttir um náttúruham-
farirnar á bls. 20.
Segir Thatcher af
sér eftir fimm ár?
London, 14. nóvember. AP.