Morgunblaðið - 15.11.1985, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR15. NÓVEMBER1985
Úlfar Linnet tekur fyrstu skóflustunguna að dagheimilinu Furuborg í gær.
Morgunblaðift/Bjarni
Dagheimilið Furuborg á Borgarspítalalóð:
Fimm ára drengur tók
fyrstu skóflustunguna
ÚLFAR Linnet, 5 ára tók á miðviku-
dag fyrstu skóflustunguna að nýju
dagheimili á lóð Borgarspítalans í
Reykjavík. Dagheimiliö hefur hlotið
nafnið Furuborg — en það er byggt
fyrir tilstuðlan stjórnar Borgarspítal-
ans og sv. ákvörðun þess og borgar-
ráðs.
Reiknað er með að hönnun húss-
ins ljúki í byrjun desember og þá
verði öll uppsteypa hússins, fulln-
aðarfrágangur að utan og innan
(að innréttingum frátöldum) boðin
út. Gert er ráð fyrir að byrjað
verði á sökklum hússins um ára-
mót og að byggingu verði að fullu
lokið sumarið 1986.
Áætlaður byggingarkostnaður
hússins er um 13,5 milljónir króna
miðað við byggingavísitölu 229
stig, en 17,1 millj. kr. ef miðað er
við áætlaða meðalvísitölu næsta
árs, 290 stig.
Öll starfsemi hússins verður á
einni hæð — um 320 fermetrar.
Furuborg verður tvær dagheimil-
isdeildir fyrir um 40 börn á aldrin-
um 0—6 ára.
Upprekstrarmál Ashreppinga og Sveinstæðinga:
Tveir bændur stefna sýslumanni,
fjármálaráðherra og 15 öðrum
— Krefjast skaðabóta vegna niðurreksturs hrossa og
að úrskurður sýslunefndar verði dæmdur ómerkur
TVEIR bændur í Sveinsstaðahreppi í Austur-Húnavatnssýslu hafa höfðað
mál gegn Jóni ísberg sýslumanni Húnvetninga, Þorsteini Pálssyni fjármála-
ráðherra, oddvitum 6 hreppa í Húnavatnssýslum og eigendum og ábúendum
8 jarða í sýslunum vegna deilna um nýtingu sameiginlegra afréttarlanda
Ás- og Sveinsstaðahrepps á Grímstungu- og Haukagilsheiðum og víðar.
Bændurnir, Björn Magnússon á Hólabaki og Einar Svavarsson á Hjalla-
landi, ráku hross á heiðina í sumar í trássi við bann sýslunefndar og voru
hrossin rekin af heiðinni eftir skamma dvöl þar.
Alls er 17 mönnum stefnt vegna
málsins, sem tekið verður fyrir á
skrifstofu sýslumannsins á
Blönduósi á mánudag. Málið er
aðallega höfðað gegn sýslumanni
sem oddvita sýslunefndar og fjár-
málaráðherra, en hreppunum og
bændunum er stefnt sem eigend-
um umræddra afréttarlanda.
Hreppsnefnd Sveinsstaðahrepps
höfðaði í sumar mál vegna þessara
deilna, á hendur sömu mönnum
að hluta, og er krafa hreppsins að
ítala heiðanna verði dæmd ógild.
Sýslumaður vék sæti í málinu en
setudómari hefur enn ekki verið
skipaður.
Lögmaður Björns og Einars er
Gísli Baldur Garðarsson hdl. Hann
gerir eftirfarandi kröfur fyrir
þeirra hönd: í fyrsta lagi að úr-
skurður sýslunefndar Austur-
Húnavatnssýslu frá 27. júní 1985
um nýtingu sameiginlegra beiti-
landa Ás- og Sveinsstaðahrepps
(þar sem skorið var úr deilumálum
hreppanna um nýtingu afréttar-
landanna og m.a. lagt bann við
upprekstri hrossa) verði dæmdur
markleysa og að engu hafandi. í
öðru lagi að ríkissjóði verði dæmt
að greiða skaðabætur, samtals
82.817 kr., vegna þess tjóns sem
af ólögmætum niðurrekstri hrossa
stefnanda hlaust. Skaðabóta-
krafan er aðallega fóðrunarkostn-
aður, en einnig akstur með hross.
kaup við heimrekstur og akstur. I
Barnastarfið í Dómkirkjunni
BARNASTARFIÐ í Dómkirkjunni
er hafið fyrir nokkru og fer það fram
í Dómkirkjunni sjálfri og er á laugar-
dagsmorgnum kl. 10.30. Sr. Agnes
Sigurðardóttir æskulýðsfulltrúi Þjóð-
kirkjunnar sér um barnastarfið eins
og undanfarin ár.
Á þessum samverustundum er
mikið sungið, lesin er framhalds-
saga og biblíusaga sögð. Þá fá
börnin möppu, sem heitir Kirkju-
bókin mín og safna þau blöðum í
hana. Þetta eru glaðar og góðar
stundir, sem glæða trú í hjörtum
barnanna.
Við í Dómkirkjunni bjóðum öll
börn velkomin til okkar á þessum
stundum og mikið ánægjuefni er
það, þegar foreldrar koma með
börnum sínum og njóta þessara
stunda með þeim. Það mun bera
sinn góða ávöxt, þegar tímar líða
fram.
- — ■- ,... _.
Verið hjartanlega velkomin í
Dómkirkjuna.
(Ftí Dómkirkjunni.)
Kristniboðs-
félag kvenna
heldur basar
Kristniboðsfélag kvenna heldur
basar á morgun, laugardag, milli
14.00 og 18.00 aö Laufásvegi 13
Reykjavík. Þar verður á boðstólum
úrval góðra muna, kökur og fleira.
Félagið er eitt af mörgum hóp-
um kristniboðsvina, sem styðja
starf íslenskra kristniboða í Eþí-
ópíu og Kenýa og rennur allur
ágóði basarsins í sjóð Sambands
íslenskra kristniboðsfélaga.
þriðja lagi krefjast þeir þess að fá
málskostnað að fullu greiddan.
Byggja þeir málshöfðun sína á
því að sýslunefnd hafi ekki haft
úrskurðarvald í ágreiningi innan
upprekstrarfélagsins; að ítala hafi
verið í gildi og sýslunefnd geti
hvorki breytt úrskurði ítölunefnd-
ar né skorið úr um hlutdeild ein-
stakra býla í ítölu; að óheimilt sé
að útiloka eina tegund búfjár frá
afrétti ef ítala hefur á annað borð
verið ákvörðuð; að ef ítölugerðirn-
ar yrðu taldar markleysa sé það
almennur bændafundur sem taki
ákvörðun um gróðurverndarað-
gerðir sem þessar; að ef ágreining-
ur er innan sveitarstjórnar um
takmörkun á upprekstri hrossa sé
það afl atkvæða á almennum sveit-
arfundi sem úrslitum ræður; að
úrskurður sýslunefndar hafi verið
markleysa þar sem nefndin hafi
ekki verið bær til að kveða upp
úrskurð og úrskurðurinn hafi einn-
ig verið ólögmætur að efni til; að
fyrirskipanir Jóns fsberg sýslu-
manns um niðurrekstur hrossa
hafi verið ólögmætur og að ekki
megi taka hross af afrétti nema
með leyfi hreppsnefndar.
Veröbólgan
er nú 32 %
VERÐBÓLGA er nú 32% ef
miðað er við hækkun framfærslu-
vísitölu á síðustu þremur mánuð-
um, að því er segir í fréttatilkynn-
ingu frá Hagstofunni.
Samkvæmt útreikningum
Kauplagsnefndar á verðlagi I
nóvemberbyrjun er vísitalan
nú 155,32 stig, sem er 2,21%
hærra en í októberbyrjun. Vísi-
talan var 100 stig í febrúar
1984.
Af þessari hækkun stafa
0,4% af hækkun bókaverðs og
ýmiss skólakostnaðar, 0,2% af
hækkun fatnaðarliðs, 0,2% af
hækkun matvöruliðs og 1,2%
hækkunarinnar má rekja til
hækkunar ýmissa vöru- og
þjónustuliða. 20% lækkun á
verði kindakjöts og 28% lækk-
un á eggjaverði hafði í för með
sér 0,6-0,7% minni hækkun
vísitölunnar en ella hefði orðið,
segir í tilkynningunni.
Síðan segir: „Síðastiiðna tólf
mánuði hefur vísitala fram-
færslukostnaðar hækkað um
38,9%. Hækkun vísitölunnar
um 2,2% frá byrjun október til
byrjunar nóvember svarar til
30% árshækkunar. Undan-
farna þrjá mánuði hefur vísi-
talan hækkað um 7,2% og jafn-
gildir sú hækkun 32% á heilu
ári.“
Frá jólamarkaði soroptimista, sem haldinn var f fyrra.
Jólamarkaður sorop-
timista í Garðaskóla
JÓLAMARKAÐUR soroptimista
verður haldinn nk. laugardag, 16.
nóvember í Garðaskóla, Garðabæ
oghefstkl. 15.00.
Soroptimistahreyfingin er al-
þjóðafélagsskapur kvenna og var
stofnuð í Oakland í Kaliforníu
1921. Nú eru um 2.200 klúbbar
starfandi í meira en 70 löndum og
meðlimir eru um 75.000. Þetta eru
starfsgreinaklúbbar eins og hjá
Rotary. Fyrsti klúbburinn á fs-
landi var stofnaður 1959. Nú eru
hér starfandi 13 klúbbar. íslenskir
soroptimistar hafa unnið að ýms-
um sameiginlegum verkefnum og
mannúðarmálum. Að auki hefur
hver klúbbur sitt verkefni á
heimaslóðum. Allur ágóði af jóla-
markaðnum rennur til mannúðar-
mála á þeim stað sem klúbbarnir
starfa. Þarna verður margt á
boðstólum sem tengist okkar hefð-
bundna jólahaldi. Kaffisala verður
einnig á staðnum.
(FrétUtilkynning)
Bifreiðin utan vegar eftir óhappið.
Morgunblaðið/B.C.
Grundarfjörður:
Handleggsbrotnaði
eftir bílveltu
Grundarfirði, 13. nóvember.
EINN maður handleggsbrotnaði, en
þrír sluppu ómeiddir er bifreið flaug
út af fjögurra metra háum vegkanti
við Grundarfjörð um síðustu helgi.
Bifreiðin kom niður að framan
og kastaðist yfir sig á kaf í mýri
með hjólin upp. Grunur leikur á
að fjórmenningarnir hafi verið
við skál, en ekki er ljóst hver
þeirra ók bílnum.
B.C.