Morgunblaðið - 15.11.1985, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.11.1985, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÓSTUDAGUR15. NÓVEMBER1985 Verðandi fiskiðnaðarmenn á námskeiði í síldarsöltun MorgunblaSií/Theodór Pétur Þorvaldsson, Reykjavík, (Lv.) og Birgir Örn Birgisson, Borgarnesi, við lok skákar þeirrar, sem Birgir Öm vann. Borgarnes: Stefán Þormar sigraði í Grohe-skákmótinu Borgarnesi, 12. nóvember. NÁMSKEIÐI í sfldarsöltun á vegum Fiskvinnsluskólans í Hafnarfírði er nú nýlokið, en slíkt námskeið er haldið á hverju hausti í samráði við Ríkismat sjávarafurða og sfldarút- vegsnefnd, fyrir þá nemendur Fisk- vinnsluskólans sem eru að Ijúka námi. Fiskvinnsluskólinn hefur ekki yfir eigin húsnæði að ráða sem hentar til verklegrar kennslu og því var námskeiðið haldið í Fisk- verkunarstöð Hafnfirðinga. Þeir Lárus Björnsson og Birgir Finns- son, kennarar við Fiskvinnsluskól- ann, hafa stjórnað námskeiðum i síldarsöltun þau sl. fimm ár sem þau hafa verið haldin. Sögðu þeir í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins, að þátttakendur í ný- loknu námskeiði hefðu verið alls 19 talsins og útskrifuðust þeir sem fiskiðnaðarmenn um næstu jól. Námskeiðið, sem stóð yfir í tíu daga, skiptist í bóklegt og verklegt nám. Kennt var hvernig ber að verka og salta síld, og fulltrúi síld- arútvegsnefndar sýndi nemendum hvernig sildin er fitumæld. Sögðu þeir Lárus og Birgir að nemendur Fiskvinnsluskólans væru á öllum aldri, alls staðar að af landinu, og hefðu flestir unnið i frystihúsum um árabil. Þess má að lokum geta að nám við Fiskvinnsluskólann tekur tvö ár og eru 20 nýir nemendur teknir inn í skólann á ári hverju. HIÐ árlega Grohe-skákmót var hald- ió í Hótel Borgarnesi, sunnudaginn 10. nóvember. Alls tóku 36 manns þátt í mótinu. Tefldar voru 11 um- ferðir og var umhugsunartími 15 mínútur á skák fyrir hvorn kepp- anda. í fyrsta sæti varð Stefán Þorm- ar, Reykjavík, með 9% vinning, í öðru sæti varð Gísli Gunnlaugs- son, Búðardal, með 8% vinning, og í 3.-4. sæti með 8 vinninga urðu Birgir Örn Birgisson, Borgar- nesi og Gunnlaugur Sigurbjörns- son, Akranesi. Einnig voru veitt sérstök unglingaverðlaun. Þar var Birgir Örn Birgisson í 1. sæti með 8 vinninga og Jón Þór Ólafsson, Hvanneyri, í 2. sæti með 6V4 vinn- ing. Kvennaverðlaun hlaut Guð- björg Jóhannsdóttir frá Jörva í Kolbeinsstaðahreppi en hún hlaut 5V4 vinning. Þýsk-íslenska verslunarfélagið gaf bæði bikar og verðlaunapen- inga í mótinu. Er þetta í 5. skipti sem Grohe-skákmótið er haldið i Borgarnesi. Skákdeild UMF Skallagríms sá um stjórnun og skipulag mótsins. - TKÞ. Forstöðumaður Greiningar- og ráðgjafarstöðvar Félagsmálaráðherra hefur skip- að Stefán Hreiðarson lækni sem forstöðumann Greiningar- og ráð- gjafarstöðvar ríksins. Umsóknar- frestur var til 21. september sl. og voru umsækjendur auk Stefáns Evald Sæmundsen sálfræðingur og Tryggvi Sigurðsson, sálfræðing- ur. Stefán Hreiðarsson tekur við starfinu frá og með 1. janúar nk. Nemendur Fiskvinnsluskólans við sfldarsöltun. $SZ***81« Morgunblaftið/Bjarni Er áttavillt kona í útvarpsráði? — eftir Guðrúnu Pétursdóttur Útvarpsráð baðst nýlega af- sökunar á ummælum um ólaf Thors sem lögð voru í munn verkakonu í útvarpsleikriti Leik- listarskólans. Undrar fáa sem heyrt hafa orðbragðið að afsök- unarbeiðnin er afdráttarlaus. Hitt er furðulegt, að af öllum fulltrúum flokkanna í útvarps- ráði var einn sem ekki sá ástæðu til að biðjast afsökunar, og sá er fulltrúi kvennalistans, Ingi- björg Hafstað. Verður ekki ann- að skilið af skýringu Ingibjargar í NT (2. nóvember ’85) en að hún telji það bera vott um alþýðleika manns að þukla upp undir pils kvenna meðan hann tekur þær tali, og sé það líklegt til að auka vinsældir hans. Ekki veit eg hvaða alþýðu Ingibjörg á við. Sú alþýða sem eg þekki myndi kalla svona hegðun örgustu rudda- mennsku, — og hélt eg að kvennalistinn tæki undir það. Ekki er svo að sjá. Ef þögn flokkssystra hennar er sama og samþykki, hefur merkileg hugar- farsbreyting átt sér stað í þess- um flokki á stuttum tíma. Hins- vegar má vera að þær þegi vegna þess hvernig Ingibjörg kynnir málið. Hún segir i NT að um sé að ræða alþekktar sögur af ólafi um að „hann hafi klipið konur og migið með verkaköllum". í leikritinu er mun grófar til orða tekið. Þar er um klám að ræða og orðbragðið fádæma sóðalegt, svo að eitthvað virðist óskhyggj- an hafa vélað skynfæri Ingi- bjargar meðan hún hlustaði á textann. Væri fróðlegt að vita hvort þessi unga stjórnmálakona verður oft fyrir svona göldrum. Eða talar hún gegn betri vitund? Þótt mér sé málið skylt og eg nenni ekki að taka því þegjandi að afi minn sé rægður, veit eg að það er óþarfi að ræða fárán- leika þeirrar mannlýsingar sem í leikritinu er gefin við þá sem þekktu Ólaf eða voru samtíma- menn hans. Hinsvegar vaxa nú upp kynslóðir sem ekki þekktu hann og eiga þess einn kost að mynda sér skoðun á grundvelli þeirra lýsinga sem þær fá. Þar tel eg að alvara málsins liggi. Rangfærslur eru sögufölsun og verða ekki afsakaðar með því að tilgangurinn helgi meðalið. Póli- tísk barátta á að fara fram á málefnalegum grundvelli en ekki með persónuníði. Eg held að fulltrúi kvennalistans hafi misst áttanna þegar hún slóst f för með Ólafi Hauki Símonarsyni út í foraðið til þess að koma höggi á pólitískan andstæðing. Ingibjörg klykkir út með því að lýsa áhyggjum sínum yfir því, hvaða afleiðingar þetta mál kunni að hafa fyrir flutning leik- rita Leiklistarskólans f framtfð- inni. Þykir mér það langsóttur barlómur og sé ekki hvað hann kemur málinu við. Margt af því ferskasta í íslenskri leiklist síð- ustu ára hefur komið frá Leik- listarskólanum, og það væri undarlegt ef hann yrði látinn gjalda þessara mistaka síðar. Hinsvegar þykir mér yfirlýs- ing forráðamanna Leiklistar- skólans hálfvolg. Þar er harmað að skólinn „hafi átt þátt í að valda sárindum". Þau eru auka- atriði í þessu máli. Það sem Leiklistarskólanum ber að harma, er að hafa lagst svo lágt að bera út upploginn óhróður um nafngreindan mann. í NT segir Ingibjörg Hafstað mál þetta allt hið fyndnasta. Eg fellst á, að þáttur hennar í því sem fulltrúa kvennalistans í út- varpsráði er hlægilegur. Höfundur er lífeðlisfræóingur og starfar í Osló. KREÐITKORTSF Nýtt úttektartím, INN4R-A! bll hefst Síðasti greiðsludagur yfir- standandi uttektartimabils er 2p^M2. m m WSBmSm. Andrews hitablásarar fyrirgaseðaolíu eru fáanlegir í fjölmörgum stærðum og gerðum ,s» I -;4*l <2 H / Algengustu gerðireru nú fyriHiggjandi Skeljungsbúðin SíÖumúla33 símar 81722 og 38125

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.