Morgunblaðið - 15.11.1985, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 15.11.1985, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR15. NÓVEMBER1985 37 Lína langsokkur — er orðin fertug Lína langsokkur er nú miðaldra, hún átti fertugsaf- mæli þann 26. október sl., eða nánar tiltekið bókin um hana, sem er skrifuð af sænska barnabókahöfundin- um Astrid Lindgren. Hugmyndina að þessari frökku sjálfstæðu stelpu, sem sér um sig sjálf á sinn hátt í heimi hinna fullorðnu, átti í raun og veru tíu ára dóttir skáldkonunnar, Astrid skrifaði nokkrar frásagnir af Línu og gaf dóttur sinni í afmælisgjöf en það var fyrst þegar hún neyddist til þess að liggja nokkrar vikur á sjúkrahúsi sumarið 1945 að Astrid skrifaði sjálfa bókina um Línu iangsokk, sem nú er einhver allra vinsælaáta barnabók i heimi. Sagt hefur verið að bókin hafi selst í 40 milljónum eintaka á hinum ýmsu tungumálum, m.a. hebresku og japönsku. í tilefni afmælisins heimsótti leikkonan Inger Nilsson skáldkonuna í Stokkhólmi og héldu þær upp á afmælið með stærðar stríðstertu — annað var ekki við hæfi. Inger sem nú er 26 ára og nemandi við ieiklistarskólann í Gautaborg, var sú sem lék línu langsokk í sjónvarps- myndinni árið 1969 sem sýnd hefur verið m.a. á íslandi. Lína langsokkur er sterkur persónuleiki og það er því ekki undarlegt að leikkonan hafi fundið fyrir því. Fólk er sífellt að kenna hana við Línu og hún á erfitt með að sannfæra fólk um að hún geti yfirleitt nokkuð annað en leikið hana. Astrid Lindgren er nú 7? ára og hefur dregið sig að mestu leyti í hlé. Hún gerði þó undanþágu vegna af- mælisins og bauð sjónvarpsmönnum í heimsókn þannig að öil þjóðin fékk að vera með í afmælinu. Það hefur verið heilmikið umstang kringum afmælisbarnið nú í ár og Astrid er að vinna með a.m.k. þrjú handrit að nýjum kvikmyndum um hana. Bandaríkjamenn hafa nú fyrst fengið leyfi hennar til að kvikmynda söguna, en skáld- konan var vönd í vali sínu á framleiðanda. „Það sem gerði útslagið á að ég lét til leiðast" sagði hún, „var að hann sagði að amerísk börn þyrftu á einhverri já- kvæðri fyrirmynd að halda í stað alls þess glæpaefnis og ofbeldis sem dynur yfir þau i fjölmiðlum." Pétur Pétursson Lundi „Ég ætia aldrei að verða fullorðin" var viðkvæðið hjá Línu í þáttunum. En nú er sagan orðin fertug og hér eru þær Inger Nilsson sem lék Línu á sínum tíma og Astrid Lindgren að blása á kcrtin. Frá Emmy-verðlaunaafhendingunni 1985 Ekki er ýkja langt síðan Emmy-verð- launin 1985 voru afhent, en éins og fólk hefur eflaust vitneskju um eru þau verðlaun veitt fyrir bestu sjónvarpsmynd- irnar ogleikíþeim. Að þessu sinni hlaut eiginkona Pauls Newman, Joanne Woodward, útnefninguna besta leikkona ársins fyrir leik sinn í myndinni „Do you remember love“. Sú sjónvarpsmynd hlaut einnig verðlaun. Þá fékk Robert Guillaume útnefninguna besti leikari ársins fyrir leik sinn sem Benson og íslendingar muna eflaust eftir þeim þáttum þar sem hann fór á kostum sem þjónn. Þátturinn Cagney og Lacey hlaut einnig verðlaun bæði fyrir leik og ýmis tæknileg gæði. Harry Belafonte og Joseph Kennedy jr. veittu Emmy-verð- launin að þessu sinni fyrir góðar frétta- og sögulegar sjónvarps- myndir. Þessum muna eflaust margir fs- lendingar eftir úr gamanþáttunum þar sem Robert Guillaume var í essinu sínu sem Benson. Robert var valinn besti karlleikari ársins í grínmyndum. Viðtalstími borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í ________Reykjavík Borgarfulltrúar Sjálfstæöisflokksins verða til viötals í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá kl. 10-12. Er þar tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábend- ingum og er öllum borgarbúum boðið að notfæra sér viötalstíma þessa. Laugardaginn 16. nóvember verða til viðtals Hulda Valtýs- dóttir, formaöur Umhverfis- málaráös og i stjórn Kjarvals- staða og Ásmundarsafns, og Jóna Gróa Sigurðardóttir, fuli- trúi í atvinnumálanefnd, fræðsluráði og byggingu stofnana í þágu aldraðra. Jóna Hulda Topp-skótilboð n4.. + Mjúktskinn + Skinnfóðraðir + Leðursólar + 3hælahæðir 6,7,og8sm. Litir: hvítir, svartir, rauðir, brúnir, bláir. Svart og hvítt lakk. Póstsendum. sV TOPP^ —'SKORIKN VELTUSUNDI 1 21212 Ásmundamfn Stjórn Ásmundarsafns hefur látið steypa í brons 5 tölusett eintök af verkinu Tónagyðjan (H:43 sm) eftir Ásmund Sveinsson frá árinu 1926. Myndirnar eru til sýnis og sölu í Ásmundarsafni við Sigtún. Allar upplýsingar eru gefnar í síma 32155. Stjórn Ásmundarsafns.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.