Morgunblaðið - 24.11.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.11.1985, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER1985 Upphaf erlendra sam- skipta í vélsleðaakstri: Þremur vél- sleðaeig- endum boðið til Banda- ríkjanna ÞREMUR félögum úr vélsleda- klúbbnum Meiði hefur verið boðið til Bandaríkjanna, til þriggja vikna dvalar á vegum samtaka vélhjóla- eigenda í Wisconsinríki. í ráði er að bjóða aftur hingað til lands félög- um úr samtökunum vestra, en þetta munu vera fyrstu samskipti vél- hjólaeigenda hér á landi og í Banda- rkjunum á þessu sviði. Ingólfur Guðlaugsson, sem unnið hefur að því að koma þess- um samskiptum á, sagði að þeir félagar myndu fara utan í byrjun janúar og dvelja i fjallakofum í Norðurskógum, en þar hafa samtök vélhjólaeigenda komið sér upp vélsleðabrautum, sem eru um 32 þúsund kílómetrar að lengd. Sagði Ingólfur að aðstaða þarna væri öll önnur en íslend- ingar ættu að venjast enda al- gengt að fjölskyldur dveldu þarna í leyfum við vélsleðaakstur. Ingólfur kvaðst hafa rekist á auglýsingu í bandarísku vélsleða- tímariti þar sem leitað var eftir samskiptum við aðrar þjóðir á þessu sviði, og hefði það verið upphafið að því að þessi sam- skipti íslendinga og Bandaríkja- manna komust á. Sagði Ingólfur að unnið væri að víðtækari sam- vinnu á þessu sviði við samtök vélsleðaeigenda í öðrum ríkjum Bandaríkjanna. INNLENT Hress hópur skömmu eftir komuna til íslands. CJ. Carlos situr fyrir miðju, Evelyn Ford stendur þriðja frá vinstri. Henni á hægri hönd er einn vinnings- hafanna, Nick Loizides. Lengst til hægri er Jónatan Garðarsson hjá Steinum hf„ næstur er Carl Collins, einn vinningshafanna, þá blaðamaðurinn Mark Webster og næstur þriðji vinningshafinn, Chris Doggett. MorgunblaðiS/RAX „Varð mér útium landakort til að sjá hvar í sland væri“ Breskir sigurvegarar í spurningakeppni um ísland hér á landi um helgina „ÞAÐ FYRSTA sem mér dettur í hug er Mezzoforte... heitir hverir og fiskur... hvað það á alltaf að vera kalt hérna hjá ykkur...“ Hópur frá Bretlandi kom hingað til lands í fyrrakvöld á vegum Steina hf„ Hollywood og Flugleiða — og þannig voru svörin við spurningu blaðamanns um hvað þeim kæmi fyrst í hug þegar ísland væri nefnt. Þrír sigurvegarar í spurninga- keppni um ísland í tónlistarritinu „Blues & Soul“, gestir þeirra, plötusnúðurinn C.J. Carlos, blaða- maðurinn Mark Webster frá „Blues & Soul“ og Evelyn Ford, einkaritari Steinars Berg, for- stjóra Steinar Records (UK) Ltd., dvelja hér um helgina. Eins og Morgunblaðið sagði frá á föstu- daginn gengust Steinar fyrir spurningakeppni í samvinnu við Hollywood og Flugleiðir og sigur- vegararnir þrír hlutu þessa helg- arferð í vinning. „Dans-helgi á fslandi" mætti kalla ferðina, en hugmyndin er fyrst og fremst að kynna skemmtanalíf borgarinnar og C.J. Carlos verður einmitt í diskótekinu í Hollywood um helg- ina. Carl Collins, Nick Loizides og Chris Doggett eru nöfn sigurveg- aranna þriggja. „Mér finnst þetta mjög góð hugmynd hjá íslensku fyrirtækj- unum — hún gæti orðið til þess að kynna ísland rækilega á Bret- landi. Ef ekki væri fyrir þessa ferð vissi ég ekki hvar ísland væri í heiminum," sagði einn þeirra. „Ég verð að viðurkenna að þegar mér var sagt að ég hefði hreppt ferð hingað til lands í vinning varð ég mér úti um landa- kort til að komast að því hvar ísland væri í heiminum! Ég vissi reyndar að það væri einhvers staðar í norðri," sagði annar. Sá þriðji sagðist muna eftir íslandi — „þegar köldu vindarnir fóru að blása hjá okkur í haust þá sýndi veðurfræðingurinn okkur ísland á kortinu ...“ Bretarnir hrifust að sögn af íslandi og fslendingum þann stutta tíma sem þeir höfðu dvalið hér er blaðamaður hitti þá að máli. Það kom þeim mjög á óvart hve veðrið var gott við komuna til fslands — „fjarri því sem maður hafði gert sér í hugarlund. Það var eins gott að maður fór ekki að fata sig upp, byrgja sig upp af lopapeysum og öðrum vetrarfatnaði," sagði einn þeirra. Blaðamaðurinn Mark Webster sagðist myndu skrifa grein um ferðina í blað sitt, um skemmt- analífið í Reykjavík og annað sem honum fyndist áhugavert auk þess sem hann myndi eiga viðtal við meðlimi Mezzoforte — en Bretarnir töluðu mikið um hve hljómsveitin væri góð — „frábær- ir hljóðfæraleikarar, strákarnir," sögðu þeir. Þeir töluðu um hve snyrtilegt hér virtist vera, rólegt og notalegt. „Ekki sama örtröðin alls staðar og í London.“ Plötusnúðurinn C.J. Carlos sagðist hafa heyrt að íslendingar væru mjög tillitssamir við menn í sinni starfsstétt og vonaðist eftir góðum undirtektum. „Ég leik mest soul- og jazz-músík og vona að það hljóti góðar undirtektir hér; óskaðu mér alls hins besta. Ég vona bara að það verði ekki baulað á mig... Mér er sagt að þið fylgist mjög vel með í tónlist- arheiminum þannig að ég hræðist ekkert." Athyglisverð nýjung á Akranesi: Hannaði tölvustýrða snittvél til framleiðslu á rörbútum Akranesi, 22. nóvember. ÞRÁINN Sigurðsson vélstjórí og kennari við Fjölbrautaskólann á Akra- nesi hefur hafið framleiðslu á snittuðum rörbútum sem notaðir eru við pípulagnir. Ekki nóg með það, hann hefur einnig smíðað sjálfur alsjálf- virka tölvustýrða vél til framleiðslunnar. Þráinn Sigurðsson við vélina, sem hann hefur hannað. Ég heimsótti Þráin og fékk að fylgjast með framleiðslunni og spyrja hann nokkurra spurninga um þetta fyrirtæki hans sem hann nefnir Skertækni. Hver er aðdragandinn að þessari framleiðslu þinni? — Það var nú fyrst og fremst innflutningurinn á þessari vöru. Mér fannst ótækt að mikið af þessum hlutum skuli hafa verið flutt inn til landsins þegar til- tölulega auðvelt á að vera að framleiða þetta hér heima. Það er nú aðdragandinn að þessu hjá mér. Og þú smíðaðir vélina sjálfur. Hvers vegna? — Ég kannaði fyrst hvað svona vélar kostuðu og komst að því að þær voru óheyrilega dýrar, þannig að ég ákvað að reyna við þetta sjálfur. Ég hafði reyndar aldrei séð vél sem gerir þessa hluti, svo hún er alfarið mín eigin hugmynd. Og hvernig vinnur vélin? — Ég kaupi 6 m löng rör og saga þau niður í búta 3 og upp í 10 cm langa. Til þess verks nota ég sjálfvirka sög sem ég keypti tilbúna. Eftir að rörin hafa verið bútuð, fara bútarnir í snittvélina sem snittar þá samtímis í báða enda og skilar þeim fullunnum frá sér. Vélin getur framleitt 300 búta á klukkustund og ég er fullviss um að ég get annað öllum innan- landsmarkaðinum fyrir rörbúta. Tegundirnar, sem framleiddar eru, eru um 90 talsins en misjafnt er hve mikil þörf er fyrir einstak- ar stærðir. Þráinn segir að mest fari af hálftommunni. Það tekur tíma að komast á markaðinn en í dag legg ég mest upp úr því að treysta hann. Hvernig hafa viðtökurnar verið? — Ég þarf ekkert að kvarta í þeim efnum, þetta tekur allt sinn tíma en því er ekki að neita að í byrjun eru kaupmenn dálítið varkárir. Það hefur verið þannig á liðnum árum að einstaklingar hafa verið að framleiða svona búta í venjulegum snittvélum og þess vegna eru kaupmenn á varð- bergi, þar sem þessir menn hafa ekki getað annað þörfinni þegar á reyndi. Þráinn selur fram- leiðsluna eingöngu í verslanir og hefur sett hana í smekklegar umbúðir. Hvernig hefur gengið að fjár- magna þetta ævintýrí? —Ég veit nú ekki nákvæmlega um kostnaðinn en þó er víst að hann er miklu minni en ef ég hefði kevpt þær vélar sem mér buðust. Eg hef notið góðs stuðn- ings t.d. Iðnlánasjóðs og Iðn- tæknistofnunar sem hafa verið mjög jákvæð gagnvart þessu og sýnt málinu bæði áhuga og skiln- ing. Hvernig leggst svo framhaldið í þig? —Bara vel. Það er að vísu nokkuð þungt að komast inn á markaðinn þar sem öll sala bygg- ist mikið á auglýsingum og til þeirra þarf mikið fjármagn ef vel á að vera. Það eykur kannski bjartsýni mína að ég get boðið mjög samkeppnisfært verð. Þess má að lokum geta að Þrá- inn hefur orðið var við mikinn áhuga hjá tæknimenntuðum mönnum fyrir þessari nýju vél. M.a. kom Jón Gunnlaugsson vél- tæknifræðingur forstjóri Iðn- tækni hf. til mín fyrir skömmu og sagði að þetta væri með at- hyglisverðustu nýjungum sem fram hefðu komið að undan- förnu. Svona viðbrögð örva mann mikið og maður fyllist stolti yfir því að hafa gert eitthvað sem máli skiptir, sagði Þráinn Sig- urðsson að lokum. JG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.