Morgunblaðið - 24.11.1985, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 24.11.1985, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER1985 ÞórðurJ. Magnúsr son - Minningarorð Kveðja frá Norræna félaginu í Kópavogi Á morgun verður til moldar borinn ritari Norræna félagsins í Kópavogi, Þórður J. Magnússon, fyrrum verslunarmaður, sem and- aðist á heimili sínu, Vallartröð 3 þar í bæ, 15. þ.m. Hann hét fullu nafni Þórður Jóhann, og fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð 24. september 1910. Foreldrar hans, sem bæði voru Önfirðingar að ætt, voru þá búsett á Suðureyri, en fluttust aftur á heimaslóðir þegar Þórður var fimm ára gamall, fyrst að Selabóli í Önundarfirði, en síðar til Flat- eyrar, þar sem þau voru lengst af. Móðir Þórðar var Ingibjörg Guð- rún Guðbjartsdóttir. en faðir Magnús Kristján Halldórsson skipstjóri. Föður sinn missti Þórð- ur tólf ára gamall og fór upp úr því að Hjarðarbóli í Önundarfirði. Var hann þar fyrst sumartíma, en ílentist svo næstu árin á Hjarðar- bóli hjá Guðmundi Gilssyni og Sigríði Hagalínsdóttur, foreldrum Gils Guðmundssonar rithöfundar. Var eftir það mikið vinfengi með Þórði og því fólki. Um tvítugt settist Þórður á skólabekk og var tvo vetur, 1931— 33, í Héraðsskólanum á Laugar- vatni. Ungur fór hann að vinna fyrir sér ásamt bræðrum sínum, og lá þá leiðin á sjóinn. Sagðist Þórður ýmist hafa verið háseti eða vélamaður á skólaárum sínum, fyrst á bátum og seinna á togurum, 1930—38, enda sótti hann vél- stjóranámskeið heima á Flateyri 1935. Það haust settist hann í Samvinnuskólann og lauk þar prófi með ágætum árangri vorið eftir. Þó hafði hann ekki getað sinnt náminu óskiptur allan vetur- inn, því að skólinn var byrjaður fyrir nokkru þegar Þórður kom þangað um haustið. Hann var þá í siglingu, varð að ljúka túr áður en hann sneri sér að fræðunum, og segir það auðvitað sína sögu um, hve hart var barist. Árin 1938—43 var Þórður utanbúðarmaður hjá Kaupfélagi Önfirðinga á Flateyri sem kallað var; þá var hann lengst af verkstjóri við fiskverkun og fleira. Skamma hríð var hann kaupfélagsstjóri á Patreksfirði lýðveldishátíðarárið, en tók svo sama ár við starfi kaupfélags- stjóra á Flateyri af Hirti Hjartar og gegndi því fjögur ár. Eftir það fluttist Þórður suður og var part úr ári við rekstur frystihúss í Hafnarfirði, en eftir það starfs- maður Búvörudeildar SÍS í Reykjavík, lengst sölustjóri, röska þrjá áratugi, 1949—81, er hann hætti störfum. í janúar 1943 kvæntist Þórður Önnu Tryggvadóttur frá Flateyri sem lifir mann sinn. Hún fæddist á Þingeyri, en fluttist kornung til Flateyrar með foreldrum sínum, Margréti Eggertsdóttur sem enn er á lífi, ættuð frá Kleifum í Seyð- isfirði við Djúp, og Tryggva Jóns- syni sem kenndi sig við Fjalla- skaga. Þegar Anna fæddist var faðir hennar sjómaður á Þingeyri, en bæði áður og síðar verslunar- maður þar og á Flateyri og hjá Tóbakseinkasölu ríkisins í Reykja- vík eftir að þau fluttust suður. Heimili Þórðar og Önnu hér syðra var á Vallartröð 3 í Kópa- vogi. Þau eignuðust einn son, Tryggva Magnús vélaverkfræðing, sem á eitt barn, Agnesi Þöll, sem nú er komin hátt á þriðja ár. í félagsmálum kom Þórður J. Magnússon víða við, og gildir það raunar einnig um Önnu konu hans og er ekki neitt undrunarefni þeim sem til þekkja. Hann sat í hrepps- nefnd á Flateyri árin sem hann var kaupfélagsstjóri þar, en var jafnframt formaður sjúkrasam- lagsstjórnarinnar um skeið og sá um rekstur sjúkrasamlagsins. Hann var einn af 12 stofnendum Verkalýðsfélagsins Skjaldar á Flateyri og í stjórn íþróttafélags- ins Grettis og í forystu fyrir þess- um félögum á fjórða og fimmta áratugnum. Eftir að suður kom varð Þórður fljótt einn þeirra sem drjúgan hlut áttu að uppbyggingu hrepps- og bæjarfélags í Kópavogi og voru honum falin þar ýmis trúnaðarstörf. Hann var t.d. for- maður sjúkrasamlagsins þar 1952—77 og í sóknarnefnd Digra- ness um árabil. En ekki var nóg með það, því að auk þess tók hann þátt í almennu félagsstarfi, m.a. hjá samvinnumönnum. Hann sat í stjórn og trúnaðarráði Starfs- mannafélags SlS 1966—80 og var annar tveggja fulltrúa starfsfólks- ins, sem fyrstir voru kjörnir í stjórn SÍS, sat þar tvö tímabil, 1976—80, eftir að fulltrúar sam- vinnustarfsmanna fengu sæti í stjórninni. Formaður Lionsklúbbs í Kópavogi var Þórður 1975—76 og ritari í stjórn Norræna félags- ins þar frá 1969 til dauðadags. Jafnframt var hann annar af endurskoðendum Norræna félags- ins á fslandi mörg síðustu árin. Kynni okkar Þórðar hófust 1981, árið sem hann hætti störfum hjá búvörudeildinni og ég var kjörinn í stjórn Norræna félagsins í Kópa- vogi, sem nú hefur orðið fyrir einu áfallinu enn á skömmum tíma. Eiginlega var það Hjálmar heitinn ólafsson sem leiddi okkur Þórð saman, en nú eru þeir báðir horfnir ásamt fleirum af þeim sem félagið stofnuðu eða voru þar framarlega í sveit undanfarna tvo áratugi. Við Þórður hittumst fyrst á fundi í Norræna félaginu, og það var líka á fundi þar sem við sáumst i síðasta sinn tveimur dögum áður en hann lést. Grænlendingar voru væntanlegir í heimsókn, og við vorum að undirbúa haustvöku sem haldin var í síðustu viku. Við kvöddumst hressilega, og eins og oft áður sló Þórður á létta strengi í sama mund og hann hélt heim með fundargerðabókina undir handleggnum. Að kvöldi 15. þ.m. barst mér andlátsfregn hans, en einmitt þann dag var hann boðinn til hófs sem Sjúkrasamlag Kópa- vogs hélt til þess að minnast aldar- fjórðungs afmælis. I staðinn gekk hann inn í fögnuð herra síns, og nú verða aðrir að færa inn fundar- gerðirnar. Síðustu árin gekk hann ekki heill til skógar. Áreiðanlega hefur það ekki alls kostar átt við skap- lyndi hans, þó að hann léti ekki mikið á því bera. Mér fannst hann of mikill snerpu- og ákafamaður til þess að ég geti ímyndað mér, að það hefði látið honum vel að lifa til lengdar hálfur maður. En hann tók áföllunum karlmannlega, og nú er glímunni lokið. Fyrr í haust fögnuðu vinir hans með honum 75 ára afmæli, og nokkrum dögum seinna vorum við saman á sambandsþingi Norræna félagsins í Munaðarnesi. Þá var Þórður minn hress og kátur eins og mér fannst standa eðli hans miklu nær en að leggjast í sorg og sút. Fyrir síðasta aðalfund Norræna félags- ins í Kópavogi í haust hafði hann orð á því við mig að hann vildi fara að draga sig í hlé sem auðvit- að var skiljanlegt, en ég fékk hann til að róa eina vertíð enn. Þegar það var ráðið var hann alveg sáttur við þá ákvörðun, enda held ég, að í aðra röndina hafi honum líka þótt vænt um að þurfa ekki að slíta öll félagsbönd í einu, og nú þykir mér vænt um að geta litið um öxl til þeirra daga sem við áttum saman í haust. Þótt kynni okkar væru ekki löng og aldursmunurinn meiri en þrír áratugir, held ég að mér sé óhætt að segja að við Þórður höfum orðið góðir vinir. í barmi hans sló heitt hjarta, og lífsviðhorfs hans var mér að skapi, enda lágu leiðir okkar saman í starfi fyrir sameig- inlegri hugsjón sem við töldum svo sjálfsagða að vart þyrfti að ræða. Fyrir hönd stjórnar og félaga í Norræna félaginu í Kópavogi er honum að leiðarlokum þakkað allt sem hann vann því. Margs er að minnast frá síðustu árum, en þess umfram allt, hve gaman var að vera með Þórði og mannbætandi þegar fundum bar saman, og þá kemur mér Anna jafnan í hug um leið; það var svo heimilislegt að vera með þeim. Steinunn kona mín og hún telja til skyldleika, og 1982 fórum við í vinabæjarheimsókn til Tampere um hásumarið. Hún varð áfangi sem flýtti fyrir góðum og skemmti- legum kynnum. Af þessum dögum í Finnlandi fyrir þremur árum leggur birtu í minningunni, enda var þá oft glatt á hjalla, hvort sem unglingnum var lesinn lesturinn um uppbyggingu Kópavogs á þeim árum sem hann var að alast upp norður í landi eða höfð uppi gam- anmál og setið að snæðingi á rúss- neskum veitingastað í Helsinki. Hér heima bar við að þau hjón kæmu til okkar, en oftar var það þó á hinn veginn, og aldrei hef ég komið svo á kyrrlátt og fallegt heimili þeirra á Vallartröð 3 að mér hafi ekki hlýnað um hjartar- ætur. Það lá þar í loftinu eitthvað gott sem er auðfundið, en ekki verður fyrirvaralaust með orðum lýst. Einu sinni í haust áttum við Þórður rólega síðdegisstund þar heima og spjölluðum um sitt af hverju í mikilli alvöru. Þá strengdi ég þess heit að þær skyldu verða fleiri, en nú hefur sá tekið í taum- ana sem mér er máttugri. Þórður sagði mér að vestan, og við höfðum um nóg að tala. Prest- urinn hans þar forðum var ættað- ur af sömu slóðum og ég og ömmubróðir minn einn af kennur- um hans á Laugarvatni, svo að það fór eins og jafnan þegar íslending- ar fara að tala hver við annan; maður þekkir mann, og orð kvikn- ar af orði. og svo ræddum við um lífið og tilveruna. Kreppan skall yfir þegar Þórður var um tvítugt. Ekki er ég í vafa um að hugur hans hefur þá staðið til lengra skólanáms og meiri menntunar og undirbúnings fyrir lífið en tímarnir og efnin Ieyfðu fátækum pilti að vestan þegar sjálfur skóli lífsins heimtaði að hann gengi undir fyrstu prófin. En hann stóðst þau með prýði og var svo vel af guði gerður og sá gæfu- og bjartsýnismaður að ljósið nægði til þess að eyða skuggunum. Skapgerð Þórðar og viðhorf mót- uðust af mannúð og dugnaði, og góðvild og kímnigáfa sem hann var svo heppinn að fá vel út vegna í vöggugjöf gerðu honum auðvelt samstarfið og kynnin við aðra menn. Reynslan var mikil og margþætt og gott fyrir þá sem yngri voru að leita hjá honum ráða og leiðsagnar. Mér virtist hann vera fæddur félagshyggjumaður og lífsreynsla hans á þeim árum sem hugsjón samvinnu og jafnaðar réð ferðinni í þjóðmálum hafa fært honum heim sanninn um að mannlegu félagi vegnaði best og erfiðir hnútar yrðu auðleystari en ella, ef frelsi, jafnrétti og bræðra- lag væri haft að leiðarljósi, en hver maður virti þó annan og legði sitt af mörkum og fengi notið hæfileika sinna sem einstaklingur. Þórður vissi vel, að sjónarmið eru mörg og ólík, og þó að hann væri fastur fyrir þegar því var að skipta, var hann sáttfús og hrein- skilinn. Kynni okkar Þórðar J. Magnús- sonar voru stutt, en góð, og nú sakna ég þess að samverustundirn- ar verða ekki fleiri. Aðstandendum hans votta ég samúð mína. Hann vildi stefna öllu til meiri hamingju og þroska. Slíkra er gott að minnast og æ betra eftir því sem árin líða. Hjörtur Pálsson Á morgun mánudaginn 25. nóv- ember. verður kvaddur frá Kópa- vogskirkju Þórður Jóhann Magn- ússon, Vallartröð 3, Kópavogi, en hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 15. þ.m. 75 ára að aldri. Þórður Jóhann var fæddur 24. september 1910 á Suðureyri við Súgandafjörð. Foreldrar hans voru Magnús Kristján Halldórsson, skipstjóri lengst af á Flateyri og konu hans Ingibjörgu Guðrúnu Guðbjartsdóttur. Þórður stundaði nám við héraðs- skólann á Laugarvatni 1931 — 1933, og lauk Samvinnuskólaprófi 1936 eftir eins árs nám. Þórður stundaði margháttuð störf vestra. Hann stundaði sjómennsku á ár- unum 1930—1938 m.a. sem vél- stjóri en hann hafði lokið vél- stjóranámskeiði á Flateyri 1935. Verkstjóri var hann á Flateyri m.a. við fiskverkun 1938—1943 og kaupfélagsstjóri var hann fyrst á Patreksfirði 1944 og síðan á Flat- eyri 1944—1948. Lengst starfaði hann þó sem starfsmaður búvöru- deildar sambandsins í Reykjavik eða frá 1949 til 1981 lengst af sem sölustjóri. Þórður Jóhann var mikill félags- málamaður og áhugamaður um allt er höfðaði til almeningsheilla. Fyrir vestan var hann í stjórn íþróttafélagsins Grettis og Verka- lýðsfélagsins Skjaldar um ára- tugaskeið. Hann sat í hreppsnefnd Flateyrarhrepps 1946—1948 og var formaður og annaðist rekstur sjúkrasamlags Flateyrar á sama tíma. Það var í kringum 1960 sem ég kynntist Þórði Jóhanni Magnús- syni og þau kynni hafa staðið æ síðan. Atvikin höguðu því svo til + Maðurinn minn, faöir og afi, ÞÓRDUR JÓHANN MAGNÚSSON fré Flateyri, Vallartröö 3, Kópavogi, veröur jarösunginn frá Kópavogskirkju mánudaginn 25. nóvember kl. 13.30. Anna Tryggvadóttir, Tryggvi Magnús Þóröarson, Agnes Þöll Tryggvadóttir. t Elsku sonur okkar og bróöir, FINNUR KRISTJÁN HALLDÓRSSON Borgarvegi 32, Njarövík, verður jarösunginn frá Ytri-Njarövíkurkirkju þriöjudaginn 26. nóv- emberkl. 13.30. Jenný Jónsdóttir, Halldór Arason, systkini og aörir aöstandendur. að við urðum nágrannar í Kópa- vogi og leiðir okkar lágu saman á mörgum sviðum. Við störfuðum saman í stjórn Sjúkrasamlags Kópavogs um árabil. Þar var Þórð- ur formaður 1952—1977. Unnum við saman margháttuð störf á vegum Norræna félagsins í Kópa- vogi, en þar var Þórður Jóhann í stjórn Norræna félagsins allar götur frá árinu 1969, og síðar var hann félagskjörinn endurskoðandi Norræna félagsins á íslandi. Þórð- ur Jóhann var meðal elstu félaga í Lionsklúbbi Kópavogs og áttum við þar ánægjuleg samskipti yfir tvo áratugi. Hann gegndi mörgum trúnaðar- störfum í þágu Lionsklúbbsins og var m.a. formaður hans 1975— 1976. Hann lét sér mjög annt um Lionsklúbbinn og gerði sér far um að gera veg hans sem mestan í þágu góðra málefna. Eins og af framanrituðu er ljóst kom Þórður víða við á félagsmálasviðinu og lét sér fátt mannlegt óviðkomandi. Þórður var ákaflega hreinskipt- inn maður í öllum þeim störfum sem ég hafði af honum kynni. Hann var sérsaklega fljótur að aðskilja aukaatriði frá aðalatrið- um og af því leiddi að hann var mjög eftirsóttur til starfa þar sem slikir hæfileikar nutu sín best. Hann hafði ríkt skopskyn o gnaut sín vel í góðra vina hópi. Hinsvegar vissi ég ekki til þess að hann ætti sér óvildarmenn. Hann vann störf sín af stakri samviskusemi og framgangur þeirra mála sem hann fylgdi eftir voru honum ofar í huga heldur en verkalaunin. Hann átti það til að vera gagnrýnin á menn og málefni en lét viðkomandi njóta sannmælis. Þórður Jóhann var litríkur per- sónuleiki, hann var vel lesinn og margfróður. Enda greindur vel og fjölmenntaður. Hann var góður hagyrðingur þótt hann flíkaði því ekki. Hann var trúmaður og var um árabil í sóknarnefnd Digra- ness. Þórður lætur eftir sig eigin- konu önnu Tryggvadóttur frá Flateyri er hann kvæntist 1943 og áttu þau einn son, Tryggva Magn- ús, vélaverkfræðing, sem fæddist 1956. Þórðar Jóhanns er sárt saknað af öllum sem þekktu hann náið og vil ég þakka honum samfylgdina um leið og votta ástvinum hans öllum, dýpstu samúð. Að leiðarlokum læt ég fylgja þetta ljóð sem hann sendi mér fyrir nokkrum dögum með passíu- sálrnum Séra Hallgríms sem hann færði mér í afmælisgjöf. I þrjú hundruð ár hafa þessi ljóð þurrkað út tár hjá okkar þjóð. Áfram þau munu um aldir enn auðveldast sefa hrellda menn. Þ.J.M. Gunnar R. Magnússon. Deyr fé, deyja frændr, deyr sjálfr it sama, en orðstír deyr aldregi, hveim sér góðan getr. Hann Þórður Magnússon er dá- inn, þannig hljómuðu tíðindin síð- astliðinn föstudag. Hann Dúddi frændi, sem var svo hress fyrir svo stuttu þrátt fyrir sjötíu og fimm árin, sem hann var nýbúinn að fylla. Það var erfitt fyrir jafn mikinn athafnamann eins og hann var alla tíð, að þurfa að hætta að vinna fullan vinnudag, og þegar heilsunni fór að hraka átti hann erfitt, því orka hugans hafði ekki dvínað. Hann var ætíð hress og kátur, hrókur alls fagnaðar í hvert sinn sem hann og fjölskylda hans kom vestur á Flateyri, eða þegar við komum í Kópavog á Vallartröðina. Með þessum fátæklegu línum langar okkur að þakka honum samfylgdina gegnum árin og við- kynningu í þeim höfðingja, vin og frænda, sem við áttum í honum. Það er erfitt að trúa því að við eigum ekki eftir að hittast aftur hér á jörðu, en vegir Guðs eru órannsakanlegir. Elsku Anna og Tryggvi Magnús, megi minningin um góðan eigin- mann og föður hjálpa ykkur að sigrast á hinni djúpu sorg. Fjölskyldurnar Grundarstíg 2, Flateyri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.