Morgunblaðið - 15.11.1985, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR15. NÓVEMBER1985
Flísar
flísaefni
verkfæri
Komið í sýningarsal okkar
og skoðið möguleikana á
notkun Höganás flísa í húsið.
Veljið síðan
Höganás
fyrirmynd
annarraflísa
= HÉÐINN =
SÐJAÆGI2.REYKJ/WK
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
SérhæfÓ þjónusta.
Aóstoóum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
r ; ^
REGGIANA
RIDUTTORI
Drifbúnaóur
fyrirspil o.fl
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRFA WTANIR- WÓNUSTA
Flúðu Sovétríkin á
hjólum og fótgangandi
Stokkhólmi, 14. nóvember. AP.
TVEIR sovéskir stúdentar flúðu í haust bæði fótgangandi og á reiðhjólum
1.000 km. leið frá Sovétríkjunum til Svíþjóðar. Þeir segjast hafa undirbúið
flóttann með því að lesa reyfara um
villtum berjum.
Moskvubúarnir tveir, Alexander
Kuksov og Igor Schram, hófu för
sína 15. ágúst í þorpinu
Petrozavodsk, skammt austan af
finnsku landamærunum.
Að eigin sögn fóru þeir yfir
landamæri Finnlands og Sovét-
ríkjanna við hið afskekkta vatn
Lagoda, dulbúnir sem veiðimenn.
Stúdentarnir komust óhindraðir
leiðar sinnar og voru þá fyrst vissir
um að þeir væru komnir til Vest-
ur-Evrópu, er þeir sáu kókflöskur
og annað rusl liggja á víðavangi,
sem ekki gat verið af sovéskum
uppruna.
I Finnlandi gripu tvímenning-
arnir tvö reiðhjól traustataki og
James Bond og æfa sig í að lifa a
hjóluðu til Svíþjóðar. Á landa-
mærum Svíþjóðar og Finnlands
voru þeir ekki spurðir um vega-
bréf.
Og áfram héldu þeir frá Norð-
ur-Svíþjóð í suðurátt þar til upp
rann 25. október og sovésku stúd-
entarnir komu til bæjarins Sund-
svall á austurströndinni. Þar vék
sér að þeim kona og fór með tví-
menningana til lögreglunnar að
leita sér pólitísks hælis.
Kuskov segir að hann og Schram
hefðu verið þreyttir orðnir á sov-
ésku svikamyllunni og farið eftir
kafla í James Bond bók, þar sem
segir frá því hvernig njósnarinn
sögufrægi flýr frá Sovétríkjunum.
AP/Símamynd
Teygjubyssur notaðar gegn her og lögreglu
Fólk sem stóð að mótmælum gegn herstjórninni í Chile á dögunum,
greip til allra þeirra vopna sem tiltæk voru í baráttu sinni við her og
lögreglu. Þessir ungu menn hafa greinilega rifjað upp bernskudaga
sína og tekið fram teygjubyssurnar, þó ólíkt virðist þær öflugri en þær
sem þá voru notaðar.
Stanley Adams:
Tók tólf ár að vinna sig-
ur yfír skriffræðisbákninu
Eiginkona hans örvilnaðist og stytti sér aldur,
hann missti aieiguna og enginn vildi hann í vinnu
Á lostudaginn var féll dómur í máli, sem svissneski lyfjasérfræðingurinn
Stanley Adams höfðaði gegn samkeppnisnefnd Evrópubandalagsins, þar
sem hann taldi, aö nefndin hefði brugöist trúnaðarskyldu, er hann lagði
henni lið við að afhjúpa óheiðarlega viðskiptahætti stórfyrirtækja í lyfja-
iðnaði. Nefndin var fundin sek um að hafa látið undir höfuð leggjast
að halda hlífiskildi yfir vitninu og dæmd til greiöslu miskabóta.
Það tók Stanley Adams 12 ár
að vinna sigur yfir skrifræðis-
bákninu, og á þeim tíma missti
hann eiginkonu sína, sem örviln-
aðist og framdi sjálfsmorð, auk
þess sem hann tapaði aleigunni
og kom alls staðar að lokuðum
dyrum á vinnumarkaðnum.
Adams skrifaði bók um bar-
áttu sína, auk þess sem gerð var
sjónvarpsmynd um málið, og
hefur hún m.a. verið sýnd í ís-
lenska sjónvarpinu.
„Eg er mjög feginn yfir úrslit-
unum, fullkomlega ánægður,"
sagði Adams, er málalok lágu
•fyrir. ;Dómurinn hefur fallið
mér í vil og EB-nefndin verið
fundin sek um að hafa brugðist
trúnaði sínum við mig.“
Allt til ársins 1973 var Stanley
Adams háttsettur deildarstjóri
hjá svissneska fjölþjóðafyrir-
tækinu Hoffmann-La Roche.
Hinn 25. febrúar á því ári skrif-
aöi hann samkeppnisnefnd Efna-
hagsbandalagsins bréf og greindi
þar frá ólögmætum viðskipta-
háttum svissneskra lyfjafyrir-
tækja, þar á meðal Hoffmann-La
Roche, í löndum bandalagsins.
í október sama ár sagði Adams
starfi sínu lausu og fluttist
ásamt fjölskyldu sinni til Ítalíu,
þar sem hann hóf svínarækt.
En nefndin virti ekki rétt vitn-
isins til nafnleyndar, heldur
afhenti lögmanni Hoffmann-La
Roche pappíra, sem Adams hafði
útvegað, og leiddi það til 'þess,
að unnt reyndist að rekja „lek-
ann“ til hans. Á móti hét lög-
maður fyrirtækisins nefndinni
fullri samvinnu við að upplýsa
málið, jafnframt því sem lofað
var, að ekki yrði reynt að grafast
fyrir um, hver „uppljóstrarinn"
væri, til að sækja hann til saka,
eins og haft hafði verið í hótun-
um um að gera.
Þegar málið kom til meðferðar
hjá EB þverneituðu forráðamenn
Hoffmann-La Roche hins vegar
fyrir að hafa nokkuð óhreint í
pokahorninu. Svindlið, sem fólg-
ið var í óeðlilega háu verðlagi á
vítamínpillum, var engu að síður
stöðvað og fyrirtækið dæmt til
greiðslu um 14 milljóna króna
sektar.
Nefndin hafði ekki haft fyrir
því að gera Adams aðvart um
afhendingu pappíranna eða hót-
anir Hoffmann-La Roche um
málssókn, og þegar hann svo kom
ásamt konu og börnum yfir
landamærin’til Sviss 31. desem;
ber 1974 til þess að taka þátt í
áramótafagnaði með fjölskyld-
unni, var hann tekinn fastur og
ákærður fyrir viðskiptanjósnir.
Var það gert á grundvelli
strangra laga, sem gilda í Sviss
þar að lútandi.
Eiginkona hans var yfirheyrð
og henni sagt, að hún fengi
tæpast að sjá mann sinn aftur.
Tíu dögum seinna þoldi hún álag-
ið ekki lengur og framdi sjálfs-
morð.
Það var ekki fyrr en ári seinna,
að Adams var látinn laus, gegn
tryggingu, og lauk málaferlunum
gegn honum árið 1976 með því,
að hann var dæmdur í eins árs
fangelsi, en það hafði hann þegar
afplánað.
Adams fannst sem samkeppn-
isnefndin hefði farist illa við
hann og fór fram á bætur af
hennar hálfu. En nefndarmenn
voru hinir borubröttustu. og
sögðu, að hann hefði mátt vita
frá fyrstu byrjun, að hann tæki
mikla áhættu með því að veita
upplýsingarnar.
Það var svo í júlí 1983, að
Stanley Adams sá engan annan
útveg en leita réttar síns fyrir
EB-dómstólnum:
I umsögn dómaranna kom eft-
irfarandi m.a. fram: Nefndin átti
að halda hlífiskildi yfir vitninu,
en gerði það ekki. Nefndin átti
að láta hann vita af afhendingu
pappíranna og vara hann við
hótunum Hoffmann-La Roche
um málssókn, en gerði það ekki.
Nefndin mátti undir engum
kringumstæðum ‘ gefa
Hoffmann-La Roche ljósrit af
skjölunum, sem Stanley hafði
afhent henni, en gerði það samt
og stuðlaði þannig að afhjúpun
hans.
Dómurinn gaf málsaðiium níu
mánuði til að komast að niður-
stöðu um upphæð miskabóta.
Náist ekki samkomulag á þeim
tíma, mun dómurinn kveða upp
úrskurð um þær sérstaklega.
„Eg leitaði réttlætisins, þegar
ég sagði til svindlaranna - og það
bar árangur," sagði Stanley
Adams. „Eg vona, að fólk í öllum
löndum fregni af þessum dómi
og skilji, að það er bæði réttur
þess og skylda að segja frá lög-
brotum og óheiðarleika í at-
vinnulífinu og berjast á móti
hrokafullum embættismönnum,
sem reyna að setja fótinn fyrir
það.“
(Byggt á Berlingske Tid-
ende, Politiken og Aktuelt.)
Stanley Adams: „Ég leitaði réttlætisins, þegar ég sagði til svindl-
aranna — og það bar árangur.“
Flytjum í Brautarholt 3
(MJÖLNISHOLT 14)
Opnum meö sýningu á nýjum
INVITA innréttingum föstudaginn
15. nóvember.
ELDASKÁLINN
Nóatún
BRAUTARHOLTI 3 • NYTT SIMANUMER: 621420